Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Page 2
Á að giska fjörutíu manns af báðum kynjum eru sam­ ankomin á kaffistofu Sam­ hjálpar þegar blaðamann DV ber að garði. Fólkið er komið til að fá sér heitan hádegis­ mat. Tilgangur kaffistofunnar er að veita bjargir til þeirra einstaklinga sem halloka hafa farið í lífinu, til að mynda vegna sjúkdóma eða fátækt­ ar. En eins og Ragnhildur G. Guð­ mundsdóttir, formaður Mæðra­ styrksnefndar bendir á, þá haldast sjúkdómar og fátækt oft í hendur. „Ef fólk er heilsulítið er voðinn vís og þá fara peningarnir hratt,“ segir Ragnhildur. Skildi og varð öryrki Blaðamaður gefur sig á tal við konu sem situr að snæðingi. Hún fellst á að segja honum sitt hvað um sjálfa sig gegn því að nafns hennar verði ekki getið. Hún kýs að kalla sig Elsu. Hún þurfti að hætta störfum vegna veikinda og varð öryrki. Áður en Elsa varð öryrki starfaði hún í mörg ár í fiskvinnslu. „Svo sagði ég upp þar því yfirmönnunum mínum fannst of mikið að borga mér 600 krónur á tímann. Þegar ég hætti í fiskvinnsl­ unni hóf ég störf sem hótel þerna. Það var mjög fínt. En ég skildi við eiginmann minn þegar ég hafði ver­ ið hótelþerna í um eitt ár. Þá byrj­ uðu veikindin mín. Þess vegna hætti ég störfum sem hótelþerna.“ Elsa býr nú í íbúð á vegum félagsmála­ stofnunar. Leitaði í ruslatunnum eftir mat „Ég borðaði mat upp úr ruslatunnum áður en ég kynntist starfi kaffistofu Samhjálpar einfaldlega vegna þess að ég hafði ekki efni á mat. Félags­ ráðgjafi nokkur benti mér á að fara í Samhjálp til að fá að borða þegar mig vantaði pening fyrir mat en af ein­ hverri ástæðu sem ég get ekki útskýrt í dag, leitaði ég frekar í ruslatunnum á bakvið hús í vesturbæ Reykjavíkur.“ Kolbrún Pálína Hallþórsdóttir, starfsmaður kaffistofu Samhjálpar segir fólk oft ekki vilja leita á kaffi­ stofu Samhjálpar því það haldi að kaffistofan sé eingöngu fyrir úti­ gangsfólk. „Við förum ekki í mann­ greinarálit hérna hjá Samhjálp. Hingað leitar alls konar fólk, og það er mikill misskilningur að einung­ is útigangsfólk sæki hingað til að fá sér að borða. Við bjóðum alla þá sem þurfa á aðstoð að halda velkomna, en vegna þessa misskilnings hefur fólk, sem glímir við fátækt, stundum verið tregt til að leita hingað,“ segir Kolbrún Pálína. Finnur oft nytjahluti í ruslinu Elsa fær um 160.000 kr. í örorkubætur á mánuði eftir skatt og segir þá upp­ hæð ekki duga henni til að kaupa mat fyrir sig allan mánuðinn. Útgjöldin séu of há og örorkubæturnar of lágar. Hún segist þó enn leita í ruslatunnur ef hana vanti hluti í íbúðina sína sem hún hefur ekki efni á að kaupa. „Ég á til dæmis rosalega góða kaffivél sem ég fann í ruslatunnu. Sömu sögu má segja um útvarpsvekjaraklukkuna mína. Hún virkar mjög vel.“ Maður sem gefur sig á tal við okk­ ur segist vera „sérfræðingur í að leita að mat í ruslatunnum.“ Spurður nánar hvað hann meini með því, segist hann oft hafa farið bakvið stórmarkaði í leit að mat. Hann sé þó, líkt og Elsa, hættur því eftir að hann hóf að sækja kaffistofu Samhjálpar heim og fá mat þar. Hann bætir við að það sé orðið erfiðara fyr­ ir fólk að leita sér að mat í ruslatunn­ um því stórmarkaðir séu sumir farnir að læsa gámunum. „Það er alltaf einn og einn sem gengur ekki frá eftir sig og þess vegna hafa sumir stórmarkað­ ir tekið upp á þessu.“ Hann segir bæt­ ur hans, líkt og bætur Elsu, ekki alltaf duga fyrir mat. Þó reyni hann að koma sem oftast í kaffistofu Samhjálpar til að fá heitan hádegisverð. Leið hræðilega Áður en Elsa kynntist starfi Sam­ hjálpar borðaði hún nær eingöngu núðlusúpur heima hjá sér samfara því að hirða mat úr ruslatunnum. „Ég gerði það til að geta leyft mér eitthvað smáræði í lífinu,“ útskýrir hún. Ásamt því að finna nytjahluti í rusli, segist hún drýgja bæturn­ ar með því að tína dósir úr rusla­ tunnum. „Ég fer fjórum sinnum í viku að tína dósir. Fyrir það fæ ég kannski 5.000 krónur ef ég er mjög dugleg. Mun meiri samkeppni er í dósatínslu í Reykjavík eftir banka­ hrunið 2008. Það eru alltaf nokkr­ ir á stjái að tína dósir á nóttunni.“ Hún segir örorkubæturnar duga lengur eftir að hún hóf að borða hádegismat á Kaffistofu Samhjálp­ ar. „Á þeim tíma sem ég leitaði að mat í ruslatunnunum leið mér hræðilega.“ Aldrei fengið ökuréttindi Lögreglan á höfuðborgarsvæð­ inu stöðvaði bifreið í austur­ borginni á mánudagskvöld, en ökumaður bifreiðarinnar var grunaður um ölvun við akstur. Maðurinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Hann hafði áður verið sviptur öku­ réttindum en var látinn laus eftir sýnatöku. Um fjögurleytið aðfaranótt þriðjudags var öku­ maður stöðvaður í Breiðholti við reglubundið eftirlit. Maður­ inn reyndist án ökuréttinda og hafði raunar aldrei öðlast slík réttindi. Þá vaknaði grunur um að hann væri undir áhrifum fíkniefna og var hann því hand­ tekinn og fluttur á lögreglustöð til hefðbundinna rannsókna. Þá voru skráningarmerki bifreiðar­ innar tekin af vegna vanrækslu á skoðun. Hann var svo látinn laus að lokinni skýrslutöku.  Kannabispartí í miðborginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að húsi í miðborginni aðfaranótt þriðjudags vegna há­ værs samkvæmis. Samkvæmisgestir komu ekki til dyra þegar bankað var upp á en það gerði hins vegar megn kannabislykt og því tilefni til frekari aðgerða lögreglu. Í íbúðinni voru þrír aðilar sem viðurkenndu vörslu á kannabisefnum. Málinu var svo lokið með skýrslutöku á vett­ vangi. Gæsir ollu óhappi Rétt fyrir klukkan hálf ellefu á mánudagskvöld varð umferðar­ óhapp á Hringbraut, vestan Njarðargötu. Ökumaður hafði stöðvað á akbrautinni fyrir gæsahópi sem var á leið yfir ak­ brautina og ökumenn tveggja bif­ reiða þar fyrir aftan gerðu slíkt hið sama. Sá fjórði náði ekki að stöðva og ók aftan á öftustu bifreiðina. Við það kviknaði eldur í umrædd­ um bifreiðum. Engan sakaði en að sögn lög­ reglu var ökumönnum nokkuð brugðið eftir atvikið. n Bæturnar dugðu ekki fyrir mat n Fátækt tilkomin vegna brotalama í kerfinu Borðaði upp úr ruslatunnum „Ég hafði ekki efni á mat Elín Ingimundardóttir blaðamaður skrifar elin@dv.is Finnur nytjahluti í ruslinu Elsa segir að hún finni ýmislegt í ruslinu sem hún hafi ekki efni á að kaupa í búðum, t.d. kaffivél og útvarps- vekjaraklukku. 2 Fréttir 25. júlí 2012 Miðvikudagur Kaffistofa Samhjálpar Hingað leita margir sem ekki eiga efni á mat.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.