Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Page 3
Bæturnar fyrir neðan
allar hellur
Ljóst er að Elsa hefur lifað í fá-
tækt eftir að hún veiktist og ör-
orkubæturnar duga ekki ef hún
leiti ekki til Samhjálpar til að fá
heitan mat í hádeginu. Ragnhild-
ur, formaður Mæðrastyrksnefnd-
ar, segir bæturnar á Íslandi, það
er örorku- og atvinnuleysisbætur
vera fyrir neðan allar hellur. „Þá
er miðað við lægstu laun en málið
er að lægstu launin eru þess eðl-
is að ekki er hægt að lifa af þeim,“
segir Ragnhildur.
Fátækt er samfélagslegt
vandamál
Harpa Njálsdóttir, félagsfræðing-
ur og fræðimaður um fátækt á
Íslandi segir að skilaboðin í ís-
lensku samfélagi til þeirra sem
glíma við sára fátækt vera bein-
línis röng. „Skilaboðin hafa verið
og eru enn sú að það sé einstak-
lingunum sjálfum að kenna ef þeir
eru fátækir.“ Hún segir umræðuna
um fátækt þar að auki ekki tekna
nógu alvarlega. „Það á að líta á
fátækt fólks sem vandamál allra,
það er vandamál samfélagsins í
heild en ekki einungis vandamál
fólksins sjálfs sem lifir í fátækt. Fá-
tækt er að stærstum hluta vegna
brotalama í velferðarkerfinu þótt
það séu alltaf einhverjar undan-
tekningar á öllu.“ n
Fréttastjóri og lektor ekki ákærðir
n Mál á hendur Inga og Ársæli felld niður
M
ál Inga F. Vilhjálmssonar,
fréttastjóra DV og Ársæls
Valfells, lektors við Háskóla
Íslands, hafa verið látin nið-
ur falla. Bárust þeim bréf frá ríkissak-
sóknara í vikunni um að ekki yrðu
gefnar út ákærur á hendur þeim.
Báðir voru þeir með réttarstöðu sak-
bornings og lágu undir grun um að
hafa brotið lög um bankaleynd.
Mál Ársæls og Inga var náskylt
uppsögn Gunnars Þ. Andersen, úr
starfi forstjóra Fjármálaeftirlitsins,
sem kærður var fyrir að hafa afl-
að upplýsinga um fjármál Guðlaugs
Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálf-
stæðisflokksins, með ólögmætum
hætti. Gunnar hefur ekki enn feng-
ið svör frá ríkissaksóknara um það
hvort gefin verður út ákæra á hend-
ur honum eður ei. „Ég hef ekki heyrt
nokkurn skapaðan hlut,“ segir hann.
Ársæll hefur viðurkennt að hafa
óafvitandi lekið upplýsingum um
fjárhagsmálefni Guðlaugs Þórs til DV
sem birti frétt byggða á gögnunum.
Að sögn Inga Freys bárust gögnin DV
í nafnlausu umslagi en Ársæll segist
hafa komið þeim til DV eftir að mað-
ur bankaði á dyr heima hjá honum
og bað hann um að skila sendingu til
Gunnars Andersen. Þá hafi Gunnar
beðið hann um að koma gögnunum
til fréttastofu DV og Ársæll þannig
dregist inn í málið.
johannp@dv.is
Lausir allra mála Ekki verður gefin út
ákæra á hendur Inga Frey og Ársæli Valfells.
n Bæturnar dugðu ekki fyrir mat n Fátækt tilkomin vegna brotalama í kerfinu
Borðaði upp úr
ruslatunnum
Fréttir 3Miðvikudagur 25. júlí 2012
F
ulltrúi Landsbankans í stjórn
Framtakssjóðs Íslands lagð-
ist gegn kaupum Kvosar hf,
móðurfélags Prentsmiðj-
unnar Odda, á Plastprenti.
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Eignastýringar hjá
Landsbankanum, var eini stjórnar-
maðurinn sem greiddi atkvæði gegn
samkomulaginu. Andstöðu bankans
má rekja til þess hve stutt er síðan
Arion banki og Landsbankinn afskrif-
uðu tæplega fimm milljarða króna af
skuldum Kvosar og tengdra félaga.
Fyrri eigendur fyrirtækisins eignuð-
ust það aftur á þessu ári eftir afskrift-
irnar en stærsti eigandi þess er Þor-
geir Baldursson, forstjóri félagsins.
Eignaðist Plastprent aftur
Samkomulag Kvosar og Framtaks-
sjóðs Íslands um söluna á Plastprenti
hefur verið harðlega gagnrýnt, meðal
annars af samkeppnisaðilum Kvosar.
Ekki aðeins þykir óeðlilegt að fyrirtæki
sem nýverið fékk 5 milljarða afskrif-
aða geri svo stór kaup heldur hefur
einnig verið bent á að Kvos var hlut-
hafi í Plastprenti til ársins 2009 þegar
Plastprent varð gjaldþrota. Í aðsendri
grein í Fréttablaðinu varpar Krist-
þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Ísafoldarprentsmiðju, fram þessari
spurningu: „Heldur Framtakssjóð-
urinn að eigendur Kvosar séu betur í
stakk búnir til að reka Plastprent í dag
en þeir voru þegar þeir ásamt öðrum
sigldu því í strand?“
Þorgeir gefur lítið fyrir þessa
gagnrýni og segir að Kvos hafi að-
eins átt lítinn hlut í Plastprenti áður
en fyrirtækið fór í þrot. „Við áttum 20
prósenta hlut og réðum engu,“ seg-
ir hann. Á vefsíðu CreditInfo má þó
sjá að árið 2009 var Þorgeir Baldurs-
son einn af fjórum meðstjórnendum
Plastprents og var faðir hans vara-
maður í stjórninni.
Útrás Kvosar
Kvos skuldsetti sig umtalsvert á ár-
unum fyrir hrun, meðal annars með
því að kaupa prentsmiðjur í Austur-
Evrópu. Kvos keypti stærstu prent-
smiðjuna í Rúmeníu, InfoPress, árið
2006 og í janúar 2007 keypti Oddi
prentsmiðjuna Delta+ í Búlgaríu.
Kaup Kvosar á InfoPress voru fyrsta
skrefið í útrás fyrirtækisins en áður
hafði félagið rekið skrifstofu- og um-
búðafyrirtæki í Bandaríkjunum auk
prentsmiðju í Póllandi. Í viðtali við
Morgunblaðið um það leyti sem
prentsmiðjan í Rúmeníu var keypt
sagði Þorgeir Baldursson að tækifær-
in væri að finna í Austur-Evrópu: „Í
austri eru markaðir á borð við Úkra-
ínu og Búlgaríu mjög áhugaverðir og
fjölmörg tækifæri þar að finna. Nú er
að fylgja þessu eftir og hafa augun
opin fyrir nýjum tækifærum.“
„Þess vegna töpuðust
fjármunirnir“
Þorgeir segir að afskriftir Kvosar séu
tilkomnar vegna erlendrar starfsemi.
„InfoPress var stórt og öflugt fyrir-
tæki á vaxandi markaði og það er enn
í dag mjög mikils virði,“ segir Þorgeir
og bætir við: „Ef menn hefðu farið að
okkar ráðum og ef við hefðum fengið
að halda áfram starfseminni með að-
stoð bankans þá hefði ekki þurft að af-
skrifa eina einustu krónu.“
Hann segir Landsbankann hafa
lofað aðstoð en dregið í marga
mánuði að efna loforðið. Aðspurður
í hverju aðstoð bankans hefði falist
nefnir Þorgeir rekstrarfjármögnun:
„Lán til reksturs dag frá degi hefði
sjálfsagt bara þurft tímabundið. Við
hefðum ekki þurft nein langtímalán
eða slíkt.“ Þá harmar hann ákvörðun
Landsbankans um mál InfoPress:
„InfoPress var selt fyrir alltof lítið fé
á sínum tíma en það var ákvörðun
bankans. Landsbankinn átti veð í
Info Press en vildi ekki taka félagið yfir
og þess vegna töpuðust fjármunirnir.“
Talsmaður Landsbankans vill
ekki svara gagnrýni Þorgeirs að svo
stöddu: „Þetta er bara ákveðin rétt-
læting á hans stöðu og hann á alveg
rétt á að setja hana fram,“ segir hann.
Þá útskýrir hann afstöðuna gagn-
vart sölunni á Plastprenti til Kvosar á
þessa leið: „Við töldum bara ekki eðli-
legt að kaupin færu fram svona stuttu
eftir afskriftirnar. Fyrirtækið er nýbúið
að ganga í gegnum endurskipulagn-
ingu og fá þessar afskriftir. Þess vegna
er hálfótrúverðugt að það geti fjár-
magnað kaupin á Plastprenti.“
Ekki hægt að útiloka Kvos
Skilyrði þess að geta boðið í Plast-
prent var að aðilar sýndu fram á 250
milljóna króna fjárfestingargetu. Að
sögn Péturs Þ. Óskarssonar, tals-
manns Framtakssjóðs Íslands, gerðu
sex aðilar svokölluð skilyrt tilboð í
Plastprent. Fjórir þeirra voru vald-
ir til þátttöku í öðrum fasa söluferl-
isins. „Þá var gengið til viðræðna við
Kvos af því að Kvos var hæstbjóð-
andi,“ segir Pétur. Aðspurður hvort
eðlilegt sé að selja Plastprent til fyrir-
tækis sem nýverið fór í gegnum fjár-
hagslega endurskipulagningu segir
Pétur: „Spurningin sem við stóðum
frammi fyrir var þessi: Getum við úti-
lokað slík fyrirtæki frá þátttöku í sölu-
ferlum á vegum Framtakssjóðsins?
Þar var einfalt mat að það væri ekki
hægt.“ Pétur bendir á að hundruð fyr-
irtækja á Íslandi hafi gengið í gegnum
fjárhagslega endurskipulagningu og
þessi fyrirtæki séu virkir þátttakendur
í atvinnulífinu í dag.
Kristþór Gunnarsson hjá Ísa-
foldarprentsmiðju segist hins vegar
eiga bágt með að skilja hvers vegna
Kvos fékk að koma að söluferlinu til að
byrja með. „Nú þarf bara Framtaks-
sjóðurinn að upplýsa hvernig Kvos gat
sýnt fram á 250 milljóna króna fjár-
festingargetu,“ segir hann. „Þetta snýst
auðvitað bara um gegnsæi.“
n Fulltrúi bankans lagðist gegn viðskiptunum með Plastprent
Landsbankanum
kennt um eignatap
„Landsbankinn átti
veð í InfoPress en
vildi ekki taka félagið yfir
og þess vegna töpuðust
fjármunirnir.
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannp@dv.is
Þorgeir og Brynjólfur
Hér má sjá Þorgeir Baldursson (annar
frá vinstri) og Brynjólf Bjarnason,
framkvæmdastjóra Framtakssjóðs
Íslands (innst til hægri). Með þeim eru
Ari Edwald og Helgi Jóhannesson