Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Side 6
Íslendingur sagður
hafa rænt Wikileaks
Ætla að flýja Alcatraz
n Íslenskir sundkappar í alræmda þrekraun
Þ
etta er ekki nema fjögurra kíló-
metra leið en hún er mjög
straumþung og frekar köld,“
segir Benedikt Hjartarson en
hann ætlar ásamt félögum sínum
Árna Þór Árnasyni og Jóni Sigurðs-
syni að synda Alcatraz-sundið svo-
kallaða í San Francisco, í Bandaríkj-
unum, en í ár eru rétt um 50 ár liðin frá
því að Anglin-bræður og Frank Morr-
is reyndu að flýja frá eyjunni þar sem
fangelsið fræga var rekið.
Þeir hefja sundið klukkan tíu mín-
útur yfir níu á laugardag en þá er siglt
með skipi út að eyjunni. Félagarnir
ætla sér að synda þessa leið í sund-
skýlum, sem er ekki algengt. „Það hafa
þó nokkrir gert þetta í búningi en við
syndum þetta bara í sundskýlu,“ seg-
ir Benedikt.
Á vefsíðunni ermarsund.com
verður hægt að fylgjast með ferð fé-
laganna en þar kemur fram að ýmsar
hættur gætu leynst á leiðinni og þar á
meðal hvíthákarlar. Benedikt hefur þó
ekki miklar áhyggjur af því: „Sagan er
svona að hann gangi þessi hvíti þarna
upp. Sagan er bara skemmtilegri
þannig. Það verður hins vegar slatti
af ræðurum sem fylgir okkur og bát-
ar þar sem okkur verður kippt upp í ef
það stefnir í óefni. Við treystum á það
að okkar sé gætt og reynum að djöflast
í gegnum strauminn,“ segir Benedikt.
Sundmennirnir eru allir reyndir
sjósundmenn og er Benedikt Hjart-
arson einn Íslendinga sem hefur lok-
ið við Ermarsundið. Árni reyndi það
í fyrra, en varð að hætta sundi vegna
meiðsla eftir níu og hálfs tíma sund.
Ferðin er þó farin að frumkvæði Jóns,
6 Fréttir 25. júlí 2012 Miðvikudagur
Margir hafa reynt Benedikt Hjartarson, Jón Sigurðarson og Árni Þór Árnason reyna það
sem margir fangar reyndu á árum áður.
T
vítugur Íslendingur er sak-
aður um að hafa dregið sér
fé úr sjóðum WikiLeaks og
misnotað tengsl sín við Juli-
an Assange, forsprakka sam-
takanna. Þetta kemur fram í nýút-
kominni bók um tölvuhakkarahópinn
Anonymous. Jafnframt er fjallað um
Íslendinginn á upplýsingaveitunni
cryptome.org og hann borinn þung-
um sökum. Íslendingurinn, sem
gengur undir dulnefninu „q“ á ver-
aldarvefnum, er sagður hafa byrjað
að vinna með WikiLeaks þegar hann
var 17 ára. Í samtali við DV sögðust
Birgitta Jónsdóttir og Smári McCarthy,
sem starfað hafa með WikiLeaks,
kannast við manninn en ekki vilja tjá
sig um hann. Birgitta bendir á að bók-
in byggist að miklu leyti á frásögnum
ónafngreindra heimildarmanna og
deila megi um sannleiksgildi þess sem
fram komi í henni. Að sögn Kristins
Hrafnssonar, talsmanns Julians
Assange, starfar pilturinn ekki leng-
ur með samtökunum. Þá tekur hann í
sama streng og Birgitta og segir frjáls-
lega farið með staðreyndir í bókinni.
Safnaði lykilorðum
Í bókinni er fjallað um samskipti 14
ára stúlku, sem kallaði sig „Kayla“,
við Íslendinginn. Stúlkan vildi leggja
WikiLeaks lið enda slungin í að brjót-
ast inn í tölvukerfi. Hún hafði fylgst
með q á spjallborðum veraldarvefs-
ins og grunað að hann tengdist sam-
tökunum með einhverjum hætti.
Kayla hafði samband við q og hann
bað hana um að taka að sér verk-
efni fyrir WikiLeaks. Segir í bókinni
að Kayla hafi lagt nótt við dag til að
finna gloppur í tölvukerfum ríkis-
stjórna, fyrirtækja og stofnana. Þá
hafi hún komist yfir notendanöfn
og lykilorð tölvupósts starfsmanna
bandaríska hersins.
Íslendingurinn er sagður hafa
reglulega átt samskipti við Kaylu sem
hafi sent honum upplýsingar í gegn-
um dulkóðuð tölvupóstföng. „Þegar
hún spurði hvað Julian Assange
þætti um hennar störf sagði q að
Julian væri ánægður með þau,“ seg-
ir í bókinni. „Í ljós kom að q var af-
bragðslygari. Stuttu eftir að Kayla
tók að vinna sem sjálfboðaliði fyrir
WikiLeaks uppgötvuðu aðrir tölvu-
hakkarar sem unnið höfðu fyrir q að
hann var útsmoginn svikahrappur
sem hafði fengið þá til að taka að sér
sjálfboðastörf án vitneskju Assange.“
Fram kemur að síðla árs í fyrra
hafi Assange beðið q um að slíta
tengsl sín við WikiLeaks, enda
hafi Íslendingurinn fengið fjölda
manns til að starfa fyrir sig á fölsk-
um forsendum. Í bókinni er jafn-
framt vitnað í heimildarmann sem
segir Íslendinginn hafa stolið 60.000
dollurum frá bolasölu WikiLeaks og
lagt inn á bankareikning sinn. Ekki er
vitað hvað q gerði við upplýsingarn-
ar sem Kayla og aðrir tölvuhakkarar
létu honum í té en hann er grunaður
um að hafa selt þær dýrum dómum.
Upp á kant við Birgittu
Á vefnum Cryptome birtist opið bréf
frá ónafngreindum aðila sem seg-
ist hafa starfað með WikiLeaks áður
en samtökin klofnuðu síðla árs 2010.
„Þegar Daniel Domscheit-Berg var
meðlimur WikiLeaks vissi hann að
[Íslendingurinn] var til vandræða og
reyndi að halda honum eins fjarri
Julian Assange og mögulegt var. Ég
held að Birgitta Jónsdóttir hafi gert
slíkt hið sama. Ég veit að hún þekkir
Íslendinginn, var einstaklega þreytt á
honum og líkaði ekki við hann. Þegar
Domscheit-Berg og Birgitta hættu að
starfa með WikiLeaks var hindrunin
á bak og burt og [Íslendingurinn] fór
að smjaðra linnulaust fyrir Assange.“
Í bréfinu stendur að Íslendingurinn
hafi gortað af því við samstarfsmann
sinn að hann hygðist fljúga til Banda-
ríkjanna á kostnað WikiLeaks. Bréfrit-
ari er harðorður í garð WikiLeaks og
fullyrðir að innan vandaðri samtaka
hefði maður á borð við Íslendinginn
aldrei náð eyrum forsprakkans.
Hann líkir WikiLeaks við einræðis-
ríki og segir að þar gæti ofstækisfullr-
ar persónudýrkunar á Julian Assange.
Íslendingurinn er sagður hafa
gufað upp síðla árs 2010 og enginn
vitað hvað orðið hafi um hann. „Svo
kom hann viku seinna og sagðist hafa
verið stöðvaður úti á götu af íslensku
lögreglunni, að nafn hans hefði kom-
ið upp í gagnagrunni lögreglunnar og
fartölvan verið tekin af honum. Hann
útskýrði aldrei hvers vegna þetta
gerðist eða hvers vegna hann væri á
skrá hjá lögreglunni en gaf í skyn að
hann hefði verið handtekinn vegna
WikiLeaks. Því á ég bágt með að trúa.“
Milestone-gögn og innbrot
Í febrúar 2010 bárust fréttir af því að
piltur á átjánda aldursári hefði ver-
ið yfirheyrður af lögreglu grunaður
um að hafa stolið trúnaðargögnum
frá lögmanninum Gunnari Gunnars-
syni. Gunnar starfaði fyrir Milestone,
fyrirtæki Karls og Steingríms Wern-
erssona, og tengd félög. Fram kom í
Fréttablaðinu að lögmaðurinn hefði
ráðið piltinn til að aðstoða við upp-
setningu tölvukerfa. Þannig hefði
hann komist yfir öryggiskóða gamalla
starfsmanna og notað til að fara að
næturlagi inn í höfuðstöðvar Milesto-
ne við Suðurlandsbraut og viða að sér
gögnum. Þann 22. mars sama ár var
framið innbrot hjá fyrirtækinu Máln-
ingu í Kópavogi og 17 ára piltur hand-
tekinn með fartölvu í fórum sínum.
„Þegar Domscheit-
Berg og Birgitta
hættu að starfa með
WikiLeaks var hindrun-
in á bak og burt og [Ís-
lendingurinn] fór að
smjaðra linnulaust fyrir
Assange.
Julian Assange Í nýlegri bók er forsprakki WikiLeaks sagður hafa orðið fyrir barðinu á
svikulum Íslendingi. Mynd reUterS
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannp@dv.is
n Unglingspiltur sakaður um þjófnað og misnotkun upplýsinga n Yfirheyrður vegna Milestone-máls