Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Qupperneq 8
8 Fréttir 25. júlí 2012 Miðvikudagur
S
kiptum er lokið í þrotabúi fé
lagsins Lackland ehf., sem
áður hét Hrói Höttur, en engar
eignir fundust í búinu upp í
rúmlega 223 milljóna króna
kröfur sem lýst var í það. Hinn lands
þekkti pítsustaður hefur þó haldið
áfram starfsemi sinni óraskað eftir
viðskiptafléttu forráðamanna pítsu
keðjunnar í janúar síðastliðnum þar
sem reksturinn var færður yfir á nýja
kennitölu. Einn forsvarsmanna Hróa
Hattar segir flakk félagsins hafa verið
framkvæmt í fullu samráði við kröfu
hafa og skiptastjóra gamla félagsins.
Kennitöluflakk
Það var 19. janúar sem Héraðsdóm
ur Reykjaness úrskurðaði að félagið
Lackland ehf., skyldi tekið til gjald
þrotaskipta. Lýstar kröfur í búið voru
223.261.262 krónur en fram kemur í
skiptalokstilkynningu í Lögbirtingar
blaðinu á mánudag að engar eignir
hafi fundist í búinu og lauk skiptum
á því þann 5. júlí án þess að ein ein
asta greiðsla fengist upp í kröfurnar.
Kröfuhafar hafa því þurft að afskrifa
hinar rúmlega 223 milljónir króna.
Sé saga Lacklands hins vegar
skoðuð í hlutafélagaskrá sést hins
vegar að þann 4. janúar síðastliðinn
hét félagið á sömu kennitölu Hrói
Höttur, hin þjóðþekkta pítsukeðja
sem starfað hefur um árabil. 5. jan
úar var félagið Hrói Höttur orðið
að Lackland ehf. Sömu daga í janú
ar urðu samhliða þessu breytingar
á öðrum félögum í eigu sömu aðila
sem eiga og reka Hróa Hött. Félag
ið HRH Eignarhaldsfélag ehf. breytti
um nafn og varð að Hróa Hetti. Und
ir því nafni og þeirri kennitölu starfar
fyrirtækið svo áfram.
Í samráði við banka
Nikulás Kristinn Jónsson var ann
ar stærstu eigenda Hróa Hattar og
Lacklands. Í samtali við DV segir
hann að þessi gjörningur hafi verið
gerður í fullu samráði við Sparisjóð
ina, eins og hann orðar það sem voru
þeirra stærstu kröfuhafar, sem og
skiptastjóra þrotabús Lacklands.
„Þetta var ekki svona þvæla eins og
maður les alltaf um í blöðunum. Þetta
voru erlend lán og þetta hefði aldrei
gengið upp. Þá var farið út í þetta í
samráði við banka og skiptastjóra,“
segir Nikulás í samtali við DV. Hann
segir þennan gjörning hafa verið það
eina í stöðunni og bankinn hafi lagt til
að þessi leið væri farin.
Passað að enginn sæti eftir
Hann segir félagið ekki hafa skuld
að neinum neitt, engum birgjum
eða því um líkt. „Þetta voru erlend
lán sem voru auðvitað ekkert 223
milljónir. Ef hrunið hefði ekki kom
ið hefði þetta staðið í 70–80 milljón
um. En við hrunið fór gengið í þvælu.
Við pössuðum að enginn sæti eftir en
við vorum bara fastir í þessu gengis
kjaftæði,“ segir Nikulás og bætir við.
„Hrói Höttur lifir og pítsurnar
halda áfram að bakast.“
DV náði ekki í Ásbjörn Jónsson,
skiptastjóra Lackland ehf., til að bera
undir hann fullyrðingar Nikulásar
þar sem hann er staddur erlendis í
sumarfríi. n
„Hrói Höttur
lifir og
pítsurnar halda
áfram að bakast
Pítsukeðja tórir
á nýrri kennitölu
n Hrói Höttur gjaldþrota í janúar n Flétta í samráði við banka segir eigandi
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Enginn situr eftir Nikulás segir allt gert
í samráði við kröfuhafa og skiptastjóra og
enginn sitji eftir með sárt ennið.
Baka enn pítsur
Pítsukeðjan heldur velli
eftir að reksturinn var
færður af gjaldþrota
kennitölu í janúar
síðastliðnum.
Mynd Eyþór árnason
Rannsókn lokið á
laumufarþegum
Lögreglan á Suðurnesjum hef
ur lokið rannsókn á máli tveggja
manna sem laumuðust um borð
í vél Icelandair á Keflavíkurflug
velli 8. júli síðastliðinn. Svo virð
ist sem mennirnir hafi undir
búið för sína inn á haftasvæði
flugstöðvarinnar löngu áður en
þeir létu til skarar skríða. Rændu
þeir vinnufatnaði í verslun í
Reykjanesbæ sem líktist klæðn
aði starfsmanna flugvallarins og
upptökur úr öryggismyndavél
um staðfesta að mennirnir tóku
sér dágóðan tíma í að kanna að
stæður á flugvellinum áður en
þeir laumuðust inn í flugvélina.
Þeir komust inn á byggingasvæði
á flugvellinum þegar engir starfs
menn voru þar viðstaddir. Þaðan
komust þeir að öryggisgirðingu,
klifruðu yfir hana og gengu um
300 metra vegalengd yfir flug
hlaðið klæddir eins og starfs
menn. Að lokum komust þeir að
flugvélinni sem var galopin auk
þess sem stigabíll stóð við hlið
hennar. Flugvélinni var haldið
opinni af ásettu ráði, enda höfðu
starfsmenn verið að vinna við
vélina og til stóð að færa hana
milli stæða. Því var leiðin greið
inn í hana. Daginn eftir kom
áhöfn vélarinnar að mönnunum
sem höfðu læst sig inn á salerni
flugvélarinnar. Voru þeir hand
teknir en látnir lausir að lokn
um yfirheyrslum. Ljóst þykir að
mennirnir hafi ætlað að kom
ast af landi brott með vélinni.
Samkvæmt tilkynningu lögreglu
sýndu mennirnir aldrei af sér of
beldishegðun og ekkert hafi kom
ið fram sem bendi til þess að þeir
hafi ætlað að valda skemmdum.
Icelandair krefur þá um skaða
bætur vegna seinkunar sem varð
á fluginu. Mennirnir eru báðir
hælisleitendur sem dvalið hafa á
Fit í Reykjanesbæ. Talsvert hef
ur verið fjallað um þá í fjölmið
um en grunur leikur á að þeir hafi
logið til um aldur og gengust þeir
undir aldurgreiningu hjá lækn
um. Hafa þeir gert ítrekaðar til
raunir til að flýja af landi og voru
þeir tvisvar handteknir í júní er
þeir fóru um borð í millilanda
skip við Reykjavíkurhöfn í leyfis
leysi. Mál mannana hefur verið
afhent lögfræðideild lögreglunn
ar á Suðurnesjum en brot þeira
varða við almenn hegningarlög
og lög um loftferðir.