Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Page 12
Börn með falsaða
pappíra á íslandi
12 Fréttir 25. júlí 2012 Miðvikudagur
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
n Útlendingastofnun undirbýr DNA-próf n Börn flutt af ættingjum til Íslands n Rökstuddur grunur um fölsun
Ú
tlendingastofnun undir-
býr nú upptöku DNA-prófa
í þeim málum þar sem
vafi leikur á forsjá barna
sem hljóta dvalarleyfi hér
á landi. Rökstuddur grunur er
um að börn séu hér á landi í um-
sjón aðila sem ekki fari með for-
sjá. Árið 2010 dæmdi Hæstiréttur í
slíku máli. Við yfirheyrslu lögreglu
viðurkenndi kona, íslenskur ríkis-
borgari af filipps eyskum uppruna,
að hún væri ekki móðir stúlkubarns
í hennar forsjá. Útlendingastofnun
afturkallar landvistarleyfi barna,
komi í ljós að þau eru hér á landi í
skjóli rangra eða falsaðra pappíra.
Barnaverndaryfirvöld hér á landi er
í slíkum tilvikum gert að vinna með
barnaverndaryfirvöldum heima-
landsins og ganga úr skugga um að
barnið geti snúið aftur til foreldra
í heimalandi. Sé ekki unnt að hafa
upp á foreldrum barnsins er barna-
verndaryfirvöldum í heimalandinu
gert að koma barninu í fóstur í við-
komandi landi.
Grunur um falsanir
Árið 2008 sendi stofnunin 20
fæðingarvottorð aðila með dval-
arleyfi hér á landi til heimalands
þeirra svo kanna mætti sannleiks-
gildi þeirra. Þrjátíu prósent þeirra
vottorða sem send voru til athug-
unar eru talin fölsuð. Það tók
Útlendingastofnun tvö ár að heimta
svör um sannleiksgildi gagnanna.
„Við erum bara komin á þann
stað að það verður að gera þetta,“
segir Kristín Völundardóttir, for-
stjóri Útlendingastofnunar um
hvers vegna stofnunin ætli nú að
ráðast í DNA-próf. „Við erum með
nokkur mál þar sem okkur grun-
ar að ekki séu blóðtengsl. Við þurf-
um að fá úr þessu skorið.“ Hún seg-
ir ekki raunhæft í öllum tilvikum
að leita til heimalands. „Ef þú sérð
þetta og setur í samhengi þá tekur
sum ríki allt að tvö ár að svara og fá
niðurstöðu stjórnvalda á því hvort
skjal sé falsað. Það þekkist líka að
nokkur ríkjanna svara okkur ekk-
ert. Raunar eru þau ekkert skyldug
til að svara okkur. Það er ekki raun-
hæft að ætla að Útlendingastofnun
geti í raun borið brigður á skjöl með
þeim hætti,“ segir Kristín.
Eitt mál fyrir dómstóla
Árið 2007 viðurkenndi íslenskur
ríkisborgari af filippseyskum upp-
runa að hún væri ekki móðir
stúlkubarns í hennar forsjá og með
landvistarleyfi hér á landi. Konan
hafði árið 2006 fengið tímabundið
leyfi fyrir stúlkuna sem hún sagði
vera dóttur sína, fædda á Filipps-
eyjum. Heimildir DV herma að
málið hafi orðið til þess að ákveðið
hafi verið að sannreyna fæðingar-
vottorð nokkurra barna sem eru
hér á landi. Það tók hins vegar
eins og áður segir tvö ár fyrir yfir-
völd að sannreyna pappírana og
svara erindi Útlendingastofnun-
ar. Samkvæmt upplýsingum DV
var barninu ekki vísað úr landi
en móðir barnsins kom hingað til
lands vegna málsins.
Kristín segir erfitt að leggja mat
á hve algengt sé að þeim skjölum
sem er framvísað til Útlendinga-
stofnunar séu fölsuð. Þá segir
hún afar erfitt að sannreyna þau
nema með DNA-prófun. Þó ljóst
sé á þessu eina máli sem endaði
hjá dómstólum, að fölsuð skjöl
sleppi í gegn hjá Útlendingastofn-
un. „Það fara fölsuð gögn framhjá
okkur hérna hjá Útlendingastofn-
un og okkur grunar að það séu fleiri
börn hér ranglega í forsjá sem ekki
er löglegt. Við höfum bara ekki haft
mannskap og úrræði til að fylgja
slíkum málum eftir.“
Fjölskyldugreiði
Sterk krafa er gerð til forsjárgagna í
þeim málum þegar sótt er um dval-
arleyfi fyrir börn. Baráttan gegn
mansali er þar oftast nefnd sem
ástæða þess hve hart er gengið
fram. Þá er einnig algengt að börn
séu flutt milli landa sem greiði við
fjölskyldu barnsins. Það er því ekki
óalgengt að systkini semji sín á
milli um að eitt systkini taki með
sér barn annars. Helga Vala Helga-
dóttir lögmaður, hefur töluvert
oft farið með mál erlendra aðila
sem sækja hér um landvistarleyfi
eða óska eftir hæli. Hún segir ekki
óeðlilegt að fara fram á slík gögn.
„Það er ástæða fyrir því að það eru
gerðar ríkar kröfur til framlagn-
ingu forsjárgagna. Af því að það er
stundum verið að flytja börn á milli
landa bæði með ólögmætum hætti
og líka sem fjölskyldugreiða,“ segir
Helga Vala. „Þess vegna þurfa for-
sjárgögn að vera mjög skýr og þar
dugir ekkert einhver yfirlýsing fjöl-
skyldu eða vina. Það verður alltaf
að vera stjórnvald sem gefur út og
vottar gögnin.“ Helga Vala óskaði
ítrekað eftir því að fram kæmi að
hér tjái hún sig almennt en ekki um
neitt ákveðið mál.
Skiljanleg neyð
Helga Vala segist þó vel skilja að
fólk reyni allt til þess að koma með
börn ættingja, til dæmis börn systk-
ina sinna til Íslands. „Maður skilur
alveg löngunina til að bjarga nán-
um ættingjum úr sárri neyð. Til
dæmis að bjarga munaðarlausum
börnum innan fjölskyldunnar. Ég
myndi gera það fyrir börn systkina
minna. Auðvitað myndi ég reyna að
gera allt fyrir þau.“
Helga Vala segir að Útlendinga-
stofnun verði, þrátt fyrir neyðina,
að ganga úr skugga um að þeir sem
sækja um dvalarleyfi fyrir börn séu
í raun forsjáraðilar þeirra. „Það er
verið að selja börn um allan heim.
Þess vegna er þetta. Það er verið
að smygla börnum á milli landa.
Að því leyti finnst mér ekki óeðli-
leg krafa hjá Útlendingastofnun að
krefjast þess að þú færir sönnun
fyrir því að þetta sé barnið þitt og
að þú megir ferðast með það milli
landa.“
Lagaheimild til prófanna
Heimild til DNA-prófa í tilvikum
þar sem rökstuddur grunur leik-
ur á að rangar upplýsingar séu
gefnar upp er að finna í lögum um
útlendinga frá árinu 2002. Krist-
ín segir stofnunina hingað til ekki
hafa framkvæmt slík próf við af-
greiðslu umsókna um landvistar-
leyfi. „Þetta er bara ótrúlega dýrt.
Það er ástæðan fyrir því að ekki er
farið í þetta fyrr,“ segir Kristín. Þær
upplýsingar fengust hjá Landspít-
alanum að kostnaður við DNA-próf
sé tæplega 200 þúsund krónur og
að um það bil mánuð taki að vinna
úr lífssýnum.
„Þetta eru mjög áreiðanlegar
niðurstöður og það er alveg hægt
að treysta þeim,“ segir Inga Reyn-
isdóttir líffræðingur á Rannsóknar-
stofu í frumulífræði hjá Landspítal-
Eitt staðfest tilvik Árið 2007 viður-
kenndi kona, íslenskur ríkisborgari af
filippseyskum uppruna, að hún væri ekki
móðir barns í hennar forsjá.
Börn í DNA próf Grunur leikur á að á landinu séu
börn sem hafi komið hingað með fólki sem ekki hefur
haft lögformlegt forræði yfir þeim. Útlendingastofn-
un hyggur á að gera DNA-próf í slíkum málum.
„Það er verið að
selja börn um
allan heim
Helga Vala Helgadóttir
„Það fara fölsuð gögn framhjá
okkur hérna í Útlendingastofnun
Kristín Völundardóttir