Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Qupperneq 14
14 Erlent 25. júlí 2012 Miðvikudagur Kalla eftir harðari sKotvopnalöggjöf U mræðan um skotvopnaeign Bandaríkjamanna er komin í hámæli eftir að James Eagan Holmes, 24 ára læknanemi, myrti tólf og særði 59 þegar hann hóf skothríð í kvikmyndahúsi í Colorado í síðustu viku. Lög um skotvopnaeign þykja afar frjálslynd í Bandaríkjunum og til marks um það er skotvopnaeign meðal óbreyttra borg­ ara mest í Bandaríkjunum af öllum löndum heimsins. Þær raddir verða sífellt háværari sem vilja herða skot­ vopnalöggjöfina en andstaðan með­ al skotvopnaeigenda og áhrifamikilla þingmanna er mikil. Holmes virðist ekki hafa haft mik­ ið fyrir því að sanka að sér skotvopn­ um, byssukúlum og öðrum útbún­ aði áður en hann lét til skarar skríða. Margt af því sem Holmes notaði við árásina keypti hann á netinu, til að mynda 6.300 byssukúlur. Í aðdraganda árásarinnar hafði Holmes keypt fjögur skotvopn; tvær skammbyssur, riffil og haglabyssu. Venjuleg pöntun „Við erum öðruvísi en önnur samfé­ lög. Við leyfum fólki að búa yfir vopn­ um sem herinn notar alla jafna,“ segir Dudley Brown, formaður félags byssu­ eigenda í Klettafjöllum, í samtali við AP­fréttastofuna. Chad Weinman rekur vefsversl­ unina TacticalGear.com sem sér­ hæfir sig í sölu á varningi sem meðal annars er ætlaður lögregluþjónum og hermönnum. Þúsundir pantanir ber­ ast í gegnum vefverslunina á hverjum degi. Þann 2. júlí síðastliðinn pantaði Holmes á vef verslunarinnar sérút­ búið vesti sem yfirleitt sést einungis á vígvellinum, haldara fyrir skothylki og hníf. Þá borgaði hann aukalega til að pöntunin bærist innan tveggja daga frá pöntunardegi. Weinman segir að pöntunin hafi ekki verið óvenjuleg og ekkert öðru­ vísi en þær pantanir sem berast á degi hverjum. „Það eru margir sem eru hrifnir af þessum vörum og 99,9 pró­ sent þeirra eru löghlýðnir borgarar,“ segir Weinman sem bætir þó við að honum bjóði við því að Holmes hafi keypt af honum vörur sem hann not­ aði í árásinni. Hann tekur það fram að ekki séu seldar byssur eða byssukúlur í versluninni og að honum komi það á óvart hversu miklu magni af vopnum og skothylkjum Holmes náði að sanka að sér. 50 sendingar Holmes keypti byssukúlurnar og byss­ urnar á löglegan hátt, að sögn Ginger Colbrun, talsmanns Bureau of Alcohol, Tobacco and Firearms. Og í umfjöll­ un AP er tekið fram að ekkert eftirlit sé með því hvort einstaklingar kaupi óvenjumikið magn af skotvopnum. Á fjórum mánuðum fékk Holmes senda yfir 50 pakka að heimili sínu í Aurora í Colorado. Samtímis keypti Holmes skotvopn í skotvopnabúð­ um í Colorado. Þann 22. maí keypti Holmes Glock­skammbyssu. Tæpri viku síðar keypti hann haglabyssu og vikuna þar á eftir keypti hann AR­ 15 riffil – skotvopn sem var bann­ að tímabundið í Bandaríkjunum árið 1994. Bannið rann út árið 2004 og þrátt fyrir áskoranir hópa sem berjast gegn byssueign hafa bandarísk yfir­ völd, átta árum síðar, ekki enn fram­ lengt bannið. Holmes tókst einnig að útvega sér efni til sprengjugerðar en að sögn lögreglu er ekki að fullu ljóst hvar hann fékk þau efni. Að lokum keypti Holmes skamm­ byssu þann 7. júlí síðastliðinn og tólf dögum síðar keypti hann miða á mið­ næturfrumsýningu nýjustu Batman­ myndarinnar, The Dark Knight Rises. Hann gekk inn í salinn með fórn­ arlömbum sínum, smeygði sér út um hliðarhurð og kom aftur í fullum her­ klæðum, þungvopnaður og hóf skot­ hríð. Að sögn lögreglu var hann með hjálm, gasgrímu, sérútbúið vesti og í hermannabuxum. Hann kastaði táragasi inn í salinn og hóf skothríð. Lögreglan kom á staðinn 90 sekúnd­ um eftir að tilkynnt var um árásina en um það leyti lá stór hópur bíógesta eft­ ir óvígur. „Nakinn“ með 6.000 kúlur Carolyn McCarthy, þingmaður Demókrata, hefur lengi barist fyr­ ir harðari löggjöf um skotvopna­ eign. Hún missti eiginmann sinn í skotárás á Long Island Railroad árið 1993. Carolyn segist ekki vera vongóð um breytingar eftir atburði liðinnar viku. Henni segist vera mjög brugðið yfir því hversu lítið Holmes virðist hafa haft fyrir því að sanka að sér vopnum. „Það er ótrú­ legt að vopn sem þessi séu seld til al­ mennings,“ segir hún. Mike Waller, þingmaður Repúblik­ ana í Colorado, vill ekki að lög um skotvopnaeign verði hert eftir árásina og minnist á það í samtali við AP að Holmes hafi keypt 300 haglabyssuskot. „Ég og 13 ára sonur minn förum oft út á skotæfingasvæði. Þegar við gerum það kaupum við meira en 300 hagla­ byssuskot.“ Dudley Brown, formaður byssu­ eigenda í Klettafjöllum, tekur und­ ir með Waller og segir að frjálslynd skotvopnalöggjöf hafi gert Banda­ ríkin að „sterkara landi“. Hann seg­ ist ekki sjá neitt óvenjulegt við það magn sem Holmes keypti af bys­ sukúlum og öðrum búnaði. „Mér liði eins og ég væri nakinn ef ég ætti bara 6.000 kúlur í AR­15 riffil­ inn minn,“ segir hann og telur upp vopnin sem Holmes hafði yfir að ráða. „Tvær skammbyssur, hagla­ byssa og riffill – það er bara eins og meðalmaðurinn í Colorado hefur yfir að ráða.“ n Sankaði að sér skotvopnum n Þingmenn vilja ekki breytingar á lögum Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Mikil sorg Minningarathöfn var haldin fyrir utan kvikmyndahúsið í Aurora á mánudag þar sem tólf létu lífið. Margir eiga um sárt að binda. MyNd ReuteRs Ringlaður James Holmes var leiddur fyrir dómara á mánudag. Hann var þögull og virtist ringlaður þegar hann gekk inn í salinn ásamt verjanda sínum. MyNd ReuteRs AR-15 Holmes notaði riffil sambærilegan þessum í árásinni. Sala á vopninu var bönnuð á árunum 1994 til 2004. „Mér liði eins og ég væri nakinn ef ég ætti bara 6.000 kúlur í AR-15 riffilinn minn. Beit nefið af átta ára dreng Átta ára drengur jafnar sig nú á sjúkrahúsi í Adelaide í Ástral­ íu eftir að hundur beit af hon­ um nefið. Drengurinn skadd­ aðist einnig á auga eftir árásina. Í áströlskum fjölmiðlum er greint frá því að drengurinn hafi verið staddur í Port Lincoln í Ástralíu og þyrla hafi þurft að sækja drenginn og flytja hann á sjúkrahús á sunnudag. Máls­ atvik munu vera óljós en ekki liggur fyrir hvort drengurinn þekkti hundinn eða átti hann, eða hverrar tegundar hundur­ inn var. Lýtalæknar vinna nú að því að reyna að lágmarka skaðann eftir hundinn og hlúa að sárum drengsins. Þroskaheftur fangi fær gálgafrest Á mánudag ákvað Hæstiréttur Georgíuríkis í Bandaríkjunum að fresta aftöku þroskahaml­ aðs fanga. Maðurinn, War­ ren Lee Hill, varð samfanga sínum að bana árið 1990 með hrottafengnum hætti. Aftaka hans hefur verið mjög umdeild í ljósi þess að greindarvísitala Hill er aðeins 70, sem gefur til kynna mikla þroskahömlun. Lögfræðingar Hill hafa reynt að fá aftökunni frestað eða dómi hans breytt í lífstíðarfangelsi og segja það ómannúðlegt að taka einstakling af lífi sem ekki get­ ur verið ábyrgur gjörða sinna. Rétturinn ákvað að fresta aftök­ unni tímabundið meðan gerðar eru breytingar á samsetningu eitursprautunnar sem fangar í Georgíu eru aflífaðir með. Fundu fóstur á víðavangi Þorpsbúar í Suður­Úral í Rússlandi gerðu hrollvekj­ andi uppgötvun á dögunum þegar nokkrir þeirra fundu fjórar fötur sem innihéldu 248 mannsfóstur sem skildar höfðu verið eftir úti í skógi. Lögreglan í Sverdlovsk­hér­ aði sagði á þriðjudag að fóstrin hafi verið varðveitt í formaldehýði. Leikur grunur á að eitt af fjórum sjúkrahús­ um í nágrenninu beri ábyrgð á þessu og hafi verið að losa ólöglega í skóginum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.