Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Síða 17
Á
dögunum var upplýst að Ís-
landsbanki hefði enn á ný af-
skrifað skuldir Árvakurs, út-
gáfufélags Morgunblaðsins. Ég
staldraði við eftirfarandi viðbrögð
Jónasar Kristjánssonar við þeim tíð-
indum: „Með nýjasta milljarðinum
eru afskriftir Íslandsbanka af skuldum
Moggans komnar yfir fimm milljarða.
[...] Allir, sem taka upp varnir fyr-
ir þjóðina í orrahríð kvótagreifanna,
sæta árásum og illmælum Mogg-
ans. Þetta er bezta dæmið um, að
ekkert breyttist við þriggja ára stjórn
annarra flokka. Bófaflokkur sjálfstæð-
ismanna heldur samt fast um stjórn-
artaumana.“
Er vald sjálfstæðismanna mikið
þrátt fyrir að við stjórnvölinn sé lýð-
ræðislega kjörin ríkisstjórn annarra
flokka? Og hverjar eru rætur þessa
valds ef Jónas hefur rétt fyrir sér?
Auðvelt er að komast að því að
útgerðarmenn og félög þeirra eiga
a.m.k. 80% í Árvakri sem gefur út
Morgunblaðið. Forvitnilegt er að
skoða hluthafalistann og hverjir
forsvarsmenn félaganna eru sem eiga
samanlagt 99% Árvakurs undir hatti
Þórsmerkur ehf. Á þessi tengsl benti
Ingimar Karl Helgason blaðamaður í
úttekt á Smugunni í febrúar síðast-
liðnum. Hér verða þau útfærð nánar.
Hvað sem það kostar
Stærsti eigandi Árvakurs (Þórs-
merkur) eru félög í eigu Guðbjargar
Matthíasdóttur í Vestmannaeyjum.
Þau eru Hlynur A með 16,4% hlut
og Ísfélagið sem á um 13,4% hlut.
Fyrir Ísfélaginu fer Stefán Friðriks-
son sem á sæti í stjórn LÍÚ, Lands-
sambandi íslenskra útvegsmanna.
Samanlagt er þetta um 30% ráð-
andi eignarhlutur. – Handgengnir
Guðbjörgu eru Gunnlaugur Sæv-
ar Gunnlaugsson sem annast fjár-
mál Ísfélagsveldisins og Sigurbjörn
Magnússon lögfræðingur, stjórnar-
formaður Árvakurs, en lögfræðistofa
sem hann rekur á sjálf nærri 2%
hlut í Árvakri. Óskar Magnússon,
útgáfustjóri Árvakurs, hefur einnig
verið handgenginn Ísfélagsveldinu
og Guðbjörgu og var meðal annars
forstjóri Tryggingarmiðstöðvarinn-
ar hf. á sínum tíma þegar hún var
í meirihlutaeign Ísfélagsveldisins.
Óskar er persónulega skrifaður fyrir
litlum hlut í Árvakri en Ármót ehf.,
félag sem hann fer fyrir, á 12,3% hlut.
Allt eru þetta gallharðir sjálfstæð-
ismenn og voru lengi í innsta hring
Davíðs Oddssonar sem nú ritstýrir
Útgerðarmogganum. Hér má bæta
við að Friðbjörn Orri Ketilsson, sem
stýrir penna á AMX-áróðursvefnum,
er tengdasonur Gunnlaugs Sævars.
Þess má geta að Stefán Friðriksson,
framkvæmdastjóri Ísfélagsins, er
sonur Friðriks Sophussonar, en hann
er formaður bankastjórnar Íslands-
banka (sem afskrifar skuldir Árvak-
urs) og fyrrverandi fjármálaráðherra
og þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Segja má að bandalag þessara
manna og félaga Guðbjargar Matth-
íasdóttur myndi samanlagt um 45%
eignarhlut í Árvakri.
Næststærsti útgerðarhluthafinn
í Morgunblaðinu er Krossanes ehf.
sem Þorsteinn Már Baldvinsson fer
fyrir. Eign félagsins er um 18,5%.
Kristján Vilhelmsson, frændi Þor-
steins og meðeigandi í Samherja hf.
situr í stjórn LÍÚ. Sjálfur situr Þor-
steinn Már í varastjórn LÍÚ. – Síldar-
vinnslan í Neskaupstað á liðlega
6% hlut í Árvakri en hún er í helm-
ingseign Samherja. Því má segja
að Samherji fari með um 23% hlut
samanlagt í Árvakri. Forstjóri Síldar-
vinnslunnar er Gunnþór Ingvarsson
en hann á sæti í stjórn LÍÚ.
Þriðji stærsti útgerðareig-
andi Morgunblaðsins er Kaupfé-
lag Skagfirðinga með liðlega 9%
hlut. Forsvarsmaður KS í Árvakri
er Sigurjón Rafnsson, einn nánasti
samstarfsmaður Þórólfs Gíslason-
ar kaupfélagsstjóra sem reyndar er
náskyldur Davíð Oddssyni, ritstjóra
Moggans. Annar náinn samstarfs-
maður Þórólfs, Jón Edvald Friðriks-
son, á sæti í varastjórn LÍÚ.
Rammi hf. á jafn stóran hlut og
Síldarvinnslan, eða 6,14%, í Árvakri.
Fyrir félaginu og eignarhlutnum fer
Ólafur H. Marteinsson en hann á
einnig sæti í stjórn LÍÚ.
Þingey ehf. á 4,1% hlut í Árvakri
en forsvarsmaður fyrir hlutnum er
Aðalsteinn Ingólfsson hjá Skinney
Þinganesi og bróðursonur Halldórs
Ásgrímssonar. Gunnar Ásgeirsson
situr í stjórn LÍÚ fyrir hönd Skinneyj-
ar Þinganess.
Páll H. Pálsson hjá Vísi í Grindavík
er persónulega skrifaður fyrir rúm-
lega 2% hlut í Árvakri. Bróðir hans og
meðeigandi, Pétur H. Pálsson, á sæti
í varastjórn LÍÚ.
Loks á félagið Skollaborg ehf.
1,72% í Árvakri en forsvarsmaður
þessa félags gagnvart eignarhlutnum
í Árvakri er Einar Valur Kristjánsson
forstjóri Hraðfrystihússins – Gunn-
varar hf. á Ísafirði. Einar Valur á jafn-
framt sæti í stjórn LÍÚ.
Þar sitja þeir saman
Hér hafa verið nefndir 10 einstak-
lingar sem gæta samtímis hagsmuna
í stjórn LÍÚ og Árvakurs. Þræðina má
rekja í fleiri áttir eins og til Íslands-
banka, viðskiptabanka Árvakurs.
Nær undantekningarlaust tengjast
öll nöfnin, um 25 alls, Sjálfstæðis-
flokknum en einnig Framsóknar-
flokknum. Sem dæmi sitja mennirn-
ir 10 í stjórn og varastjórn LÍÚ fundi
með Þorsteini Erlingssyni eiganda
útgerðarinnar Saltvers á Suðurnesj-
um. Þorsteinn var um árabil bæj-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjanesbæ og formaður stjórnar
Sparisjóðsins í Keflavík meðan hann
var skafinn að innan af vinum og
klíkubræðrum.
Það virðist ekkert hlaupið að því að
uppræta íslenska kunningja- og klíku-
þjóðfélagið með opinberum aðgerð-
um. Enda er ekki um það að ræða að
uppræta fjölskyldu- eða kunningja-
tengsl. Óheilbrigð tengsl af þeim toga
verða aðeins upprætt með siðsemi,
ráðvendni og prinsípfestu að vopni.
Margfalt betur hefur gengið að reisa
við efnahag þjóðarinnar eftir hrunið.
Svo vel, að eftir er tekið langt út fyrir
landsteinana. Auk þess er engin sam-
staða innan stjórnmálastéttarinnar
um hreingerningar af þessu tagi. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur t.d. kyrfilega
læst ofan í skúffu samþykktir um að
koma hrunverjum úr forystu flokksins
og forherðist í sérhagsmunagæslu við
fótskör þessa valds sem hér er lýst.
Of stór biti
fyrir litla RÚV
Þetta er flókið,
flókið, flókið, flókið
Kristinn Hrafnsson spurður út í brotthvarf sitt af RÚV. – Bein lína DVEdda Björgvinsdóttir um mál Magnúsar Helga sem var rekinn af Sólheimum. – DV
Spurningin
„Já, ég mun gera það. Ég er til í
að klæðast appelsínugulu fyrir
málstaðinn.“
María Rut Beck
28 ára bóksali
„Já, ef gul föt sleppa.“
Árni Eldon Ívarsson
18 ára skífuskankari
„Já, ég ætla að taka þátt og sýna
konum um allan heim samhug og
gera mitt besta til þess að vera
móður minni til sóma.“
Auðunn Lúthersson
19 ára starfsmaður hjá UN Women
„Nei, af því að ég á engin
appelsínugul föt.“
Marteinn Hjartarson
20 ára prjónamaður
„Nei, ég er með allt of kalt lúkk
til þess.“
Lars Von Pier
20 ára tónlistarmaður
Tekur þú þátt
í appelsínugula
deginum?
1 „Ég er orðin drulluleið á ógeðslegum strákum sem
káfa, grípa og klípa“ Bylgja
Gunnur Guðnýjardóttir reynir að verja
sig ágangi karlmanna.
2 Russell Crowe „deddaði“ í Mjölni Stórleikarinn fékk inni í
bardaga- og líkamsræktarklúbbnum.
3 Talar um kynlíf sitt og Katy Perry Russell Brand í opinskáu viðtali.
4 Þrír létu lífið við að vernda kærustur sínar Hetjudáð þriggja
manna í Colorado.
5 Fjósamaðurinn Hannes Bjarnason kaupir hús og hesta
Hannes hyggst setjast að í Blönduhlíð
í Skagafirði.
6 Réðst á konuna sína á Krýsu-víkurafleggjaranum Karlmaður
var handtekinn á Krýsuvíkurafleggjar-
anum við Hafnarfjörð, þar sem hann
hafði lagt hendur á konu sína.
7 Slasaðist á varasömum vegkafla Birkir Arnar Jónson
bifhjólamaður lenti í alvarlegu slysi
þegar framhjól bifhjóls hans fór ofan í
skemmd í malbikinu á Reykjanesbraut.
Mest lesið á DV.is
Ekkert stress Það hefur allt iðað af mannlífi í miðbæ Reykjavíkur í veðurblíðunni í sumar. Einn af mörgum vinsælum samkomustöðum fólks á öllum aldri er Hjartagarðurinn þar
sem ungir sem aldnir hafa það huggulegt. Mynd Eyþór ÁrnasonMyndin
Umræða 17Miðvikudagur 25. júlí 2012
Tregða óheilbrigða klíkuþjóðfélagsins
Kjallari
Jóhann Hauksson
Töluverður tími þar til ég
get stundað vinnu aftur
Birkir Arnar Jónsson, 26 ára bifhjólamaður, sem lenti í alvarlegu bifhjólaslysi. – DV