Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Side 20
n Krem sem hjálpar til við að sjá magavöðvana S nyrtivöruframleiðandinn Bliss hefur nú sett á mark- aðinn línu sem á að hjálpa þér að grennast. Eitt kremið í þessari línu heitir FatGirlSixpack og er það, eins og nafnið gefur til kynna að koma þér einu skrefi nær því að fá „þvottabrettamaga“. Í kreminu eru efni sem stuðla að því að tóna og stinna líkamann, til dæmis koffín, amínósýrur, kreatín, mentól og fleira. Ofan á flöskunni eru svo kúl- ur sem notaðar eru til að nudda kreminu á magann og á að gera það tvisvar á dag í 20 til 30 sekúnd- ur í einu. Einnig er mælt með hollu mataræði og reglulegum æfingum. Ein svona túpa er ekki gefins því hún kostar tæpar 5 þúsund krónur og í hverri túpu eru 145 millilítrar. Það eru fleiri vörur í þessari línu, til dæmis, FatGirlScrub, FatGirlSleep, FatGirlSlim og LoveHandler og allt eru þetta krem sem ætluð eru til að bæta útlit kvenna og öll efnin kosta um 4.500–5.000 krónur. Þessi lína fæst ekki ennþá á Íslandi en hægt er að versla hana á netinu. Í samtali við Ingunni hjá Trim- formi Berglindar sagði hún: „Það eru til krem sem virka vel til að stinna húðina en ekkert krem hef- ur stækkandi áhrif á vöðvana.“ 20 Lífsstíll 25. júlí 2012 Miðvikudagur Lotukerfis- borð Fyrir þá sem hafa áhuga á efna- fræði, eða jafnvel hafa engan þá er þetta borð æðislega flott. Þetta er borð eftir hönnuðinn James DeWulf en það er steypt innan í stálramma. Lotukerfið sem er grafið í steypuna er samt ekki það djúpt grafið í borðið að það sé til vandræða þegar glös eru lögð á borðið. Þetta borð gæti sómað sér á mörgum heimilum og er í mjög einföldum og nútímalegum stíl og lotukerfið gerir það bara enn skemmtilegra og líflegra. Það er til í tveimur litum og er hvert og eitt borð sérpantað frá hönnuðinum sjálfum. Nýstárlegir vaskar í boði Flestir vaskar hér á landi eru gerð- ir úr hvítu postulíni en nú hefur hönnuðurinn Kjell Engman hann- að vask sem er úr tæru gleri. Hver og einn vaskur er einstakur, sumir eru skreyttir með loftbólum, aðr- ir með fiskum og enn aðrir með myndum. Kjell hefur líka boðið upp á það að fólk velji sér hvað þau vilja hafa inn í glerinu og gerir hann vaskana eftir pöntunum. Ein týpan af vöskunum er með plássi í botninum fyrir myndir svo að hver og einn getur haft botninn eftir sínu eigin höfði. Fiskiklefar Símaklefar verða alltaf fátíðari sjón úti í hinum stóra heimi eft- ir tilkomu farsímanna og mikið magn af símaklefum því farnir á haugana. Margir listamenn hafa þó notað sér svona klefa til list- sköpunar og það er einmitt það sem listamaðurinn Benoit Des- eille gerði fyrir Festival of lights sem fór fram í Lyon í Frakklandi nýverið. Hann tók sig til og breytti gömlum símaklefa í fiskabúr í til- efni hátíðarinnar. Í botni klefans er sandur og gróður en síminn er ennþá í klef- anum, hann er svo lýstur upp með flottum ljósum og skreyttur með fallegum gullfiskum. Klefinn var þéttaður þannig að hann er alveg vatnsheldur og það er ekki möguleiki að forvitnir veg- farendur geti opnað hann. Sjáðu magavöðvana! FatGirlSixpack Bliss er komin með nýja línu af snyrtivörum. 1 Blökkuló - Erigone arctica Þessi könguló er mjög algeng um mest allt landið en þó aðallega við sjóinn. Blökkuló verpir eggjum sínum neðan á steina, spýtur eða laufblöð og vakir yfir eggjunum þangað til þau klekjast út. 2 Krosskönguló - Araneus diadematus Þessi er algeng um suður og suðvestur hluta lands- ins, ekki samt nálægt sjó. Krosskönguló er dugleg að veiða og þykir tilhugalíf þeirra mjög áhugavert því karldýrið bíður oft færis í marga daga áður en hann leggur í að biðla til kvendýrsins. Þegar hann hefur skilað sínu borðar kvendýrið hann oft og tíðum. 3 Kompuló - Lepthyphantes leprosus Kompuló finnst um allt land, oft í gömlum bygging- um, útihúsum og er á ferli allt árið. Hún sækir í raka og dimmu þar sem er lítill um- gangur, til dæmis undir þröskuldum og inni í veggjum. Hún veiðir önnur skordýr sér til matar sem þýðir að ef Kompuló þrífst heima hjá manni þá eru fleiri skordýr á ferli líka. 4 Húsakönguló - Tegenaria domestica Húsa- köngulær halda sig innandyra, í heim- kynnum manna, vöruskemmum og þess háttar. Hún vill vera í myrkri, í kjöllurum eða háaloftum og lifir á öðrum smádýrum. Húsaköngulær spinna trektlaga vefi og þeir koma oft í ljós þegar húsgögn eru hreyfð eftir langan tíma. 5 Hnoðakönguló - Pardosa palustris Algeng á Íslandi en aðallega á láglendi. Lifir í móum, gras- lendi og á melum og er mest áberandi í júní og júlí. Oft má sjá kvendýrin á hlaupum með eggjasekk aftan á sér. Þegar eggin klekjast út klifra ungarnir upp á bak á mömmunni og njóta verndar hennar. Það er mjög líklegt að fólk rekist á Hnoðakönguló í berjamó því þær halda sig mjög mikið í berjalyngi. 6 Sveipkönguló - Larinioides cornutus Sveipkönguló heldur sig á láglendi, og frekast á Norður- landi. Hún lifir í miklum gróðri, háu grasi, runnum og trjám, gjarnan nærri vatni. Hún er mjög algeng en alls ekki áberandi því hún leynist í gróðrinum. 7 Hagakönguló - Haplodrassus signifer Algeng á láglendi en hefur aðeins sést einu sinni á hálendinu. Heldur sig mikið í grasi, móum, kjarri og skógum, oft undir steinum. Hún fer mjög hratt yfir og þess vegna er ekki algengt að sjá hana þrátt fyrir að mikið sé til af henni. 8 Skemmukönguló - Tegenaria atrica Skemmukönguló er áberandi á höfuðborgarsvæðinu en líka á Akureyri, Selfossi, Kirkjubæjarklaustri og víðar. Hún lifir bara innandyra hér á landi og finnst aðallega í vöruskemmum og lagerum. Þess má geta að fyrsta Skemmuköngulóin sem fannst hér á landi er varðveitt á safni Náttúrufræðistofnunar Íslands en hún fannst í Reykjavík árið 1980. Köngulær teljast ekki til skordýra heldur áttfætlna og finnast um 84 tegundir af köngulóm á Íslandi og má skipta þeim í 2 hópa, vefköngulær og föruköngulær. V efköngulær spinna vef úr silkiþræði til að veiða í og kemur þráðurinn úr sér- stökum kirtli úr aftur- bol þeirra, nánar tiltekið úr þremur pörum af spunavörtum. Vefurinn harðnar um leið og hann kemur úr vörtunum og verður að sterkum þræði. Föruköngulær elta bráð sína uppi en geta líka spunnið vefi en nota hann til þess að spinna utan um eggin sín og til að svífa um. Allar köngulær eru rándýr og drepa bráð sína með eitri sem kem- ur úr kirtlum á höfði þeirra. Stundum lama þær bráðina bara til að eiga hana lifandi næst þegar þær verða svangar. Fáir vita hinsvegar að köngulær verða yfirleitt eins til tveggja ára gamlar, þær deyja ekki á veturnar heldur hafa þær hægt um sig í jarðveginum eða í híbýl- um manna. Heimildir: Vefsíða Náttúrufræði- stofnunar Íslands. algengustu köngulærnar 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.