Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Síða 21
Lífsstíll 21Miðvikudagur 25. júlí 2012
n Það er ekki bara kjöt, fiskur og grænmeti sem gott er að skella á grillið
1 Vatnsmelónur Verður gómsæt við grillun. Mjög gott er að búa til melónusalat úr grillaðri
melónu, balsamediki og klettasalati. Fylgjast þarf vel
með vatnsmelónu á grillinu, þar sem vökvinn úr henni á
það til að spýtast út og brenna grillarann.
2 Ferskjur Ferskjur, plómur og apríkósur eru gómsætar grillaðar. Best er að grilla þær með
hýðinu því þær eru svo mjúkar. Fátt slær við grillaðri
ferskju með ís í eftirrétt. Einnig eru þær góðar með
grillaðri grísalund eða kjúklingi.
3 Epli Eplakökuát hefur kennt okkur að epli eru gómsæmt bökuð og þau eru ennþá góm-
sætari grilluð. Hitinn frá grillinu mýkir eplið og gerir
það einstaklega sætt. Tilvalið að borða með ís og
súkkulaðisósu.
4 Jarðarber Hélstu að þú gætir ekki grillað ber? Þræddu þau á grillpinna og skelltu þeim á
grillið. Ráð fyrir næsta grillpart: smelltu jarðarberjum
og öðrum ávöxtum í skál og láttu gestina gera sína eigin
ávaxtagrillpinna.
5 Kókoshnetur Lærðu að opna kókoshnetu og þá er kominn einstakur, auðveldur og bragðgóður
eftirréttur. Þegar þér hefur tekist að kljúfa hnetuna í
tvennt er hún grilluð með hvítu hliðina niður þar til hún
verður gullinbrún. Þegar hún er tilbúin er innihaldið tekið
úr skelinni og dýft í bráðið súkkulaði.
6 Fíkjur Ef þú ert að leita að einhverju óvenjulegu í grillveisluna, grillaðu fíkjur og borðaðu með ís.
Einnig er gott að vefja þeim í hráskinku og bera fram
sem forrétt.
7 Bananar Fátt er betra en grillaður banani. Skerðu bananann á lengdina og hafðu hýðið á.
Settu púðursykur á skurðhliðina og grillaðu í 3 mínútur á
hvorri hlið. Best með ís og súkkulaðisósu.
8 Hunangsmelónur (Cantaloupe) Ekki hafa margir eldað hunangsmelónu, hvað þá grillað
hana, en melónur eru mjög góðar grillaðar. Best er að
skera hana í bita og setja á grillpinna. Flestir sem prófa
að grilla melónur gera það aftur.
Grillávextir
n Það eru líklega margir sem hafa
aldrei látið sér detta það til hugar að
grilla ávexti. Það eru hins vegar nokkrar
tegundir þeirra sem tilvalið er að skella á
grillið og eru hið mesta lostæti. Kostirnir
við að grilla ávexti eru hve auðvelt það
er og fljótlegt, svo ekki sé minnst á hvað
þeir eru hollur grillkostur. Á vefnum Org-
anic Gardening eru taldar upp nokkrar
tegundir sem sniðugt er að prófa núna
þegar grilltíminn stendur sem hæst.
Grilltími Það er um að
gera að prófa ný matvæli
á grillið. Mynd: Photos.coM
Bestu
ávextirnir
á grillið