Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Page 22
22 Menning 25. júlí 2012 Miðvikudagur
Leitar að stúlkum
n Kristín Tómasdóttir með nýja bók um stelpur
K
ristín Tómasdóttir legg-
ur nú lokahönd á bók
sem kemur út fyrir
næstu jól og fjallar um
veruleika ungra stúlkna. Í
því skyni leitar hún að ung-
um stúlkum til að ræða við
um lífsreynslu sína. „Ég er að
leita að stelpum á aldrinum
10–22 ára. Ég er bæði að leita
að aðsendum greinum þar
sem þær skrifa sínar skoðanir
eða hugleiðingar og svo stelp-
um sem ég get tekið viðtal við
og fjallað ítarlega um í bók-
inni. Ég er nú þegar búin að
hitta lesbíu, grænmetisætu,
galdrastelpu, forritunarsnill-
ing, transstelpu, skiptinema
og unga móður, svo eitthvað
sé nefnt,“ segir Kristín. Hún
hefur á undanförnum tveimur
árum sent frá sér fræðslubæk-
ur fyrir stelpur. Fyrri bókin,
Stelpur!, fjallaði um allt sem
Kristínu fannst að unglings-
stelpur þyrftu að vita og seinni
bókin, Stelpur A-Ö, fjallaði
um allt það sem unglings-
stelpur raunverulega vilja vita
en sú bók byggir á raunveru-
legum spurningum frá ung-
lingsstelpum. Í ár mun Kristín
hafa milligöngu um jafningja-
fræðslu milli stelpna og þess
vegna leitar hún nú að áhuga-
verðum unglingsstelpum og
þeirra skoðunum. Kristín
bendir áhugasömum stúlk-
um á að hafa samband við sig
á Facebook eða senda sér línu
á netfangið kristto@hi.is.
Rósir á
Íslandi
Um næstu helgi verða yfir
100 rósaáhugamenn frá
Norðurlöndunum á Íslandi
vegna Norrænu rósahelgar-
innar.
Rósahelgin er haldin
annað hvert ár og að þessu
sinni hér á landi og munu
þátttakendur virða fyrir sér
hvernig Íslendingum gengur
að tileinka sér ræktun á rós-
um í görðum sínum og sum-
arbústaðalöndum. Megin-
hluti dagskrár helgarinnar
verður því skoðun á íslensk-
um rósagörðum. Farið verð-
ur í Rósagarðinn í Laugardal,
tilraunagarð Rósaklúbbsins
í Höfðaskógi og sex einka-
garðar á höfuðborgarsvæð-
inu verða skoðaðir ásamt
fleiri görðum. Rósahelginni
lýkur með útigrilli í sumar-
bústað í grennd við Reykja-
vík þar sem líta má tilraun-
ir í rósarækt og ávaxtarækt
í skjóli skóga sem þar hafa
vaxið í rúm 50 ár.
Dirty
Beaches í
Hörpu
Miðasala á hljómleika
kanadísku hljómsveitarinn-
ar Dirty Beaches hefst mið-
vikudaginn 25. júlí á midi.
is og harpa.is. Dirty Beaches
gaf út fyrstu plötu sína í fullri
lengd, Badlands, í fyrra en
hún fékk afbragðsdóma og
mikla umfjöllun hjá erlend-
um tónlistarmiðlum. Tón-
leikarnir verða í Hörpu þann
4. september næstkomandi
og mun hljómsveitin Singa-
pore Sling, ásamt Sparkle
Poison einnig koma fram.
Tónleikarnir eru liður í tón-
leikaröðinni Stop over series
sem er samstarfsverkefni
Kimi Records og Hörpu, og
er studd af Icelandair, Reyka,
Gogoyoko og Kex Hosteli.
Galdrastelpur og græn-
metisætur Kristín Tómasdóttir
leitar að stelpum til að segja frá
lífsreynslu sinni. Nú þegar hefur hún
rætt við fjölda ólíkra stúlkna.
Eitt lag enn
Í tilefni af 50 ára afmæli
Siggu Beinteins og 30 ára
söngafmæli á árinu býður
Sigga til stórtónleika í Há-
skólabíói á sjálfan afmæl-
isdaginn, 26. júlí 2012.
Stórhljómsveit flytur vin-
sælustu lög Siggu í gegnum
tíðina, allt frá „Vertu ekki að
plata mig“ til dagsins í dag
og góðir gestir heimsækja
Siggu og taka með henni
lagið á veglegum ferilstón-
leikum.
Sérstakir gestir Siggu
verða meðal annarra Björg-
vin Halldórsson, Grétar
Örvarsson, Friðrik Ómar
Hjörleifsson, Regína Ósk
Óskarsdóttir, Erna Hrönn
Ólafsdóttir og Páll Óskar
Hjálmtýsson. Það má
sannarlega búast við tónlist-
arveislu í Háskólabíói þetta
kvöld.
Allir bestu molArnir
S
afnplata Hljómskálans
sem var að koma út er
eins og bland í poka.
Nema að á henni eru
bara bestu molarn-
ir. Ekkert sykurhúðað hlaup. Á
plötunni er að finna 15 lög sem
flutt voru í þættinum Hljóm-
skálinn á RÚV í vetur. Ýmist
er um að ræða frumsamið efni
eða eldri lög í nýjum búningi.
Ungir og ferskir tónlistarmenn
og þjóðþekktir reynslubolt-
ar láta ljós sitt skína og leiða
saman hesta sína í mörgum
laganna.
Það sem er sérlega vel gert
í Hljómskálanum er þessi vett-
vangur. Þar sem færasta tón-
listarfólki landsins gefst tæki-
færi á að koma saman og gera
eitthvað einstakt. Því mörg
þessara laga eru ekkert annað
en einstök. En umfram allt eru
gæði.
Ég gæti skrifað eitthvað
um þau öll en ætla að ein-
beita mér að þeim sem ég hef
hreinlega spilað aftur og aft-
ur. Og aftur. Sumargestur með
Ásgeiri Trausta er seiðandi
smellur sem lokkar mann til
sín. Ásgeir er svo sem ekki að
finna upp hjólið en vel flutt
lag, vel sungið og hugljúfur
texti eftir Einar Georg föður
Ásgeirs. Þetta þarf ekki að vera
flókið. Í sérstöku uppáhaldi er
Apinn í búrinu með Magga Ei-
ríks og hljómsveitinni Valdi-
mar. Löðrandi „swag“ í þessu
lagi um apann sem býr innra
með okkur flestum og vill
komast út. Maggi og Valdi-
mar ná einstaklega vel saman
og Valdimar sýnir það í þessu
lagi og hinum tveimur sem
hann syngur á plötunni, Ame-
ríka og Líttu sérhvert sólarlag,
að hann er einn besti söngvari
landsins. Ekki bara um þessar
mundir. Þvílík rödd.
Ameríka er annað frá-
bært lag og aftur er Maggi á
ferð með eitursvala texta-
smíð. Bragi Valdimar Skúla-
son á lagið en hann hélt
uppi stuðinu í greiningar-
deild Hljómskálans ásamt
Guðmundi Kristni Jónssyni.
Bragi er aftur á ferðinni í
laginu Líttu sérhvert sólar-
lag þar sem tvær af bestu
röddum landsins fá að njóta
sín. Títtnefndur Valdimar og
Sigríður Thorlacius. Hann á
lagið og textann en hann á
einnig textann í lagi Snorra
Helgasonar, Öll þessi ást,
sem hann flytur ásamt óska-
börnum þjóðarinnar, Of
Monsters and Men. Bragi er
ekki hættur því hann á líka
lag og texta í Berlín sem Sig-
tryggur Baldursson, Hljóm-
skálavörður, flytur ásamt
Sigurði Guðmundssyni sem
kenndur er við Hjálma.
Eins og ég kom inn á er
hægt á segja eitthvað gott um
öll lögin á plötunni. Fárán-
lega sexí lag Jóhanns Helga-
sonar og FM Belfast, kúlið
hjá Röggu Gísla og Lay Low,
lokkandi Elín Ey og „illaða
sándið“ hjá Retro Stefson.
Ég tek svo stórt upp í mig
að segja að hér sé á ferðinni
ein besta safnplata sem gef-
in hefur verið út á Íslandi.
Svo einfalt er það. Hljóm-
skálinn var ekki bara góð-
ur skemmti- og menningar-
þáttur heldur hefur hann
skilið eftir sig lög sem eiga
eftir að lifa um ókomin ár.
Ég er kannski dottinn í nett-
an „ofmatstrans“ en þannig
á það að vera þegar eðalstöff
ber að dyrum.
Ásgeir Jónsson
Sigtryggur
Baldursson
Hljómskálavörður
Driffjöðurin á bak við
frábæra þætti og
skapandi vettvang.
Apinn í búrinu „Löðrandi „swag“ í þessu lagi um apann sem býr innra með
okkur flestum og vill komast út.“
Ásgeir Jónsson
asgeir@dv.is
Tónlist
Hljómskálinn
Ýmsir flytjendur
Útgefandi: Sena.
15 lög, 45 mínútur
Hljómskálinn „Ein besta safn-
plata sem komið hefur út á Íslandi.“