Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Blaðsíða 2
2 Fréttir 26. september 2012 Miðvikudagur Særður örn fluttur til Reykjavíkur: „Lítur út eins og skotsár“ Særður örn var fluttur frá Þing- vallavatni til Reykjavíkur síðasta laugardag. Örninn hafði verið á vergangi við sunnanvert Þing- vallavatn, nánar tiltekið í klettum við Hellisvík, frá því fyrir verslun- armannahelgi að sögn Gunnars A. Birgissonar, sumarhúsaeiganda á Þingvöllum. Örninn hafði misst rúmlega þriðjung líkamsþyngdar sinnar vegna vannæringar þegar hann fannst, var einungis 3,8 kíló en ætti að öllu jöfnu að vera um 6 kíló. Um var að ræða 6 ára gamlan kvenfugl. „Við fundum hann við ósa Ölfus ár, sem rennur niður í vatn- ið. Hann var allur útataður í grút. Fýllinn ætti að vera auðveld bráð fyrir örninn þegar hann er heill og hann ælir út úr sér grút þegar honum er ógnað,“ segir Gunnar en vegna meiðsla arnarins átti hann erfitt með að veiða sér til matar svo vikum skipti. Goggurinn á erninum, sem Gunnar segist hafa nefnt Arn- fríði, var sundurtættur þegar hann fannst. Gunnar segir að hugsan- legt sé að skotið hafi verið á örn- inn úr byssu. ,,Þetta lítur út eins og skotsár. Þetta getur verið hagl sem hefur farið í gegnum nefið á honum eða lítið riffilskot. Það lítur út eins og einhver hafi reynt að skjóta hann í hausinn,“ segir Gunnar. Hann tekur þó fram að orsökin fyrir meiðslum arnarins liggi ekki endanlega fyrir þó svo að ummerkin á goggi hans líti út eins og skotsár. Starfsmaður Náttúrufræðistofn- unar sótti örninn á laugardaginn var ásamt Gunnari, að sögn þess síðarnefnda. Farið var með örninn til Reykjavíkur og hefur hann ver- ið í Húsdýragarðinum í Laugar- dal síðan þá. Gunnar segir örninn vera í fitun í garðinum. Hann seg- ir að dýralæknar muni nú meta hvort örninn geti notað gogginn úti í náttúrunni til að veiða sér til matar. Ef svarið við því er neikvætt mun fuglinum verða lógað. ,,Dýra- læknar munu meta hvort örninn geti notað gogginn út í náttúrunni eða ekki. Ef ekki þá þarf að lóga honum,“ segir Gunnar. Helgi og Benedikt metnir hæfastir Dómnefnd sem fjallað hefur um umsækjendur um tvö embætti hæstaréttardómara og auglýst voru laus til umsóknar 5. júlí 2012 hefur skilað samdóma niðurstöð- um. Niðurstaða dómnefndar er sú að Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson séu hæfastir til að hljóta embætti hæstaréttardómara. Sjö sóttu um embættin og einn dró umsókn sína til baka. Meðal þeirra sem sóttu um embættin voru, auk Benedikts og Helga, Brynjar Níels- son, Aðalheiður Jóhannsdóttir og Ása Ólafsdóttir. Í dómnefndinni voru Eiríkur Tómasson, Allan V. Magnússon, Guðrún Agnarsdótt- ir, Guðrún Björn Bjarnadóttir og Skarphéðinn Þórisson. É g mat það svo að það væri æskilegast fyrir flokkinn að ég byði mig fram í Reykjavík, því að hér er mikið endurnýj- unar- og uppbyggingarferli í gangi,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þá nýkjörinn for- maður Framsóknarflokksins, við Morgunblaðið árið 2009. Þá sagðist Sigmundur finna þrýsting úr grasrót flokksins um að hann byði sig fram á landsbyggðinni en talið þann kost betri að bjóða fram í Reykjavík að sinni. Á laugardag tilkynnti Sig- mundur hins vegar að hann hyggist flytja sig um set og bjóða fram í Norðausturkjördæmi í stað Reykja- víkur þar sem barátta flokksins er líkleg til að verða nokkur. Norðaust- urkjördæmi er eitt sterkasta vígi flokksins. Fylgi Framsóknarflokksins var 9,6 prósent í Reykjavík í þingkosn- ingunum árið 2009. Í kosningunum árið 2007 hafði flokkurinn misst sína þingmenn í Reykjavík. Framsókn fékk þrjá fulltrúa kosna í Reykja- vík árið 2003. Þáverandi formaður Jón Sigurðsson komst ekki á þing í kosningunum árið 2007 en það var reiðarslag fyrir flokkinn enda sagði Jón af sér í kjölfarið. Í því ljósi voru kosningarnar árið 2009 nokkur sig- ur fyrir Framsókn í Reykjavík sem stóð eftir með tvo þingmenn þau Sigmund og Vigdísi Hauksdóttur. Skipstjórinn fyrstur í bjarg Flokkurinn átti erfitt uppdráttar í sveitarstjórnarkosningum árið 2010. Þá náði Framsókn ekki manni í borgarstjórn og hlaut aðeins 2,7 pró- sent atkvæða. Í mars birti Capacent könnun á fylgi stjórnmálaflokka. Samkvæmt þeirri könnun á Fram- sókn von á að missa þingmann sinn í Reykjavík norður, þótt flokkurinn haldi væntanlega sama þingmanna- fjölda. Sigmundur er því samkvæmt þeim mælingum úti. Sögulega hefur Framsókn átt erfiðara uppdráttar í Reykjavík en á landsbyggðinni. Af þeim sök- um hafa formenn flokksins gjarn- an boðið fram í Reykjavík sem viðleitni til að styrkja flokkinn í höfuðborginni. Í því ljósi má túlka ákvörðun Sigmundar sem veik- leikamerki fyrir hann en með til- færslunni er brotin sú hefð að for- maður flokksins leggi verk sín í sölurnar í erfiðu kjördæmi. Þá vek- ur ákvörðun Sigmundar athygli í ljósi ummæla hans árið 2009 um að hann byði sig fram í Reykja- vík til að stuðla að uppbygginga- starfi flokksins á svæðinu. Því starfi er ekki nándar nærri lokið ef marka má þjóðarpúls Capacent og sveitastjórnarkosningarnar árið 2010. Sé miðað við þá reynslu er ljóst að formaðurinn skilar af sér nokkuð verra búi en hann tók við. Árið 2007 hlaut Framsókn 5,9 pró- sent fylgi í Reykjavík suður en 6,2 prósent í Reykjavík norður. Ásakanir um ósannindi Höskuldur Þórhallsson, þingmað- ur flokksins í Norðausturkjör- dæmi, sendi á föstudag frá sér til- kynningu um að hann sækist eftir fyrsta sæti á lista flokksins í kjör- dæminu. Birkir Jón Jónsson vara- formaður flokksins tilkynnti á laugardag að hann ætli að stíga til hliðar en í kjölfarið lét Sigmund- ur vita af ætlun sinni um að bjóða fram kjördæminu. Undarleg deila hófst í kjölfarið þar sem bæði Höskuldur og Sigmundur sökuðu hvorn annan um ósannindi. Opinberlega hefur Höskuldur látið hafa eftir sér að honum hafi „Ég mat það svo að það væri æskilegast fyrir flokkinn að ég byði mig fram í Reykjavík Formaðurinn Fórnar Höskuldi n Sigmundur sækir í öryggið n Ásakanir um ósannindi n Reykjavík í verra standi en árið 2007 Atli Þór Fanndal blaðamaður skrifar atli@dv.is Styður Höskuld Guðmundur Baldvin Guðmundsson, bæjarstjórnarfulltrúi Fram- sóknar á Akureyri stendur með Höskuldi. Stendur með Sigmundi Hrólfur Ölvis- son framkvæmdastjóri Framsóknarflokks- ins stendur með formanni flokksins. Fóru úr sínum kjördæmum Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Formaður frá 2009 Varð þingmaður árið 2009 fyrir Reykjavík norður. Hefur tilkynnt að hann fari fram í Norðausturkjördæmi. Halldór Ásgrímsson Formaður frá 1996–2006 Varð þingmaður árið 1974 í Austurlandskjördæmi. Flutti sig um kjördæmi árið 2003 þá í Reykja- víkurkjördæmi norður. Steingrímur Hermannsson Formaður frá 1979–1994 Varð þingmaður árið 1971 í Vestfjarðarkjör- dæmi. Flutti sig um kjördæmi árið 1987 þá í Reykjaneskjördæmi. Ólafur Jóhannesson Formaður frá 1969–1971 Varð þingmaður Skag- firðinga árið 1959. Flutti sig um kjördæmi árið 1979 þá í Reykjavíkur- kjördæmi. Bakkar ekki Sigmundur Davíð, for- maður Framsóknar- flokksins, tilkynnti að hann ætli að færa sig um set og bjóða fram í Norðausturkjördæmi. Sigmundur flytur sig því úr baráttusæti yfir í vígi Fram- sóknarmanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.