Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Blaðsíða 4
Nýtti kaupréttiNN á Bergi og seldi svo Fékk hærri styrk út á gráðuna n Kristinn Ólason fékk hærri styrki en áður hefur komið fram k ristinn Ólason, guðfræðingur- inn sem sagði ósatt til um dokt- orsgráðu, þáði hærri styrki en áður hefur komið fram. DV fjallaði um að Kristinn hefði fengið tæplega þriggja milljóna króna styrk frá Rannís, úr nýsköpunarsjóði náms- manna, út á doktorsgráðuna. Það rétta er hins vegar að Kristinn fékk þrisvar úthlutað rannsóknarstöðustyrk sem er sérstaklega ætlaður þeim sem nýlega hafa lokið doktorsnámi. Kristinn fékk úthlutað 2,5 milljónum árið 2003 og 2,8 milljónum árin 2004 og 2005, eða samtals 8,1 milljón króna í styrki fyrir verkefnið „En nú hefur auga mitt litið þig“ (Job 42,5). Bakgrunnur, merking og markmið Jobsbókar. Ljóst er að Kristinn hefði ekki fengið styrkina hefði hann sagt rétt frá doktorsgráðunni sem hann lauk aldrei við. Samkvæmt upplýsingum frá Rannís er málið hjá lögfræðing- um stofnunarinnar og ekki hefur ver- ið tekin ákvörðun um það hvort Krist- inn verði beðinn um að endurgreiða styrkinn. DV hefur fjallað um mál Kristins en hann var meðal annars stundakennari við guðfræðideild Háskóla Íslands, var rektor í Skálholti og ritgerð hans var skráð í sérstakan gagnagrunn fyr- ir íslenskar doktorsritgerðir. Viðtal við Kristin birtist í Morgunblaðinu þann 9. september síðastliðinn þar sem hann sagði frá „sinni hlið mála“, eins og það var orðað. Þar var hann spurður út í styrkinn frá Rannís og spurður hvort að haft hefði verið samband við hann vegna málsins. „Já, það hefur verið gert en meira veit ég ekki.“ n viktoria@dv.is 4 Fréttir 26. september 2012 Miðvikudagur n Átti kauprétt í Bergi-Hugin n Nokkrar vikur liðu á milli kaupa og sölu M agnús Kristinsson, út- gerðarmaður í Vestmanna- eyjum, nýtti sér kauprétt sem hann átti í 45 prósenta hlut í útgerðarfélaginu Bergi-Hugin rétt áður en hann seldi allt hluta- fé þess til Síldarvinnslunnar í byrj- un þessa mánaðar. Kauprétturinn var við Landsbanka Íslands, gamla Landsbankann, sem hafði leyst hlut- inn til sín árið 2009 vegna erfiðr- ar skuldastöðu Magnúsar. Magnús hafði haldið eftir 65 prósenta hlut í útgerðinni sem hefur tilheyrt fjöl- skyldu hans um árabil. Kaupverðið sem Magnús greiddi fyrir hlutinn hlýtur að hafa talist fullnægjandi að mati Landsbanka Íslands eða þá að Magnús hefur getað sýnt fram á að hann hygðist selja Berg-Hugin í heild sinni til Síldarvinnslunn- ar og að Landsbankinn ætti því von á hárri greiðslu fyrir hlutinn innan skamms. Magnús og Síldarvinnslan hafa ekki viljað gefa upp hversu mik- ið austfirska útgerðarfélagið greiddi fyrir útgerðina í Eyjum. Einungis nokkrar vikur Heimildir DV fyrir því að Magnús hafi nýtt sér kaupréttinn eru traustar. Heimildirnar herma að hann hafi keypt hlutinn í Bergi-Hugin aftur af Landsbankanum einungis nokkrum vikum áður en hann seldi útgerðina til Síldarvinnslunnar. Sjálfur neitar hann hins vegar að ræða um málið við DV. „Ég er búinn að segja ykk- ur það hjá DV að þið eigið ekki að spyrja mig spurninga. Takk samt fyrir að muna eftir mér. Vertu marg- blessaður,“ sagði Magnús áður en hann skellti á. Alveg er ljóst að samningavið- ræður Magnúsar og Síldarvinnsl- unnar um kaupin á Bergi hafa verið hafnar þar sem skuldastaða Magn- úsar er þannig að hann hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til að kaupa svo stóran hlut í svo verðmætri út- gerð upp á sitt eindæmi. Magnús hefur því keypt hlutinn í Bergi- Hugin til baka til þess eins að selja hann, og hlutinn sem hann hélt eft- ir, aftur til Síldarvinnslunnar. Síldarvinnslan svarar ekki Gunnþór Ingvason, fram- kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, vill ekki svara spurningum DV um málið. DV lék meðal annars forvitni á að vita hvort Síldarvinnslan hefði skrifað upp á pappíra um fyrirhug- uð kaup á Bergi-Hugin sem gerðu Magnúsi kleift að kaupa hlutinn í útgerðinni aftur af Landsbank- anum. „Við höfum sent frá okk- ur fréttatilkynningu um kaupin á Bergi-Hugin þar sem kemur fram hver seljandi bréfanna er. Málið er núna á borði Samkeppniseftirlitsins og mun SVN ekki tjá sig frekar um viðskiptin meðan málið er þar til af- greiðslu.“ Af hverju? Spurningin sem stendur eftir er af hverju Magnús nýtti sér forkaupsrétt- inn á Bergi til þess eins að selja fyrir- tækið strax aftur til Síldarvinnslunnar. Eitt svar er auðvitað að Síldarvinnslan hafi eingöngu viljað eignast allt hlutafé í útgerðinni og að möguleiki hafi ver- ið á því vegna forkaupsréttar Magn- úsar. Afar líklegt er að Landsbanki Ís- lands hafi vitað að Magnús væri að fara að selja útgerðina til Síldarvinnslunn- ar og að kaupverðið sem hann greiddi fyrir hlut bankans hafi verið fullnægj- andi. Þá stendur hins vegar eftir hvort og þá hversu mikið Magnús sjálfur fékk í vasann fyrir að selja Síldarvinnslunni útgerðina. Í forkaupsrétti hans að hlut bankans fólust vissulega verðmæti þar sem fleiri útgerðarfélög hefðu ör- ugglega verið áhugasöm um kvóta Bergs-Hugins hefði hlutur bankans verið seldur í opnu söluferli. Magnús vill hins vegar ekki ræða um söluna á Bergi-Huginn – eða annað – við DV. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Nokkrum vikum áður Magnús Kristinsson nýtti sér kauprétt á hlut Landsbanka Íslands í Bergi- Hugin nokkrum vikum áður en hann seldi allt hlutafé félagsins til Síldarvinnslunnar. Ekki liggur fyrir hvaða hvatar lágu þar að baki. „Ég er búinn að segja ykkur það hjá DV að þið eigið ekki að spyrja mig spurninga Leiðrétting Í síðasta helgarblaði DV kom fram í frétt og leiðara blaðsins að breytingar á gjaldeyrishaftalög- um, sem lögbundnar voru í mars síðastliðnum, hefðu verið unnar af fjármálaráðuneytinu í samvinnu við Seðlabanka Íslands. Þetta er rangt: Breytingarnar voru unnar af efnahags- og viðskiptaráðuneytinu í samvinnu við Seðlabankann. Hallgrímur Helgason á Beinni línu Rithöfundurinn, listmálarinn og þjóðfélagsrýnirinn Hallgrím- ur Helgason verður á Beinni línu á DV.is í dag, miðvikudag. Mun hann sitja fyrir svörum frá klukkan 13 til 14 og geta lesend- ur spurt hann spjörunum úr. Kunnustu bækur Hallgríms eru 101 Reykjavík, Höfundur Íslands og Rokland. Nýjasta bók hans, 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp, hefur slegið rækilega í gegn í Evrópu og Bandaríkjunum. Gæddi sér á þýfinu Kona um fimmtugt var stað- in að hnupli í 10–11 verslun í Leifsstöð fyrir fáeinum dög- um. Um var að ræða lítilræði af matvöru, sem konan tók ófrjálsri hendi. Hún stóð svo við inngang brottfararmegin og gæddi sér á góssinu þegar lögreglu bar að. Hún gekkst við því að hafa tekið um- ræddan varning, en þar sem enginn hefði verið til að af- greiða sig hefði hún geng- ið út án þess að borga. Hún kvaðst gjarnan vilja greiða fyrir matvælin, en vildi ekki fyrir nokkurn mun aftur inn í verslunina. Því varð úr að hún lét lögreglu hafa pen- inga, sem fór inn, greiddi skuld hennar, fékk kvittun, sem kon- an fékk í hendur og þar með var málinu lokið. 8 milljónir út á gráðuna Kristinn þáði rúmar 8 milljónir í styrk út á doktorsgráðuna sem hann sagðist vera með.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.