Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Blaðsíða 13
Minnsta 5 ára stúlka í heimi Erlent 13Miðvikudagur 26. september 2012 M innsta stúlka í heimi, hin fimm ára gamla Charlotte Garside, hóf skólagöngu sína fyrr í mánuðinum. Það var stórt skref fyrir hina smágerðu Charlotte en hún er aðeins 68 sentímetrar á hæð og rúm­ lega 4 kíló að þyngd, svipuð nokkurra vikna gömlu barni. Í síðustu viku fór hún í fyrsta sinn í skóla með jafnöldr­ um sínum. Þetta kemur fram á vef Dailymail. Unir sé vel í skólanum Foreldrar Charlotte, þau Scott Garside og Emma Newman, vilja að dóttir þeirra lifi sem venjulegustu lífi þrátt fyrir smæð sína. Charlotte fæddist sem dvergur og er með afar sjaldgæfa tegund dvergvaxtar, svo sjaldgæfa að ekki er til nafn yfir hann. Læknar mátu lífslíkur Charlotte ekki miklar þegar hún fæddist og bjugg­ ust ekki við því að hún myndi ná eins árs aldri. Charlotte hefur þó afsann­ að flest það sem læknar hafa spáð fyrir um og er nú komin í skóla. „Hún er mjög eftirtektarsöm og skólinn hefur nú þegar sagt okkur að hún sé með námsþroska á við 3 ára gamalt barn, sem er meira en við héldum,“ segir Emma. Charlotte unir sér vel í skólan­ um þrátt fyrir að vera langtum minni en flestir skólafélagar sínir. Reynd­ ar gengur hún enn í fötum fyrir ný­ fædd börn en foreldrar hennar og systur segja að þrátt fyrir smæð sína sé persónuleiki hennar risastór. Fái sem mest út úr lífinu Móðirin viðurkennir að hún hafi haft smá áhyggjur yfir því að Charlotte væri að byrja í skóla og hvernig skólafélagarnir myndu taka henni. „Auðvitað hafði ég áhyggjur af því að krakkarnir myndu stríða henni. En hún hefur sérkennara sem lítur eftir henni og hún er ekki eins viðkvæm og búast mætti við,“ segir Emma. Fjölskylda Charlotte segir hana vera fjöruga og vilja helst vera á fullu allan daginn. Hún kemur fjöl­ skyldumeðlimum sífellt á óvart. Foreldrar hennar vilja að hún fái að mennta sig með jafnöldrum sín­ um og fái sem mest út úr lífinu. „Við gátum ekki vitað það með vissu að hún myndi lifa svona lengi. Það hafa komið tímar þar sem við héld­ um að við værum að missa hana. En hún hefur lag á að koma manni á óvart,“ segir Emma og tekur fram að sú litla sé ótrúlega dugleg. „Hún heldur sínu striki og við bíðum spennt eftir því hvað næsta ár hefur í för með sér.“ n n Charlotte byrjaði í skóla í síðustu viku Í skólanum Hér er Charlotte með tveimur bekkjarsystrum sínum. Þær eru jafnaldrar en töluverður stærðarmunur er á þeim. Með mömmu og pabba Hér er Charlotte með foreldrum sínum. Þau segja hana sífellt koma á óvart en í fyrstu voru lífslíkur hennar ekki metnar miklar. Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is Vekur athygli Myndirnar af Kate hafa vakið athygli hjá breskum almenningi. Margir séð myndirnar E inn af hverjum fimm Bretum sem náð hafa átján ára aldri hafa séð myndir af Kate Middleton, hertogaynju af Cambridge, þar sem hún sólar sig berbrjósta í sumar­ fríi í Frakklandi. Myndirnar voru birt­ ar á dögunum í franska blaðinu Closer og síðan endurprentaðar í aukablaði sem fylgdi með ítalska slúðurblaðinu Chi. Bæði blöðin eru í eigu sama út­ gáfufélags. Breska markaðsrannsóknarfyrir­ tækið YouGov framkvæmdi á dögun­ um könnun þar sem áhugi bresks al­ mennings var kannaður. Hann virðist vera töluverður þó svo að myndirnar hafi ekki verið birtar í bresku slúður­ pressunni. Tuttugu prósent aðspurðra sögðust hafa skoðað myndirnar á ver­ aldarvefnum en eitt prósent sagðist hafa séð þær í erlendum tímaritum sem hafa birt myndirnar. Þá sögðust þrír af hverjum fjórum, eða 75 pró­ sent aðspurðra, að það hafi verið rétt ákvörðun hjá bresku konungsfjöl­ skyldunni að lögsækja útgáfufyrir­ tæki Closer og Chi og fara fram á lög­ bann á frekari birtingu myndanna. Þá sögðust 61 prósent aðspurðra telja að ljósmyndarinn, sem tók umrædd­ ar myndir, ætti að vera sóttur til saka. Áhugi breskra karlmanna er meiri en breskra kvenna. Þannig sögðust 25 prósent karlmanna hafa skoðað myndirnar af Kate á netinu en aðeins fimmtán prósent kvenna. Þá leiddi könnunin í ljós að áhuginn er mestur meðal ungra karlmanna. Hátt í helm­ ingur breskra karlmanna á aldrinum 18–24 ára höfðu séð myndirnar sam­ anborið við 32 prósent karla á aldrin­ um 25–39 ára. Sjö prósent þeirra karla sem komnir eru yfir sextugt höfðu skoðað myndirnar af Kate. n n Berbrjósta Kate vekur áhuga Breta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.