Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Page 3
Nýtt andlit í Reykjavík
Frosti Sigurjónsson, rekstrarhagræðingur, hefur
tilkynnt framboð sitt í Reykjavík. Hann sækist eftir
að leiða lista Framsóknarflokksins í Reykjavík.
Frosti Sigurjónsson er 49 ára Reykvíkingur kvæntur
Auði Sigurðardóttur, umhverfisskipulagsfræðingi en
þau eiga þrjú börn. Frosti er samkvæmt tilkynn-
ingu með viðskiptafræðipróf frá Háskóla Íslands
og meistarapróf í rekstrarhagfræði (MBA) frá
London Business School. Þá segir í tilkynningunni
að Frosti sé meðstofnandi og stjórnarformaður hjá
hugbúnaðarfyrirtækjunum Dohop og DataMarket,
og stjórnarmaður í Arctica Finance. Hann var í fimm
ár forstjóri Nýherja og stjórnarformaður CCP, en þar
áður fjármálastjóri hjá Marel.
Frosti er stjórnarmaður í Heimssýn, samtaka gegn aðild að ESB, og einnig með-
limur í Advice-hópnum andstæðingum þess að samið sé við Breta og Hollendinga um
Icesave-skuldbindingar Landsbankans. Hópurinn taldi enga lagaskyldu hvíla á Íslandi
að ríkistryggja innistæður Landsbankans.
Árið 2010 bauð Frosti sig fram til stjórnlagaþings en hlaut ekki brautargengi.
„Stjórnlagaþing er tækifæri til að koma á nútímalegu og lýðræðislegu stjórnarfari á
Íslandi og ég hef mikinn áhuga á að leggja mitt af mörkum í því verkefni,“ skrifaði hann
á stjórnlagavef DV fyrir kosningarnar. Þá sagðist Frosti telja ríka ástæðu til að breyta
stjórnarskránni. Hann lýsti sig hlynntan breyttri kjördæmaskipan og að hann vildi
sjá þeim fjölgað, jafnvel að tekin yrðu upp einmenningskjördæmi hér á landi. Frosti
sagðist í svörum sínum vera stuðningsmaður þingræðis en ekki forsætisræðis og að
draga ætti lítillega úr valheimildum forsetans með breyttri stjórnarskrá.
Jónína Ben óákveðin
Jónína Benediktsdóttir
segist ekki hafa ákveðið
í hvaða sæti og í hvaða
kjördæmi hún mun gefa
kost á sér fyrir Fram-
sóknarflokkinn. Í samtali
við DV segist hún ætla
að funda með sínu fólki
í dag, miðvikudag og
tilkynna ákvörðun sína
í kjölfarið. Jónína gekk
aftur í Framsóknarflokk-
inn fyrr á árinu, flokknum
til mikillar ánægju að því
er virðist. Sérstök frétta-
tilkynning var send út í
tilefni af nýja meðlimnum. „Framsókn hefur lært af fortíð sinni, lagað til í liði sínu, val-
ið formann sem þorir og hugsar bara um lausnir fyrir landið okkar. Því hef ég ákveðið
að leggja flokknum starfsþrek mitt. Persónukjör er ekki í boði fyrir næstu kosningar.
Ég skora því á alla þá sem trúa á endurreisn Íslands að sameinast um flokkinn sem
vill vinna hratt að lausnum. Framsóknarfólki líkar illa núverandi kyrrseta, þess vegna
þurfum við að koma að nýrri ríkisstjórn,“ sagði í tilkynningu Jónínu. Hún er gift Gunnari
Þorsteinssyni, betur þekktum sem Gunnari í Krossinum. Þau giftu sig árið 2010.
Fréttir 3Miðvikudagur 26. september 2012
Jákvæðir Íslendingar
n Væntingavísitalan ekki verið hærri frá árinu 2008
V
æntingavísitala Capacent
Gallup hækkaði í september,
sjötta mánuðinn í röð. Fjall-
að er um þetta á vef Grein-
ingar Íslandsbanka en vísitalan er
nú 90,1 stig og hefur ekki verið hærri
síðan vorið 2008. Vísitalan nálgast nú
gildið 100, en þegar hún fer yfir það
stig eru fleiri jákvæðir en neikvæðir.
Væntingavísitalan hefur verið undir
100 stigum frá því í mars 2008. Neyt-
endur eru nú mun bjartsýnni en fyr-
ir ári, en þá var væntingavísitalan
20 stigum lægri en nú. Það sem af
er þessu ári hefur væntingavísitalan
verið að meðaltali 78 stig en í fyrra
var hún að meðaltali 60 stig yfir allt
árið og hafa íslenskir neytendur því
verið mun bjartsýnni það sem af er
þessu ári en síðustu misseri.
Í umfjöllun Greiningar kemur
fram að væntingavísitalan mæli
væntingar íslenskra neytenda til
efnahags- og atvinnuástands í nú-
tíð og framtíð. Virðist mælingin nú
í september benda til þess að bjart-
sýni hafi ekki orðið fyrir neinum
teljanlegum skakkaföllum þrátt fyr-
ir veikingu krónunnar undanfarinn
mánuð og versnandi verðbólguhorf-
ur í kjölfarið. Virðast þar aðrir þættir
vega á móti og veita tilefni til bjart-
sýni. Þar er helst að nefna batnandi
atvinnuástand, en undirvísitalan
sem mælir mat á atvinnuástandi
mælist nú 101,3 stig og er það í fyrsta
sinn frá því fyrir hruni að vísitalan
fer yfir 100 stig.
Væntingar neytenda til 6 mánaða
aukast einnig mikið núna í septem-
ber. Er undirvísitalan sem það mæl-
ir nú 118,9 stig er er það fimmti
mánuðurinn í röð sem vísitalan er
yfir 100 stigum. Landinn lítur fram-
tíðina nú mun bjartari augum en nú-
tíðina. n
Væntingar glæðast Íslendingar eru
nokkuð bjartsýnir á komandi tíma, sam-
kvæmt væntingavísitölu Gallup.
n Sigmundur sækir í öryggið n Ásakanir um ósannindi n Reykjavík í verra standi en árið 2007
ekki verið kunnugt um fyrirætlanir
Sigmundar. Þetta hefur Sigmund-
ur sagt rangt og raunar hefur Hrólf-
ur Ölvisson framkvæmdastjóri
flokksins staðfest sögu Sigmund-
ar. Í samtali við Ríkisútvarpið í
gær þriðjudag, sagðist Höskuld-
ur í raun hafa tilkynnt um fyrirætl-
anir sínar um miðjan september
á bæjarmálafundi Framsóknar á
Akureyri. Þessa útgáfu af atburð-
arrásinni staðfestir Guðmundur
Baldvin Guðmundsson, bæjarfull-
trúi flokksins á Akureyri.
Málið úr fjölmiðlum
DV ræddi við trúnaðarmenn í
Framsóknarflokknum sem flestir
komu af fjöllum í málinu. Á þeim
er ljóst að Sigmundur hefur ekki
rætt sín mál innan flokksins. Þeir
sem standa formanninum næst
hafa þó viljað gera sem minnst
úr málinu. Ítrekað kom fram að
á sínum tíma hefðu margir inn-
an Framsóknar verið undrandi
yfir ákvörðun Sigmundar árið
2009 að bjóða fram í Reykjavík.
Þá kom fram að allt kapp væri
nú lagt á það innan flokksins að
draga átökin úr fjölmiðlum. Erf-
iðlega gekk að ná í bæði Sigmund
og Höskuld við vinnslu fréttarinn-
ar þrátt fyrir ítr ekaðar tilraunir. n
Þ
etta er auðvitað djöfullegt
mál,“ segir Björn Valur Gísla-
son, þingmaður Vinstri
grænna og formaður fjár-
laganefndar Alþingis um fjár-
austrið vegna bókhaldskerfis ríkisins
og drög að skýrslu þess efnis sem Rík-
isendurskoðun hefur legið á frá ár-
inu 2009. Kastljós hefur tvívegis fjallað
um málið í vikunni. „Þetta er arfleifð
gamla tímans, gamla vinnulagsins,
gömlu góðu stjórnmálaspillingarinnar
sem hér grasseraði,“ segir Björn Valur.
Dýrt og gallað kerfi
Bókhaldskerfi ríkisins var keypt árið
2001 þegar Geir H. Haarde gegndi
stöðu fjármálaráðherra. Hann skrifaði
undir samning við Skýrr um kaup á
bókhaldskerfi fyrir um milljarð króna
en í fjárlögum hafði fengist heimild
fyrir 160 milljónum króna. Kastljós
greindi frá því að kostnaður við kerf-
ið hlypi nú á um fjórum milljörðum
króna og að Ríkisendurskoðun liti svo
á að ekki hefði verið staðið við gerða
samninga. Fram kom að það hefði
verið samdóma álit að yfirburðir kerf-
isins sem Nýherji bauð hefðu ver-
ið miklir þegar kom að því að sýna
„keyrandi lausn“. Ljóst er þó að sú
lausn sem Skýrr bauð var mun ófull-
komnari en menn héldu í upphafi.
Kerfið uppfyllir ekki öryggisreglur og
í því eru gloppur sem gera hundruð-
um starfsmanna ríkisstofnana kleift
að misnota það, til að mynda með
því að opna, bóka og bakfæra færslu-
bækur. Að því er fram kom í Kastljósi
á þriðjudag virðist að minnsta kosti
tvisvar sinnum hafa komið upp atvik
þar sem einkafyrirtæki fengu greidd-
an sama reikninginn tvisvar frá rík-
inu. Í bæði skiptin var um hundruð
þúsund krónur að ræða og krafð-
ist ríkið ekki endurgreiðslu á seinni
greiðslunni.
Átti að meta bræður sína
Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi
frá árinu 2008, hefur verið harðlega
gagnrýndur vegna málsins enda
var Alþingi ekki gert viðvart um efni
skýrsl unnar og framúrkeyrslu kostn-
aðar við bókhaldskerfið. Bræður
Sveins, þeir Atli og Þórhallur Ara-
synir tengjast einnig málinu. Atli tók
við starfi framkvæmdastjóra sölu- og
markaðsdeildar Skýrr árið 1999 og
starfaði þar þegar útboð á bókhalds-
kerfinu átti sér stað. Þórhallur var
hins vegar skrifstofustjóri fjárreiðu-
skrifsstofu fjármálaráðuneytisins
sem hafði umsjón og innleiðingu
kerfisins á sínum höndum. Þannig
var Sveinn Arason í þeirri stöðu að
þurfa að leggja mat á störf bræðra
sinna.
Heimtar svör
Björn Valur er hneykslaður á ríkis-
endurskoðanda og öðrum sem koma
að málinu fyrir að hafa ekki veitt Al-
þingi viðeigandi upplýsingar. „Þeim
hefur tekist að halda aftur af þessum
upplýsingum í einhvern tíma,“ seg-
ir hann.„ Þetta er sama upplifunin
og árin 2008 og 2009 þegar það voru
sífellt að koma ömurleg mál fram í
dagsljósið.“ Aðspurður hvort hon-
um finnist Geir H. Haarde bera ein-
hverja ábyrgð á málinu segir Björn
Valur að ef einhver stjórnmálamað-
ur geri það sé það helst hann. „Hann
hefur nú ekki verið fús til að axla
ábyrgð, en hér er ábyrgðin ekki síð-
ur þeirra sem hafa ekki viljað koma
þessum upplýsingum til okkar. Ég á
ennþá eftir að fá svör við því hvers
vegna það var ekki gert.“ Björn telur
að málið sé varðað eintómum mis-
tökum og fjáraustri.
„Hún var eitthvað að rugla“
Vigdís Hauksdóttir þingkona Fram-
sóknarflokksins hefur kallað gögn-
in sem umfjöllun Kastljóss byggir á
„þýfi“ og snuprað Björn Val fyrir að
hafa séð gögnin. Á sameiginlegum
fundi fjárlaganefndar og stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefndar sagði Vig-
dís að sér þætti „óþægilegt“ að sitja
fundinn þar sem hún hafi ekki feng-
ið nein gögn í hendur. Björn Valur
furðar sig á málflutningi Vigdísar.
„Hún hefur ákveðið að verja þetta
allt saman og ég er ekki með henni
í liði. Hún var eitthvað að rugla í
þinginu í dag og býsnaðist yfir því að
þetta hefði verið dregið fram í dags-
ljósið. Ég vona að hún sé ein um
þá skoðun í þinginu að það sé rétt
að leyna svona upplýsingum,“ seg-
ir hann. „Málið er ömurlegt, arfleifð
spillingarinnar og við þingmennirn-
ir verðum bara að hafa bein í nefinu
til að uppræta hana.“ n
Bræðurnir allt í kring
n Björn Valur harðorður í garð Ríkisendurskoðunar
„Hann
hefur nú
ekki verið fús til
að axla ábyrgð
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannp@dv.is
Sveinn Arason Öll spjót beinast nú að Sveini
Arasyni ríkisendurskoðanda vegna skýrslu-
draga sem Ríkisendurskoðun hefur legið á.
„Djöfullegt mál“ Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar er hneykslaður á þeim
vinnubrögðum sem viðhöfð voru.