Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Page 6
Eignir rýrnuðu um rúmA 10 milljArðA Raðmálsóknir þrotabús Fons n Markmið þrotabúsins er að fá til baka um níu milljarða króna S jö mál fyrir hönd þrotabús eignarhaldsfélagsins Fons voru tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag. Meðal þeirra sem þrotabúið hefur stefnt til að endurheimta peninga er Pálmi Haraldsson og krefst búið þess að fjárfestirinn greiði Fons til baka þá fjármuni sem hann lét Fons greiða fyrir einkaneyslu sína. Þá eru að auki stefnur gegn Jóhannesi Kristinssyni og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Það er þrotabú Fons sem stefnir í málunum sem fyrr segir og er markmið búsins með stefnunum að fá til baka um níu milljarða króna. Hæsta fjárhæðin sem um ræðir er vegna greiðslu Pálma og Jóns Ás- geirs Jóhannessonar á 4,2 milljörð- um króna frá Fons til eignarhalds- félagsins Matthews Holding í Lúxemborg fyrir rekstrarárið 2006. Þrotabúið krefst riftunar á viðskipt- unum. Að auki telur skiptastjóri Fons að lánasamningur upp á um milljarð króna milli Fons og félags í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar árið 2008 hafi verið málamyndagerningur og talið er að milljarðurinn hafi runnið beint til Jóns Ásgeirs. Lánið var afskrifað skömmu eftir millifærsluna, tæp- um sjö mánuðum síðar. Skiptastjóri Fons, Óskar Sigurðsson, telur að millifærslan á milljarðinum hafi ver- ið gjöf en ekki lán til Jóns Ásgeirs og vill hann að fjárfestirinn greiði pen- ingana til baka. Eins mun þrotabúið stefna Pálma vegna riftunar á kaupum hans á breska flugfélaginu Astraeus og krefjast þess að hann greiði nærri 3,5 milljarða aftur til búsins. Sú stefna verður þingfest í apríl. Lunginn úr þeirri fjárhæð sem þrotabúið vill ná til baka er því úr þessum tveimur málum: arðsmálinu og kaupunum á Astraeus. n 6 Fréttir 24. september 2012 Miðvikudagur n Turn í Makaó og breskur fjárfestingarsjóður verðmetnir á 10,6 milljarða H elstu eignir einkahlutafélags- ins Vafnings, sem í dag heit- ir Földungur ehf., hafa rýrnað um rúmlega tíu milljarða króna frá því í febrúar 2008 þegar fé- lagið tók við þessum eignum. Eign- irnar sem um ræðir eru fasteignaverk- efnið SJ Properties MacauOneCentral HoldCo ehf., eignarhaldsfélag sem stofnað var utan um byggingu íbúða- turns í Makaó í Asíu, og breski fjár- festingarsjóðurinn KCAJ Ltd. Þetta kemur fram í ársreikningi Földungs sem nýlega var skilað til ársreikninga- skrár. Þessar tvær eignir voru í lok síð- asta árs metnar á 355 milljónir króna en voru í lok árs 2010 metnar á 855 milljónir króna. Rýrnun eignanna á milli ára nemur því rúmum hálfum milljarði króna. Margfalt yfirverð Földungur, sem í dag er í eigu skilanefndar Glitnis, tók við þess- um eignum frá dótturfélögum Sjó- vár í byrjun febrúar 2008 fyrir bókfært verð sem nam samtals 10,6 milljörð- um króna – fasteignaverkefnið kostaði 5,2 milljarða og fjárfestingarsjóðurinn 5,4. Tilgangurinn með eignatilfærsl- unni var að búa til veðrými inni í Vafn- ingi svo félagið ætti einhverjar eign- ir til veðsetningar á móti lánveitingu frá Glitni sem notuð var til að endur- fjármagna hlutabréf í bankanum sem voru í eigu Sjóvár, Milestone, og bræðr- anna Einars og Benedikts Sveinssona. Um var að ræða endurfjármögnun á láni hjá bandaríska fjárfestingarbank- anum Morgan Stanley. Tveir af fyrr- verandi starfsmönnum Glitnis, Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason, hafa verið ákærðir fyrir umboðssvik vegna þessarar lánveitingar. Rýrnun eignanna nemur nánar til- tekið 10.245 milljónum króna á síð- astliðnum fjórum árum. Þessi rýrnun bendir til að eignirnar hafi verið færðar inn í Vafning á margföldu yfirverði svo félagið ætti einhverjar eignir til veð- setningar á móti láninu frá Glitni. Vissi ekki hvaða eignir voru undir Líkt og DV hefur greint frá tók Bjarni Benediktsson, núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og þáverandi þingmaður, þátt í viðskiptum Vafnings í byrjun febrúar 2008. Þetta gerði hann fyrir hönd föður síns og föðurbróð- ur, Einars og Benedikts Sveinssona. Bjarni skrifaði undir veðsetningarskjöl í umboði þeirra þar sem eignarhlutir þeirra í Vafningi, sem eingöngu átti áð- urnefndar eignir, voru veðsettir á móti láninu frá Glitni. Bjarni hefur sagt að hann hafi ekk- ert komið að endurfjármögnuninni á hlutabréfunum; hann hafi aðeins skrifað undir áðurnefnd veðsetn- ingarskjöl. „Að sjálfsögðu ekki. Ég kom ekkert nálægt þeirri ákvarðana- töku um þá endurfjármögnun sem var að eiga sér stað á þessum tíma. Þess vegna vissi ég ekki hvaða gerningar lágu þarna að baki. Ég kom einungis að þeim gerningi að veðsetja hluta- bréfin fyrir hönd þeirra sem á þeim héldu. Aðrir voru að vinna í endur- fjármögnuninni í samvinnu við bank- ann,“ sagði Bjarni í viðtali við DV í lok árs 2009. Samkvæmt þessu vissi Bjarni ekki hvaða eignir Vafnings lágu til grundvallar veðsetningunni sem hann skrifaði undir. Skilanefnd Glitn- is situr hins vegar uppi með þessar eignir í gegnum Földung, áður Vafn- ing. Bjarni hefur neitað að svara ítar- legum skriflegum spurningum DV um Vafningsmálið og hefur sömuleið- is neitað blaðinu um viðtal á þeim forsendum að ekki ríki traust á milli hans og blaðsins. Skuldar 43 milljarða Vafningur skuldaði rúmlega 43 millj- arða króna í lok síðasta árs. Gjaldfalln- ar afborganir nema sömu upphæð. Eignir félagsins nema rúmlega 1,3 milljörðum króna en þar af eru lán- veitingar til KCAJ og dótturfélags þess upp á rúmlega 800 milljónir króna. Eiginfjárstaða félags er nú neikvæð um sem nemur tæpum 42 milljörð- um króna. í skýrslu stjórnar Vafnings, sem undirrituð er af Eiríki S. Jóhannssyni, starfsmanni skilanefndar Glitnis, stjórnarformanni útgerðarfélagsins Samherja og fyrrverandi starfsmanni Baugs, kemur fram að ekki liggi fyr- ir hvort og þá hvernig félaginu verð- ur slitið. „Ákvörðun um hvort og með hvaða hætti félaginu verður slitið liggur ekki fyrir, en unnið er að nánari útfærslu þess í samvinnu við kröfuhafa félagsins.“ Einungis er því tímaspursmál hvenær félagið verð- ur gefið upp til gjaldþrotaskipta eða því slitið. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Vissi ekki um eignirnar Bjarni Benediktsson hefur borið því við að hafa ekki vitað hvaða eignir Vafningur átti þegar hann skrifaði undir veðsetn- ingarskjöl vegna láns til félagsins frá Glitni í febrúar 2008. Eignirnar hafa rýrnað um rúma 10 milljarða. „Ákvörðun um hvort eða hvernig félag- inu verður slitið liggur ekki fyrirDrukkinn á dráttarvél Lögreglan á Suðurnesjum hafði á mánudagskvöld afskipti af karlmanni á fimmtugsaldri sem ók dráttarvél, ölvaður og svipt- ur ökuréttindum, eftir Garðvegi. Maður inn var að flytja heyrúllur og athygli vakti að bæði dráttar- vélin og vagninn voru ljóslaus að aftan, og enginn glitmerki á vagn- inum. Lögreglan stöðvaði akstur mannsins og fannst þá ramm- ur áfengisþefur af honum. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Festivagninn sem heyrúllurnar voru á reyndist við athugun vera óskráður og einnig vantaði skráningarmerki og bak- sýnisspegla á dráttarvélina. Í henni fannst hálfs lítra flaska af áfengisblöndu, að því er segir í til- kynningu frá lögreglu. Framvísaði kannabis Kona á þrítugsaldri var stöðvuð á mánudag þar sem hún ók, svipt ökuréttindum, í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Grunsemdir vöknuðu um að konan væri með fíkniefni í fór- um sínum. Það leiddi til þess að húsleit var gerð á heimili hennar og framvísaði hún þar kannabis- efnum. Þá voru höfð afskipti af tveimur ökuþórum sem óku allt of hratt. Annar þeirra mældist á 146 kílómetra hraða á Reykjanes- braut þar sem leyfður hámarks- hraði er 90 kílómetrar á klukku- stund. Hinn mældist á 128 kílómetra hraða þar sem leyfileg- ur hámarkshraði er 70 kílómetrar á klukkustund. Báðir eiga von á svimandi hárri sekt. Veittist að kennara Nemandi í Borgarholtsskóla veitt- ist að kennara sínum með ofbeldi í skólanum á mánudag. Samkvæmt heimildum DV var nemandinn að hlusta á tón- list í iPod inni í kennslustund þegar kennarinn, sem er kona, tók heyrnartólin úr eyrum hans. Brást þá nemandinn þannig við að hann kýldi kennarann. Ingi Bogi Bogason, aðstoðar- skólameistari Borgarholtsskóla, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað, en það mun vera á viðkvæmu stigi. Nóg að gera Þrotabú Fons krefst þess meðal annars að kaupum Pálma á flugfélaginu Astraeus verði rift.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.