Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2012, Síða 25
Fólk 25Miðvikudagur 26. september 2012
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
30
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
n Segir Mariu hafa komið honum að óvörum í nýrri ævisögu
Vill að Kim grennist
Þ
að er ekki nóg með að
Kanye West hafi látið
kærustuna sína, Kim Kar-
dashian, endurnýja fata-
skápinn sinn heldur vill
hann nú að hún breyti líkama sín-
um líka. Hann vill að hún fari á
sama mataræði og Beyoncé var á
þegar hún undirbjó sig fyrir hlut-
verk sitt í kvikmyndinni Dream-
girls. „Hann vill að Kim missi um
tíu kíló og bendir á að hún og
Beyoncé séu svipaðar í vextinum.
Þar af leiðandi ætti hún að geta
öðlast vöxt ofurfyrirsætu með því
fara á sítrónu, cayenne-, pipar- og
hlynsýrópkúrinn,“ sagði heimilda-
maður í samtali við tímaritið OK!
Ástæðan fyrir þessum kröfum
Kanye er sú að hann vill að Kim
verði andlit nýrrar fatalínu sem
hann er að setja á laggirnar og til
þess verði hún að passa í fötin.
n Natalie Portman er alltaf jafnfalleg
N
atalie Portman er orðin
ljóshærð. Þessi 31 árs
gamla Hollywood-stjarna
og Óskarsverðlaunahafi,
hefur ekki verið mikið fyr-
ir róttækar útlitsbreytingar í gegn-
um tíðina. Samkvæmt bandarísku
slúðurpressunni litaði hún hárið
á sér fyrir kvikmyndahlutverk. Á
næsta ári kemur út myndin Knight
of Cups þar sem hún fer með að-
alhlutverkið ásamt Christian Bale.
Eitt er víst að Natalie er alltaf jafn-
falleg – ljóshærð eða dökkhærð.
n Kanye West er sannfærður um að kærastan geti feng-
ið líkama ofurfyrirsætu
Rassinn burt! Kanye vill að
Kim missi um tíu kíló til að geta
verið andlit nýrrar fatalínu.
Ljóska!
Sýndi ljósu lokkana
Leikkonan mætti til há-
tíðarkvöldverðar þar sem
hún hitti leikarann Robert
Pattinson og fleiri stjörnur.
Ljóska Leikkonan er
glæsileg með ljóst hár.
Missti af ungLingsárunuM
H
arry Potter-leikkonan Emma Watson viður-
kennir í samtali við The Mirror að hún hafi
verið svo upptekin af leiklistinni á unglings-
árunum að hún hafi í raun misst af bæði nei-
kvæðum og jákvæðum upplifunum venjulegs
unglings á þessu tímabili. Hún segist jafnframt hafa
rekið sig á margar hindranir í leitinni að ástinni.
„Þegar ég byrjaði að fara á stefnumót þá hafði ég róm-
antískar Rómeó- og Júlíu-hugmyndir um ástina. Mér
fannst ég vera hálfgert fórnarlamb – það fylgdi þessu
mikill sársauki og ég hélt að þannig ætti það að vera.“
Eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir til að finna rétta
manninn áttaði hún sig hins vegar á því að þetta var
ekki rétt. „Þetta hljómar eins og klisja en ég lærði líka
að þú getur ekki fundið rétta manninn fyrr en þú elskar
sjálfa þig og líður vel með hver þú ert.“
Emma er um þessar mundir í sambandi með skóla-
félaga sínum úr Oxford-háskóla.
n Emma Watson hélt að ástinni ætti að fylgja sársauki
Hindranir Emma hefur
gengið á marga veggi í leitinni
að hin hinum eina rétta.
Farinn í meðferð
B
illie Joe Armstrong er á
leiðinni í meðferð. Söngv-
ari The Green Day, sem er
fertugur, missti stjórn á sér
á iHeart Radio Music tón-
listarhátíðinni í Las Vegas um síð-
ustu helgi. Sveitin hafði troðið upp
í MGM Grand Theater þegar þeim
var gert að drífa sig að taka til eftir
sig. „Ég er búinn að vera í þessum
bransa frá helvítis 1988 og er skip-
að að drífa mig. Er verið að grínast
í mér?“ er lausleg þýðing á því sem
söngvarinn lét út úr sér. Nýjasta
plata sveitarinnar, Uno, kom út á
þriðjudaginn en útgáfutónleikum
var frestað vegna meðferðarinnar.
n Söngvari The
Green Day í ruglinu
Fullur og dónalegur
Platan Uno kom út á
þriðjudaginn.
L
eikkonan Sharon Stone var flutt í skyndi á sjúkrahús
um helgina eftir að hafa fengið mjög svæsið
mígrenikast á tískusýningu Fendi í Mílanó. Leikkon-
an, sem fékk heilablæðingu árið 2001, dvaldi þó ekki
lengi á sjúkrahúsinu. Læknar töldu að óhætt væri að
útskrifa hana nokkrum klukkutímum síðar og fór hún beint
á fjáröflunaruppboð þar sem hún sjálf var uppboðshaldari.
Sharon, sem er 57 ára, mætti þangað í fylgd 27 ára gamals
elskhuga síns, argentínsku fyrirsætunnar Martins Mica.
n Mætti með 27 ára elskhuga upp á arminn
Flutt í skyndi á sjúkrahús
Stórglæsileg Hin 57 ára gamla Sharon Stone mætti
með argentínsku fyrirsætuna Martin Mica á uppboðið.