Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2011, Blaðsíða 12
12 | Fréttir 8.–10. júlí 2011 Helgarblaðið
Kvikmyndaframleiðandinn Sigur-
jón Sighvatsson virðist ekki koma vel
undan viðskiptaævintýrum sínum í
Danmörku. Ef nafni hans er flett upp
í danskri fyrirtækjaskrá kemur í ljós
að átta félög sem tengjast fasteigna-
viðskiptum hans í Danmörku eru
nú gjaldþrota eða í gjaldþrotameð-
ferð. Eina félagið sem ekki er gjald-
þrota sem tengist útrás Sigurjóns til
Danmerkur er dreifingar- og fram-
leiðslufyrirtækið Scanbox Entertain-
ment Group sem nú er að fullu í eigu
ALMC hf. (áður Straumur-Burðarás).
Sigurjón kom fyrst að rekstri Scan-
box í ársbyrjun 2006 en sumarið 2007
tók hann félagið alfarið yfir með fjár-
mögnun frá Straumi.
12 milljarða fasteignakaup 2005
Sigurjón var mjög umsvifamikill fjár-
festir í útrásinni. Á Íslandi keypti
hann Sjóklæðagerðina, sem rekur
66°Norður, í upphafi árs 2005 ásamt
tryggingafyrirtækinu Sjóvá-Almenn-
um. Sama ár keypti félagið Heim-
iliskaup ehf., sem Sigurjón á með
tengdaföður sínum Þóri Jónssyni
og mági sínum Birgi H. Þórissyni,
danska fasteignafélagið VG Invest-
ment á níu milljarða íslenskra króna
eða 900 milljónir danskra króna.
Umrætt félag átti skrifstofu- og versl-
unarhúsnæði í Danmörku og 150
íbúðir við Nörrebro í miðborg Kaup-
mannahafnar. Talið er að Íslands-
banki í Lúxemborg hafi að nokkuð
stórum hluta fjármagnað þessi kaup.
Það var danski auðmaðurinn Peer
Slipsager, sem nú er búsettur í Zug
í Sviss, þangað sem Actavis Group
flutti nýlega höfuðstöðvar sínar, sem
seldi Sigurjóni og viðskiptafélögum
hans VG Investment. Síðar á árinu
2005 keypti Heimiliskaup 50 íbúðir í
viðbót í Kaupmannahöfn á 2,5 millj-
arða króna. Voru þau kaup fjármögn-
uð af Landsbankanum.
Samkvæmt ársreikningi Heimilis-
kaupa ehf. sem að mestu tengdist
fasteignaverkefnum á Íslandi var eig-
ið fé félagsins neikvætt um nærri 600
milljónir króna árið 2009. Tapaði fé-
lagið nærri 1.300 milljónum króna
árið 2009 og nærri 700 milljónum
króna árið 2008. Langtímaskuldir
félagsins námu um 1.700 milljónum
árið 2009 en stærsti hluti þeirra var
lán í japönskum jenum upp á 1.300
milljónir króna. Kemur fram í árs-
reikningi félagsins að skuldirnar hafi
verið gjaldfelldar. Á meðal stærstu
eigna Heimiliskaupa á Íslandi eru
fasteignir eins og Grensásvegur 8,
Grandavegur 14 og Suðurlandsbraut
10 en að mestu er um skrifstofuhús-
næði að ræða.
VG Investment gjaldþrota
Í dönsku fyrirtækjaskránni kem-
ur fram að Sigurjón átti átta eignar-
haldsfélög í Danmörku sem tengd-
ust fasteignaverkefnum hans þar í
landi. Þau eru nú öll gjaldþrota eða
í gjaldþrotameðferð. Þau heyrðu
flest undir VG Investment, sem var
móðurfélag þeirra. Í október í fyrra
keypti Saxo Properties, fasteignafélag
danska bankans Saxo Bank, fasteign-
ir SD Karréen af Brfkredit bankan-
um á 256,5 milljónir danskra króna
eða um 5,7 milljarða íslenskra króna
miðað við núverandi gengi. Brfkredit
hafði hins vegar keypt félagið á nauð-
ungaruppboði í apríl 2010 á 240 millj-
ónir danskra króna. Var um að ræða
fasteignir upp á 25 þúsund fermetra.
Umrætt félag niðurfærði verðmæti
fasteigna sinna um rúmlega 200 millj-
ónir danskra króna árið 2008 og birti
viðskiptablaðið Børsen frétt um mál-
ið. Þannig virðast allar fasteignir sem
voru í eigu Sigurjóns í Danmörku nú
hafa verið yfirteknar af lánardrottn-
um og stór hluti þeirra þegar seldur
af þeim.
Tortólafélag á eyju, fjörð og
hótel á Íslandi
Eignarhaldsfélagið Ofanleiti var
í ábyrgðarskuldbindingu gagn-
vart Glitni í Lúxemborg vegna lána
dönsku fasteignafélaganna Newco
og SD Karéen upp á 91 milljón
danskra króna eða rúmlega tvo millj-
arða íslenskra króna. Samkvæmt árs-
reikningi Ofanleitis árið 2008 var
eigið fé félagsins þá neikvætt um
340 milljónir króna. Átti félagið að
greiða langtímaskuldir upp á rúm-
lega 300 milljónir króna árið 2009.
Helstu eignir félagsins eru eyjan
Arney á Breiðafirði, Hellisfjörður
sem er milli Reyðarfjarðar og Norð-
fjarðar á Austfjörðum, og Hótel Snæ-
fell á Seyðisfirði. Miðað við hversu
lítið er af eignum inni í félaginu Of-
anleiti er erfitt að sjá hvernig félagið
átti að geta staðið við ábyrgðaskuld-
bindingu upp á rúmlega tvo millj-
arða króna vegna fasteignafélaga í
Danmörku. Einnig má geta þess að
Ofnaleiti var 90 prósent í eigu félags-
ins EGUS Inc. sem skráð er á eyjunni
Tortóla á Bresku Jómfrúareyjunum.
EGUS á 50 prósent í Sjóklæðagerð-
inni sem rekur 66°Norður.
Hótel Plaza yfirveðsett
Sigurjón á líka félagið Best ehf. með
tengdaföður sínum og mági. Það fé-
lag á Hótel Plaza í miðbæ Reykja-
víkur í því eru 180 hótelherbergi
og er það á meðal stærstu hótela
landsins. Samkvæmt ársreikningi
þess félags var eigið fé neikvætt um
nærri 2,8 milljarða króna árið 2009.
Stærsta skuld félagsins er kúlulán
hjá Landsbankanum sem félagið
fékk til þriggja ára og er á gjalddaga á
þessu ári. Lánið er í japönskum jen-
um og stóð í 3,6 milljörðum króna
árið 2009. Hótel Plaza að Aðalstræti
er bókfært á 1.440 milljónir króna og
er veðsett fyrir skuldum félagsins hjá
Landsbankanum. Ekki liggur ljóst
n Átta félög tengd Sigurjóni Sighvatssyni í Danmörku eru gjaldþrota eða í gjald-
þrotameðferð n Keypti fasteignir fyrir 12 milljarða króna í Danmörku árið 2005 „Síðar á árinu 2005
keypti Heimilis-
kaup 50 íbúðir í viðbót
í Kaupmannahöfn fyrir
2,5 milljarða króna. Voru
þau kaup fjármögnuð af
Landsbankanum.
Slóð gjaldþrota eftir
Sigurjón í Danmörku
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Mörg félög í þrot Flest félög sem
Sigurjón Sighvatsson fjárfesti í á meðan að
íslenska útrásin stóð og keyptu upp eignir
í Danmörku eru nú gjaldþrota eða í gjald-
þrotameðferð.
Guðmundur Andri tapaði:
Bankinn sigraði
baráttumann
Guðmundur Andri Skúlason, tals-
maður Samtaka lánþega, og eigin-
kona hans, Sigrún Hafsteinsdóttir,
töpuðu á fimmtudag skaðabóta-
máli gegn Frjálsa fjárfestingarbank-
anum. Í úrskurðinum, sem féll í
Héraðsdómi Reykjavíkur, kom fram
að kröfu þeirra á hendur bankanum
væri hafnað vegna aðildarskorts og
að þeim væri gert að greiða Frjálsa
fjárfestingarbankanum óskipt
250.000 krónur í málskostnað.
Málið á rætur sínar að rekja til
láns sem þau hjón tóku á fyrirtæk-
ið Sandhól ehf. sem þau áttu fyrir
hrun. Guðmundur hefur sagt við DV
að lánið hafi verið ólögmætt og þau
því orðið af verulegum fjármunum.
„Þetta snýst um skaðabótakröfu
á hendur bankanum vegna gengis-
tryggðs láns, eða hvað á nú að kalla
þau í dag,“ sagði Guðmundur Andri
í samtali við DV á sínum tíma.
Að sögn hans hefur málið verið í
ákveðnu ferli allt frá árinu 2009. Þau
hjón áttu fyrirtækið á árunum fyrir
hrun og tóku þá lán á fyrirtækið hjá
Frjálsa fjárfestingarbankanum.
„Við teljum að Frjálsi hafi bakað
sér skaðabótaskyldu með því að vera
með ólögmætt lán, reikna eftirstöðv-
ar þess með röngum hætti, sem
varð til þess að verðmatið á okkar
fyrirtæki rýrnaði. Þetta er bara eitt
af þessum fjölmörgu málum sem
við viljum keyra í gegnum kerfið
núna til að fá niðurstöðu í það hvort
bankar séu yfirhöfuð ábyrgir fyrir
einhverju af því sem þeir gera,“ sagði
Guðmundur Andri í samtali við DV
um málið á sínum tíma.
Þá sagði hann að um nokkuð háa
fjárhæð væri að tefla, eða 33 millj-
ónir króna þegar búið væri að telja
allt til.
Í niðurstöðu héraðsdóms segir
meðal annars: „Í kaupsamningi
um einkahlutafélagið kemur fram
í grein 3.1.1 að veðskuld og vanskil
við Frjálsa Fjárfestingarbankann hf.
séu ,,hér eftir seljendum óviðkom-
andi“. Kröfuframsal hefur ekki farið
fram og hafa því sóknaraðilar ekk-
ert forræði fyrir meintum kröfum
Sandhóls ehf., á grundvelli framan-
greinds skuldabréfs og ætlaðs rangs
útreiknings varnaraðila á eftir-
stöðvum skuldabréfsins. Verður því
kröfum sóknar-
aðila þegar
af þessari
ástæðu
hafnað
vegna
aðildar-
skorts,
sbr. 2.
mgr. 16.
gr. laga
nr. 91/1991
um með-
ferð einka-
mála.“