Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2011, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2011, Blaðsíða 32
F jóla fæddist á Ísafirði og ólst þar upp. Með grunnskólanámi stundaði hún nám við Tón- listarskóla Ísafjarðar, síðan við Tónlistarskóla Reykjavíkur, við Con- servatoire regional de musiqe et d‘art Dramatik í Lyon í Frakklandi og við Musikhögskolan í Gautaborg. Hún lauk fil. kand.-prófi frá heimspekideild háskólans í Gautaborg 1975 í tónlist- arvísindum, leiklistarfræði, leikrænni tjáningu og uppeldisfræði en að námi loknu sótti Fjóla ýmiss konar nám- skeið og ráðstefnur hér heima og er- lendis. Fjóla kenndi við Götaborgs al- männa skolastyrelse 1973–76, við Öskjuhlíðarskóla 1977–79, við Leik- listarskóla Íslands 1976–88 og við Fóst- urskóla Íslands 1977–98, var lektor við Kennaraháskóla Íslands 1998–2008 og við Menntavísindasvið Háskóla Ís- lands 2008–2009. Fjóla kenndi leikræna tjáningu og tónlist á námskeiðum á vegum Kenn- araháskóla Íslands, dagvistun barna hjá Námsflokkum Reykjavíkur, Náms- flokkum Kópavogs og á vegum nokk- urra sveitarfélaga. Auk þess hefur Fjóla stundað fiskvinnslustörf, ráðs- konustörf í sveit, afgreiðslustörf, sölu- mennsku og verið söngkona. Fjóla tók virkan þátt í skátastarf- semi og félagsstörfum góðtemplara- reglunnar á unglingsárunum. Hún samdi og útsetti tónlist fyrir Nemenda- leikhús við Leiklistarskóla Íslands. Auk þess hefur hún samið námsefni fyrir Námsgagnastofnun ríkisins og unnið að endurskoðun á námsefni í tónlist fyrir Sveriges radio.Hún var hópleið- togi í menningar- og friðarsamtökum SGI á Íslandi. Fjölskylda Eiginmaður Fjólu er Þorsteinn Egg- ertsson, f. 25.2. 1942, söngvaskáld, blaðamaður og rithöfundur. Hann er sonur Eggerts Jónssonar, pípulagn- ingameistara í Keflavík sem er látinn, og Guðrúnar Jónsdóttur matráðskonu. Dætur Þorsteins eru Valgerður, f. 29.8. 1977, verslunarmaður, búsett í Reykjavík, en sonur hennar er Emil Örvarsson, f. 25.4. 2008; Soffía, f. 4.8. 1980, framkvæmdastjóri við trygginga- félag, búsett í Salisbury á Englandi, og eru dætur hennar Ísabella María Kára- dóttir, f. 3.3. 2004, og Emilía Sara Kára- dóttir, f. 8.12. 2005. Fjóla giftist 17.6. 1963 Hrafni E. Jónssyni, framhaldsskólakennara sem nú er látinn, en þau skildu. Börn Jóhönnu Fjólu eru Hrönn Hrafnsdóttir, f. 17.11. 1967, MS í um- hverfis- og auðlindafræði, búsett í Reykjavík en hennar maður er Hjalti Sigurðarson, prentsmiður og er tölvu- maður hjá deCode og eru dætur þeirra Hera Hjaltadóttir, f. 3.2. 1996, og Hekla Hjaltadóttir, f. 1.9. 1999; Ólafur Hrafns- son, f. 14.10. 1969, tölvunarfræðingur, búsettur í Danmörku en kona hans er Guðrún Björk Guðmundsdóttir þroskaþjálfi og eru börn þeirra Laufey Karitas Ólafsdóttir, f. 26.8. 1999, Arnar Elí Ólafsson, f. 1.10. 2001, og Logi Hrafn Ólafsson, f. 5.6. 2009; Anna Hera Björnsdóttir, f. 11.1. 1980, MS í hagnýtri stærðfræði, búsett í Reykjavík en sam- býlismaður hennar er Pawel Bartoszek stærðfræðingur, stjórnlagaþingmaður og háskólakennari og er sonur þeirra Ágúst Bartoszek, f. 24.7. 2008. Systkini Fjólu: Andvana stúlka, f. 8.10. 1919; Bjarney Ingibjörg Ólafs- dóttir, f. 20.10. 1923, d. 23.1. 2003, hús- móðir á Ísafirði, var gift Guðmundi Sveinssyni netagerðarmanni sem nú er látinn; Guðbjörg Ólafsdóttir, f. 18.8. 1927, húsmóðir og rithöfundur, bú- sett í Reykjavík, gift Gísla Guðbrands- syni, fyrrv. lögregluþjóni; Dagrún Ólafsdóttir, f. 6.11. 1929, fyrrv. með- ferðarfulltrúi í Reykjavík en maður hennar er Steinar Erlendsson, fyrrv. skjalavörður hjá Ísal í Straumsvík; Guðrún Elísa Ólafsdóttir, f. 3.2. 1932, d. 23.5. 2010, varaformaður Verka- lýðs- og sjómannafélags Keflavík- ur og formaður Félags eldri borgara í Reykjanesbæ, var gift Magnúsi Jó- hannessyni skipasmið sem nú er lát- inn; Arndís S. Ólafsdóttir, f. 7.6. 1933, fyrrv. starfsmaður við röntgentækni á Ísafirði, gift Sigurði Th. Ingvarssyni, rennismið; Anna Ólafía Ólafsdóttir, f. 20.5. 1935, d. 11.1. 1956; Jakob, f. 19.2. 1937, rafmagnstæknifræðingur á Ísa- firði, kvæntur Pálínu Aðólfsdóttur tækniteiknara. Fóstursystir og systurdóttir Fjólu er Steinunn Kjartansdóttir, f. 9.1. 1950, félagsliði, búsett í Reykjavík en sam- býlismaður hennar er Friðrik Friðriks- son hagfræðingur. Foreldrar Fjólu voru Ólafur Jakobs- son, f. 27.10. 1892, d. 5.1. 1963, skó- smíðameistari á Ísafirði, og k.h., Anna Filippía Bjarnadóttir, f. 9.7. 1899, d. 15.4. 1992, húsmóðir, búsett á Ísafirði. Ætt Ólafur var bróðir Jóseps, föður Braga dósents. Ólafur var sonur Jakobs Jak- obssonar skósmiðs og Ingibjargar Ólafsdóttur. Anna var dóttir Bjarna, verka- manns á Ísafirði, bróður Jóns alþm.. Bjarni var sonur Jónatans, b. í Landa- koti í Staðarsveit Þorleifssonar, bróð- ur Narfa, langafa Ólafs, föður Gunn- ars Ragnars, fyrrv. forstjóra á Akureyri. Móðir Bjarna var Anna, systir Bjarna, langafa Magnúsar Kristjánssonar lektors. Anna var dóttir Jóns, smiðs á Búðum Þorgeirssonar. Móðir Jóns var Guðrún Vigfúsdóttir, systir Guð- mundar, langafa Önnu, móður Sigfús- ar Daðasonar skálds. Móðir Önnu Bjarnadóttur var Guðbjörg Sigurðardóttir, b. á Suður- eyri, bróður Örnólfs, langafa Valdi- mars leikfimikennara og Finnborgar, móður Örnólfs Árnasonar rithöfund- ar. Sigurður var sonur Þorleifs, ríka á Suðureyri Þorkelssonar, og Valdísar Örnólfsdóttur, systur Guðrúnar, lang- ömmu Sveins, afa Benedikts Gröndal forsætisráðherra. Móðir Guðbjargar var Gróa Jónsdóttir. Fjóla og Þorsteinn halda upp á dag- inn með fjölskyldu og vinum í Krums- hólum í Borgarfirði. 32 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 8.–10. júlí 2011 Helgarblað J ón Otti fæddist í Reykjavík og ólst þar upp, í Vesturbænum. Hann stundaði m.a. nám við Héraðsskólann á Laugarvatni 1956–57 og lauk gagnfræða- prófi frá Gagnfræðaskóla Vesturbæj- ar. Þá lauk hann prófum frá Iðnskól- anum í Reykjavík 1963, sveinsprófi í prentiðn um áramótin 1963–64 og sveinsprófi í offsettprentun 1982. Jón Otti stundaði prentiðn hjá prentsmiðjunni Borgarprenti á ár- unum 1959–97. Þá hóf hann störf hjá prentsmiðjunni Umslag hf og er nú að ljúka þar störfum. Jón Otti byrjaði að æfa körfubolta á Laugarvatni 1956. Hann hóf að leika með meistaraflokki KR 1963 og keppti til 1972 en hann mun hafa leikið um tvö hundruð leiki með meistaraflokki. Jón Otti sótti dómaranámskeið 1961 og hefur síðan dæmt körfubolta- leiki. Hann átti stóran þátt í að skipu- leggja dómgæslu í körfubolta hér á landi og var formaður dómaranefndar KKÍ 1973–83. Hann sat í stjórn körfu- boltadeildar KR 1961–74 og var þá m.a. ritari, gjaldkeri, varaformaður og loks formaður deildarinnar í þrjú ár. Fjölskylda Jón Otti kvæntist 25.5. 1963 Jónínu Magneu Aðalsteinsdóttur, f. 15.11. 1942, deildarstjóra launadeildar Hag- kaupa. Hún er dóttir Aðalsteins Ólafs- sonar, bílstjóra og síðast starfsmanns hjá efnagerðinni Sjöfn, og Torfhildar Jónsdóttur húsmóður. Jón Otti og Jónína Magnea eiga þrjá syni. Þeir eru Aðalsteinn Jónsson, f. 6.10. 1963, offsetprentari í Odda, búsettur í Kópavogi, kvæntur Runny Björk Daníelsdóttur, lyfjatækni við Landspítalann og eiga þau þrjú börn; Jón Otti Jónsson, f. 8.1. 1965, við- skiptafræðingur hjá HF Verðbréfum, búsettur í Reykjavík, kvæntur Thelmu Sigurðardóttur, viðskiptafræðingi og verkefnastjóra í Hörpu og eiga þau tvö börn; Hallgrímur Vignir Jóns- son, f. 18.6. 1969, viðskiptafræðingur í Íslandsbanka, búsettur í Reykjavík, kvæntur Kristínu Huld Haraldsdóttur skurðlækni við Landspítalann og eiga þau þrjú börn. Jón Otti á sjö hálfsystkini, fimm samfeðra og tvö sammæðra. Systk- ini hans, samfeðra: Ottó Ólafsson, f. 28.12. 1948, lyfjafræðingur, búsett- ur á Kjalarnesi; Guðrún Ólafsdóttir, f. 9.8. 1950, skólahjúkrunarkona, búsett í Reykjavík; Guðríður Ólafsdóttir, f. 22.11. 1954, starfsmaður við Krabba- meinsfélagið, búsett í Reykjavík; Guð- laug, f. 27.12. 1955, búsett í Reykjavík; Kristín Lóa, f. 17.4. 1966, líffræðingur í Reykjavík. Bræður Jóns Otta, sammæðra: Stefán Hallgrímsson, f. 5.11. 1948, kennari í Reykjavík; Ásgeir Sigurður Hallgrímsson, f. 19.8. 1954, hjúkrun- arfræðingur í Reykjavík. Foreldrar Jóns Otta: Ólafur Ottós- son, f. 20.10. 1915, d. 26.1. 2001, bók- bindari í Reykjavík, og Vigdís Jóns- dóttir, f. 9.11. 1918, húsmóðir. Seinni maður Vigdísar og fóstur- faðir Jóns Otta var Hallgrímur J. Stef- ánsson, f. 27.9. 1915, d. 1.2. 2000, lög- regluvarðstjóri í Reykjavík. Ætt Ólafur var sonur Ottós Wathne, tré- smíðameistara í Reykjavík Ólafssonar, útgerðarmanns í Reykjavík Jónssonar. Móðir Ólafs bókbindara var Guðríður Sigurbjörnsdóttir. Bróðir Vigdísar var Sigurður Jóns- son KR-ingur, sundkappi. Vigdís er dóttir Jóns Otta, togaraskipstjóra í Reykjavík, bróður Guðmundar, skip- stjóra á Skallagrími, en þeir bræð- ur voru landsfrægar aflaklær hjá útgerðarfélaginu Kveldúlfi. Synir Guð- mundar voru Jón, oddviti á Reykjum í Mosfellsbæ, og Andrés, lyfsali í Háa- leitisapóteki. Jón Otti var sonur Jóns, skipstjóra og skipasmiðs í Reykjavík Þórðarsonar, útvegsb. í Gróttu Jóns- sonar, b. í Engey Guðmundsson- ar, dbrm. í Skildinganesi Jónssonar. Móðir Jóns og Guðmundar var Vigdís Magnúsdóttir, útvegsb. í Hlíðarhúsum í Reykjavík Vigfússonar, b. á Grund í Skorradal Gunnarssonar. Móðir Vig- fúsar var Kristín Jónsdóttir, b. á Vind- ási Bjarnasonar, ættföður Víkingslækj- arættar Halldórssonar. Móðir Vigdísar var Guðrún Jónsdóttir, útvegsb. í Hlíð- arhúsum Þórðarsonar, og Jódísar Sig- urðardóttur. Móðir Vigdísar Jónsdóttur var Gyða, systir Hildar, móður Guðna rektors. Gyða var einnig systir Sig- urðar í Þorsteinsbúð, föður Sigurðar íþróttafréttamanns. Gyða var dótt- ir Sigurðar, útvegsb. í Seli Einarsson- ar, af Bollagarðaætt. Móðir Gyðu var Sigríður Jafetsdóttir, b. í Pálsbæ á Sel- tjarnarnesi, bróður Ingibjargar, konu Jóns forseta. Jafet var sonur Einars, kaupmanns í Reykjavík Jónssonar, bróður Sigurðar, pr. á Rafnseyri, föður Jóns forseta. Jón Otti Ólafsson prentari og körfuboltadómari Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir fyrrv. lektor við Háskóla Íslands 70 ára á laugardag 70 ára á sunnudag S igríður Theodóra fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún tók gagnfræðapróf frá Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar. Sigríður Theodóra flutti að Skarði í Landsveit árið 1950 og tók við búi þar ásamt eiginmanni sínum 1959. Sigríður Theodóra hefur starfað heima í Skarði og fylgst með velferð sveitarinnar og verið valin til forystu við ýmis mál. Einkum hafa kvenfélags- mál verið henni kær og var hún for- maður Kvenfélagsins Lóu í Landsveit í fjörutíu og eitt ár. Fjölskylda Eiginmaður Sigríðar Theodóru var Guðni Kristinsson, f. 6.7. 1926, d. 25.12. 1998, bóndi og hreppistjóri að Skarði. Þau giftust 25.4. 1954. Foreldr- ar Guðna voru Kristinn Guðnason, bóndi og hreppstjóri að Skarði, og k.h., Sigríður Einarsdóttir ljósmóðir. Börn Sigríðar Theodóru og Guðna eru Kristinn, f. 6.12. 1950, bóndi í Ár- bæjarhjáleigu en börn hans eru Borg- hildur, Guðni, Sigríður Theódóra, Laufey Guðný, Hekla Katharina og Rakel Natalie en sambýliskona hans er Marjolýn Tiepen; Helga Fjóla, f. 7.11. 1957, búsett í Skarði, var gift Ingvari Ingólfssyni vélvirkja sem er látinn og eru synir þeirra Erlendur og Guðni en börn Ingvars frá fyrra hjónabandi og fósturbörn Helgu Fjólu eru Guðlaug, Ingólfur og Sæmundur. Langömmubörn Sigríðar Theo- dóru eru nú sex talsins. Systkini Sigríðar Theodóru eru Margrét Sæmundsdóttir, f. 16.11. 1937, fyrrv. hjúkrunarframkvæmdastjóri, búsett í Reykjavík; Sæmundur Sæ- mundsson, f. 18.11. 1946, vélstjóri, bú- settur í Hafnarfirði. Foreldrar Sigríðar Theodóru voru Sæmundur Sæmundsson, f. 26.11. 1908, d. 5.6. 1995, kaupmaður í Reykjavík, og k.h., Helga Fjóla Páls- dóttir, f. 11.11. 1909, d. 3.11.1990, hús- freyja. Ætt Sæmundur var sonur Sæmundar, b. á Lækjarbotnum á Landi Sæmundsson- ar, b. og hreppstjóra á Lækjarbotnum Guðbrandssonar, b. á Lækjarbotnum Sæmundssonar, b. á Hellum á Landi Ólafssonar, b. á Hellum Ólafssonar, b. á Víkingslæk á Rangárvöllum Þor- steinssonar, b. á Minni-Völlum á Landi Ásmundssonar, b. og smiðs á Minni- Völlum Brynjólfssonar, lrm. í Skarði á Landi Jónssonar, lrm. í Skarði Eiríks- sonar, b. í Klofa Torfasonar ríka sýslu- manns í Klofa Jónssonar. Helga Fjóla var dóttir Páls Frið- rikssonar, verkamanns i Reykjavík, og Margrétar Árnadóttur. Friðrik var sonur Helgu Bergsdóttur frá Syðra- Seli, húsfrú í Pálshúsum, og Páls, sjó- manns Magnússonar, b. og hrepp- stjóra á Lambastöðum á Seltjarnarnesi og Seli við Reykjavík. Helga var dóttir Bergs Jónssonar, b. í Hæringsstaðahjá- leigu, og Gróu Tómasdóttur, b. á Litla- Hrauni Jónssonar, b. í Grímsfjósum. Móðir Gróu var Ingveldur Hafliðadótt- ir, b. á Flóagafli og síðar á Syðra-Velli. Margrét var dóttir Árna Þorvaldsson- ar, b. og hreppstjóra á Meiðastöðum í Garði, siðar á Innra-Hólmi. Messað verður í Skarðskirkju kl. 14.00 á afmælisdaginn, sunnudaginn 10.7. Boðið verður upp á messu- og afmæliskaffi á eftir. Skarðskirkja er af- mælisbarninu afar kær. Þeim sem hug hafa á að gleðja afmælisbarnið eru því beðnir um að láta kirkjuna njóta þess. 80 ára á sunnudag Sigríður Theodóra Sæmundsdóttir húsfreyja að Skarði í Landsveit
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.