Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2011, Qupperneq 44

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2011, Qupperneq 44
44 | Lífsstíll 8.–10. júlí 2011 Helgarblað Tíska og vínyll á Iðusvölum Laugardaginn 9. júlí verður allsherj- arhúllumhæ á svölunum í Iðu. Boð- ið verður upp á seiðandi sumartóna, Grand Marnier og hægt verður að gera frábær kaup á íslenskri hönnun og vínylplötum. Meðal þeirra ís- lensku hönnuða sem verða þar eru Mundi, Birna, E-Label, Forynja, Popup Market og svo vefverslunin Lakkalakk. Einnig munu safnarar selja vínylplötur og eflaust verður hægt að krækja í einhverja gullmola. Markaðurinn stendur frá 14 til 22. Frá 22 til 2 verður svo eftirpartí eftir markaðinn. Fjölmargir plötusnúðar troða upp og meðal þeirra eru Kar- íus og Baktus, Nauseus, Mr. Cuellar og fleiri fjörugir. Leikkonur selja fötin sín Leikkonurnar María Heba Þorkels- dóttir og Elma Lísa Gunnarsdóttir verða með fatamarkað á laugardag- inn. Stöllurnar ætla að hreinsa til í skápunum hjá sér og selja föt, skart- gripi og skó á góðu verði. Þær eru miklar tískuskvísur báðar tvær og eflaust margt fallegt sem kemur úr hirslum þeirra. Elma Lísa heldur reglulega fatamarkaði enda algjört fatafrík að eigin sögn. Markaðurinn verður haldinn í húsnæði Félags ís- lenskra leikara að Lindargötu 9 á milli 12 og 18. „Við erum ekki mikið með þunga kjötrétti þótt það komi auðvitað fyr- ir að maður fái sér til dæmis nautasteik. Við erum meira með kjúklingarétti og ekki síður fiskrétti. Þunglyndi er sjúkdómur sem snertir flestar fjölskyldur. Fjármálaáhyggjur og sambandserfiðleikar eru helstu áhrifavaldarnir en það er margt fleira sem ýtir undir þunglyndi og sumt kemur á óvart. Flestir eru til að mynda örugglega hæstánægðir með sólskinsglæturnar á landinu um þessar mundir en fyrir marga aðra þýðir sólskin aðeins eitt, þunglyndi. Það er vegna þess að þeir þjást af tegund árstíðabundins þunglyndis, SAD eða seasonal affective disorder. Sumarþunglyndi er rakið til horm- ónatruflana, en þegar veður er heitt, framleiðir líkaminn minna af skjald- kirtilshormóni sem leiðir til minni orkubúskaps líkamans. Önnur kenn- ing er sú að heitt veður minnki hæfi- leikann til þess að glíma við streitu sem aftur leiðir til þunglyndis. Þeir sem þjást af sumarþunglyndi glíma við minni matarlyst og svefn- leysi meðan þunglyndi um vetur leiðir frekar til ofáts og mikils svefns. Þá er enn önnur kenning sem bendir til að margir drekki meira áfengi á sumrin sem stóreykur líkur á þunglyndi. Kleinuhringir gera fólk líka þung- lynt og það er staðreynd að blóð- sykurfallið sem fylgir því að borða slíkt sætmeti hefur afar slæm áhrif á skapsmunina. Þá er betra að íhuga alvarlega að hætta alfarið að reykja. Ef ekki til þess að minnka líkur á krabbameini, þá til þess að stórminnka líkur á þung- lyndi. Rannsóknir leiða nefnilega í ljós að reykingar geta aukið líkur á alvarlegu þunglyndi um 93 pró- sent. Þetta hefur verið staðfest af vís- indamönnum í háskólanum í Mel- bourne. Ástæðan fyrir þessu er sú að nikótín örvar framleiðslu dópamíns skamma stund og gefur heilanum á sama tíma skilaboð um að fresta eig- in náttúrulegu framleiðslu á efninu sem hefur þær afleiðingar að til langs tíma minnkar heilinn framleiðslu á dópamíni. M ér finnst mjög gaman að elda og elda mjög oft; ég viðurkenni þó að konan mín eldar betri mat en ég,“ segir Sigurður Kári Krist- jánsson alþingismaður. „Ég reyni að hafa réttina holla og ferska og forðast sósujukk og „majonesrjómablöndur“. Ég reyni frekar að láta hráefnið sem ég nota hverju sinni njóta sín.“ Sigurður Kári segir að þau hjónin eldi almennt léttan mat. „Við erum ekki mikið með þunga kjötrétti þótt það komi auðvitað fyrir að maður fái sér til dæmis nautasteik. Við erum meira með kjúklingarétti og ekki síð- ur fiskrétti. Mér finnst fiskur ótrúlega góður og nota hann ofsalega mik- ið hvort sem það er hvítur fiskur eða bleikur. Svo leggjum við mikið upp úr því að hafa gott grænmeti með og eldum mikið rótargrænmeti svo sem sellerí- rót og við notum mikið sætar kartöflur og lauka.“ Varðandi léttu réttina – Sigurður Kári segist bæði hugsa um hollustuna og líka að sér líði vel eftir að hafa borð- að. „Að manni líði ekki eins og maður hafi gleypt stóran stein og þurfi langan tíma til að jafna sig. Það er líka gaman að grilla læri, hamborgara og hitt og þetta. Við erum lítið í pítsunum nema að við gerum þær sjálf.“ Sigurður segist vera mikill aðdá- andi rétta sem foreldrar hans elduðu þegar hann var að alast upp. Hann nefnir í því sambandi plokkfisk, kjöt í karrý, kjötsúpu, saltkjöt og baunir, soðinn fisk og nætursaltaða ýsu. „Ég elda aldrei þessa rétti sjálfur; ég er bara ekki nógu góður í því. Ég borða þetta annaðhvort heima hjá for- eldrum mínum eða í mötuneytinu í þinginu. Ég mæli með því að fólk prófi sig áfram og geri alls konar nýja hluti en gleymi samt ekki uppruna sínum; haldi tryggð við mömmumatinn eins og ég hef reynt að gera. Það er mikil- vægt að þetta sé með hinu.“ Er alþingismaðurinn sælkeri? „Já, ég held það.“ Hver er uppáhaldsrétturinn? „Ætli það sé ekki hreindýrið sem ég elda á jólunum með sósu, bakaðri kartöflu og grænmeti. Það er alveg æðislegt.“ Svava Alþingismaður og sælkeri Einfaldur en góður tandoori-kjúklingur með heimatilbúnu naan-brauði, rhaita-sósu og hrísgrjónum. Hráefni: Grillaður tandoori-kjúklingur Kjúklingabringur Patak ś Tandoori paste, ein krukka. Sýrður rjómi 2 stórir laukar (helst hótellaukar sem fást í Melabúðinni) 2 lime Ég sker kjúklingabringurnar í nokkuð stóra bita. Hræri saman Tandoori paste sósunni og sýrða rjómanum. Set kjúklinginn út í þessa blöndu og læt hann marinerast þar í ca. 2–3 tíma. Laukinn sker ég niður í stóra hringi, sem fara í sömu marineringu. Og yfir þetta kreisti ég safann úr limeinu. Þegar kjúklingurinn hefur marinerast skil ég hann frá sósunni og grilla hann. Það sama geri ég við laukinn. Rhaita sósa: AB-mjólk Sýður rjómi Agúrka Hvítlaukur Salt Ég afhýði agúrkuna. Sker hana niður í smáa bita. Það sama geri ég við hvítlaukinn, ca. eitt lauf. Hræri þessu síðan saman við AB-mjólkina og sýrða rjómann í jöfnum hlut- föllum og kreisti svo smá lime-safa yfir og salta. Naan-brauð: Hveiti, heilhveiti eða spelt AB-mjólk Lyftiduft Salt Kúmen eða annað krydd sem til er. Fer eftir smekk hvers og eins. Smjör Hvítlaukur Gróft salt Hráefninu er blandað saman og því hnoðað saman í deig. Það flatt út í nokkur brauð og það síðan steikt á þurri pönnu. Þegar brauðin eru tilbúin er smjörið brætt, fínsöxuðum hvítlauk (3–4 geirum) bætt út í sjóðandi smjörið og því síðan hellt yfir brauðið. Grófa saltinu síðan stráð yfir eftir smekk. Rétturinn er síðan borinn fram með hrísgrjónum. n Þingmaðurinn Sigurður Kári Kristjánsson er hrifnastur af hollum og ferskum réttum Hugsar um hollustuna Sigurður Kári segir þau hjónin elda almennt léttan mat. Ljúffengur en varasamur Sætmetið gleður fólk ekki, blóðsykurfallið hefur neikvæð áhrif á geðslagið. Ekki eru allir ánægðir með sumarið og sólina: Kleinuhringir geta valdið þunglyndi Tandoori-kjúklingur Fjaðurlokkar Eyrnalokkar úr fjöðrum eru mjög vinsælir um þessar mundir. Þeir koma í alls kyns litum og síddin er misjöfn. Það fer eftir smekk hvers og eins hversu djarft er teflt og gaman er að sjá mismun- andi útfærslur. Sumir ganga svo langt að vera með lokka í mjög skærum og áberandi litum eins og gulum, bleikum eða grænum á meðan aðrir eru dannaðri og með lokka í hefðbundnari litum eins og svörtu og brúnu. Þetta er skemmtilegt „trend“ sem gaman er að leika sér að og það er líka auðvelt að búa sjálfur til svona lokka. Fjaðrir fást í flestum fönd- urbúðum og einnig festingar fyrir eyrnalokka. Þá er bara að sleppa ímyndunaraflinu lausu og búa sér til fallega lokka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.