Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Page 15
Vcrzlunarskýrslur 1949
13'
fyrir 1949 stafar því eingöngu af verðbreytingu, en mismunurinn á hon-
um og samtöludálkinum fyrir 1948 stafar hins vegar frá breytingu vöru-
magnsins, sbr. það, sem segir í 2. kafla inngangsins um visitölu inn-
flutnings og útflutnings. Þar var skýrt frá því, að innflutningsverðið
1949 hefði lækkað um 0,1%, miðað við árið áður. I 2. yfirliti scst, hvaða
verðhækkanir og -lækkanir á einstökum flokkum það eru, sem hafa leitt
til þessarar nettóútkomu, og kemur á daginn, að um mikinn mun milli
flokkanna er ekki að ræða i þessu efni.
Ef tveir öftustu dálkar yfirlitsins eru bornir saman, sést, að s a m -
dráttur innflutningsmagnsins 1949, 6,9%, sem fvrr var getið,
stafar aðallega af lækkun á 7. lið, þ. e. á innflutningi tækja o. þ. h. til
atvinnuveganna. Af 35,5 millj. kr. lækkun þessa flokks voru 23,1 millj.
kr. hjá skipum 100 lestir og þar yfir, og 3,7 millj. kr. hjá flugvélum,
en að því er báðan þennan innflutning snertir er i næstsíðasta dálki yfir-
litsins ekki reiknað með verðinu 1948, heldur með hinu raunverulega
verði 1949, enda er hér ógerlegt að finna sambærilegt einingarverð, er
byggja megi á vísitölur frá ári lil árs. Auk skipa og flugvéla hefur orðið
að reikna með óbreyttu verði 1949 á innflutningi, sem ekki hefur komið
íyrir árið áður. Sama gildir, þegar svo lítið hefur verið flutt inn af
cinhverri vörutegund 1948, að ekki er byggjandi á meðalverðinu, svo og
þegar fyrir liggur, að miklar gæðabreytingar hafi átt sér stað, þó að um
vörur í sama tollskrárnúmeri sé að ræða. Af heildartölunni í næstsíðastu
dálki yfirlitsins, 426 millj. kr„ eru samtals 50,3 millj. á 1949-verðinu
óbreyttu, af ástæðum, sem nú hefur verið gerð grein fyrir.
I n n f I u t n i n g u r á skipum 100 smálestir og þar yfir (hag-
skýrslunúmer 401 a og b) nam 40 810 þús kr. árið 1949, og var þar um
að ræða eftirtalin skip:
Rúmlcstir
Gllfliskip : brútló þús. kr.
Úranus, frá Bretlandi, togari ........................... 656 3 200
Svalbakur, frá Bretlandi, togari ........................ 656 3 200
V é 1 s k i p :
Hallveig Fróðadóttir, frá Bretlandi, togari.............. 609 3 60(1
Jón Þorláksson, frá Bretlandi, togari ................... 609 3 600
Oddur, frá Noregi ....................................... 245 1 150
Dettifoss, frá Danmörku, farskip ...................... 2918 8 500
Lagarfoss, frá Danmörku, farskip ...................... 2923 8 500
Jörundur, frá Bretlandi, togari ....................... 491 3 460
Arnarfell, frá Sviþjóð, farskip ....................... 1381 5 600
Innflutningsvcrð alls 40 810
Hér skal eigi farið frekar inn á hina einstöku flokka í 2. yfirliti, að
öðru leyti en þvi, að gerð skal grein fyrir n e y z 1 u þ j ó ð a r i n n a r á
nokkrum vörutegundum 19 49, á sama hátt og hingað lil hefur