Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Side 2
2 Fréttir 25. janúar 2012 Miðvikudagur Þak á ofurlaun bankamanna F ramkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins íhugar nú að setja þak á laun starfs- manna banka og fjármála- stofnana svo þau verði að há- marki ákveðið margfeldi af launum undirmanna. Þá kemur einnig til greina að setja þak á bónusgreiðslur bankamanna, eftir því sem Mic- hel Barnier, fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn Frakklands og situr nú í framkvæmdastjórn ESB, sagði við Reuters á mánudag. Gangi Ísland í Evrópusambandið myndu þess- ar reglur sjálfkrafa taka gildi hér á landi. Ofurlaun á Íslandi Ofurlaun í bankakerfinu á Íslandi nú eru aðeins lítill hluti af því sem þau voru fyrir bankahrun, þó að mörgum þyki nóg um í dag. Hösk- uldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, þáði árið 2010 tæpar fjórar milljónir í laun á mánuði, þrátt fyr- ir að starfsemi bankans hefði dreg- ist saman með fjöldauppsögnum á starfsfólki. Starfssystir hans, Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslands- banka, fékk sama ár um 3,1 millj- ón króna á mánuði. Steinþór Páls- son, bankastjóri Landsbankans, er hins vegar hálfdrættingur í launum á við Höskuld og Birnu. Hann hefur um milljón krónur í laun á mánuði. Hann hefur kvartað undan því að það séu of lág laun og vill fá hækkun. Þar sem Landsbankinn er að mestu í ríkiseigu miðast laun Steinþórs við þá línu sem ríkisstjórnin lagði um að forsætisráðherra skuli hafa hæstu laun ríkisstarfmanna. Hins vegar hafa sumir kollegar Steinþórs í Landsbankanum í kringum tvær milljónir króna á mánuði. Ef laun bankastjóra Kaupþings, Glitnis og Landsbankans fyrir hrun eru borin saman við laun banka- stjóra í dag kemur í ljós að þau voru að jafnaði margfalt hærri fyrir hrun. Hreiðar Már Sigurðsson, hafði sem forstjóri Kaupþings 37 milljónir króna á mánuði árið 2008. Sigurjón Þ. Árnason var með 23,8 milljónir á mánuði sem bankastjóri Lands- bankans. Árið 2007 fékk Hreiðar Már 64,4 milljónir í laun á mán- uði. Lárus Welding, sem svarar nú til saka fyrir innherjasvik, fékk sem forstjóri Glitnis 27,5 milljónir króna á mánuði. Sigurjón Þ. hafði hins vegar 13,1 milljón króna á mánuði árið 2007. Millistjórnendur í bönk- unum fengu einnig ótrúleg laun. Þannig hafði Yngvi Örn Kristinsson hjá Landsbankanum um 27 milljón- ir króna í laun á mánuði árið 2007. Áhyggjufullir bankamenn Talið er að þessi áform ESB muni leggjast mjög illa í ofurlaunastétt- ina í fjármálahverfinu í London og öðrum ríkjum ESB. Innan fram- kvæmdastjórnarinnar heyrast hins vegar þau sjónarmið að í ljósi at- burði undanfarinna ára sé þetta skref nauðsynlegt til að halda sátt í samfélaginu. Ef tillagan nær í gegn verður hún ein róttækasta reglu- gerð sem sett hefur verið í Brussel frá því fjármálakreppan hófst. „Ef bankarnir geta ekki sýnt sjálfsaga þegar kemur að bónusagreiðslum, þá verðum við að grípa til aðgerða,“ segir Barnier. „Meðal hugmynda sem við skoð- um í tengslum við launaþakið er hlutfallið á milli fastra launa og bón- usa. Önnur hugmynd er að launa- þakið taki mið af hlutfalli hæstu og lægstu launa í bönkum,“ segir hann. Royal Bank of Scotland hefur fengið stærsta björgunarpakka sem nokkur banki í Evrópu hefur fengið. Þrátt fyrir það greiddi bankinn 500 milljónir punda í bónusa skömmu eftir að hafa þegið björgunarpakk- ann í boði skattgreiðenda. Þrír topp- ar hjá Barclays-bankanum fengu samanlagt 110 milljónir dollara í laun og bónusa árið 2010. Vantraust á ofurlaunafólk Tillagan verður meðal annar rædd á fundi Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss síðar í þessari viku. Vantraust almennings í garð banka hefur aukist mjög mikið síð- an fjármálakreppan skall á. Kerfi sem byggir á bónusgreiðslum er tal- ið ýta undir áhættusækni – því meira sem einstakir starfsmenn lána út, því hærri bónusa fá þeir. Þessi hegð- un er síðan ein af orsökum þess að bankar hrynja og þá þarf að seilast í vasa almennings með björgunar- pökkum úr skattfé. Búist er við því að meðlimir Oc- cupy-hreyfingarinnar fjölmenni við setningu fundar Alþjóðaefnahags- ráðsins í vikunni. Hreyfingin spratt upp úr mótmælum á Wall Street þar sem forréttindum og yfirburðum ríkasta eins prósents heimsbyggð- arinnar var mótmælt. ESB berst gegn ofurlaunum Evrópusambandið hafði áður sett á reglugerðir sem takmarka hversu mikið af bónusgreiðslunum banka- menn geta fengið greitt í reiðufé. Það eru ekki einu aðgerðirnar sem ESB hefur gripið til, til þess að sporna við því að bankamenn hreinsi verðmæti innan úr bönkum. Lög eru í gildi sem kveða á um að bónusgreiðslum bankamanna megi dreifa á fimm ár. Stuðningsmenn þessarar róttæku tillögu benda á að stjórnmálamenn Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is n Evrópusambandið íhugar nú að stöðva ofurlaun í bankakerfinu með lagasetningu Ofurlaunin eru lægri í dag„Önnur hugmynd er að launaþakið taki mið af hlutfalli hæstu og lægstu launa í bönkum Höskuldur Ólafsson 4 milljónir Er launahæsti bankastjóri landsins og var með 4 milljónir á mánuði 2010. Laun hans eru hins vegar lítið brot af þeim ótrúlegu upphæðum sem lykil- starfsmenn í Royal Bank of Scotland fá greiddar. Birna Einarsdóttir 3,1 milljón Bankastjóri Íslands- banka var með 3,1 milljón á mánuði. Lárus Welding, forveri hennar hjá Glitni, var með um 27 milljónir króna á mánuði. Sigurjón Þ. Árnason 23,8 milljónir Sigurjón fékk 23,8 milljónir í mánaðarlaun 2008. Möluðu gull úr ónýtum bönkum Lárus Welding 25,7 milljónir Lárus á yfir höfði sér fangelsis- vist en hafði árið 2007 ótrúleg laun í banka sem stefndi hratt í gjaldþrot. Hreiðar Már Sigurðsson 64,4 milljónir Hreiðar Már hafði sem forstjóri Kaupþings 64,4 milljónir króna á mánuði árið 2007. Bjarni Ármannsson 44,8 milljónir Bjarni hafði tugir milljónir króna í tekjur á mánuði árið 2007. Hann hætti sem banka- stjóri Glitnis það ár. „Ég held að það gangi ekki og ástæðan er fyrst og fremst sú að hluti af starfseminni sem fer fram í bankakerfinu er svipaðs eðlis og á sjónum,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins. Hann leggst gegn hugmyndum um launaþak og ber bankana saman við fiskiskip. „Það eru sumir sem afla meira en aðrir og ef þessir stærri bankar geta ekki verið með það launakerfi sem er í takt við þær aðstæður, þá fer sú starfsemi bara út úr bönkunum. Þá er ég að tala fyrst og fremst um verðbréfaviðskipti þar sem tekjumyndunin í kerfinu fer svo mikið eftir viðskiptunum. Það getur verið mjög mismunandi eftir einstaklingum og deildum í bönkunum hverju hver skilar. Alveg eins og á sjónum með áhafnir sem eru að afla mikilla verð- mæta, þær fá bara hærri hlut. Ef þú ætlar að reka útgerðarfélag þannig að það verði þak á því hvað skipstjórarnir geta fengið miðað við fólkið í landi, þá geta kapteinarnir farið eitthvert annað,“ segir Vilhjálmur. Aðspurður hvort þessar hugmyndir séu ekki skiljanlegar í ljósi banka- hrunsins og björgunarpakka til banka, svarar Vilhjálmur: „Maður skilur af hverju menn eru að tala um þetta, af því að þetta fór illa hjá mjög mörgum bönkum og ríki búin að þurfa að setja pening í þetta allt. Menn reka sig bara á staðreynd í þessari starfsemi, að sumt af henni er bara þess eðlis sem ég er að lýsa. Með sama hætti fær áhöfn á skipi sem fiskar vel um 40% af aflaverðmætinu. Það þarf alltaf að vera eitthvað svipað kerfi fyrir áhöfnina í sumum af þessum deildum í bönkunum, annars fer áhöfnin bara eitthvert annað.“ Áhöfnin á að fá hlut í gróðanum eigi sífellt erfiðara með að útskýra fyrir blæðandi almenningi hvern- ig réttlæta megi slíkar ofurgreiðslur sem séu ekki í neinum takti við ár- angur af rekstri þessara fjármála- stofnana. „Ef við setjum ekki slíkar reglur strax, þá er hætta á að ofbeldi brjótist út,“ segir Barnier, sem hefur meðal annars rætt við George Os- borne, fjármálaráðherra Bretlands, um þessi áform. Bretar eru andvígir þessum reglum, því þeir eru hræddir að missa sjálfræði yfir eftirliti með hin- um öfluga fjármálamarkaði sem þrífst í London. Samskipti ESB og Breta haf því súrnað. Sjálfur tekur franski fulltrúinn af öll tvímæli um að með þessu sé hann að reyna að fæla fjármálastofnanir frá Bretlandi og lokka þær yfir til Parísar. n Vilhjálmur Egilsson Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.