Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Side 3
Fréttir 3Miðvikudagur 25. janúar 2012 Mikið spurt um Fjölnisveg 11 n Fyrirspurnir frá íslenskum og erlendum aðilum Þ að er áhugi á húsinu,“ seg- ir Sverrir Kristinsson, fram- kvæmdastjóri fasteigna- sölunnar Eignamiðlunar, aðspurður hvort margir hafi haft samband vegna fasteignarinnar við Fjölnisveg 11. Fasteignasalan hefur fasteignina til sölu en hún var áður í eigu Hannesar Smára- sonar fjárfestis og athafnamanns. Sverrir segist ekki geta metið hversu stór markaður sé fyrir jafn stór og dýr hús og Fjölnisvegurinn er en hann hljómar öruggur um að húsið seljist. „Það eru aldrei mjög margar eignir sem eru svona stór- ar og dýrar í sölu. Við höfum fengið nokkrar en eins og ég hef sagt þá þarf ekki nema einn kaupanda,“ segir hann. Sverrir segir að það hafi ekki verið vandamál að selja hús í sama verðflokki og fasteignin sem um ræðir er en ásett verð er 190 millj- ónir króna. „Þetta eru svo örfá hús sem við fáum í þessum verðflokki að það hefur ekki verið vandamál að selja þau, þau eru bara svo fá,“ segir Sverrir. Sverrir segir að það hafi komið fyrirspurnir bæði frá Íslendingum og útlendingum um húsið en enn sé ekki ljóst hver muni kaupa það. „Við höfum auglýst í marga mánuði eftir húsi á þessu verðbili. Við höfum selt þarna nokkur hús sem eru vönduð en þau hafa ekki verið í þessum flokki,“ segir Sverrir aðspurður hvort það sé ekki einstakt að hús í þessum klassa á þessu svæði komist í sölu. Nefnir hann meðal annars hús sem seld hafa verið fyrir þýska sendiráðið. Húsið hefur verið tekið í gegn og er óumdeilanlega eitt af falleg- ustu húsum bæjarins sem skýrir líklega það háa verð sem sett er á húsið. adalsteinn@dv.is Þak á ofurlaun bankamanna Bónusum eiga að fylgja mínusar „Það hefur verið tilhneiging í þá átt meðal íslenskra bankamanna og for- ystumanna í atvinnulífi að telja það einhverja sérstaka sveitamennsku að vilja stuðla gegn óhóflegum launum og reyndar annars staðar í efnahags- og atvinnulífinu. Þetta er eitt af því sem menn eru að hugsa um allan heim,“ segir Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar. Hann hefur látið til sín taka í umræðunni um laun bankamanna og hvatti meðal annars Steinþór Pálsson, bankastjóra Landsbankans, til þess að segja af sér, eftir að hann kvartaði undan því að laun hans væru of lág. Um ofurlaun og bónusgreiðslur í bankakerfinu segir Mörður: „Þetta var partur af þessum alþjóðlega sjúkdómi í fjármálalífi að launin voru ekki lengur laun heldur einhverjar himinhrópandi upphæðir sem voru ekki í neinum tengslum við veru- leikann, jafn litlum og þessir pappírar sem menn voru að skiptast á um. Alþjóðlega hefur það verið nefnt sem eitt af ráðunum við endurskipulagn- ingu fjármálalífsins að koma ein- hverju skikki á þetta. Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti verður seint talinn mikill róttæklingur. Hann hefur talað fyrir þessu og meðal annars spurt í tengslum við bónusana – bónus þýðir góður á latínu. Af hverju bankamenn hafa ekki líka malusa – malus þýðir vondur á latínu. Ef menn fá bónus fyrir að gera vel þá eigi menn að fá malus fyrir að gera illa. Þetta lýsir hugsunarhætti hjá ráða- manni sem seint yrði talinn óvinur hálaunamana,“ segir Mörður. Hann tekur undir með Barnier að nauðsynlegt sé að stíga þetta skref því annars gæti ofbeldi brotist út. „Það sem hefur verið að hjá okkur, það er auðvitað eðlilegt að banka- stjórar líti í kringum sig og finnist skrýtið að næstu undirmenn þeirra séu með meiri tekjur en þeir sjálfir. Það er rétt hjá Barnier að búa til línu yfir fjármálafyrirtækin í heild. Þessi dæmi sýna að það nær skammt að láta þetta ná bara til toppanna í ríkiskerfinu, þá fara menn að bera sig saman, eins og Már Guðmundsson seðlabankastjóri sem hefur lægri laun en næstu fjórir starfsmenn sem vinna með honum í bankanum.“ Mörður Árnason er sammála tillögum um launaþak: Bjartsýnn um sölu Sverrir virðist öruggur um að húsið við Fjölnisveg 11 seljist þrátt fyrir hátt verð. Mynd Sigtryggur Ari JóhAnnSSon Ragna sögð skálda veikindi Ellu Dísar É g missti stóran hluta, eigin- lega allt forræðið í dag og má búast við 6 mánaða erfiðum réttarhöldum og má aðeins sjá Ellu mína undir yfirsetu,“ seg- ir Ragna Laurens, móðir Ellu Dísar, á opinni Facebook-síðu dóttur sinnar. Réttað var í Bretlandi í máli Rögnu á þriðjudag. DV náði ekki í hana fyrir prentun en samkvæmt athugasemd- um á Facebook má hún ekki lengur hitta Ellu nema undir eftirliti. Hún seg- ist ekki hafa efni á góðum lögfræðingi. Samkvæmt Rögnu gæti rétturinn meinað henni að tjá sig um málið í fjölmiðlum. „Ég má ekki við því þar sem þau eru á góðri leið með að drepa mig andlega og líkamlega,“ segir hún. Sögð með heilkenni Samkvæmt því sem fram kemur á sömu Facebook-síðu telja barna- verndaryfirvöld í Bretlandi að hún þjáist af heilkenninu Münchausen by Proxy. Þannig er hún talin ýkja, skálda eða jafnvel valda veikindum dóttur sinnar sjálf. Ragna hefur sjálf sagt að yfirvöld í Bretlandi vildu svipta hana forræði yfir stúlkunum þremur, en DV er ekki kunnugt um að það hafi verið gert á þriðjudag. Samkvæmt heimildum DV er þó búið að svipta Rögnu réttinum til að taka ákvarðanir varðandi læknismeð- ferð Ellu Dísar. Sú ákvarðanataka er nú alfarið í höndum lækna í samstarfi við barnaverndaryfirvöld í Bretlandi. Voru á götunni Ragna fór af landi brott með dætur sínar þann 22. desember síðastliðinn. Hún var þá búin að fá sig fullsadda af Íslandi og sagðist í raun ekki eiga ann- arra kosta völ en að fara til London með dóttur sína þar sem hún fengi þá læknishjálp sem hún þyrfti. Þá var hún við að missa íbúðina sem fjölskyldan bjó í hér á landi. Tvær dætra Rögnu eru nú komnar aftur til Íslands, en fjölskylda hennar aðstoðaði föður þeirra, Marc Laurens, við að koma með þær heim aftur. „Við gátum ekki setið hérna heima og vitað af þeim á götunni úti. Við fjölskyldan ákváðum að kaupa miða fyrir þau og bjóða honum að koma hérna heim í húsnæði svo stelpurnar gætu farið aft- ur í skóla,“ segir Hildur Mósesdóttir, móðir Rögnu. Stúlkurnar höfðu verið á hrakhólum ásamt móður sinni í Lond- on nánast alveg frá því þær fóru út. Komnar aftur í skóla Marc og Ragna eru með sameiginlegt forræði yfir stúlkunum en Hildur seg- ir hann hlynntan því að þær séu hér á landi, allavega eins og staðan er í dag. Barnaverndaryfirvöld á Íslandi eru í samstarfi við kollega sína í Bret- landi, en hvað verður um stúlkurnar er nú í þeirra höndum. Þar sem Hild- ur er hvorki með forræði yfir ömmu- dætrum sínum, né aðili málsins, þá fær hún ekkert að vita um framgang mála. Hún segist varla vita um hvað dómsmálið í Bretlandi snýst. Hún segir stúlkurnar þó vera í góðu yfirlæti á Íslandi, þær séu komnar aftur í skóla og leikskóla og fái að vera þar allavega út janúar. Framhaldið er í höndum barnaverndar. Samband Rögnu og Hildar hef- ur verið stirt í nokkurn tíma, en Ragna hefur meðal annars sakað móður sína um að siga barnavernd á sig. Ekki mistök að fara út Ella Dís hefur dvalið á barnaspítal- anum við Great Ormond Street í London síðustu daga. Hún var flutt þangað eftir að hún veiktist skyndi- lega í byrjun janúar og fór í kjöl- farið í aðgerð þar sem öndunarvél var tengd í gegnum barka henn- ar. Í færslu sem Ragna birti á áður- nefndri Facebook-síðu í gær seg- ir hún læknana vera tilbúna að útskrifa Ellu Dís en hún megi þó ekki fara með hana af spítalanum. Þær mæðgur séu því raun fangar yf- irvalda á meðan á réttarhöldunum stendur. Barnaverndaryfirvöld í Bret- landi eru þekkt fyrir að taka afar fast á málum og þykja mjög ströng. Ragna sagði í samtali við DV í síð- ustu viku að hún teldi það þó ekki mistök að hafa farið út, enda hefðu læknar á Íslandi ekki getað gert meira fyrir Ellu Dís. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is „Við gátum ekki setið hérna heima og vitað af þeim á götunni úti n Má bara sjá Ellu Dís undir eftirliti n Systur hennar hjá ömmu sinni á Íslandi Fyrir dóm Bresk barnaverndaryfirvöld telja Rögnu jafnvel skálda eða ýkja veikindi Ellu Dísar. Münchausen by Proxy n Einkenni sjúkdómsins eru þau að full- orðinn umsjónarmaður ýkir, skáldar, eða jafnvel veldur veikindum barns, til að fá samúð annarra. Þetta getur gengið svo langt að umsjónarmanninum tekst að sannfæra bæði barnið og lækna um veikindin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.