Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Page 6
A
ðalmeðferð í máli þriggja
manna sem eru ákærðir
fyrir sérstaklega hættu
lega líkamsárás fór fram í
Héraðsdómi Reykjavíkur á
þriðjudag.
Mönnunum er gefið að sök að
hafa veist að grískum ferðamanni
meðal annars með ítrekuðum högg
um og spörkum, víðs vegar um lík
ama hans, höfuð og andlit.
Árásin átti sér stað í maí 2010 í
Þingholtsstræti og nokkru síðar í
Bankastræti við veitingastaðinn Sól
on.
Mennirnir þrír sem eru á aldr
inum 27–33 ára neita allir sök. Einn
mannanna játar að hafa gripið ferð
manninn hálstaki aftan frá og að ein
hverjar ryskingar hafi átt sér stað,
en neitar að hafa beitt hnefum eða
sparkað í hann. Hinir tveir bera fyr
ir sig minnisleysi og kannast ekki
við að hafa átt nokkur samskipti við
ferðamanninn, þrátt fyrir að fram
burður vitna gefi annað til kynna.
Mistök að angra manninn
Aðdragandi árásarinnar er sagður
vera að mennirnir hafi verið að
skemmta sér á Hótel Þingholti þann
7. maí 2010. Á leiðinni út af staðn
um hafi einn þeirra gengið fram á
Grikkjann, haldið að honum áfeng
um drykk og spurt hvort hann vildi
fá sopa. Maðurinn mun hafa neitað,
en einn ákærði hélt áfram að þrýsta á
manninn með þeim afleiðingum að
ferðamaðurinn greip í glasið og kast
aði því í jörðina. Ákærði viðurkenn
ir að það hafi verið mistök að angra
manninn.
Óljóst er um málsatvik eftir það,
en sá sem otaði drykknum að mann
inum viðurkennir að þá hafi ein
hverjar ryskingar átt sér stað, sem
bæði hann og annar ákærðu hafi tek
ið þátt í.
Eftir þetta fóru allir ákærðu upp
í bíl, ásamt fleira fólki. Í reiði sinni
sparkaði ferðamaðurinn í bílinn og
fór í burtu. Ákærðu er gefið að sök
að hafa ekið bílnum spölkorn áfram,
stöðvað hann fyrir utan Sólon, elt
manninn uppi og veist að honum
með höggum og spörkum. Enginn
ákærðu viðurkenndi að hafa farið út
úr bílnum til þess að ráðast á mann
inn, en ekki var samræmi í fram
burði þeirra. Einn mannanna sagðist
hafa verið að leita að sætri stelpu til
að fara með heim og ekki tekið þátt
í neinni árás þegar saksóknari bað
hann um að útskýra af hverju hann
hefði farið aftur út úr bílnum. Þeg
ar saksóknari spurði hann aftur út í
málsatriði sagði ákærði: „Ég er búinn
að svara þér. Ég skil ekki af hverju þú
ert að spyrja sömu spurninga aftur
og aftur, hvað viltu að ég segi?“
Grátbað árásarmennina
að hætta
Vitni segjast hins vegar hafa séð
þrjá menn, sem samsvara lýsingu
á ákærðu, hafa veist aftur að ferða
manninum með höggum og spörk
um. Flest vitnanna mundu óljóst eft
ir atvikinu þar sem tvö ár eru liðin
frá árásinni en staðfestu skýrslu sem
lögreglan tók af þeim á vettvangi og
í gegnum síma nokkru eftir atburð
inn. Þá kom fram að eitt vitnið hefði
heyrt manninn kalla: „Please, leave
me alone, please stop,“ en þá hefðu
árásarmennirnir ráðist á hann með
höggum og spörkum. Maðurinn lá
illa útleikinn eftir árásina og kallað
var á lögreglu og sjúkrabíl sem flutti
manninn á sjúkrahús. Læknir sagði
fyrir dómi að ferðamaðurinn hefði
greint skilmerkilega frá málsatvik
um við komu á spítalann. Við endur
komu daginn eftir hefði manninum
liðið mjög illa, verið áhyggjufullur og
grátið.
Vitni sem gaf skýrslu fyrir dómi
sagði frá því að fórnarlambið hefði
gengið til móts við sig niður Banka
strætið og beðið það að hringja á
lögreglu. Maðurinn hefði sagt að
þrír menn hefðu ráðist á sig. Í þann
mund sem vitnið hringdi í neyðar
línu kom bíll aðvífandi og benti
þá fórnarlambið á bílinn og sagði:
„Þetta eru þeir.“ Hann hefði virst vera
hræddur og reiður. Hann hefði síðan
hlaupið að bílnum og vitnið missti
sjónar á honum.
Sorgmædd móðir
hlutdrægt vitni
Við aðalmeðferð í dag kom fram
að ferðamaðurinn lést 14. desem
ber síðastliðinn og hefur það verið
staðfest af Interpol. Óljóst er hvern
ig andlát hans bar að, en það er nú
rannsakað af ítölskum yfirvöldum.
Saksóknari fór fram á við dóminn
að móðir fórnarlambsins mætti gefa
skýrslu símleiðis til að vitna um and
legt ástand sonar síns eftir árásina.
Verjendur ákærðu mótmæltu því og
sögðu hana hlutdrægt vitni þar sem
hún væri móðir í sorg.
Að minnsta kosti einn ákærðu er
sagður tengjast glæpasamtökunum
Outlaws.
Grátbað þá
um að hætta
6 Fréttir 25. janúar 2012 Miðvikudagur
„Þarf að skipta um þá strax“
n Lekatíðni í PIP-púðum hærri en áætlað var
L
ekatíðni í PIPbrjóstapúðunum
virðist vera mun hærri en áætlað
var í fyrstu samkvæmt þeim upp
lýsingum sem Saga Ýrr Jónsdótt
ir, lögmaður á lögmannsstofunni VOX,
hefur undir höndum. Hún undir býr
nú málsókn tuga kvenna á hendur
lýtalækninum Jens Kjartanssyni sem
flutti púðana inn á kennitölu eigin
konu sinnar og græddi í brjóst 440
kvenna á einkastofu sinni á Domus
Medica. Saga segir að allar þær kon
ur sem hún hafi tölu yfir, og hafi farið í
ómskoðun á þessu ári, hafi fengið það
staðfest að púðar í brjóstum þeirra séu
farnir að leka. Alls hafa yfir sjötíu kon
ur leitað til Sögu, en sex af þeim hafa
farið í ómskoðun á árinu á sinn kostn
að eftir að hafa fengið beiðni frá lækni.
Sú ákvörðun var tekin fyrr í janúar
að ríkið myndi greiða kostnað við óm
skoðun á brjóstum sem eru með PIP
púða í brjóstum sínum. Þá mun ríkið
einnig taka þátt í kostnaði við að fjar
lægja þá púða sem farnir eru að leka.
Í tilkynningu frá velferðarráðuneyt
inu kemur fram að samkvæmt fyrir
liggjandi upplýsingum sé áætlað að
lekatíðni í PIPpúðum sé frá einu upp
í sjö prósent. Með þær upplýsingar að
leiðarljósi áætlaði ráðuneytið að fjar
lægja þyrfti púða hjá að hámarki þrjá
tíu konum.
Saga er þó sannfærð að púðarnir
séu farnir að leka hjá mun fleiri kon
um en það. „Ríkið verður væntanlega
að endurmeta þetta þegar sést hve
stórt hlutfall púða er farið að leka,“ seg
ir Saga. „Það hlýtur að segja sig sjálft að
það er líklegra að púðar hinna fari að
leka úr þessu. Og þarf þá að skipta um
þá strax.“ solrun@dv.is
Kletthálsi 7 - Reykjavík
Fuglavík 18 - Reykjanesbæ
Furuvöllum 15 - Akureyri
Pallettu
tjakkur
EP Pallettu-tjakkur
2 tonna lyftigeta
31.990,-
Eldur í Sjávar-
grillinu
Eldur kom upp í þvottahúsi í kjall
ara veitingahússins Sjávargrillsins á
Skólavörðustíg um eittleytið aðfara
nótt þriðjudags. Allt tiltækt slökkvi
lið á höfuðborgarsvæðinu var kallað
út en þegar á vettvang var komið
lagði mikinn reyk frá byggingunni.
Eldurinn barst upp stigagang bygg
ingarinnar og alla leið upp á þriðju
hæð og þurfti slökkvilið að aðstoða
tvo íbúa við að forða sér úr íbúð í
húsinu. Það var ekki fyrr en um 2.30
sem slökkvistarfi lauk við erfiðar að
stæður en samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu urðu miklar skemmdir á
húsinu og er málið til rannsóknar.
Gáfust upp
Snjó tók að kyngja niður um
sunnan og vestanvert land
ið eftir storm sem gekk yfir á
mánudag. Færð á vegum var
afleit sökum snjósins á þriðju
dagsmorgun og lentu nokkuð
margir ökumenn í vandræðum
vegna þessa. Snjóruðningsvélar
voru að störfum fram eftir degi
en margar götur voru engu að
síður illfærar. Klukkan rúmlega
fimm á þriðjudagsmorgun barst
lögreglunni á höfuðborgarsvæð
inu tilkynning um tvær bifreiðar
sem sátu fastar og stóðu mann
lausar í hringtorgi við Boðaþing.
Virtist sem ökumennirnir hafi
gefist upp í baráttunni við snjó
inn og skilið þær eftir. Lét lög
reglan fjarlægja bílana sem heftu
umferð snjóruðningstækja og
strætisvagna.
„Tilraun til
manndráps“
Hæstiréttur staðfesti á þriðjudag
gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs
dóms Reykjavíkur yfir einum af þeim
fjórum mönnum sem grunaðir eru
um skotárás í Bryggjuhverfinu í
Reykjavík. Þrír af mönnunum eru í
gæsluvarðhaldi vegna skotárásarinn
ar en einn þeirra er í fangelsi vegna
fyrri brota, að því er fram kemur á vef
Ríkisútvarpsins. Í úrskurði Hæsta
réttar kemur fram að sterkur grunur
leiki á því að maðurinn hafi framið
afbrot sem að lögum geti varðað tíu
ára fangelsi. „Af fyrirliggjandi gögn
um þykir ljóst að varnaraðili er undir
sterkum grun um aðild að tilraun til
manndráps,“ segir í úrskurðinum.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
n Ákærðir fyrir að hafa ráðist á ferðamann n Veittust að honum upp úr þurru
Í dómsal Ákærðu
bar ekki saman
um málsatvik fyrir
dómi á þriðjudag.
Lekur hjá öllum Saga Ýrr undirbýr hópmálsókn á hendur Jens Kjartanssyni.