Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Síða 12
M
ikill hiti er hlaupinn í bar-
áttuna um útnefningu
Repúblikanaflokksins fyr-
ir forsetakosningarnar
sem fram fara í nóvember.
Mitt Romney, sem hingað til hefur
verið talinn einna líklegastur, hefur
átt á brattann að sækja að undan-
förnu.
Á þriðjudag birti hann opin-
berlega fimm hundruð blaðsíðna
skýrslu um skattamál sín en aðal-
keppinautur hans, Newt Gingrich,
lét þau orð falla á dögunum að hugs-
anlega hefði Romney eitthvað að fela
í þeim efnum. Þessi orð féllu áður
en prófkjör Repúblikanaflokksins í
Suður-Karólínu fór fram á laugardag,
en sem kunnugt er vann Gingrich
óvæntan en þó býsna sannfærandi
sigur. Stjórnmálaskýrendur vestan-
hafs eru á einu máli um að Gingrich
hafi sýnt mikil klókindi þegar hann
dró skattamál Romneys upp á yfir-
borðið. Þetta hafi meðal annars gert
það að verkum að Gingrich vann
mikilvægan sigur á laugardag en frá
árinu 1980 hefur sigurvegari flokks-
ins í Suður-Karólínu alltaf hlotið út-
nefningu í forsetakosningum.
760 milljónir í skatt
Í skattaskjölunum sem Romney birti
á þriðjudag kemur margt athyglis-
vert fram. Þannig greiddu hann og
eiginkona hans, Ann, 13,9 prósenta
skatt árið 2010. Þetta er talsvert lægra
hlutfall en gengur og gerist hjá hin-
um almenna borgara sem greiðir að
hámarki 35 prósenta skatt. Ástæð-
an fyrir þessu er sú að stærstur hluti
tekna Romney-hjónanna er til kom-
inn vegna gengishagnaðar í fjárfest-
ingum (e. capital gain) og því greið-
ir hann ekki eiginlegan tekjuskatt af
hagnaðinum. Þá kemur fram í skjöl-
unum að árin 2010 og 2011 muni
hann greiða samanlagt 6,2 milljón-
ir dala, eða rúmlega 760 milljónir
króna, í skatt.
Romney, sem er af ríku fólki kom-
inn, hefur einmitt verið gagnrýndur
harðlega fyrir að vera ekki í tengslum
við hinn almenna borgara. Hann
er sjálfur vellauðugur eftir að hafa
hagnast gríðarlega í viðskiptum en
á sama tíma glíma sífellt fleiri fjöl-
skyldur í Bandaríkjunum við afleið-
ingar efnahagshrunsins.
Gingrich með forskot
Samkvæmt umfjöllun Huffington
Post um málið gætu þessar upp-
lýsingar Romneys orðið til þess að
blása enn meira lífi í baráttu Newt
Gingrich. Ekki síst í ljósi þess að í
skjölunum sem Romney birti kemur
einnig fram að hann hafi átt banka-
reikninga í Sviss og á Cayman-
eyjum sem er þekkt skattaskjól.
Huffington Post hefur eftir ein-
um af aðstoðarmönnum hans
að reikningunum hafi verið lok-
að árið 2010 eftir að fjármálaráð-
gjafar hans sögðu að það gæti haft
skaðleg áhrif á pólitískan feril hans
myndi þetta spyrjast út. Romney
er einn auðugasti einstaklingurinn
í sögu Repúblikanaflokksins til að
bjóða sig fram til forseta en eigur
hans eru metnar á allt að 250 millj-
ónir dala, eða um þrjátíu milljarða
króna. Hann hefur einnig látið gott
af sér leiða á undanförnum árum
og samkvæmt skattaskjölunum
hefur hann gefið sjö milljónir dala
til góðgerðamála á undanförnum
tveimur árum.
Gingrich og Romney búa sig nú
undir prófkjör repúblikana í Flór-
ída sem fer fram 31. janúar. Sam-
kvæmt spám sem birtar hafa verið
virðist Gingrich hafa örlítið forskot
á Romney.
12 Erlent 25. janúar 2012 Miðvikudagur
Konur finna meira til en karlar
n Karlar með hærri sársaukaþröskuld en konur samkvæmt rannsókn
K
onur eru með töluvert lægri
sársaukaþröskuld en karlar.
Hinu öfuga hefur oft verið
haldið fram en nú hafa vís-
indamenn við Stanford-sjúkrahúsið í
Kaliforníu birt niðurstöður umfangs-
mikillar rannsóknar á þessu sviði.
Skoðaðir voru ellefu þúsund karl-
ar og konur sem öll voru sjúklingar á
sjúkrahúsinu. Meðan þau dvöldu á
sjúkrahúsinu voru þau beðin um að
fylla út eyðublað þar sem þau áttu
að lýsa hversu miklum sársauka þau
fundu fyrir samfara þeim kvillum sem
hrjáðu þau, má þar nefna krabba-
mein, sýkingar og bakverki. Skalinn
sem notast var við var á bilinu 0 til 11.
Þannig var 0 enginn sársauki en 11
versti mögulegi sársauki.
Meðaltal þess sem merkt var við
var nálægt fimm en marktækt fleiri
konur merktu þó við hærri tölu á
skalanum en karlar.
Atul Butte, sérfræðingur við Stan-
ford-læknaháskólann, hafði yfirum-
sjón með rannsókninni og segir hann
að taka verði tillit til þess að það sé
einstaklingsbundið hvenær sársauki
verður óbærilegur og hvenær ekki.
Sumir séu einfaldlega harðari af sér
en aðrir og það komi því ekkert við
hvort um sé að ræða konu eða karl.
Þó segir hann að mikill munur á milli
kynjanna komi á óvart og þar sem úr-
tak rannsóknarinnar var jafn stórt og
raun ber vitni virðist það vera þann-
ig að karlar finni síður fyrir sársauka
en konur. Butte segir að hann ætli að
halda áfram rannsóknum á þessu
sviði til að fá skýrari niðurstöðu í
málið.
einar@dv.is
Sársauki Karlar virðast síður finna til sársauka en konur samkvæmt niðurstöðunum.
Mynd PhotoS.coM
hörð barátta Það stefnir í mjög harða baráttu á milli Romneys, sem er vinstra megin á
myndinni, og Gingrich sem er hægra megin. Mynd ReuteRS
Geymdi peninga
í skattaskjólum
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
n Mitt Romney á undir högg að sækja vegna skattamála
„Hann er sjálfur
vellauðugur eftir
að hafa hagnast gríðar-
lega í viðskiptum.
Slapp frá mannræningja:
„Pabbi kenndi mér
að svara fyrir mig“
„Hún kemur alltaf heim á slaginu
15.20. Ég vissi strax að það væri
eitthvað að þegar hún var aðeins
of sein.“ Þetta segir Steven Ryno,
faðir hinnar níu ára Calystu Cor-
dova sem var numin á brott af
ókunnugum karlmanni í síðustu
viku. Stúlkan, sem býr í Colorado
Springs í Bandaríkjunum, var á
leið heim úr skólanum þegar 29
ára karlmaður, Jose Humberto
Garcia, stöðvaði bifreið sína og
nam Calystu á brott.
Garcia ók með stúlkuna í norð-
urátt en átján klukkustundum
síðar sprakk hjólbarði á bíl hans
og ákvað hann að stöðva við bens-
ínstöð til að fá aðstoð. Þá nýtti
Calysta tækifærið, laumaðist inn
í verslunina og bað um að fá að
hringja í frænda sinn. Í stað þess
að hringja í hann hringdi Calysta
í neyðarlínuna þar sem hún sagði
alla sólarsöguna. Eftir að hún lagði
á reyndi Garcia að fá hana með
sér út af bensínstöðinni en Calysta
var ekki á því. „Hún sagði bara
þvert nei. Hún sagðist ekki ætla að
fara neitt og sagðist ætla að bíða
eftir mömmu sinni,“ segir vitni að
atvikinu. Lögregla brást skjótt við
og var Jose Garcia handtekinn í
kjölfarið.
Calysta var með talsverða
áverka þegar hún fannst. Hún var
með glóðarauga, sprungna vör
og bólgin í andliti. Þrátt fyrir það
var hún brött þegar fréttamaður
KMGH 7 News hitti hana þegar
hún var komin heim.
„Pabbi kenndi mér að svara
fyrir mig,“ sagði stúlkan.
Garcia er í haldi lögreglu en
hann er grunaður um að hafa
brotið gegn fleiri börnum en Ca-
lystu, þar á meðal kynferðislega.
Faðir Calystu segist vera óend-
anlega þakklátur fyrir að ekki fór
verr en á undanförnum árum
hafa mörg svipuð tilvik komið
upp í Bandaríkjunum og hafa þau
oftar en ekki endað skelfilega. „Ég
þakka guði fyrir að hafa haft auga
með dóttur minni og skilað henni
heilli heim,“ segir hann.
Hasarmynd
truflaði
leðurblökur
Tökur á hasarmyndinni The Ex-
pendables 2 höfðu slæmar afleið-
ingar í för með sér fyrir leður-
blökur í Devetashka- hellinum í
Rúmeníu. Myndin var að hluta
tekin upp í nágrenni hellisins en
þar eru heimkynni þúsunda leð-
urblaka. Á þessum árstíma liggja
leðurblökurnar jafnan í vetrar-
dvala en samkvæmt líffræðing-
um sem skoðuðu hellinn eftir að
tökunum lauk eru margar þeirra
vakandi. Einungis um tíu þúsund
leðurblökur fundust í hellinum en
jafnan liggja þar rúmlega þrjátíu
þúsund í dvala. Telja líffræðingar
að hávaði á tökustað, til dæmis
sprengingar og byssuskot, hafi
truflað leðurblökurnar með fyrr-
greindum afleiðingum. Óttast líf-
fræðingar að sumar þeirra muni
drepast úr hungri.