Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Blaðsíða 14
E
ld
sn
ey
ti Bensín Dísilolía
Algengt verð 242,70 kr. 253,60 kr.
Algengt verð 242,50 kr. 253,40 kr.
Algengt verð 242,40 kr. 253,30 kr.
Algengt verð 242,70 kr. 253,60 kr.
Algengt verð 244,50 kr. 253,60 kr.
Melabraut 242,50 kr. 253,40 kr.
14 Neytendur 25. janúar 2012 Miðvikudagur
Passið ykkur á dósamatnum
n Hormónabrenglandi efni í dósum
Þ
annig hljómar aðvörun frá vís-
indamönnum við Harvard-
háskóla eftir að 75 þátttakend-
ur í rannsókn voru látnir borða
súpu úr dós í morgunmat í fimm
daga. Eftir það var magn hins skað-
lega efnis, bisfenól A mælt í þvag-
inu en efnið hefur áhrif á hormóna-
starfsemi okkar. Rannsóknin sýndi
að fimma daga neysla á 340 grömm-
um af dósasúpu leiddi til 12 sinnum
meira magns af efninu í þvagi þátt-
takenda en þeirra sem neyttu súpu
sem ekki kom úr dós.
Bisfenól A er notað í plast sem sett
er innan á flestar niðursuðudósir.
Þar til rannsóknin var gerð, héldu
framleiðendur því fram að efn-
ið næði ekki að berast í matvælin
en niðurstöður rannsóknarinnar
benda sterklega til annars.
„Þessi mikla aukning á efninu í
þvagi þeirra sem neyttu súpunnar var
óvænt og ætti að vekja áhyggjur hjá
þeim sem borða mikið af dósamat
eða drekka drykki úr dósum. Það ætti
einnig að vekja framleiðendur til um-
hugsunar um hvort ekki væri ráðlegt
að fjarlægja efnið úr dósaframleiðslu,“
segir stjórnandi rannsóknarinnar, Kar-
in Michels lektor við Harvard-háskóla.
Fjölmargar rannsóknir hafa leitt í
ljós að bisfenól A líkir eftir estrógeni í
líkamanum og getur því truflað horm-
ónastarfsemi. Það valdi meðal annars
röskun á innkirtlastarfsemi, ófrjósemi,
skemmdum á æðakerfi og auki líkur á
brjóstakrabbameini og snemmbærum
kynþroska.
Viðmótið til
fyrirmyndar
n BabyK, íslensk hönnun sem fæst
í Verzlunarfjelaginu, fær lofið að
þessu sinni en lesandi DV sendi
eftir farandi: „Ég vildi kaupa ung-
barnaskó frá BabyK í skírnargjöf en
vissi ekki hvar ég gæti nálgast þá.
Ég hafði samband við hönnuðinn
í síma og hún var yndisleg og vildi
hreinlega allt fyrir mig gera. Hún
sagði mér að skórnir væru til sölu
á Laugaveginum en þar sem ég
átti ekki leið þangað þennan dag
bauðst hún til þess að skutlast með
þá heim til mín. Þremur tímum
seinna var ég komin með skóna í
hendurnar og klár í skírn. Ég tala nú
ekki um hvað þetta eru fallegir skór
hjá henni og í svo flottum umbúð-
um, hverju skópari fylgir svo bréf
þar sem greint er frá úr hverju þeir
eru búnir til og barninu óskað til
hamingju með fyrstu skóna. Þessi
unga stúlka fór langt fram
úr væntingum mínum og
veitti mér frábæra þjónustu
og á ekkert nema lof skilið
fyrir þátttöku sína í
íslensku atvinnulífi
– það mættu margir
taka hana og hennar
viðmót sér til fyrir-
myndar.“
Mismunandi verð
n Lastið fær líkamsræktarstöðin
Actic, sem er að finna á nokkrum
stöðum á landinu. Óánægður við-
skiptavinur vildi benda á að verð
hjá stöðinni séu mismunandi eftir
því hvar á landinu stöðvarnar eru.
„Sem dæmi munar það 13 þúsund
krónum á venjulegu árskorti fyrir
fólk sem býr í Kópavogi og þá sem
búa á Vík. Þar sem þetta er eitt og
sama fyrirtækið finnst mér að það
ætti að vera sama verð alls staðar.“
DV hafði samband við Kjartan
Má Hallkelsson, rekstrarstjóra Ac-
tic, sem sagði að það væru margar
ástæður fyrir mismunandi verði.
„Það er afar misjöfn aðstaða í
boði, bæði hvað varð-
ar heilsuræktina og
hvað varðar sundið.
Eins er mismunandi
viðvera þjálfara og
tækjabúnaður svo
þetta er eins eðlilegt og
það getur verið.“
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Áldósir Vísindamenn finna
mikið magn bisfenóls A í dósum.
Ý
msar rannsóknir í gegnum tíð-
ina hafa bent til þess að þeim
sem finnst huggulegt að fá
sér eitt vínglas við og við geta
gert það með góðri samvisku.
Nú hefur heilsusíðan healthline.
com tekið saman tíu góðar ástæður
til að fá sér frekar einn ískaldan bjór
í staðinn. Það skal þó tekið fram að
helgarfyllerí eru síður en svo heilsu-
bætandi og ekki mælt með því geyma
drykki vikunnar til helgarinnar. Allar
rannsóknirnar undirstrika mikilvægi
þess að einungis hófleg drykkja geti
haft heilsusamleg áhrif en mælst er
til að konur drekki einungis 0,33 lítra
af bjór á dag en menn geta drukkið
tvöfalt það magn.
n Heilbrigðara hjarta og sterkari bein n Hófleg bjórdrykkja getur haft góð áhrif
Drekktu bjór
og lifðu lengur
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Heilbrigðara hjarta
1 Norsk rannsókn sýnir að lítið magn áfengis á dag minnkar
líkurnar á að fólk deyi úr hjartasjúk-
dómum. Það var norska lýðheilsustöðin
sem framkvæmdi rannsóknina en
150.000 manns voru spurð um
áfengisneysluna yfir nokkur ár. „Þeir
sem drukku einu sinni í viku eða oftar
voru í 45 prósenta minni hættu á að
deyja vegna hjartasjúkdóma en þeir
sem drukku ekki,“ segir Per Magnús
deildarstjóri í samtali við Verdens
Gang. Samsvarandi rannsókn var gerð
af Fondazion di Ricerca á Ítalíu og náði
til 200.000 manns. Niðurstöður hennar
sýna að einn bjór á dag minnkar
hættuna á hjartasjúkdómum um 31
prósent.
Sterkari bein
2 Í bjór er hátt hlutfall kísils sem hefur góð áhrif á beinin.
Niðurstöður rannsóknar Tufts-háskóla
frá 2009 sýna að eldri konur og
karlmenn sem drekka einn eða tvo bjóra
á dag hafa meiri þéttleika í beinum. Þeir
sem drekka meira en tvo bjóra á dag
eiga þó meiri hættu á beinbrotum.
Minni hætta
á nýrnasteinum
3 Finnsk rannsókn frá 1998 sem náði til 27.000 manns á aldrinum
50 til 69 ára sýnir að hættan á
nýrnasteinum minnkar um 40 prósent
hjá þeim sem drekka einn bjór á dag
miðað við þá sem drekka aðrar tegundir
áfengis.
Vörn gegn heilabilun
4 Könnun sem gerð var árið 2005 með þátttöku 11.000 eldri kvenna
og snéri að andlegri heilsu þeirra leiddi í
ljós að elliglapa varð vart 18 mánuðum
síðar hjá þeim sem drukku um það bil
eitt glas áfengis á dag.
Minni hætta á krabbameini
5 Portúgölsk rannsókn frá 2008 sýnir að ef maður marínerar rautt kjöt í
bjór fjarlægir maður næstum 70 prósent
af HCA, sem eru krabbameinsvaldandi
efni, úr kjötinu.
Meira magn vítamína
6 Hollensk rannsókn sem gerð var við Nutritin and Food Reasearch,
sýnir að bjórdrykkjumenn hafa að
meðaltali 30 prósent hærra magn af
B6-vítamíni í líkamanum en þeir sem
drekka ekki bjór.
Vörn gegn heilablóðfalli
7 Lýðheilsudeild Harvard-háskóla gerði rannsókn sem sýnir að
hófleg áfengisneysla vinnur gegn
blóðtappa sem stöðvar blóðflæði til
hjarta, háls og heila.
Minni hætta á sykursýki
8 Á síðasta ári birti Harvard niður -stöður rannsóknar sem náði til 38.000
miðaldra manna en þær benda til að hætta á
sykursýki II minnki um 25 prósent hjá þeim
karlmönnum sem juku áfengisneyslu sína í
eitt til tvö bjórglös á dag.
Lægri blóðþrýstingur
9 Rannsókn sem gerð var í Harvard, þar sem þátttakendur voru
70.000 konur á aldrinum 25 til 40 ára,
sýnir að þær konur sem drekka bjór í hófi
séu í minni hættu á að þróa með sér of
háan blóðþrýsting en þær sem drekka
vín eða sterkt áfengi.
Lengra líf
10 Árið 2005 tóku vísindamenn við bandaríska landbúnaðarráðu-
neytið saman niðurstöður um 50
rannsókna og komust að því að þeir sem
drekka áfengi í hófi lifa lengur en þeir
sem drekka ekki. Ástæðurnar munu vera
að hófleg drykkja hjálpar til að verjast
hjartasjúkdómum, heilablóðfalli og
sykursýki II.
5 ástæður til að
halda sig frá áfengi
n Óhófleg neysla áfengis eykur líkurnar
á lifrarskemmdum og hjartavanda-
málum
n Mikið magn áfengis eitrar líkamann
og getur valdið dauða.
n Þeir sem hafa drukkið áfengi eru í
meiri hættu á að verða fyrir ofbeldi,
óhöppum og slysum.
n Neikvæð áhrif hóflegrar neyslu
áfengis eru lifrarskemmdir, auknar líkur
á krabbameini í munni, hálsi, vélinda
og brisi.
n Áfengi er afar fitandi. Ein 0,33 lítra
flaska inniheldur 150 hitaeiningar.