Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Page 15
Neytendur 15Miðvikudagur 25. janúar 2012
Verður miklu dýrara að fara á netið
n Hormónabrenglandi efni í dósum n Mest hækkun hjá þeim sem nota ekki netið í snjallsímanum
H
ækkun á gjaldskrá
fyrir gagnamagn hjá
Vodafone og Síman-
um er væntanleg og
mun hún hafa mest á áhrif
á þá sem fara ekki daglega
á netið í snjallsíma sínum.
Þetta kemur fram á simon.is
en þar segir að nokkuð stór
hópur fólks eigi snjallsíma
en noti þá ekki sem slíka og
fari ekki á netið í þeim. Það
sé þó ekki öllum ljóst að
oft og tíðum tengist síminn
sjálfur netinu og nær í upp-
lýsingar án þess að eigand-
inn verði þess var. Slík teng-
ing við netið hefur fram til
þessa kostað 25 krónur dag-
lega sem gerir um það bil
750 krónur á mánuði. Á vef
simon.is segir að
nú séu yfirvof-
andi hækkanir
hjá Vodafone en
dagpakki mun
hækka um 65
krónur í 95 krón-
ur og komst DV
að því að slík
hækkun er einn-
ig yfirvofandi
hjá Símanum.
Simon.is
bendir á að fyrir
þá sem fara
á netið dag-
lega og kaupa
gagnapakka
verði breyting-
in lítil sem eng-
in. Þetta verði
hins vegar mikil hækkun fyrir þá sem
kaupa ekki gagnapakka en eiga síma
sem tengist netinu daglega. Hjá þeim
muni verðið fara úr 750 krónum í
2.700 krónur á mánuði. Þeir sem til-
heyra þessum hópi eru hvattir til að
vera á varðbergi vegna þessa og hafa
samband við símafyrirtæki sitt. Þar
fást upplýsingar um hvað þeir borga
fyrir netnotkun en þjónustufulltrúi
mun geta upplýst viðskiptavin-
inn um hvort síminn noti reglulega
gagnamagn, hversu mikið, hversu oft
og hvað það kosti viðskiptavininn.
Snjallsímar Það getur
verið dýrt að fylgjast ekki með
netnotkun símans.
n Heilbrigðara hjarta og sterkari bein n Hófleg bjórdrykkja getur haft góð áhrif
n Á hádegismatseðlum veitingahúsa má finna allt frá íslenskum heimilismat til dýrindis humarsúpu
Lúxusmatur á góðu verði
H
refnusteik, humarsúpa,
skötuselur og sushi eru
á meðal þess sem er að
finna á hádegismatseðl-
um ýmissa veitingastaða
á höfuðborgarsvæðinu. DV hefur
tekið saman verð á nokkrum þeirra
og kom í ljós að það er vel hægt að
fá dýrindishádegisverð á innan við
2.000 krónur. Margir veitingastað-
anna bjóða svipað verð og greiða
þarf fyrir skyndibita og það ætti því
ekki að setja mann á hausinn að
kíkja einstaka sinnum út í mat í há-
deginu með vinnufélögum eða vin-
um. Svo er um að gera að spara sér
drykki og fá sér vatn með matnum.
Ostabúðin á Skólavörðustíg
Ostabúðin býður upp á létta rétti á milli 11.30 til 13.30 sem ýmist er hægt að borða á
staðnum eða taka með sér. Þar fæst súpa dagsins, rjómalöguð fiskisúpa, fiskur dagsins,
bruschetta með hráskinku, mozzarella og tómötum og salatdiskur. Auk þess eru smurð
baguette á boðstólnum og kjúklingasalöt sem hægt er að grípa með sér. Þar er einnig hægt
að fá hálfa skammta á rúmlega hálfvirði.
Fiskur dagsins: 1.460 krónur (brauð fylgir) Súpa dagsins: 690 krónur Fiskisúpa: 890
krónur Salat: 1.280 krónur Kjúklingasalat: 790 krónur Bruschetta: 1.240 krónur
Fylgifiskar
Ef maður velur sér rétt dagsins á Fylgifiskum á Suðurlandsbraut getur maður valið um tvo
af þremur fiskréttum dagsins. Með því er soðið íslensk bankabygg, kartöflur, grænt salat
og sósa. Eins er boðið upp á tvær tegundir af súpum, köldu sjávarréttasalati sem kallast
Tapasdiskur, Tortilla með reyktum laxi og salati. Á heimasíðu Fylgifiska segir að boðið sé
upp á fría heimsendingu í hádeginu sé pantað fyrir 10 manns eða fleiri.
Réttir dagsins: 1.390 krónur Súpur dagsins: 890 krónur Fiskur & Súpa: 1.700 krónur
Tapas diskur: 1.500 krónur
Tilveran
Tilveran í Hafnarfirði leggur mikla áherslu
á fiskinn og býður upp á nokkrar tegundir
fiskrétta í hádeginu. Eru þeir allir á innan
við 2.000 krónur en með þeim fylgir súpa
dagsins.
Súpa dagsins og brauð: 850 krónur
Sjávarréttasúpa með brauði og
salati: 1.490 krónur Fiskréttur með súpu
dagsins: 1.890 krónur Tilboð - Fiskréttur
með súpu og kaffi: 1.990 krónur
Forréttabarinn
Þrátt fyrir nafnið þá eru réttirnir á Forrétta
barnum nægilega stórir til að seðja svanga
maga í hádeginu.
Litlir réttir: 790 krónur Stórir réttir: 1.150
krónur Eftirréttir: 800 krónur.
„Margir
þeirra bjóða
svipað verð og
greiða þarf fyrir
skyndibita
Geysir
Í Geysi er boðið upp á hádegismatseðil
en þar er úrval af réttum dagsins og með
þeim fylgir súpa dagsins og kaffi eða
te. Um helgar er brunchtilboð á 1.895
krónur og með því fylgir kaffi eða te.
Fiskur dagsins: 1.795 krónur Kjötréttur
dagsins: 1.895 krónur Grænmetisrétt-
ur dagsins: 1.595 krónur Hamborgari
dagsins með frönskum og kokteil-
sósu: 1.495 krónur
Íslenski barinn
Íslenski barinn býður upp á þjóðlega rétti og
hentar því vel þeim sem vilja ekta íslenskan
heimilismat. Á virkum dögum er réttur dagsins
breytilegur og má þar nefna bleikju, lamba
skanka og plokkfisk en um helgar er lambalæri
í boði. Á sérstökum hádegismatseðli eru salat,
hamborgarar, samlokur, hrefnusteik, ein til
tvær tegundir af fiski auk meðlætis. Afar vel er
látið af hrefnusteikinni. Súpa fylgir.
Réttur dagsins á virkum dögum: 1.000 kr.
Réttur dagsins um helgar: 1.990 kr.
Auka hádegisseðill: 1.100 kr.
Grillmarkaðurinn
Það er aðeins dýrara að borða þar, en fisk og kjötréttir eru á bilinu 1.790 til 3.790 krónur.
Það er hins vegar hægt að fá forrétti á frá 1.290 til 1.990 krónur og súpur og salöt á 1.790 eða
1.890 krónur. Auk þess eru grillspjót á 890 krónur til 1.390 krónur. Grillmarkaðurinn leggur
mikið upp úr samstarfi við bændur og allt hráefni er keypt beint af bónda.
Forréttur - Hrefnusteik: 1.890 krónur Sveitasælusalat: 990 krónur / 1.890 krónur
Grillspjót með skötusel: 1.390 krónur Grilluð laxasteik: 1.990 krónur
Fiskfélagið
Fiskfélagið býður upp á Fisk dagsins er hann
er breytilegur eftir dögum, bæði fiskurinn
sjálfur og meðlætið. Undir forréttum er súpa
en hún er matarmikil og ætti að duga fyrir
þá sem vilja góða súpu í hádeginu. Eins er
boðið upp á humarsalat. Hálfur skammtur
af því er hæfilegt fyrir meðalmann en þetta
er stórt og mikið salat.
Fiskur dagsins: 1.990 krónur Fiskisúpa:
1.890 krónur Humarsalat 1/2 skammtur:
1.890 krónur Blandað sushi 14 bitar: 1.990
krónur