Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Page 17
Dómstóll götunnar Ég er þingmaðurÉg er alltaf til í ævintýri Ásta R.Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, svarar gagnrýni vegna landsdómsmálsins. – DV.Grétar Rafn Steinsson býst fastlega við því að yfirgefa Bolton. – DV. Höfðingjarnir rísa á ný „Sumt, en finnst það ekkert sérstakleg gott.“ Hanna Valgerður Þórðardóttir 20 ára vinnur í móttöku á hóteli „Nei, mér finnst hann vondur. Fyrir utan harðfisk, hann er góður.“ Lára Ingileif Henrysdóttir 22 ára nemi og barþjónn „Já, sumt, sviðasultan og hrútspungarnir eru ágætir. Hitt er bölvuð fita.“ Sigga á Boston „Ég borða hrútspunga og sviðasultuna en ekkert annað.“ Lind Völundardóttir 57 ára forstöðumaður búningadeildar Íslensku óperunnar „Nei, ekkert af honum. Ég er ekki alinn upp við það.“ Guðmundur Páll Bergþórsson 24 ára starfsmaður Banana ehf Borðar þú þorramat?? Gjörningur Geira á Goldfinger U m helgina átti sér stað merki- legur árekstur tveggja menninga í Hörpu. Harpa er hámenningarleg- asti vettvangur listrænnar tjáningar sem Íslandssagan geymir. Það kost- aði tæpa 30 milljarða króna að reisa hana. Ríkisstyrkir til hennar nema 1,5 milljörðum á ári, eða 4.700 krónum á hvern Íslending. Íslenskur verkamaður þarf að vinna í þrjár vikur til að borga æviframlag sitt og fjölskyldunnar til Hörpu. Það er svo takmarkaður markaður fyrir æðri menningu að ríkið þarf að niðurgreiða hana. Sinfóníuhljómsveit Íslands fær um 800 milljónir króna í greiðslur af skattfé almennings, vegna þess að hún stendur ekki undir sér. Goldfinger í Kópavogi er lágmenn- ingarlegasti vettvangur kynferðislegrar tjáningar sem Íslandssagan geymir. Rík- ið hefur ekkert borgað fyrir rekstur Gold- finger. Þar hafa stúlkur dansað fáklædd- ar til að eggja menn og reyna svo að selja þeim freyðivín gegn blíðu. Það er svo mikill markaður fyrir kyn- lífstengdri menningu að ríkið þarf að sporna við henni. Nektardans er bann- aður, en sinfóníuspil í glæsihöll er niður- greitt með peningum almennings. Æðri menning og lágmenning eru í sitthvorri víddinni. En um helgina rauf Sinfóníuhljómsveit Íslands skilin milli víddanna. Hún ákvað að halda „James Bond-veislu“ í Hörpu. Áður hefur hún gælt við sveitaballamenningu með því að halda tónleika með hljómsveitinni Sálinni hans Jóns míns. En árekstur sveitaballafólksins og hámenningar var ekki eins harkalegur og sá sem átti sér stað um helgina. Hlið lágmenningar voru opnuð og dárarnir streymdu úr neðra, fulltrúar þeirrar menningar sem stendur undir sér. Þegar Geiri á Goldfinger og stripp- ararnir hans komu inn í Eldborgarsal Hörpu var eins og rapptexti réðist inn í texta Shakespeares, eins og ef Bónusl- jóðin brytust inn í Brennu-Njáls sögu. Það var eins og Ave Maria í flutningi Erps Eyvindarsonar þegar skvaldur stripparanna og raus Geira á heldri- mannasvölunum blandaðist saman við flutning þéttskipaðrar Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands. Áskrifendur Sinfóníuhljómsveitar Íslands hljóta að hafa orðið forviða þegar fylgdarkonum Geira var kastað út úr Hörpu eins og sjóurum af sveitaballi. En um leið varð þetta listrænt. Listin getur verið að sýna fram á andstæður og setja hlutina í óvænt samhengi. Meira svona. Svarthöfði Í gegnum söguna hafa höfðingjar ávallt skreytt sig með öðrum fjöðrum en við hin, því einhvern veginn verð- ur fólk jú að vita að þeir eru höfð- ingjar. Þegar sjálfstæði Íslands var selt á 13. öld í skiptum fyrir sex skip á ári, þá var það ekki korn eða timbur eða önnur nauðsynjavara sem skipin fluttu fyrst og fremst, heldur skrautmunir sem höfð- ingjarnir skrýddu sig með, því annars var hætta á að fólk tæki ekki lengur mark á þeim sem höfðingjum. Forystumenn Sjálfstæðisflokksins hafa löngum litið á sig sem náttúru- lega höfðingjastétt Íslands. Þeirra var að útdeila embættum, einkaleyfum og öðrum verðmætum, og varla er hægt að segja að mikið hafi verið efast um þá til- högun allt fram að hruni. Hrunið var því mesta áfall sem íslensk höfðingjastétt hefur orðið fyrir, þeir voru ekki lengur hálfguðlegar verur sem vissu betur en við hin, heldur virtist sem þeir vissu eig- inlega ekkert hvað þeir voru að gera. Sjálfstæðismenn kunna ekki að tapa Á meðan vinstrimenn geta þolað hvern kosningaósigurinn á fætur öðrum og haldið áfram að vera til, eiga höfðingj- arnir erfiðara með að tapa, því þá fer fólk að efast um þá og þeir hætta að vera höfðingjar. Að sama skapi er ómögulegt fyrir þá að viðurkenna sök eða ábyrgð, því þá fara þeir að hljóma um of eins og aðrir menn. Því var hætta á að eftir hrun myndi íslensk höfðingjastétt ekki lengur þykja marktæk. Eitthvað varð að gera til að sýna fram á að höfðingjarnir væru ekki eins og hinir þrátt fyrir allt. Ráðning Davíðs Oddssonar sem ritstjóra Morg- unblaðsins var stórt skref í þessa átt. Hann var flæmdur úr Seðlabankanum, en hélt áfram að vera höfðingi fyrir því. Reyndar benti norskur blaðamaður mér á um daginn að það var fyrst þegar hann frétti af þessari ráðningu sem hann gerði sér grein fyrir að Ísland hlyti að vera gerspillt, þó hann ætti erfitt með að trúa því annars. Þetta, að minnsta kosti, myndi aldrei gerast í Noregi. Bjarnagrátur Þessa dagana á að reka smiðshöggið á það starf að endurreisa höfðingjaveld- ið á Íslandi. Ef því yrði leyft að gerast að einn af helstu höfðingjum Sjálf- stæðismanna yrði dreginn í réttarsal og látinn sæta ábyrgð á eigin gerðum sem almúgamaður væri, myndi enginn lengur trúa á ofurvald höfðingjanna. Með réttarhöldunum einum saman yrðu þeir samstundis gerðir að dauð- legum verum sem eru jafn líklegar til að gera mistök og aðrir. Og það gætu þeir aldrei þolað. Því er það nú að þeir reyna að koma í veg fyrir þessi réttarhöld með öllum tiltækum ráðum, því örlög þeirra sjálfra eru í húfi. Það má vera að Bjarni felli tár fyrir Geir þegar aðrir sjá til, en fyrst og fremst hefur hann hagsmuni höfð- ingjastéttarinnar að leiðarljósi. „Hann var flæmdur úr Seðlabankan- um, en hélt áfram að vera höfðingi fyrir því. Alhvítt Það var fagurt um að litast í höfuðborginni í morgun. Lægð með talsverðri snjókomu gekk yfir landið í gær og flestir landsmenn hafa þurft að glíma við ófærð í kjölfarið. Von er á leysingum um helgina. Mynd eyþór árnASonMyndin „Það er nú ekki allur snjór farinn af götunum í Reykja- vík, ég verð að viðurkenna það. Ég þarf kannski að fá mér stærri trukk,“ segir Dagur B. Eggertsson. Hvernig gekk að moka? Mest lesið á DV.is 1 Völu Grand hrósað í sturtunni Kona vatt sér upp að Völu og hrósaði kynfærum hennar en eins og alþjóð veit er Vala nýbúin að fara í kynleiðrétt- ingaraðgerð. 2 Yfirgefnir bílar í hringtorgi Allt á kafi í snjó á höfuðborgarsvæðinu eftir storminn aðfaranótt þriðjudags. 3 Miðill sagði Kim að skilja Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian ákvað að binda endi á 72 daga hjónaband eftir fund við miðilinn John Edward. 4 Dagur B. skellir sér út í snjóinn Dagur birti mynd á Facebook-síðu sinni þar sem einhver hefur skellt andliti Dags og Reykjavíkurmerkinu á snjómoksturstæki. 5 Hrossabúið til sölu: Kári vill 210 milljónir Hefur ekki lengur tíma fyrir bústörfin. 6 Umhverfisspjöll í Mosfellsbæ Göngustígar stórskemmdir vegna utan- vegaaksturs. 7 Agné metin sakhæf Ákærð fyrir að skilja nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón í fyrra. Umræða 17Miðvikudagur 25. janúar 2012 Kjallari Valur Gunnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.