Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Side 18
Magnað afmæli Valgeirs
T
ónlistarmaðurinn Val-
geir Guðjónsson hélt
upp á afmælið sitt í
stútfullum Eldborgar-
sal Hörpu síðastliðið sunnu-
dagskvöld. Loftið var þrungið
sannri eftirvæntingu þegar
Valgeir steig á svið ásamt úr-
valsliði valinkunnra tón-
listarmanna. Fyrri hluta tón-
leikanna lék hann mörg af
sínum þekktustu lögum og
afmælisbarnið sextuga er svo
sannarlega í góðu tónlistar-
formi. Inn á milli spilaði hann
svo fjörugri smelli á sinn eigin
hátt. Dóttir Valgeirs, Vigdís
Vala, kom svo inn á sviðið og
flutti frumsamið lag fyrir föður
sinn og heillaði nærstadda
með einkar fallegum söng
og vafalaust á eftir að heyrast
meira frá þessari ungu söng-
konu í framtíðinni. Leikar
æstust svo þegar inn á sviðið
komu hver af öðrum vinir og
félagar Valgeirs úr hljómsveit-
unum Spilverki þjóðanna og
Stuðmönnum. Þarna voru
komnir saman á svið margar
af stærstu stjörnum íslensks
tónlistarlífs, fyrr og síðar.
Diddú og Egill voru frábær
við hlið Valgeirs en því miður
var Bjólan fjarri góðu gamni
þetta kvöldið. Stuðið náði svo
hámarki með ástardúett Stuð-
manna og popplagi í G-dúr
þar sem Stuðmenn í sinni
klassískustu mynd, ásamt
Röggu Gísla, rauluðu saman
en langt er síðan þessi hópur
hefur sést saman á sviði. Á
tímabili mátti sjá að spennan á
sviðinu var nokkur enda hefur
oft gustað um þessa gömlu fé-
laga og nokkrir þarna á meðal
sem í gegnum tíðina hafa
kunnað best við sig í framlín-
unni. Gömlu félagarnir létu
þó Valgeiri hana eftir að mestu
þetta kvöldið enda hér um
hans afmælisveislu að ræða.
Á tímabili mátti þó greina smá
baráttudans þeirra á milli en
Valgeir hélt sínum stað, með
gömlu vinina sér til halds og
trausts. Og þvílíkt teymi! Þegar
þetta fólk kemur saman þá
getur bara ekkert klikkað. Það
er einhver dínamísk orka sem
brýst út og saman búa þau til
ólýsanlega stemningu. Leik-
gleðin er gjörsamlega við völd.
Það voru allir í miklu stuði og
afmælisbarnið sjálft var þar
fremst í flokki – fór gjörsam-
lega á kostum. Hvort sem um
var að ræða í söng, gítarspili
eða gamanmáli en Valgeir
sló á létta strengi milli laga og
salurinn hreifst með. Valgeir
var klappaður upp að tónleik-
unum loknum og tók þrjú lög
til viðbótar, gestum til mikillar
gleði.
Lög Valgeirs eru sannar-
lega menningarverðmæti
enda mörg þeirra löngu orðin
hluti af þjóðarsál Íslend-
inga eins og heyra mátti á
salnum. Afmælistónleikarnir
voru mögnuð skemmtun í
alla staði – með skemmtilegri
afmælum sem ég hef farið í
lengi.
18 Menning 25. janúar 2012 Miðvikudagur
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
Tónleikar
Spilaðu lag fyrir mig
Valgeir Guðjónsson sextugur
Tónleikar í Hörpu, 22. janúar 2012
Afmælisbarnið Valgeir lék við hvern sinn fingur á tónleikunum og var í
miklu stuði. Mynd Björn BlöndAl
Algeng mismæli:
Kanntu
línurnar?
Á vefsíðunni 11points.com
tekur greinarhöfundur sam-
an algengustu línur kvik-
myndanna sem hvað oftast
er farið rangt með. Hér eru
þær helstu.
Field of Dreams
Rangt „If you build
it, they will come.“
Rétt „If you build it,
he will come.“
Casablanca
Rangt „Play it again, Sam.“
Rétt „Play it once, Sam, for old
times’ sake, play As Time Goes By.“
The Empire
Strikes Back
Rangt „Luke, I am your father.“
Rétt „Obi-Wan never told you
what happened to your father.“
„He told me enough. He told me
you killed him.“ „No. I am your
father.“
The Silence of
the Lambs
Rangt „Hello, Clarice.“
Rétt „Good evening, Clarice.“
Wizard of Oz
Rangt „We’re not in
Kansas anymore.“
Rétt „Toto, I’ve a
feeling we’re not in
Kansas anymore.“
Snow White and
the Seven Dwarfs
Rangt „Mirror, mirror on the wall,
who is the fairest of them all?“
Rétt „Magic mirror on the wall,
who is the fairest one of all?“
Senuþjófar og
góðkunningjar
n Óskarsverðlaunatilnefningar kynntar n Gæðaleikarar sniðgengnir
T
ilkynnt var um til-
nefningar til Ósk-
arsverðlaunanna á
þriðjudagsmorgun en
þar voru myndirnar
The Artist og Hugo áberandi.
Margir af góðkunningjum
Óskarsins eru tilnefndir að
þessu sinni, svo sem Martin
Scorsese, Meryl Streep, Ge-
orge Clooney, Brad Pitt og
Woody Allen. Það má þó segja
að senuþjófurinn sé myndin
Extremely Loud and Incre-
dibly Close. Myndin er til-
nefnd til tveggja Óskarsverð-
launa, sem besta mynd og fyrir
besta leikara í aukahlutverki,
Max Von Sydow.
Þá hlýtur gamanmyndin
Bridesmaids tvær tilnefning-
ar. Melissa McCarthy er til-
nefnd sem besta leikkonan í
aukahlutverki og þá eru þær
Kristen Wiig og Annie Mur-
molo tilnefndar fyrir besta
kvikmyndahandritið. Þá vekur
einnig athygli Demián nokkur
Bichir sem er tilnefndur fyrir
bestan leik í aðalhlutverki.
Þessi 49 ára gamli leikari er til-
nefndur fyrir leik sinn í mynd-
inni A Better life.
Ekki bara gleði
En það eru ekki allir glaðir
eftir að tilnefningarnar voru
tilkynntar. Myndir á borð við
Young Adult, Drive og 50/50
þóttu allar álitlegar og þóttu
vera með nokkra leikara inn-
anborðs sem áttu skilið til-
nefningu. Talað var um Drive,
sem danski leikstjórinn Nico-
las Winding-Refn leikstýrði,
sem eina af bestu myndum
ársins og Ryan Gosling þótti
sýna snilldarleik.
Þá þótti frammistaða Jo-
sephs Gordon-Levitt í 50/50
vera framúrskarandi en hann
var ekki í náðinni hjá aka-
demíunni. Tilda Swinton þótti
líkleg til að hreppa tilnefningu
fyrir leik sinn í We need to talk
about Kevin. n
Besta leikkona í aðalhlutverki
Besti leikari í aðalhlutverki
Helstu tilnefningar
n demian Bichir
A Better Life
n Viola davis
The Help
n George Clooney
The Descendants
n Glenn Close
Albert Nobbs
n jean dujardin
The Artist
n Michelle Williams
My Week With
Marilyn
n Brad Pitt
Moneyball
n Meryl Streep
The Iron Lady
n Gary Oldman
Tinker Tailor Soldier Spy
n rooney Mara
The Girl With the
Dragon Tattoo
Besti leikari
í aukahlutverki
n Kenneth Branagh, My Week
With Marilyn
n jonah Hill, Moneyball
n nick nolte, Warrior
n Christopher Plummer, Beginners
n Max Von Sydow, Extremely Loud
& Incredibly Close
Besta leikkona
í aukahlutverki
n Berenice Bejo, The Artist
n jessica Chastain, The Help
n Melissa McCarthy, Bridesmaids
n janet McTeer, Albert Nobbs
n Octavia Spencer, The Help
Besti leikstjóri
n Woody Allen, Midnight in Paris
n Michel Hazanavicius, The Artist
n Terrence Malick, The Tree of Life
n Alexander Payne, The
Descendants
n Martin Scorsese, Hugo
Besta
mynd
Einkunn á IMDb fylgir.
n War Horse
n Moneyball n The Help
n The descendants
n Extremely loud &
Incredibly Close
n Hugo
n The Artist
n Midnight in Paris
n The Tree of life
8,1
7,4 7,9 8,2 7,8
7,18,56,27,8