Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Side 20
Vildi ekki mæta í Hvíta húsið
n Besti hokkímarkvörðurinn í NHL mótmælti afskiptum Bandaríkjastjórnar
R
íkjandi meistarar í NHL-
deildinni í íshokkí, Bo-
ston Bruins, mættu á
mánudaginn í Hvíta
húsið til að heilsa upp á Bar-
ack Obama, Bandaríkjaforseta.
Þess konar heimsóknir eru sið-
ur í Bandaríkjunum en meist-
aralið koma ávallt við í Hvíta
húsinu, eru heiðruð fyrir árang-
ur sinn og fá hópmynd með for-
setanum.
Aðeins tveir Bandaríkja-
menn eru á mála hjá Bruins
en annar þeirra, markvörður-
inn Tim Thomas, kaus að mæta
ekki í heimsóknina. Thomas
var valinn besti markvörður
NHL-deildarinnar í fyrra og
kosinn verðmætasti leikmað-
ur úrslitarimmunnar þar sem
Bruins höfðu betur gegn Van-
couver Canauks í sjö leikjum.
Hann útskýrði ákvörðun
sína í yfirlýsingu á Facebook-
síðu sinni. „Mér finnst Banda-
ríkjastjórn hafa tekið sér of mik-
il völd og ógna nú réttindum,
frelsi og eigum fólksins. Þetta
er gert á öllum stigum kerfis-
ins. Þetta er gert þvert á það
sem stendur í stjórnarskránni
og framtíðarsýn forfeðra okkar
á stjórn landsins. Það er vegna
þess sem ég nýti minn rétt sem
frjáls borgari til að mæta ekki
í Hvíta húsið. Þetta snýst ekki
um pólitík því að mínu mati
eru báðir flokkar sekir um það
ástand sem ríkir í þessu landi.
Þetta var einfaldlega ákvörðun
sem ég tók sem einstaklingur!“
skrifaði Thomas.
Thomas hefur hvergi slegið
af á yfirstandandi keppnistíma-
bili og heldur áfram að vera
einn albesti markvörður deild-
arinnar. Saga hans er nokk-
uð merkileg en hann fékk ekki
almennilegt tækifæri í NHL
fyrr en Boston vantaði sárlega
markvörð fyrir þremur árum.
Fram að því var búið að afskrifa
Thomas sem flakkaði á milli
liða í Skandinavíu og spilaði þar
bæði í Svíþjóð og Finnlandi.
20 Sport 25. janúar 2012 Miðvikudagur
Kaupir
ekki neitt
Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, ætlar ekki að
kaupa leikmenn til að leysa
þau vandamál sem liðið
glímir við vegna meiðsla
fjölda leikmanna. Sérstak-
lega vantar liðið bakverði.
„Að eyða peningum er ekki
takmarkið. Það hefur aldrei
verið þannig,“ segir Wenger
en það þarf ekki að koma
neinum stuðningsmanni
Arsenal á óvart. „Við þurf-
um bara að fá leikmennina
okkar til baka. Okkur vantar
tíu leikmenn núna. Það sáu
allir hvað við gerðum í seinni
hálfleik gegn Manches-
ter United án allra þessara
manna. Það er mikilvægt fyr-
ir okkur að fá þá til baka.“
Lið fólksins
byggir völl
Enska hálfatvinnumannalið-
ið FC United of Manchester
sem stuðningsmenn félags-
ins stofnuðu í mótmælaskyni
við eigendur Manchester
United, Glazer-fjölskylduna,
er að stækka við sig. Félagið
hefur fengið leyfi frá borgar-
yfirvöldum í Manchester til
að byggja nýjan 4,5 millj-
óna punda keppnisvöll auk
félagsheimilis, tvo barnavelli
og gervigrasvöll í fullri stærð.
FC United spilar í efstu deild
Northern Premier League
sem er ein af utandeildum
Englands. Liðið endaði í
fjórða sæti þeirrar deild-
ar á síðasta ári en tapaði í
umspili um að komast enn
hærra í deildarkerfinu.
Endurtekið efni
Snæfell fær tækifæri til að
hefna ófaranna í bikarkeppni
KKÍ þegar liðið mætir aftur í
DHL-höllina á fimmtudag-
inn. Þá hefst þrettánda um-
ferð Iceland Express-deild-
arinnar. Sama kvöld mætast
Haukar og Njarðvík að Ás-
völlum og spútniklið Þórs
frá Þorlákshöfn tekur á móti
Stjörnunni sem er í öðru sæti
deildarinnar. Allir leikirnir
hefjast klukkan 19.15.
Mætti ekki Tim Thomas
nýtti rétt sinn sem frjáls
einstaklingur.
H
inn afar fjarlægi
draumur strákanna
okkar um sæti í und-
anúrslitum EM í
handbolta dó endan-
lega á þriðjudaginn þegar Ís-
land tapaði gegn Spáni, 31–
26, í milliriðli á EM í Serbíu.
Ísland fór með ótal dauða-
færi á mótinu og gerði Spán-
verjum oft afar auðvelt fyrir.
Tapið er þó ekki alslæmt því
með sigrinum færðist Spánn
nær undanúrslitunum. Það er
gott fyrir Ísland því ef Spánn,
Króatía eða Danmörk verða
Evrópumeistari hjálpar það Ís-
landi gríðarlega hvað varðar
andstæðinga í forkeppni Ól-
ympíuleikanna næsta sumar.
Ísland á einn leik eftir gegn
Frakklandi sem skiptir okkur
engu máli.
Hræðileg færanýting
Það var færanýtingin sem
gerði strákunum okkar hvað
erfiðast fyrir gegn Spáni. Sókn-
arleikurinn gekk brösuglega
til að byrja með og tæknileg
mistök í sókninni gáfu Spán-
verjum auðveld hraðaupp-
hlaupsmörk. Varnarleikurinn
var ekki góður í fyrri hálfleik
og fengu stórskyttur Spánverja
að rölta inn á sex metrana þar
sem þær eiga ekki í miklum
vandræðum með að skora.
Ísland missti Spán strax allt-
of langt fram úr en staðan var
orðin 7–2 eftir ellefu mínútna
leik. Tvö mörk á ellefu mínútu
er ekki boðlegt.
Seinni hálfleikur var skárri
á flesta vegu. Varnarleik-
ur betri, Björgvin mjög góð-
ur í markinu og sóknarleikur
sem slíkur góður. En nýting
á dauðafærum var hræðileg
og hefur sjaldan sést leikur
þar sem boltinn fer jafnoft í
tréverkið. Guðmundur nýtti
tækifærið til að gefa nýjum
mönnum tækifærið. Rúnar
Kárason kom inn á og skoraði
fjögur mörk í sex skotum, flott
innkoma hjá honum. Kári
Kristján leysti Róbert af á lín-
unni sem fann sig engan veg-
inn en Kári fiskaði hvert vítið
á fætur öðru. Því miður gekk
illa að nýta þau. Þá stimplaði
Ólafur Guðmundsson sig inn
með fínu marki undir lok-
in. Þessir strákar fá væntan-
lega enn stærra hlutverk gegn
Frakklandi í lokaleiknum.
Of mikið á móti svona liði
„Við byrjuðum ekki nægilega
vel og hleyptum þeim fram úr
okkur strax. Þá var á brattann
að sækja,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson, landsliðsþjálf-
ari Íslands, við RÚV eftir leik-
inn. „Við áttum fína kafla inn á
milli en þeir voru of stuttir. Allt-
af þegar við erum að vinna okk-
ur inn í leikinn fáum við mörk
á okkur til baka. Bæði í fyrri og
seinni hálfleik erum við að fara
of illa með dauðafæri. Ég held
við séum að klúðra einum tíu til
tólf þannig. Það er helvíti mikið
á móti svona liði. Þetta er sorg-
legt því munurinn er á endan-
um bara fimm mörk. Við náð-
um að bæta vörnina í seinni
hálfleik og þá kom upp mark-
varsla. Við náðum aftur á móti
ekki að refsa þeim neitt,“ sagði
Guðmundur.
Guðjón Valur Sigurðsson
var ekki eins og hann á að sér
í leiknum. Hann var að vanda
markahæstur en nýtingin var
hræðileg. Hann skoraði sex
mörk í 13 skotum og brenndi
af tveimur vítaköstum. „Þeir
halda okkur alltaf fyrir aftan
sig því við erum að klúðra mik-
ið af dauðafærum. Sjálfur fór
ég með nokkur. Það var frekar
svekkjandi að ná ekki að byrja
þetta betur. Spánverjar voru
ekkert að spila neitt stórkost-
lega en kannski þurftu þeir það
ekkert í þessum leik. Við vorum
að berjast og reyna en svona er
þetta,“ sagði fyrirliðinn Guðjón
Valur í viðtali við RÚV.
Áfram Spánn, Króatía og
Danmörk
Tapið er súrsætt því stigin tvö
sem Spánn hirti gera Íslend-
ingum gott. Nú þarf að fara að
hugsa til forkeppni Ólympíu-
leikanna í Lundúnum í sumar.
Eins og staðan er núna mun Ís-
land vera í riðli með Spáni, sem
verður á heimavelli, og ann-
arri sterkri Evrópuþjóð. Vinni
aftur á móti Spánn, Króat-
ar eða Danir EM færist Ísland
upp um eitt sæti því þau end-
uðu öll fyrir ofan Ísland á HM
og færu inn á Ólympíuleik-
ana sem álfumeistarar. Riðil-
inn sem bíður Íslands, vinni
eitt af þessum þremur liðum
EM, samanstendur af Svíþjóð,
Japan og Chile. Svo sannarlega
greið leið á Ólympíuleikana því
tvö lið komast upp úr riðlinum í
forkeppninni.
SúrSætt tap
n Spánn vann Ísland 31–26 n Gætum fengið auðveldan riðil í forkeppni ÓL 2012
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Handbolti
Flottur Kári Kristján
stóð sig vel gegn
Spáni. MyND ReuteRS
Staðan
Milliriðill 2
Lið L u J t Skor Stig
Spánn 4 3 1 0 108:98 7
Króatía 4 3 0 1 113:104 6
Slóvenía 4 2 0 2 121:121 4
Ungverjaland 4 1 1 2 101:106 3
Frakkland 4 1 0 3 99:110 2
Ísland 4 1 0 3 114:117 2
Næsti leikur
Miðvikudag kl. 15:10
Frakkland – Ísland
Ísland – Spánn
26–31
Mörk Íslands: Guðjón Valur
Sigurðsson 6, Rúnar Kárason
4, Kári Kristján Kristjánsson 3,
Ásgeir Örn Hallgrímsson 3, Arnór
Atlason 3, Aron Pálmarsson 3,
Þórir Ólafsson 2, Ólafur Guð-
mundsson 1, Vignir Svavarsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll
Gústavsson 20/2