Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2012, Síða 13
Erlent 13Mánudagur 30. janúar 2012
Lai Xiaodong, 22 ára, flutti til Chengdu í desember 2010 eftir að hann fékk
vinnu í verksmiðju Foxconn. Skömmu áður hafði Xiadong kynnst myndarlegri
stúlku sem stundaði nám í hjúkrunarfræði. Þau hófu fljótlega samband og
ákváðu að gifta sig og kaupa íbúð. Til að það gæti gerst þurfti Xiaodong á
peningum að halda og ákvað hann því að flytja til Chengdu og leggja hart að
sér til að geta látið drauminn rætast – og að fá þann heiður að vinna við að
búa til nýjustu vörur Apple.
Það fyrsta sem Xiadong tók eftir í verksmiðjunni voru gríðarsterk ljósin
í verksmiðjusalnum. Þarna var aldrei myrkur enda var unnið á vöktum allan
sólarhringinn. Á veggjum verksmiðjunnar var að finna skilti sem á stóð:
„Leggðu hart að þér í vinnunni í dag eða leggðu hart að þér við að finna nýja
vinnu á morgun.“
Xiadong vann yfirleitt í tólf klukkustundir á dag, sex daga vikunnar,
við að gera við vélar. Hann fékk sem samsvarar 2.700 krónum á dag í laun,
meira en margir aðrir vegna þess að hann hafði lokið miðskólanámi. Þegar
vinnudeginum lauk fór hann heim í litla herbergið sem hann leigði og spilaði
nettölvuleikinn Fight the Landlord, að sögn unnustu hans, Luo Xiaohong.
Aðstæður hans voru betri en hjá öðrum starfsmönnum en dæmi eru um að
allt að tuttugu starfsmenn hafi búið saman í lítilli þriggja herbergja íbúð sem
fyrirtækið útvegaði gegn gjaldi.
Dag einn í maí í fyrra varð hörmulegt slys í verksmiðjunni og var Xiadong
einn fjögurra sem létu lífið. Kærasta hans heimsótti hann á sjúkrahúsið eftir
slysið. Nær allur líkami hans var brunninn og þurfi Xiadong að játa sig sigraðan
tveimur dögum eftir slysið. Foxconn greiddi fjölskyldu hans bætur eftir slysið,
upphæð sem samsvarar rúmum átján milljónum króna.
Rannsókn leiddi í ljós að álryk, sem er mjög eldfimt, olli slysinu. Starfs-
menn höfðu vart undan við að pússa álbakið á iPad-spjaldtölvunum en við
það myndaðist rykið sem síðar olli sprengingunni. 77 slösuðust.
„Ef það væri mjög erfitt að eiga við álryk myndi ég skilja að slys gætu
orðið. En veistu hversu auðvelt er að stjórna þessu? Það kallast loftræsting.
Við leystum þetta vandamál fyrir mörgum öldum,“ segir Nicholas Ashford,
sérfræðingur í öryggismálum sem starfar við MIT-háskólann í Massachussetts
við The New York Times. Móðir Xiadongs segir að hún hafi í raun aldrei fengið
almennilegar skýringar á því hvers vegna sonur hennar lést. „Við erum ekki
viss af hverju hann lést. Við skiljum ekki hvað gerðist.“
Búa til iPhone við
ömurlegar aðstæður
Draumurinn
varð að martröð
Foxconn
Xiadong fékk
vinnu hjá Fox-
conn. Fyrir tólf
klukkustunda
vinnudag fékk
hann sem sam-
svarar 2.700
krónum.
þeirra hundraða fyrirtækja sem eru
undirverktakar fyrirtækja á borð við
Foxconn og vinna óbeint fyrir Apple.
Þá virðist mikil leynd hvíla yfir því
hvar þessi 156 fyrirtæki eru nákvæm-
lega og vilja forsvarsmenn Apple ekki
gefa það upp. Og forsvarsmönnum
réttindasamtaka hefur ítrekað verið
vísað á dyr þegar þeir hafa heimsótt
umrædd fyrirtæki.
„Hér er mikil leynd sem hvílir yfir
öllu,“ segir fyrrverandi yfirmaður hjá
Apple og bætir við að í raun sé ótrú-
legt hversu litlar kröfur eru gerðar til
fyrirtækisins um úrbætur.
Hreint á yfirborðinu
Apple er eitt dáðasta vörumerki
Bandaríkjanna. The New York
Times gerði könnun meðal lesenda
í nóvember um viðhorf til fyrirtæk-
isins. 56 prósent aðspurðra sögð-
ust ekki geta fundið neitt neikvætt
að segja um Apple. Fjórtán prósent
sögðu að vörur fyrirtækisins væru of
dýrar á meðan einungis tvö prósent
nefndu slæman aðbúnað starfsfólks
sem framleiða vörur fyrir Apple.
Heather White, fræðimaður hjá
Harvard-háskóla, segir við The New
York Times að neytendur einir hafi
valdið til að breyta aðbúnaði starfs-
fólks til hins betra. Það hafi gerst þeg-
ar upp komst að börn framleiddu
vörur fyrir stórfyrirtækin Nike og
Gap. Þessu eru fyrrverandi stjórn-
endur Apple sammála. „Þú getur
annaðhvort framleitt vörur í þægi-
legum verksmiðjum þar sem að-
stæður eru góðar eða framleitt vörur
með meiri hraða og á lægra verði.
Og þessa stundina virðast neytendur
hugsa meira um nýjan iPhone en að-
stæður starfsfólks í Kína.“
Námskeið fyrir aðstandendur (20 ára og eldri)
Ætlað þeim sem eiga fjölskyldumeðlim sem er að ganga í gegnum
krabbameinsmeðferð. Námskeið sem byggist á fræðslu og umræðum.
Hefst: miðvikudaginn 1. feb. kl. 19.30-21.30, 7 skipti.
Námskeið fyrir börn 7, 8 og 9 ára
Ætlað þeim sem eiga fjölskyldumeðlim með krabbamein. Uppbyggjandi
námskeið fyrir börn. Unnið með traust, sjálfsmynd og samskipti í geg-
num leiki og gefandi verkefni.
Hefst fimmtudaginn 2. feb. kl. 16.30-18.00, 10 skipti.
Karlmenn og krabbamein - fræðslufundir
Uppbyggjandi fræðsla með mismunandi fyrirlesurum, maki eða náinn
aðstandandi er velkominn með í fyrsta tímann.
Kynningarfundur 6. feb. kl. 17.30.
Hefst mánudaginn 13 feb. kl. 17.30-19.00, 10 skipti.
Ný Námskeið
Upplýsingar á www.ljosid.is
Skráning í síma 561 3770
Langholtsvegi 43 sími 561 3770
ljosid@ljosid.org www.ljosid.is
Endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur
í LjósiNU
N
ewt Gingrich, sem sækist
eftir útnefningu repúblik-
ana fyrir forsetakosningarn-
ar í Bandaríkjunum síðar
á árinu, vill að Bandaríkja-
menn stofni nýlendu á tunglinu. Þessi
orð lét Gingrich falla á fundi með
stuðningsmönnum sínum á Flórída
síðastliðinn miðvikudag. Gingrich býr
sig nú undir prófkjör repúblikana sem
fer fram í ríkinu á morgun, þriðjudag.
Orð Gingrich hafa vakið athygli enda
tók hann það sérstaklega fram, að svo
lengi sem hann næði kjöri sem for-
seti Bandaríkjanna, yrðu Bandaríkja-
menn búnir að koma upp geimstöð
eða nýlendu á tunglinu áður en öðru
kjörtímabili hans lyki árið 2020.
Óraunhæf áætlun
„Þetta er mjög stórtæk áætlun, svo
ekki sé meira sagt,“ segir Robert
Whelan, framkvæmdastjóri geim-
vísindafyrirtækisins Harris Corp.
á Flórída. Gingrich sagði á fundin-
um að hann ætlaði sér ekki að auka
fjárveitingar bandaríska ríkisins til
Geimferðastofnunar Bandaríkj-
anna, NASA. Talsvert hefur verið
skorið niður hjá stofnuninni und-
anfarin misseri enda hefur hún
ráðist í mjög svo kostnaðarsöm
verkefni á undanförnum árum.
Gingrich sagðist ætla að endur-
skipuleggja fjárútlát stofnunarinn-
ar og leita stuðnings hjá einkaaðil-
um til að fjármagna verkefnið.
Kaupir sér atkvæði
Mitt Romney, sem heyr harða bar-
áttu við Gingrich um útnefningu
repúblikana, hefur nýtt sér þessi
stóru orð og gagnrýnt keppinaut
sinn harðlega. „Þetta er óraun-
hæft og væri allt of kostnaðar-
samt,“ sagði Romney þegar þeir
Gingrich komu fram í kappræðum
á fimmtudagskvöld. Hann sagði
að Gingrich hefði gert þetta áður,
varpað stórhuga hugmyndum
fram hvar sem hann hefur stigið
niður fæti í von um að fá atkvæði.
„Að lofa frábærum hlutum er góð
leið til að fá atkvæði en það er ekki
mjög ábyrg hegðun,“ sagði Rom-
ney.
Gingrich svaraði Romney þó
fullum hálsi og sagði að 90 pró-
sent af fjármagninu myndu koma
frá aðilum úr einkageiranum. „Ég
vil sjá Bandaríkjamann á tunglinu
áður en Kínverjarnir komast þang-
að,“ sagði hann.
Vill nýlendu á tunglið
n Newt Gingrich sakaður um óábyrga kosningabaráttu
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is