Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Qupperneq 2
2 Fréttir 1.-3. mars 2013 Helgarblað Gangandi kraftaverk 3 „Ég er ekki að berjast upp á líf og dauða fyrir því að dóttir mín eigi rétt á skaðabótum, það er komið í hús. Ég er bara að berjast fyrir bættum vinnu- brögðum í heil- brigðisgeiranum. Þetta má bara ekki líðast,“ sagði Hlédís Sveinsdóttir í DV á mánudag. Hún er móðir tveggja ára stúlku, Sveindísar Helgu, sem hlaut heilaskaða í fæðingu vegna mistaka og gáleysis starfsmanna á Heilbrigðis stofnun Vesturlands. Þá var umönnun Sveindísar eftir fæðinguna einnig ábótavant. Hlédís steig fram í Kastljósi fyrir skömmu og sagði sögu þeirra mæðgna. Fordómar í Reykjavík 2 Kristjönu Mba-ye Þórisdóttur stóð ekki á sama þegar hún fór í mat- vöruverslun í síð- ustu viku og maður sem tók sér stöðu fyrir aftan hana í röðinni byrj- aði að hvísla að henni rasískum um- mælum. Þegar hann veittist svo að börnunum hennar sem stóðu þarna með henni varð henni allri lokið, hún brast í grát og lamdi hann. Sext- án ár eru liðin síðan hún kynntist eiginmanni sínum, Daouda Mbaye, sem er af senegölskum uppruna. Þau eiga þrjú börn saman og segist Kristjana vilja segja þessa sögu til að varpa ljósi á þá fordóma sem fyrir- finnast í íslensku samfélagi. Fjölskylda í neyð flytur í húsbíl 1 „Þetta er bara ömurlegt. Mann langar bara að leggjast und- ir sæng og liggja þar í nokkra mánuði. Mann langar ekkert að vera til. Mér líður eins og ég sé al- gjörlega hjálparlaus og geti ekkert gert,“ sagði María Ósk Jónasdóttir, rúmlega þrítug þriggja barna móð- ir í Þorlákshöfn, í DV á mánu- dag. María Ósk sér fram á að þurfa ásamt eiginmanni sínum, þremur börnum og stjúpbarni sínu, sem er hjá þeim aðra hverja helgi, að lýsa sig gjaldþrota og flytja í rútu, sem þau hafa innréttað sem húsbíl. Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni É g er búinn að slátra síðan ég var 12 ára gamall og hlýt því að kunna til verka,“ segir Jens Pétur Högnason áhugabóndi. Hann er með fjárhús í hest- húsabyggð uppi við Rauðhóla þar sem hann hefur haft tugi kinda um árabil. Þá hefur hann einnig hýst fé fyrir félaga sína. Jens hefur slátrað sjálfur til einkaneyslu og fyrir vini og vanda- menn í fjölda ára án þess að gerðar hafi verið athugasemdir við það. Gerðu athugasemdir Í fyrrahaust varð hins vegar breyting á. Hann var nýbyrjaður að slátra í september þegar Gunnar Örn Guð- mundsson, héraðsdýralæknir í Suð- vesturumdæmi, bar að garði, en emb- ættið heyrir undir Matvælastofnun. Skömmu síðar komu einnig fulltrúar frá Heilbrigðiseftirlitinu. Settu þeir út á nokkra hluti sem þeir vildu að Jens bætti úr. „Þeir sögðu við mig að ég yrði að vera með vambirnar í lokuð- um gámi. Ég hringdi strax í aðila sem kom eftir korter með lokaðan gám. Svo átti ég að vera með flugnafælur eða límspjöld inni í húsinu. Ég sendi konuna að leita af því, hún fann það og við settum það upp.“ Taldi Jens sig því geta haldið slátr- uninni áfram án nokkurra vand- kvæða. Morguninn eftir kom hins vegar héraðsdýralæknirinn aftur með flutningabíl og fjarlægði skrokka 49 kinda sem Jens var búinn að slátra. Skiluðu sjö skrokkum Þremur vikum síðar skilaði héraðs- dýralæknir þó sjö skrokkum til að- ila sem Jens hafði slátrað fyrir. Að sögn Jens var það gert vegna þess að lömbin höfðu verið merkt þeim aðila sérstaklega. „Þeir tóku því bara það sem ég átti.“ Jens lagði fram stjórnsýslukæru til atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytisins vegna málsins í desember. Í síðustu viku var hann farið að lengja eftir svörum og grennslaðist fyrir um málið hjá ráðuneytinu. Þar fékk hann þau svör að málið væri í ferli og að það gæti tekið allt að sex mánuði að fá niðurstöðu. „Þá fæ ég ekki kjötið fyrr en í fyrsta lagi í júní, samkvæmt því,“ segir Jens sem er mjög ósáttur, en skrokkarnir eru í frystigeymslu hjá Matvælastofnun. „Þetta er óhæft sem sláturhús“ Jens segist í raun ekki vita af hverju héraðsdýralæknir hirti skrokkana og bendir á fordæmi sé fyrir því að áhugabændur slátri fyrir sig og aðra með þessum hætti. Í samtali við DV segir Gunnar héraðsdýralækn- ir ástæðuna hins vegar einfalda: „Þetta er óhæft sem sláturhús.“ Þá bendir Gunnar á að Jens hafi verið búinn að slátra 49 kindum og hafi haft í hyggju að slátra 28 til viðbótar. „Við getum ekki séð fram á að þetta sé til eigin neyslu.“ Í því samhengi bendir Gunnar jafnframt á að með- alneysla Íslendinga á lambakjöti séu um 27 kíló á mann á ári, sem er einn og hálfur skrokkur. Heldur bókhald yfir kindurnar Jens telur þó aðgerðirnar einfaldlega vera einelti af hálfu Matvælastofn- unar. „Þetta er fyrir börnin, vini og vandamenn sem hafa verið að hjálpa mér og eiga kindur hjá mér.“ Þá vill Jens meina að fólk borði almennt meira af lambakjöti en talið sé. „Ég er búinn að slátra síðan ég var 12 ára og mér reiknast til að fjögurra manna fjölskylda þurfi tíu skrokka á ári, með sviðum og öllu.“ Jens hefur haldið mjög skipulagt bókhald yfir allar kindurnar sem hafa verið undir hans þaki. „Það er mynd af kindinni, nafn, númer og nafn eiganda,“ útskýrir hann. Jens telur því að það ætti að liggja ljóst fyrir að allir 49 skrokkarnir sem hann slátraði hafi ekki átt að enda á hans eigin diski. Hugtakið „einkaneysla“ víkkaði út Gunnar segir að samkvæmt lögum eigi slátrun að fara fram í löggiltum sláturhúsum, en ekki hafi verið gerð- ar athugasemdir við heimaslátrun til eigin nota á lögbýli. Fyrir nokkrum árum féll hins vegar dómur þar sem ekki voru gerðar athugasemdir við slátrun 19 dýra á lögbýli. Sá dómur víkkaði því í raun út hugtakið „einkaneysla“. Gunnar segir Matvælaeftirlitið þó ávallt gera athugasemdir við til- felli þar sem ljóst er að einstaklingar séu búnir að koma sér upp hálfgerðu sláturhúsi og slátri fyrir aðra, eins og í tilfelli Jens. n n Jens telur sig sæta einelti n „Ég er búinn að slátra síðan ég var 12 ára“ Stöðvuðu slátrun hjá áhugabónda Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Þekkir kindurnar Jens heldur skipulagt bókhald yfir allar kindurnar sem hann hýsir. Mynd SiGtryGGur Ari Réðst á konu og skemmdi bíl Karlmaður á fertugsaldri var sak- felldur í Héraðsdómi Suðurlands á fimmtudag fyrir að hafa veist að sambýliskonu sinni á Selfossi í október í fyrra og slegið hana í andlit og höfuð. Þá barði hann höfði hennar í gólf og tók hana hálstaki með þeim afleiðingum að hún hlaut slæma áverka. Þá var maðurinn einnig ákærður fyrir að skemma bifreið sama kvöld á Sel- fossi með því að lemja í hana með hamri. Játaði maðurinn brotin og var dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar en dómurinn er skilorðsbundinn til fimm ára. Kennir ekki meira í vetur Jón Snorri Snorrason, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Ís- lands, mun ekki snúa aftur til starfa hjá skólanum það sem eftir lifir annar. Hersir Sigur- geirsson, fyrrverandi forstjóri Saga Capital og doktor í stærð- fræði frá Stanford University í Kaliforníu, mun taka við kennsluskyldum Jóns Snorra. „Hann tekur við kennslu í einu námskeiði Jóns Snorra um fjármál. Ég get staðfest það,“ segir Ólafur Þ. Harðarson, for- seti félagsvísindasviðs Háskóla Íslands, í samtali við DV. Jón Snorri var þann 21. febrúar síð- astliðinn, í Héraðsdómi Reykja- víkur, dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skilasvik. Í byrjun mánaðarins tók hann þá ákvörðun að taka sér leyfi frá störfum í nokkrar vikur áður en dómur gekk í málinu. Hann hef- ur samkvæmt heimildum DV ekki tekið ákvörðun um hvort hann áfrýi dómnum til Hæsta- réttar en hann hefur tíma til 22. mars til að gera það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.