Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Page 6
6 Fréttir 1.-3. mars 2013 Helgarblað Milljarðahagnaður n Íslandsbanki greiddi 9 milljarða til ríkisins H agnaður Íslandsbanka á síðasta ári nam 23,4 millj- örðum króna. Það er aukn- ing um 21,5 milljarða króna frá árinu á undan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum en þar segir einnig að stærstur hluti rekstrartekna bankans, eða um 75 prósent, komi frá vaxta- og þóknanatekjum. Þá kemur einnig fram að bankinn hafi greitt 9,3 milljarða króna í skatta og gjöld til ríkisstofnana en það er aukning um 7,3 milljarða frá árinu 2011. Bankinn segist hafa afskrifað, gefið eftir eða leiðrétt skuldir um 20.900 einstaklinga og 3.660 fyrir- tækja. Niðurfellingarnar nema samtals um 463 milljörðum króna. Í afkomutilkynningu Íslands- banka vegna 2011 kemur fram að þá höfðu um 17.600 einstaklingar og 2.700 fyrirtæki fengið afskrif- að, eftirgjafir eða leiðréttingar á skuldum upp á um 343 milljarða króna. „Við höfum náð miklum árangri við fjárhagslega endurskipulagn- ingu. Stórum málum lauk á árinu og brátt sér fyrir endann á endur- útreikningi ólöglegra gengis- tryggðra lána. Íslandsbanki féll frá þremur dómsmálum á árinu til að flýta endurútreikningi og endur- reiknar nú 15.000 lán,“ segir Birna Einarsdóttir. Birna segir einnig að jákvæðir úrskurðir ESA, eftirlits- stofnunar EFTA, varðandi þær að- gerðir sem gripið var til í hrun- inu hafi einnig dregið úr óvissu í rekstri bankans. n adalsteinn@dv.is Þarf að greiða fyrir kvótasvindl n Útgerð Þorsteins Erlingssonar n 93 tonnum af þorski landað framhjá vigt„Gjaldið sem við lögðum á fyrir- tækið vegna umfram- löndunar framhjá vigt er 32,7 milljónir króna.V ið vorum að ljúka bak- reikningsrannsókn vegna Saltvers. Gjaldið sem við lögðum á fyrirtækið vegna umframlöndunar framhjá vigt er 32,7 milljónir króna,“ segir Eyþór Björnsson, fiskistofustjóri á Fiskistofu, aðspurður um rannsókn stofnunarinnar á löndunarsvindli Saltvers. Útgerðin er í eigu Þorsteins Erlingssonar, athafnamanns og fyrr- verandi stjórnarformanns Spari- sjóðsins í Keflavík. Þá var Þorsteinn einnig stjórnarformaður Reykjanes- hafnar. Saltver þarf að greiða gjaldið til verkefnasjóðs sjávarútvegarins. Rannsókn málsins hófst í janúar 2011 eftir að Þorleifur Frímann Guð- mundsson, fyrrverandi matsveinn á einu af skipum Saltvers, Ósk KE- 5, sakaði útgerðina um skipulagða löndun fram hjá vigt í bréfi til Fiski- stofu. Samkvæmt minnisblöðum sem Þorleifur Frímann Guðmunds- son hafði skráð í nóvembermánuði 2010 virtist skeika að minnsta kosti tíu tonnum þann mánuðinn og sagð- ist hann í bréfinu hafa staðfestan grun um að landað hefði verið fram- hjá vigt. Þorsteinn Erlingsson brást ókvæða við og sagði ásakanir Þor- leifs vera kjaftæði. 93 tonn af slægðum þorski „Þetta eru 93 tonn af slægðum þorski sem rannsókn leiddi í ljós að var mismunurinn á aðföngum og seld- um afurðum kærða,“ segir Eyþór. Þetta þýðir að gjaldið sem lagt var á Saltver er tilkomið vegna þess að of miklum þorskafla, 93 tonnum, var landað og fiskurinn unninn án þess að þessara auka tonna væri getið í opinberum upplýsingum um afla- magn Saltvers. Eyþór segir að rannsóknin á kvótasvindlinu hafi leitt í ljós að verðmæti þessa 93 tonna umframa- fla sé 32,7 milljónir króna. Hæsta gjaldið Gjaldið sem lagt er á Saltver vegna kvótasvindlsins er það hæsta sem lagt hefur verið á útgerðarfyrirtæki á síðustu árum. Á síðustu árum hef- ur Fiskistofa einu sinni lagt sérstakt gjald á fyrirtæki vegna ólögmæts sjávarafla sem landað var framhjá vigt, en það hljóðaði upp á rúm- ar 23 milljónir króna. Fiskistofa hef- ur heimild samkvæmt lögum til að vinna rannsóknir sem snúa að því að bakreikna afurðir til afla. Getur kært Eyþór segir að Saltver geti kært niður- stöðu Fiskistofu til Fiskistofu sjálfrar. Ef Saltver mun ekki una þeirri niður- stöðu getur útgerðin kært til svokall- aðrar úrskurðarnefndar. Sá úrskurð- ur í málinu er endanlegur. DV reyndi ítrekað að ná tali af Þorsteini Erlingssyni vegna þessarar niðurstöðu Fiskistofu. Það gekk ekki. Þorsteinn hefur ekki verið viljugur til að ræða við blaðið um málið. Síðast þegar DV hringdi í hann. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Greitt vegna kvótasvindls Þorsteinn Erlingsson, eigandi Saltvers, var stjórnar­ formaður Reykjaneshafnar þegar kvótasvindlið átti sér stað. Saltver þarf að greiða 32 milljónir vegna kvótasvindlsins. Talsvert magn Eyþór segir að um hafi verið að ræða 93 tonn af þorskafla. Samtal Davíðs og Geirs enn leynilegt Fjárlaganefnd Alþingis hefur enn ekki fengið afrit af símtali Davíðs Oddssonar og Geirs H. Haarde þegar þeir ræddu sín á milli átta- tíu milljarða króna lán Seðlabank- ans til Kaupþings árið 2008 þegar Davíð var seðlabankastjóri og Geir forsætisráðherra. Fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá þessu en þar kom fram að Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar Alþingis, hafi gengið á eftir svari frá Seðlabank- anum en ekkert nýtt hefur gerst í málinu þrátt fyrir að bankinn hafi lýst því yfir í síðustu viku að hann væri tilbúinn að leyfa nefndar- mönnum fjárlaganefndar að lesa útskrift af símtalinu. Það var þó þeim kvöðum háð að nefndar- mennirnir mættu ekki halda eftir eintökum af útskriftinni eða vitna beint til samtals Davíðs og Geirs í opinberum skýrslum. Opna í Bláfjöllum Engan bilbug er að finna hjá stjórnendum stærstu skíðasvæða landsins þrátt fyrir langa hláku- tíð um land allt. Menn stefna að því að opna hluta skíðasvæðisins í Bláfjöllum strax í næstu viku og í Hlíðarfjalli lofa menn nægum snjó út aprílmánuð. Einar Bjarnason, einn um- sjónarmanna, segir að vonir standi til að það snjói meira fljót- lega en í öllu falli verði snjór fluttur til ef ekki vill betur til og ákveðin svæði opnuð fljótlega í næstu viku. „Það er alveg á hreinu. Tíðin að undanförnu hefur verið okkur erfið og mestallan snjó hefur tekið upp af barnasvæðum og kringum skálann okkar. En við byrjum fljótlega á að ýta og færa meiri snjó í Kóngsgilið og svo- kallaða Öxl og í kjölfarið opnum við þau svæði í næstu viku. Það er alveg klárt.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.