Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Qupperneq 8
Sterkefnaðir álitsgjafar 8 Fréttir 1.-3. mars 2013 Helgarblað Á rsæll Valfells, lektor í við­ skiptafræði við Háskóla Ís­ lands, komst á lista yfir þá tíu einstaklinga sem greiddu hæstu skattana á Íslandi árið 2011. Það árið greiddi Ársæll skatta upp á meira en 67 milljónir króna en sú upphæð nemur margföldum árslaunum fastráðinna háskólapró­ fessora á Íslandi. Ársæll var í sjötta sæti yfir hæstu skattgreiðendur á Ís­ landi það árið. Fyrirtæki í hans eigu eru sömuleiðis umsvifamikil á fast­ eignamarkaðnum og eiga meðal annars eignir í Skeifunni og á Lauga­ veginum. Bæði Ársæll og Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og góðvin­ ur Ársæls, hafa vakið athygli hér á landi vegna umfjöllunar þeirra um efnahagsmál í fjölmiðlum, nú síðast Heiðar Már vegna mikillar ritdeilu við Gylfa Magnússon hagfræðipró­ fessor. Meðal þess sem þeir hafa rætt mikið um síðastliðin ár er ein­ hliða upptaka annars gjaldmiðils, til dæmis Kanadadollars, og hvort og hvernig eigi að ganga frá nauða­ samningum við kröfuhafa föllnu, íslensku bankanna, sem meðal annars eru vogunarsjóðir. Nýtti sér fjárfestingarleiðina Þá eru þeir báðir stöndugir fjárfestar en Heiðar Már, sem er með lög­ heimili í Sviss, hefur meðal annars fjárfest í hlutabréfum í Voda fone, og fleiri fyrirtækjum, og ætlaði hann sér að kaupa tryggingafélagið Sjóvá árið 2010–2011. Heiðar Már hefur meðal annars nýtt sér fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands til að koma fjár­ munum til landsins, meðal annars 209 milljónum króna í desember 2012. Með fjárfestingarleiðinni geta aðilar sem eiga fjármagn erlendis komið því til landsins og fengið af­ slátt á íslenskum krónum. Sökum þess að þeir Ársæll og Heiðar Már eru bæði álitsgjafar á opinberum vettvangi og fjárfest­ ar sem hafa mikið umleikis hafa hugsanlegir persónulegir hagsmun­ ir þeirra sjálfra komið til tals vegna afskipta þeirra af umræðunni um efnahagsmál. Eitt af stærstu vandamálunum Eitt af stærstu vandamálunum sem steðja að íslenska efnahagskerfinu er hvernig eigi að glíma við þann vanda sem skapast þegar kröfu hafar Glitnis og Kaupþings munu vilja fara með fjármagn sitt úr búunum úr landi þegar þar að kemur. Þar sem upphæðirnar sem um ræðir eru svo háar, fleiri hundruð milljarðar, gæti tilfærsla þessara fjármuna haft veruleg áhrif á íslenska hagkerfið og gengi krónunnar. Eins og er gætu þessir kröfuhafar ekki tekið þessa fjármuni úr landi á einu bretti, ef búið væri að ganga frá nauðasamn­ ingum bankanna og greiða út úr þrotabúum þeirra, vegna gjaldeyr­ ishaftanna. Vandamálið með þessa peninga kröfu hafanna er því óleyst. Einhliða upptaka Kanadadollars Árið 2011 og 2012 töluðu þeir Ársæll og Heiðar til dæmis mikið um ein­ hliða upptöku Kanadadollars í ís­ lenskum fjölmiðlum. Ársæll talaði til dæmis um einhliða upptöku þess gjaldmiðils á fundi hjá Framsóknar­ flokknum og Sjálfstæðisflokknum á þessum tíma auk þess sem mál­ flutningur þeirra rataði víðar. Meðal þess sem Ársæll sagði um einhliða upptöku Kanadadollars á þessum tíma var: „Þetta leysir gjaldeyris­ höftin samstundis.“ Einhliða upptaka annars gjald­ miðils, sem vitanlega þarf ekki nauðsynlega að vera slæm hug­ mynd í sjálfu sér, myndi því að­ stoða kröfuhafa íslensku bank­ anna, meðal annars vogunarsjóði, við að koma þeim fjármunum sem þeir eiga fasta í þrotabúum ís­ lensku bankanna úr landi. Þannig myndi slík upptaka þjóna hags­ munum kröfuhafa íslensku bank­ anna. Gegn nauðasamningum Í fyrra beitti Heiðar Már Guðjóns­ son sér umtalsvert í umræðunni um væntanlega nauðasamninga þrotabúa bankanna. Þá sagði hann meðal annars, í samtali við Vísi: „ Hættan er sú að ef kröfuhafar undirrita nauðasamninga án þess að tryggt sé að þeir geti ekki kom­ ið eignum sínum út á undan öllum landsmönnum, þá skapist hér lög­ fræðilegt stríðsástand.“ Þá taldi Heiðar Már að það væri ósanngjarnt ef kröfuhafarnir gætu fengið að fara með fjármuni sína úr landi á meðan aðrir þyrftu að lúta gjaldeyrishöftum. „ Stjórnvöld bera ábyrgð á því ástandi sem verð­ ur á næstunni. Gjaldeyrishöftin og neyðarlögin eru staðreynd, hvernig unnið er úr núverandi verk efnum skiptir miklu fyrir komandi ár. Það er ekki forsvaranlegt að leyfa ákveðnum aðilum að fara út með miklar fjárhæðir fyrr en búið er að finna lausn á neyðarlögunum og gjaldeyrishöftunum. Allir eiga að sitja við sama borð í þeim efnum.“ Kenningar um hagsmuni Ein af þeim kenningum sem ganga manna á milli er að íslenskir fjár­ festar, sem vilja kaupa upp eignir hér á landi og nýta sér fjárfestingar­ leið Seðlabanka Íslands, reyni að halda óbreyttu ástandi hér á landi og berjast gegn nauðasamningum Kaupþings og Glitnis svo að þeir geti áfram nýtt sér stöðu sína til fjárfestinga hér á landi. Þetta eru aðilar sem eiga fjármuni í útlönd­ um sem þeir geta komið með hing­ að til lands og fengið afslátt á krón­ um í gegnum Seðlabanka Íslands. Önnur kenning er á þá leið að þeir aðilar sem berjast hvað helst gegn nauðasamningum við kröfu­ hafa bankanna séu sjálfir með ein­ hvers konar stöðu gegn hagsmun­ um kröfuhafanna, hugsanlega skortstöðu gegn skuldabréfum bankanna. Samkvæmt þessari kenningu þá eru aðilar á mark­ aði sem hafa fjárhagslega hags­ muni af því að ekki verði gengið frá nauðasamningum bankanna sem fyrst, og að kröfuhafarnir fái þá peninga sem þeir eiga í búunum, vegna þess að þeir hafi veðjað á gengi skuldabréfa bankanna lækki í verði eftir því sem lengra líður frá hruni og kröfuhafarnir verða óþreyjufyllri að innleysa fjármuni sína. Þannig gætu þessir aðilar hagnast á því persónulega að tefja endalok uppgjörsins við kröfu hafa bankanna. Sú þriðja gengur út á að tiltekn­ ir aðilar vilji að kröuhafar bank­ anna gefist upp á Íslandi eftir því sem nauðasamningarnir dragast á langinn og að þá gætu kröfurnar á föllnu bankanna fengist keyptar á undirverði . Líkt og áður segir er eingöngu um kenningar að ræða en not­ endur fjölmiðla ættu að hafa það í huga þegar álitsgjafar stíga fram að þeir kunna að hafa mikla fjárhags­ lega hagsmuni af því að stýra um­ ræðu um tiltekin efnahagsmál inn á ákveðnar brautir. DV sendi tölvupóst til Heiðars Más til að forvitnast um hagsmuni hans í umræðunni um gjaldeyris­ höftin og nauðasamninga bank­ anna. Blaðið fékk sjálfvirkt svar frá pósthólfi Heiðars Más um að hann væri staddur í Kína. DV náði ekki tali af Ársæli þrátt fyrir að reynt hafi verið að hringja í hann. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is n Ársæll Valfells og Heiðar Már áberandi álitsgjafar um efnahagsmál „Allir eiga að sitja við sama borð í þeim efnum Dregur úr atvinnuleysi Samkvæmt vinnumarkaðsrann­ sókn Hagstofu Íslands voru í janúar 2013 að jafnaði 177.800 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 167.400 starfandi og 10.400 án vinnu og í atvinnuleit. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Íslands birti í vikunni. Atvinnuþátttaka mældist 78,7 prósent, hlutfall starf­ andi 74,1 prósent og atvinnuleysi var 5,8 prósent. Atvinnuleysi var 0,9 prósentustigum lægra en í janúar 2012 en þá var atvinnuleysi 6,7 pró­ sent. Atvinnuleysi í janúar 2013 var 6,4 prósent á meðal karla miðað við 6,6 prósent í janúar 2012 og meðal kvenna var það 5,3 prósent miðað við 6,9 prósent í janúar 2012. Slökkviliðið verður bleikt „Með þessu viljum við taka þátt í að vekja athygli á þessum málstað og þeirri staðreynd að slökkviliðs­ menn eru í áhættuhópi við að fá krabbamein vegna reyk köfunar,“ segir Birgir Finnsson, aðstoðar­ slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höf­ uðborgarsvæðisins. Slökkvi­ lið höfuðborgarsvæðisins (SHS) og Landssamband slökkviliðs­ og sjúkraflutningamanna (LSS) standa fyrir formlegu upphafi Mottumars­átaksins í samvinnu við Krabbameinsfélag Íslands í dag, föstudag, milli klukkan 13 og 14. Slökkviliðs­ og sjúkraflutninga­ menn um allt land ætla að klæð­ ast bleikum bolum í starfi á með­ an átakið stendur yfir til að vekja athygli á málstaðnum. Athöfnin fer fram í bílasal slökkviliðsins í Skógarhlíð og verð­ ur Svandís Svavarsdóttir, umhverf­ is­ og auðlindaráðherra, viðstödd auk Guðrúnar Ágústu Guðmunds­ dóttur bæjarstjóra í Hafnarfirði og varaformanns stjórnar SHS. Munu þær flytja ávarp. Birgir segir að forráðamenn slökkviliðsins hafi eflt forvarnir í þessu sambandi og meðal annars breytt vinnubrögð­ um og verkferlum. Slökkviliðs­ og sjúkraflutningamenn um allt land ætla að klæðast bleikum bolum í marsmánuði til að styðja Mottu­ mars, átak Krabbameinsfélagsins um karlmenn og krabbamein. Til þess þurfti að breyta fatareglum slökkviliðsins tímabundið. Álitsgjafar Ársæll Valfells og Heiðar Már Guðjónsson eru tveir af þeim álitsgjöfum sem verið hafa mjög sýnilegir í umræðunni hér á landi á síðustu árum. samsEtt myNd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.