Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Qupperneq 10
Óverðtryggðu lánin
miklu hagstæðari
M
argir hafa freistað þess eft
ir bankahrunið að taka
óverðtryggð lán hjá bönk
unum og í dag er nær al
gjör undantekning að fólk
taki verðtryggð lán. Má þar nefna
að margir hafa greitt upp lán sín
hjá Íbúðalánasjóði og í staðinn tek
ið óverðtryggð lán hjá bönkunum.
En skyldi þetta vera farsæl lausn til
frambúðar? Ef skoðað er tímabilið
frá 2001 þegar krónan var sett á flot
og til dagsins í dag hafa óverðtryggð
ir vextir að meðaltali verið í kringum
11 prósent á þessu tímabili. Á sama
tíma hafa verðtryggðir vextir að með
altali verið í kringum 5,4 prósent og
verðbólga að meðaltali 5,5 prósent.
Það þýðir að útfrá vaxtaprósentu
hefði verið jafn hagstætt að vera með
verðtryggð lán á umræddu tímabili
líkt og óverðtryggð. Í töflu með frétt
er notast við þessar forsendur. Það
er hins vegar hagstæðara að taka
óverðtryggð lán þar sem að svokall
aðir vaxtavextir leggjast ofan á verð
tryggðu lánin sem ekki gerist í tilfelli
óverðtryggðu lánanna.
Þeir aðilar sem DV ræddi við á
fjármálamarkaði segja að mjög mis
jafnt sé hvort fólk velji jafngreiðslu
lán eða jafnar afborganir. Yfirleitt er
greiðslubyrði af lánum með jöfnum
afborgununum þyngri í byrjun.
Því velja margir sem standa tæpt í
greiðslumati þá leið að taka jafn
greiðslulán. Til langs tíma eru þau
hins vegar mun óhagstæðari líkt
og sést í töflu með frétt. Samkvæmt
upplýsingum sem DV fékk frá Lands
bankanum velja um 40 prósent við
skiptavina bankans sem taka óverð
tryggð íbúðalán jafnar afborganir en
60 prósent jafngreiðslulán. Þannig
virðast margir ráða við háar afborg
anir í byrjun.
Vextir í sögulegu lágmarki
Einn viðmælandi sem DV ræddi
við benti hins vegar á að um þessar
mundir væri mikið af skammtíma
fjármagni í boði. Erlendir aðilar, sem
dæmi, vilja ekki festa fjármuni sína
í lengri skuldabréfum. Þannig geta
fjármálastofnanir nú boðið mjög
hagstæð óverðtryggð íbúðalán. Eru
þau vaxtakjör sem bankarnir bjóða
á óverðtryggðum lánum vel undir
meðaltali en eins og áður kom fram
voru óverðtryggðir vextir á Íslandi að
meðaltali í kringum ellefu prósent
síðustu 12 árin.
Því mega þeir sem nú eru með
óverðtryggð fasteignalán líklega gera
ráð fyrir því að vextir á lánum þeirra
geti hækkað nokkuð mikið á næstu
árum. Við þessu hefur Íslandsbanki
brugðist með því að bjóða svokallað
vaxtaþak. Fyrirkomulag þess er ekki
ósvipað verðtryggðum lánum en
með því er fólk að fresta afborgunum
til seinni tíma sem þýðir einnig að
fólk er oft og tíðum með fasteignalán
umfram greiðslugetu.
Íslandsbanki býður í dag upp
á óverðtryggð lán með 6,75 pró
senta vöxtum. Til marks um það
hversu hagstæðir þeir vextir eru
má nefna að óverðtryggðir vextir
voru að meðaltali um 17 prósent
frá 2007 til 2008. Sá sem var með
20 milljóna króna óverðtryggt lán á
þeim tíma hefði því þurft að greiða
um 280 þúsund krónur á mánuði
einungis í vexti fyrir utan afborgun
höfuð stólsins. Ekki er víst að
margir hefðu ráðið við það. En
líkt og fram kemur í samanburði á
lánakjörum í töflu með frétt virð
ist alltaf hagstæðara að taka óverð
tryggt lán í stað þess að taka verð
tryggt. n
n Óverðtryggðir vextir að meðaltali um 11%n Vaxtaþaki svipar til verðtryggingar
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar annas@dv.is
Munar milljónum Miklu
getur skipt hvaða leið er
valin til að borga af lánum.
Óverðtryggt
jafngr.lán
Meðalgreiðsla:
199.000 kr.
Óverðtryggt
jafnar. afb
Meðalgreiðsla:
211.000 kr.
Verðtryggt
jafnrgr.lán
Meðalgreiðsla:
177.000 kr.
Verðtryggt
jafnar afb.
Meðalgreiðsla:
193.000 kr.
Afborgun
Vextir
Eftirstöðvar
Milljónamunur á lánum
Súlurnar sýna hvernig 20 ára húsnæðislán,
tekið 2001, stendur í dag, 12 árum síðar. Rauði
og dökkgrái hlutinn sýnir greiðslurnar en
ljósgrái hlutinn, efst, eftirstöðvar lánsins.
3,9 m kr.
9,6 m kr. 9,6 m kr.
13,8 m kr.
28
,7
m
k
r.
30
,3
m
k
r.24,7 m kr.
20,7 m kr.
15,8 m kr.
14 m kr.
16 m kr. 10,4 m kr.
27,1 m kr. 20,8 m kr.
25
,4
m
k
r.
27
,8
m
k
r.
10 Fréttir 1.-3. mars 2013 Helgarblað
Launagreiðslu Sigurplasts rift
n Sonur fyrrverandi framkvæmdastjóra þarf að endurgreiða laun
F
yrrverandi bílstjóri iðnaðar
fyrirtækisins Sigurplasts,
og sonur fyrrverandi fram
kvæmdastjóra þess og eiganda
þriðjungs hlutafjár í félaginu, hefur
verið dæmdur til að endurgreiða
þrotabúi fyrirtækisins, Splast ehf.,
rúmar 180 þúsund krónur auk
dráttar vaxta.
Skiptastjóri þrotabúsins höfðaði
mál á hendur manninum eftir að
rannsókn á bókhaldi félagsins leiddi
í ljós að þann 23. september 2010
hafi verið greiddar rúmar 360 þús
und krónur inn á reikning manns
ins vegna launa hans sama mánuð.
Launaseðill félagsins bar með sér
að útborgunardagur væri 1. október
2010. Sigurplast var tekið til gjald
þrotaskipta viku síðar, þann 30. sept
ember 2010.
Forsaga málsins er að skiptastjór
inn hafði upplýsingar um að maður
inn hefði frá ágúst 2009 ekki aðeins
keyrt út vörur fyrir Sigurplast held
ur einnig Viðarsúlu ehf. Miðað við
þær upplýsingar taldi skiptastjóri að
helmingur launakostnaðarins hefði
átt að tilheyra Viðarsúlu og greiðast
af því fyrirtæki en ekki Sigurplasti.
Skiptastjóri sendi Viðarsúlu riftunar
bréf og krafðist riftunar á helm
ingi af greiðslu Sigurplasts á launa
greiðslum mannsins þar sem í þeim
helmingi hafi falist gjöf Sigurplasts
til Viðarsúlu. Taldi skiptastjórinn að
í hinum helmingi þessarar launa
greiðslu hafi falist greiðsla á skuld
Sigurplasts ehf. við stefnda sem sé
riftanleg á grundvelli laga um gjald
þrotaskipti. Það átti sumsé að sækja
helming útborgunarinnar til Viðar
súlu og hinn helminginn til Sigur
plasts.
Fram kom í máli Sigurðar Sævars
sonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra
Sigurplasts, fyrir dómi að gert hafi
verið upp við alla launamenn fyrir
tækisins áður en óskað var eftir gjald
þrotaskiptum „enda sómi að því að
klára það eins og unnt hafi verið.“
Dómurinn féllst ekki á að um
venjulega greiðslu hafi verið að
ræða enda ekki nauðsynleg til að
halda rekstri félagsins áfram. Hún
hefði heldur ekki verið tengd endur
skipulagningu á fjárhag félagsins.
Bílstjórinn þarf að greiða 180 þús
und til baka og rúmlega annað eins
í málskostnað. n
15 þúsund hafa
sótt appið
Snjallforrit Strætó hefur hlotið
fínar viðtökur hjá neytendum
en á þeim þremur mánuðum
sem það hefur verið á mark
aðnum hafa fimmtán þúsund
manns náð í forritið, eða appið
eins og smáforrit sem þessi kall
ast. Það var hannað til að auð
velda farþegum Strætó að kom
ast leiðar sinnar, finna bestu og
stystu leiðina á áfangastað og
sjá staðsetningu vagna í raun
tíma. Einnig er hægt að leita eftir
brottfarartíma vagna frá ákveðn
um biðstöðvum í rauntíma og
margt fleira. „Þetta kemur okkur
í sjálfu sér ekki á óvart því appið
skapar farþegum okkar mikil
þægindi og nýja upplifun með
Strætó. Nú er hægt að drekka
morgunkaffið í rólegheitum
heima og hafa auga með vagnin
um í símanum, rölta svo í róleg
heitum út á biðstöð þegar vagn
inn kemur. Að auki er svo hægt
að finna bestu leiðina þangað
sem ferðinni er heitið svo eitt
hvað sé nefnt,“ segir Reynir Jóns
son, framkvæmdastjóri Strætó,
í tilkynningu sem var send fjöl
miðlum.
Oddi styður
UNICEF
Forsvarsmenn UNICEF og Odda
undirrituðu á miðvikudag þriggja
ára samstarfssamning. Oddi hef
ur verið stuðningsaðili UNICEF
allt frá því að samtökin hófu
starfsemi á Íslandi árið 2004, en
samkvæmt hinum nýja samningi
mun Oddi setja upp og prenta
kynningarefni fyrir UNICEF sam
tökunum að kostnaðarlausu.
„Það er gríðarlega mikilvægt fyrir
hjálpar samtök að rekstarkostn
aði sé haldið í lágmarki. Þess
vegna er samningur eins og þessi
svo dýrmætur. Hann gerir okkur
kleift að halda styrktaraðilum
upplýstum og færa þeim mikil
vægar fréttir af árangri starfs
ins og auðveldar okkur um leið
að sinna fjár öflunarstarfi til að
hjálpa enn fleiri börnum sem á
þurfa að halda,“ segir Stefán Ingi
Stefánsson, framkvæmdastjóri
UNICEF á Íslandi, í tilkynningu
sem UNICEF sendi frá sér.
„Við hjá Odda erum afar stolt
yfir því að hafa í nær tíu ár ver
ið bakhjarl þess góða starfs sem
UNICEF vinnur,“ segir Arnar
Árnason, markaðsstjóri Odda, í
sömu tilkynningu og bætir við:
„Okkur er umhugað um að láta
gott af okkur leiða og við bæði
sjáum og finnum fyrir því að
framlag okkar til UNICEF skilar
árangri í þágu barna um allan
heim.“
Dómur Bílstjóri skal endur-
greiða síðustu launagreiðsluna.