Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Síða 14
NámsmeNN í vaNskilum 14 Fréttir 1.-3. mars 2013 Helgarblað H eildarlánasafn Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) nemur í dag nærri 190 milljörðum króna. Því hefur lengi verið haldið fram að lán sjóðsins séu þau allra hagstæðustu. Þannig bera náms- lán einungis eins prósents vexti. Það sem gerir lánin hins vegar ekki sérstaklega hagstæð er að þau eru verðtryggð. Þannig má nefna að einstaklingur sem skuldaði sjóðn- um fjórar milljónir króna í upp- hafi árs 2008 og með 400 þúsund krónur í meðaltekjur á mánuði hefði frá þeim tíma endurgreitt sjóðnum um 1.140 þúsund krón- ur. Þrátt fyrir það stæði höfuð- stóll námslánsins hjá viðkomandi einstaklingi nærri 4,7 milljónum króna nú fimm árum síðar. Því eru margir í þeirri stöðu sem ekki eru í hátekjuflokki að höfuðstóll náms- lána þeirra hækkar ár frá ári þrátt fyrir endurgreiðslur af láninu. Lítið hefur verið rætt um stökkbreytingu á verðtryggðum námslánum eftir bankahrunið en eins og kunnugt er hafa margir stjórnmálaflokkar að undanförnu lofað aðgerðum til þess að lækka verðtryggð íbúðalán Íslendinga. Guðrún Ragnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri LÍN, ræddi um hvata til náms á þingi Sambands ungra fram- sóknarmanna um miðjan janúar síð- astliðinn. Þar greindi hún frá því að á næstu árum muni þeim fjölga veru- lega sem ekki geti greitt námslán sín til baka eftir að námi lýkur. Sá hóp- ur hafi þrefaldast á undanförnum árum. Miðuðu forsendur hennar við einstaklinga með meðaltekjur þeirra sem eru í Bandalagi háskólamanna (BHM). Ellilífeyrisþegar losna ekki við LÍN Í samtali við DV segir Guðrún að auðvitað séu þeir sem eru með námslán hjá sjóðnum og eru byrjað- ir að endurgreiða þau ekki ánægðir með þá hækkun sem hefur orðið á lánunum vegna verðtryggingar frekar en aðrir Íslendingar með verð- tryggð lán. Eins og sjá má í töflu með frétt myndi höfuðstóll náms- láns hjá einstaklingi með um 400 þúsund krónur í meðaltekjur lítið lækka þó greitt yrði af láninu í 20 ár. Er þá miðað við að verðbólga yrði um fimm prósent að meðaltali sem leggst ofan á eitt prósent LÍN og að laun viðkomandi myndu hækka um fimm prósent á ári. Guðrún segir aðspurð að fólk geti lent í því að þurfa áfram að greiða af námslánum sínum eftir að það fer á eftirlaun. „Svokölluð V-lán inn- heimtast í 20 ár, S-lán í 40 ár og svo R- og G-lán [innsk. lán tekin frá 1992] þar til þau eru uppgreidd. Það fer svo eftir því hvað fólk er gamalt þegar það tekur lánið hvenær það er búið að greiða það upp. Þannig að já ef greiðandi er orðinn 67 ára og skuldar ennþá námslán þarf hann að greiða af þeim eins og aðrir,“ segir hún. Kannast ekki við harðar innheimtuaðgerðir DV hefur heimildir fyrir því að námsmaður sem átti ógreidda kröfu upp á um 20 þúsund krón- ur hafi fengið senda kröfu frá inn- heimtufyrirtæki á ábyrgðarmann sinn tveimur mánuðum eftir gjald- daga kröfunnar. Innheimtufyrir- tækið hafi lagt á kostnað sem var nærri jafn hár og krafan sjálf. Þó var veittur 50 prósenta afsláttur af inn- heimtukostnaðinum ef krafan yrði greidd innan mánaðar. Aðspurð um innheimtuaðferðir LÍN segir Guðrún ef krafa sé ógreidd 25 dögum eftir gjalddaga sé ítrekun send greiðanda. Ef krafan sé enn ógreidd 45 dögum eftir gjalddaga sé ítrekun send bæði á greiðanda og ábyrgðarmann. Við þá ítrekun bætist við 500 krónur. Kostnaður sem falli á kröfur í milliinnheimtu sé við fyrstu útsendingu 2.000 krón- ur en svo í framhaldinu í samræmi við reglugerð um hámarksfjár- hæð innheimtukostnaðar. Sé krafa enn ógreidd 62 dögum eftir gjald- daga sé hún send til innheimtufyr- irtækisins Motus í milliinnheimtu. „Þar hafa greiðendur möguleika á að semja um greiðslu til allt að sex mánaða. Ef krafan er enn ógreidd 120 dögum eftir gjalddaga er hún send í löginnheimtu. Það eru þrír aðilar sem þjónusta okkur hvað varðar löginnheimtuna, Juris, TCM og Lögheimtan,“ segir hún. Ef krafa sé komin í löginnheimtu áður en gjalddagi myndast sé næsti gjald- dagi á eftir sendur líka í löginn- heimtu enda er búið að gjaldfella lánið. Að sögn Guðrúnar hefur ekki komið til tals að LÍN hætti samstarfi við innheimtufyrirtæki og telur hún að vanskilagjöld sjóðsins séu mjög hófleg. n 20 ára endurgreiðsla frá 2008–2027 Tekjur á mánuði: 400.000 kr. Árleg endurgreiðsla: 228.000 kr. Höfuðstóll 1. 1. 2008: 4.000.000 kr. Forsendur 2013–2027: 5% ársverðbólga og 5% árshækkun launa Ár Vísitala neysluverðs Endurgreiðsla Höfuðstóll 2008 282,3 stig 228.000 kr. 4.000.000 kr. 2009 334,8 stig 228.000 kr. 4.555.889 kr. 2010 356,8 stig 228.000 kr. 4.672.820 kr. 2011 363,4 stig 228.000 kr. 4.577.985 kr. 2012 387,1 stig 228.000 kr. 4.694.329 kr. 2027 799 stig 351.567 kr. 4.676.695 kr. n Mikill fjöldi mun ekki ná að endurgreiða lán n Lánasafn LÍN verðtryggt Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar annas@dv.is Vanskilagjöld hófleg Guðrún Ragnars- dóttir, framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna, segist ekki kannast við harðar innheimtuaðferðir hjá LÍN og segir vanskilagjöld sjóðsins hófleg. Langur endur- greiðslutími Þar sem námslán frá Lánasjóði íslenskra námsmanna eru verðtryggð getur það tekið marga fleiri áratugi að endurgreiða námslánin. Stjórnarskrármálið: Setja mikinn þrýsting á stjórnvöld „Fulltrúarnir eru þarna að spyrja umbjóðendur sína, fá afgerandi svör og þeir geta ekki bara látið það ráðast hvort þeir fari eftir því eða ekki,“ segir Hjörtur Hjartar- son, einn þeirra sem hvetja al- menning í landinu til að setja þrýsting á þingmenn um að virða vilja stórs meirihluta þjóðarinnar í stjórnarskrármálinu. Hópurinn nefnir sig 20. október eftir dagsetningu þjóðaratkvæða- greiðslu um tillögur stjórnlagaráðs en þar sögðu 67 prósent að þær tillögur ætti að leggja til grundvall- ar að nýrri stjórnarskrá. Þó tölu- verður tími sé liðinn hafa enn að- eins 23 þingmenn af 63 alls tekið undir með meirihluta þjóðarinnar í málinu. Hjörtur segir málið veigamikið og það snúist í grunninn um að troða ekki niður lýðræði í landinu. „Frá okkar sjónarmiði er nýja stjórnarskráin stærsta eftirhruns- málið í rauninni og þess vegna mikilvægt að krefja þá svara. Kjós- endur eiga rétt á að fá að vita hvar þingmenn standa í svo mikilvægu máli.“ Aðspurður um þá afstöðu að þjóðaratkvæðagreiðslan hafi einungis verið ráðgefandi en ekki bindandi segir Hjörtur það engu skipta. „Það að hún var ráðgefandi er formsatriði því tæknilega er ekki hægt að boða til atkvæða- greiðslu um nýja stjórnarskrá nema hún sé ráðgefandi. Það er bara formið en pólitískt og sið- ferðilega er niðurstaðan að sjálf- sögðu bindandi. Svo má líka velta fyrir sér hvort hægt verði eftir- leiðis að hafa ráðgefandi þjóðar- atkvæðagreiðslur ef þær hafa svo ekkert gildi á endanum.“ Hjörtur segir þó boltann vera hjá ríkisstjórnarflokkunum. „Þeir geta ekki skýlt sér á bak við það að Sjálfstæðis- eða Framsóknarflokk- ur ætli að tefja það. Það er alger- lega í þeirra höndum hvort þeir ætla að láta þá flokka komast upp með slíkt.“ Pétur hættur hjá Straumi Forstjóri fjárfestingabankans Straums, Pétur Einarsson, er hættur störfum. Ástæðan er sú að stjórn bankans telur setu hans í forstjórastólnum geta skaðað hagsmuni bankans en eins og DV hefur greint frá er Pétur með flekk- aðan feril í Bretlandi. Pétur gegndi starfi forstjóra frá árinu 2011 en fram kemur í til- kynningu frá bankanum að ástæð- an sé umfjöllun um lok viðskipta hans í Bretlandi sem hann og stjórn bankans telja að gætu skað- að hagsmuni Straums. Eins og DV sagði frá gerði Pétur nýlega samning við The Insolvency Agency, sem hefur með gjaldþrot fyrirtækja að gera í Bretlandi, um að hann mætti ekki stýra fyrirtæki í Bretlandi í fimm ár vegna 38 milljóna króna skattaskuldar. Jakob Ásmundsson er nýr for- stjóri Straums en hann hefur gegnt ýmsum framkvæmastjóra- stöðum hjá bankanum síðast- liðin ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.