Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Blaðsíða 17
gert, allt frá einum degi upp í hálf- an mánuð og orðið fyrir miklu tapi vegna framkvæmda, endurnýjunar húsmuna og endurgreiðslu til fólks sem orðið hefur fyrir ónæði. Þetta kemur bara alltaf aftur vegna þess að hver ein og einasta padda getur lif- að í ár án blóðmáltíðar. Það þarf bara eina ólétta í felum bak við vegg til að hefja faraldurinn á ný. Ef lúsin kemst í reglulegt æti, til dæmis ferðamenn, getur hún verpt fimm eggjum á dag.“ Hálfgerðir sérfræðingar Hún segir vanta nýjar sérfræðilausn- ir vegna vandamálsins. „Þegar hér er komið sögu höfum við lesið okkur mikið til á netinu og erum orðnir hálfgerðir sérfræðingar en ég tek það þó fram að við höfum alveg frá upp- hafi og til dagsins í dag unnið með fagmönnum og hlýtt þeim í einu og öllu. Ég hef ekkert nema gott um þá að segja og er þeim óendanlega þakk- lát fyrir hjálpina. Sá sem við erum að vinna með núna er til dæmis hættur að rukka fyrir heimsóknir og ætlar að klára málið með okkur. Þetta getur bara verið svo gífurlega erfitt vanda- mál og það vantar sérfræðiþekkingu, nýjar aðferðir, almenningsvitund og eftirlit með gististöðum til þess að koma í veg fyrir faraldur og tjón.“ Vandamálið komið til að vera hérlendis Berglind segir það ljóst að með aukn- um fjölda ferðamanna sé veggjalús vandamál sem er komið til að vera hér á landi. „Í ljósi þess að hostel og hótel eru að spretta hér upp eins og gorkúlur og áætlaður ferðamanna- fjöldi á næsta ári er 900.000 finnst mér að Reykjavíkurborg og Ferða- málastofa ættu að ráðast í átak og vitundarvakningu á þessu vanda- máli meðal gististaða. Tryggingar í tengslum við tjón á gististöðum ætti að taka þetta með inn í reikninginn,“ segir hún en þær tryggingar sem þau eru með fyrir gistiheimilið ná ekki yfir skaða vegna veggjalúsar. „Reikningar meindýraeyða eru yfir 500.000 krón- ur samtals og ef ég reikna með laun- um iðnaðarmanna og smíðaefni, nýj- um rúmum, sængurfatnaði og fleiru erum við að tala um 2–3 milljónir í kostnað fyrir utan tekjutap vegna lok- unar,“ segir hún en þessi kostnaður hefur alfarið fallið á þau. „Það er nán- ast óviðráðanlegt fyrir jafn lítið gisti- heimili og okkar, með fimm herbergi í leigu og aðeins einn fastan starfs- mann sem er ég sjálf. Ég gæti trúað því að þetta muni leggja þó nokkur gisti- heimili að velli í nánustu framtíð.“ Skömm og leynimakk Berglind segir nauðsynlegt að aflétta þögguninni sem ríkir um þessi mál. „Þetta er þaggað niður þegar þetta kemur upp og mikil skömm og leyni- makk fylgir þessu.“ Hún segir nauðsynlegt að hér verði teknar upp nýjar aðferðir til þess að berjast gegn veggjalúsinni. Þau fundu á netinu aðferð sem felur í sér að hita húsnæðið en það er um- hverfisvæn og eiturefnalaus aðferð. „Það eru fyrirtæki í Bandaríkjunum sem sérhæfa sig í þessu en þau eru ekki til staðar hér á landi svo við þurftum að reyna þetta sjálf. Við lok- uðum húsinu, leigðum fjölmarga hitablásara og hitamæla og hituðum allt húsið þar til það var eins og risa- stórt gufubað. Dýrin drepast víst við 45 gráður þannig að við hituðum allt húsið í vel yfir 60 gráður og 90 gráð- ur í dýnum, þar til rúða sprakk, plast- ljósaskermar byrjuðu að bráðna, veggfóður að flagna og maðurinn minn var kominn með dúndrandi höfuðverk af súrefnisskorti og stein- olíuútblæstri.“ Þetta hafa þau gert tvisvar. Eftir seinna skiptið urðu þau ekki vör við lús í mánuð og héldu að sigur væri unninn. „Við fögnuðum með freyðivíni og það var blússandi hamingja hér á gistiheimilinu á ný þar til strákur sem hefur búið hjá okk- ur í einu herberginu í tvö ár og hjálp- að okkur að þrífa og halda geðheils- unni var bitinn í síðasta mánuði.“ Vill helst gefast upp Þau ákváðu því að reyna eitrið á ný. „Þótt ég hafi ekki orðið vör við neitt í nokkrar vikur segir reynslan mér að þessu sé ekki alveg lokið. Ég get þó ekki annað en vonað það. Þótt ég vilji helst gefast upp og loka staðnum þá þarf ég á sumartekjunum að halda til þess að greiða niður reikningana. Ég mun svo sjá til hvað ég geri næsta vetur. Ef vandamálið heldur áfram verður bæði ómögulegt að halda áfram rekstri og líka að selja húsið því það kaupir það enginn með þess- um „leynda“ galla,“ segir Berglind. Eftirlit verið eflt Hún vill taka það fram að þau hafi alltaf verið heiðarleg við sína gesti og sagt þeim frá vandamálinu. „Ég hef verið fullkomlega heiðarleg við þá gesti sem fyrir þessu hafa orðið. Ég get náttúrulega ekki tekið fram á heimasíðunni minni eða þegar fólk bókar að mig gruni að það gæti mögulega leynst veggjalús í húsinu. Þá gæti ég ekki haldið áfram starf- semi. Ástæðan fyrir því að ég hef haldið áfram er að auðvitað verðum við að trúa eftir hverja aðgerð hér að vandamálið sé úr sögunni. Ef ég hefði vitað í upphafi að þetta tæki svona langan tíma hefði ég pakkað saman strax,“ segir hún. Hún vill að eftirlit með gististöð- um verði eflt. „Heilbrigðiseftirlitið ætti að koma upp verklagsreglum og eftirliti sem gististaðaeigendur verða að fylgja en þeim ætti líka að vera boðin aðstoð þegar þetta kemur upp því það þarf að vera fullkomin samvinna milli meindýraeyða og gistihúsaeigenda. Hvorugur aðilinn getur eytt vandamálinu upp á sitt einsdæmi. Ef fer sem horfir og borgina vantar pödduráðgjafa er líklegt að ég verði á lausu á næst- unni.“ n Milljónatjón vegna veggjalúsar Fréttir 17Helgarblað 1.-3. mars 2013 „Það þyrmdi svo- lítið yfir mig þegar ég opnaði bréfið með viðurkenningarskjalinu síðasta sumar þar sem ég hafði aðeins nokkrum mínútum áður verið að skipta á laki með blóð- blettum eftir að veggja- lús hafði lagst á gest. n Gistihúseigandi hefur barist við veggjalús sem alltaf virðist koma aftur n Kallar eftir auknum afskiptum yfirvalda og breyttum verklagsreglum Í 22.febrúar síðastliðinn var fjallað um veggjalús. Í panelnum Hér sést veggjalús á panel sem er á veggjum gistiheimilisins. Í kringum hana eru ummerki eftir veggjalús. Gefst ekki upp Hér sést Berglind með gufuvél sem hún notar til þess að hreinsa dýnurnar verði vart við veggjalús. Námskeið og gisting í Gistiheimilinu Frumskógum í Hveragerði með Auði I. Ottesen garðyrkjufræðingi og Jóni Guðmundssyni garðyrkjufræðingi. Auður og Jón kenna ykkur allt um ræktun matjurta og krydds. Verkleg og bókleg kennsla og notalegar stundir í heita pottinum og gufubaðinu. Helgarnámskeið í ræktun matjurta og kryddjurta 9. og 10. mars í Gistiheimilinu Frumskógum SKRÁNING Í SÍMA 578 4800 EÐA Á WWW.RIT.IS GISTIHEIMILIÐ FRUMSKÓGAR ✮ NÁMSKEIÐIÐ HEFST LAUGARDAGINN 9. MARS KL. 14:00 OG LÝKUR KL. 12:00 SUNNUDAGINN 10. MARS. ✮ VERÐ KR. 24.800.- INNIFALIÐ ER: BÓKLEGT OG VERKLEGT NÁMSKEIÐ, GISTING, K VÖLDVERÐUR, K VÖLDHRESSING OG MORGUNMATUR. FOSSHEIÐI 1 800 SELFOSS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.