Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Side 21
Erlent 21Helgarblað 1.-3. mars 2013 „Ekki gefa upp vonina“ É g vil segja við allar konur, sem eru í ofbeldisfullum sambönd- um; verið sterkar og gefið ekki upp vonina.“ Þetta segir ung afgönsk kona, Aesha Mo- hammadzai, sem varð fyrir hrotta- legu ofbeldi af hálfu eiginmanns síns í heimalandi sínu. Mohammadzai er einna þekktust fyrir að hafa setið fyrir á eftirminnilegri mynd á forsíðu Time-tímaritsins árið 2010 þar sem hún sýndi afmyndað andlit sitt. DV sagði sögu þessarar stúlku í desember síðastliðnum en hún var seld í hjónaband aðeins tólf ára vegna fjárhagsvandræða foreldra hennar. Eiginmaður hennar reyndist hins vegar vera ofbeldisfullur og beitti hann hana andlegu og líkam- legu ofbeldi. Aesha reyndi að flýja eigin mann sinn en komst ekki langt. Hann náði henni og skar af henni nef- ið og eyrun í hefndarskyni fyrir flótta- tilraunina. Flóknar aðgerðir Aeshu var komið undir læknishend- ur eftir árásina. Eftir tíu vikna legu á afgönsku sjúkrahúsi sáu góðgerða- samtök til þess að hún kæmist und- ir læknishendur í Bandaríkjunum og undanfarin þrjú ár hefur Aesha geng- ist undir fjölmargar flóknar lýtaað- gerðir í Maryland-ríki sem hafa gengið ágætlega. Í umfjöllun DV í desember kom meðal annars fram að hún hefði gengist undir aðgerð sem miðaði að því að búa til húðvef sem nýta átti í endurupp- byggingu á nefi hennar. Sílikonpúða var komið fyrir undir enni hennar og varð þannig til umframhúðvefur sem nota átti í að byggja upp nýtt nef. Á dögunum framkvæmdu læknar þessa miklu og flóknu aðgerð og eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er Aesha nú komin með nýtt nef sem hún kveðst afar ánægð með. Laus allra mála í sumar Aesha kom fram í viðtali á dögunum við Daybreak-sjónvarpsþáttinn á ITV- sjónvarpsstöðinni bresku. Um var að ræða fyrsta sjónvarpsviðtal henn- ar og sagði hún meðal annars frá sögunni á bak við myndina frægu á forsíðu Time. „Hvern einasta dag var ég misnotuð af eiginmanni mín- um og fjölskyldu hans – andlega og líkamlega. Einn dag fékk ég nóg og flúði,“ segir hún. Eiginmaður hennar var hins vegar ekki lengi að finna hana og fór svo að hún var dæmd í fimm mánaða fangelsi fyrir flóttann. Þegar hún hafði setið af sér ákvað dómari að henni væri óhætt að snúa aftur til eiginmanns síns. Svona lýsir hún því sem gerðist eftir að hún kom heim: „Ég var bundin á höndum og fótum. Eiginmaður minn og samverkamenn hans sögðu að þeir myndu skera af mér nefið og eyrun í hefndarskyni – og þeir gerðu það. Það leið yfir mig og þegar ég vaknaði sá ég ekki neitt vegna blóðs.“ Hún var skilin eftir en tókst við illan leik að komast til afa síns og var hún í kjölfarið flutt á sjúkrahús. Góðgerðasamtökin Women for Af- ghan Women í New York hafa stutt Aeshu fjárhagslega og séð til þess að hún geti menntað sig. Hún dvelur hjá fósturfjölskyldu í Maryland á meðan hún er undir eftirliti lækna. Hún mun gangast undir fleiri aðgerðir en þó er reiknað með að þær verði einungis smávægilegar. Telja læknar að síðasta aðgerðin verði framkvæmd eigi síðar en í sumar. n Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Ánægð með afraksturinn Aesha brosti sínu blíðasta í viðtalinu við Louisu James hjá ITV-sjón- varpsstöðinni á dögunum. Forsíðan Umrædd forsíða Time-tímaritsins árið 2010 vakti mikla athygli. Hálft tonn af amfetamíni Ástralska lögreglan haldlagði hvorki meira né minna en 585 kíló af af amfetamíni. Efnið fannst í skips- farmi sem kom frá Kína. Það var falið innan um hreinsiefni en talið er að hægt hefði verið að selja efn- in fyrir 57 milljarða króna. Þess má geta að áætlaður kostnaður við nýtt hátæknisjúkrahús er talinn hlaupa á um 50 milljörðum króna. Um er að ræða stærsta fund fíkniefna sem lögreglan í landinu hefur fundið en í fyrrasumar fann lögreglan 300 kíló af amfetamíni. Þrír menn, einn frá Singapúr annar frá Hong Kong og sá þriðji frá Ástral- íu hafa verið handteknir vegna inn- flutningsins. Lögreglan hafði unnið að undirbúningi málsins lengi. Dreginn til dauða 27 ára leigubílstjóri frá Mósambík var pyntaður á hrottafullan hátt af lögreglunni í Suður-Afríku. Maður- inn var handjárnaður fyrir að leggja bílnum sínum ólöglega í austur- hluta Jóhannesarborgar. Vegfarandi náði myndbandi af því þegar lög- reglumenn handjárnuðu manninn við lögreglubíl og drógu hann eftir götunni, að lögreglustöðinni. Hann var hnepptur í gæsluvarð- hald en lést þar af sárum sínum. Talsmaður þess sviðs sem fer með eftirlit með lögreglunni hefur sagt að hann hafi orðið sleginn þegar hann horfði á myndbandið. Hann segir að málið verði rannsakað til fulls en enn séu málsatvik óljós. n Aesha er komin með nýtt nef n Eiginmaðurinn beitti hana ofbeldi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.