Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Qupperneq 30
30 Viðtal 1.-3. mars 2013 Helgarblað Þ að er ekki glysrokkarinn Óttarr Proppé sem tekur á móti blaðamanni í and­ dyri Ráðhússins í Reykja­ vík. Að minnsta kosti er hann ekki í þröngum spandexgall­ anum og háu hælunum sem hann flíkar stundum þegar hann fer á svið með rokksveitunum sem hann spilar stundum með, Ham eða Dr. Spock. Það er borgarfulltrúinn Óttarr sem heilsar, hann er með sixpensara á höfðinu og er íklæddur jakkafötum í anda sjötta áratugar síðustu aldar. Eftir því sem líður á spjallið kemur þó rokkið í ljós. Það er órjúfanlegur hluti af tilveru hans. Án þess gæti hann varla þrifist viðurkennir hann. Óttarr býður upp á kaffi og heilsar einum af fastagestum hússins, Katli Larsen, sem margir þekkja sem trúð sem hefur skemmt börnum á 17. júní áratugum saman. „Hann er hluti af fuglalífinu við Ráðhúsið,“ seg­ ir Óttarr með bros á vör. Hann seg­ ist kunna vel við fjölbreytt „fuglalíf­ ið“ í húsinu. „Hingað kemur margt skemmtilegt fólk sem er gaman að spjalla við,“ segir Óttarr. Hann býður til sætis í fundarher­ bergi merktu forseta borgarstjórn­ ar. „Það er skrýtið hvað maður hefur vanist því að vera hér,“ segir hann og sýpur á heitu kaffinu. „Mér finnst stutt síðan Jón Gnarr tók við borgar­ stjóralyklinum og við komum hing­ að inn í fullri auðmýkt til þess að standa undir mikilli ábyrgð. Það var jú súrrealískt,“ segir hann og glottir þegar blaðamaður spyr hann hvort þau hafi ekki brugðið á leik í Ráðhús­ inu eftir sigurinn. Rennt sér á skrif­ borðsstólum, tekið lúftgítar og farið í loftstökkum um húsið. Það allra síðasta … Óttarr hefur nú verið borgarfulltrúi fyrir Besta flokkinn frá árinu 2010 og situr í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hann skipar annað sætið á framboðslista Bjartrar fram­ tíðar í Suðurkjördæmi Reykjavíkur og berst fyrir því að fara á þing undir slagorðinu Ding, ding, Óttarr á þing. „Ég hefði sagt að þetta væri það allra síðasta sem ég gæti hugsað mér að fara út í,“ segir hann aðspurður hvað hann hefði sagt fyrir nokkrum árum um það að vera á leiðinni í kosn­ ingabaráttu til þess að komast á þing. Klofin tilvera En hver er Óttarr Proppé? Áður en hann tók þá ákvörðun að taka þátt í stjórnmálastarfi með vini sínum Jóni Gnarr var hann helst þekktur sem söngvari hinnar goðsagna­ kenndu hljómsveitar Ham. Í seinni tíð vakti hann athygli með skrautlegri framkomu með sveitinni Dr. Spock þar sem farið var geyst á sviðinu. Þá þekkja talsvert margir Óttar af störf­ um hans í bókabúð Máls og menn­ ingar og Eymundsson þar sem hann starfaði í heil 25 ár. Fyrstu skrefin tók Óttarr hins vegar í Hafnarfirði og í Bandaríkjunum þar sem hann var alinn upp á víxl. „Pabbi og mamma voru í námi í Bandaríkjunum þannig að þau ferðuðust fram og til baka. Aðallega bjuggum við í Illinois, í háskólabæ sem heitir Urbana, sem er sunnan við Chicago. Ég bæði byrjaði og kláraði skólann þar. Þetta var töluvert ólík upplifun,“ segir Óttar um skólagönguna á þess­ um tveimur stöðum. „Kannski sér­ staklega á þessum árum þegar íslenskt þjóðfélag var fremur ein­ angrað. Ég var lengst af í skólum í alþjóðlegum bæjum, þar sem voru krakkar af 40–50 þjóðernum, svo kom ég líka til Ameríku sem skipti­ nemi á síðasta ári mínu í mennta­ skóla og þá upplifði ég þetta aftur. Að vera í alþjóðlegum hóp. Á þess­ um tíma var Ísland náttúrulega mjög óalþjóðlegt og þetta var dálítið klofin tilvera,“ segir Óttarr og segist af upp­ eldi sínu hafa orðið vanur því að um­ gangast aðra menningu og fólk af ólíkum uppruna. „Þetta hefur örugglega haft mjög mikil áhrif á mig. Kannski gert það að verkum að ég á auðveldara með að aðlaga mig nýjum hlutum og stund­ um um of, ég er kannski stundum full óhræddur við það,“ segir hann og brosir hæglátlega. Vann í bókabúð í 25 ár Margir þekkja Óttar af störfum hans í bókabúð Máls og menningar þar sem hann setti sterkan svip á verslunina. Óttar ætlaði sér aldrei að vinna nema nokkra mánuði í bókabúð en starfaði við að selja bækur í heil 25 ár. Óttarr á sér tvær megin ástríður, bækur og tónlist. Bókaáhugann sækir hann til afa sinna, nafna síns í föðurætt, Ótt­ ars Ólafs, og Jóns Björnssonar, og í æsku segist hann hafa verið eins og grár köttur á heimilum þeirra að glugga í bækur. „Ég er alinn upp við bækur. Afar mínir voru miklir bókamenn. Óttarr afi minn var mikill heimsborgari. Hafði verið langdvölum á Ítalíu og Belgíu líka sem ungur maður á milli­ stríðsárunum. Hann var í viðskiptum en starfaði líka í sendiráðum og ým­ islegt fleira. Og síðan var það móð­ urafi minn, Jón Björnsson. Hann var vélstjóri og sjómaður og á sjó meira og minna frá því hann var átta ára þar til hann varð fimmtugur. Hann flutti eiginlega bara út á sjóinn. Sigldi í stríðinu á enskum bátum og var alla tíð í vélum og með týpískan verka­ mannabakgrunn. Hann var einnig mikill bókamaður. Afar mínir bjuggu báðir í Hafnarfirði og ég var eins og grár köttur heima hjá þeim. Síðan datt ég eiginlega mjög snemma á þá hugmynd að það væri sniðugt fyrir mig að vinna í bókabúð. Það hitti þannig á að ég sótti um í bríarí hjá Eymundsson sem var Al­ menna bókafélagið og fékk vinnu sem átti upphaflega að vera í nokkra mánuði en svo var ég þarna í tæp 25 ár,“ segir hann og hlær. Gerði tilraunir til að hætta Ástríða Óttars fyrir tónlist kviknaði sömuleiðis í æsku. Hann sótti tón­ listarskóla í Hafnarfirði en segist ekki hafa þótt góður hljóðfæra leikari. Hann fann því áhuga sínum far­ veg í því að grúska í tónlistinni. „Ég fór að vasast í tónlistinni, að hluta til þess að skilja hana betur, og veiktist af bakteríu sem hefur setið í mér alla tíð síðan. Ég hef gert nokkrar tilraunir til að hætta að spila tónlist en það er bara svo leiðinlegt. Það er eitthvað við það að búa til og grúska í músíkinni og vera með öðrum sem eru í sömu pælingum sem er ofsa­ lega gefandi. Svo er líka svo mögn­ uð upplifun að spila tónlist fyrir aðra. Skiptir svo sem ekki máli hvort það er einn eða þúsund eða hvað, það er eitthvað samtal sem er öðruvísi en önnur samtöl. Það er einhvers konar tilfinningalegt samband. Þegar mað­ ur nær að spila á það, þá verður það eitthvað svo magískt. Þegar ég hef dregið mig til hlés, þá hef ég alltaf saknað þess og þurft að byrja aftur. Ég vona að ég eigi aldrei eftir að hætta. Maður gengur í endurnýjun lífdaga við það að spila, þegar maður hefur ekki gert það lengi. Svo hef ég líka verið mjög heppinn að vinna með góðum músíköntum sem er nauðsynlegt fyrir slæma músíkanta,“ segir hann. Afdrifaríkir álversmengaðir djöflar Hljómsveitin Ham er ein helsta hljómsveit íslenskrar rokksögu. Hún nýtur mikillar virðingar og vaxandi vinsælda og er fræg fyrir gríðarlega þunga rokktónlist með dimmradda, hádramatískum söng og einstaklega fyndnum textum. Óttarr var á unglingsárum þegar hann kynntist Sigurjóni Kjartanssyni og Ham varð til þegar þeim félögun­ um tókst ekki að ljúka hádramatískri mynd, Álversmenguðu djöflunum, og komust að því að það er talsvert einfaldara að reka hljómsveit en að búa til kvikmynd. „Ég kynntist Sigurjóni í ein­ hverri girðingarvinnu og við náð­ um vel saman. Við vorum báðir að drepast úr kvikmyndaáhuga. Höfð­ um sérstakan áhuga á B­myndum, sem var mjög hipp og kúl á níunda áratugnum. Horfðum á lélegar hryll­ ingsmyndir og alls kyns drasl. Við ákváðum að gerast listhneigðir og búa til kvikmyndir. Við skrifuðum mjög gott handrit að kvikmynd sem átti að heita Álversmenguðu djöfl­ arnir. Vorum sérstaklega hrifnir af þýð­ ingunni: The Contaminated Devils of Aluminium. Myndin fjallaði um hóp sígauna sem bjó á bílaöskuhaug rétt hjá álveri í Straumsvík. Mjög dramatískt,“ segir hann og brosir. „Við vorum byrjaðir að taka upp myndina á Super­8, en það var svo rosalega flókið. Það voru ekki til pen­ ingar, það var svo mikið vesen að fá fólk til þess að mæta. Þetta voru allt vinir og kunningjar og okkur fannst þetta fullflókið. Þetta þróaðist út í það að við einbeittum okkur að því að gera tónlistina við myndina til þess að nýta tímann betur og við komumst að því að það er talsvert auðveldara að reka hljómsveit en gera kvikmynd. Þá var hann Björn Blöndal, sem nú er aðstoðarmað­ ur borgarstjóra, bassaleikari. Bjössi var svona bassanörd og við vorum vinir úr Flensborg. Hann kom inn og úr varð þessi heilaga þrenning sem hefur enst síðan.“ Háværastir, leiðinlegastir og hægastir „Við duttum alveg í það að vera hljómsveitartöffarar og sveitin var virk um margra ára skeið. Við vorum bæði að gefa út plötur og spila á tón­ leikum og settum okkur strax mjög Ding, ding, Óttarr á þing, er slagorð Óttars Proppé í komandi kosningabaráttu fyrir Bjarta framtíð. Óttarr er rokkari fram í fingurgóma sem hefur gert stjórnmálin að lifibrauði sínu síðustu ár. Honum tókst með félögum sínum í Besta flokknum að heilla borgarbúa. En tekst honum að komast á þing? Hann ætlar að reyna þótt hann langi ekkert sérstaklega til þess að verða alþingismaður. Krafan um breytingar og meira frjálsræði Íslendinga rekur hann áfram. Kristjana Guðbrandsdóttir ræddi við Óttar um rokklífernið með Ham sem endaði í dauða sveitarinnar og stjórnmálin sem hann segist alltaf hafa verið áhugasamur um. En þegar Ronald Reagan var kosinn forseti á ellefu ára afmælis degi Óttars, hætti hann að halda upp á afmælið sitt. Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Viðtal „Ef ég ætlaði að vera algjörlega sjálfselskur þá held ég að Alþingi yrði alls ekki fyrsti starfsvett- vangurinn sem ég kysi! Hvað er ég að gera hérna? Dr. Spock Óttarr er ekki bara borgarfulltrúi heldur einnig glysrokkari í hljómsveitunum Ham og Dr. Spock.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.