Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Side 31
ákveðin markmið: að vera hávær- astir, leiðinlegastir og hægastir. Það fannst okkur vera mjög skýr listræn mynd, hvort sem hún flokkaðist und- ir almenna mannasiði eður ei.“ Þrátt fyrir þetta segir Óttarr þá fé- laga í raun og veru mjög rómantíska. „Við vorum að hlusta mjög mikið á sixtís poppmúsík, Sonny og Cher og svona, Beach Boys. Hugmyndin með að vera með tvo söngvara var til dæmis sótt beint í Sonny og Cher.“ Orðnir þreyttir og tættir Óttarr og félagar í Ham fóru á bólakaf í bransann í nokkur ár og túruðu með Sykurmolunum á hátindi frægðar þeirra. Eftir um sjö ár af rokkþvælingi segir Óttar þá félaga hafa verið orðna þreytta og tætta og þeir tóku þá sam- eiginlegu ákvörðun að hætta. „Á sama tíma og við vorum hvað virkastir þá slógu Sykurmolarnir í gegn. Við höfðum verið svona semi- pönkarar og þekktum þau. Strax og Sykurmolarnir slógu í gegn, stofn- uðu þau Smekkleysu sem gaf út plöturnar okkar og við fórum að hita upp fyrir sveitina – fylgja þeim á tón- leikaferðalögum og þannig lagað. Í sex eða sjö ár vorum við alveg á kafi í þessu og eyddum öllum okkar tíma í þetta en á algjörum aumingjaskap, því það gerðist sko ekkert sérstak- lega mikið. Kom ekkert í kassann og svona. Maður eyddi öllum stundum í þetta og svo eyddi maður líka öllum peningum í að borga upp skuldir og reikninga vegna þessa. Svo ákváðum við, þegar við vorum búin að vera í þessu í ákveðinn fjölda ára, að þetta væri orðið svolítið súrt. Við vorum orðnir þreyttir og tættir, búnir að sofa of oft saman einhvers staðar og höfð- um alltaf áhyggjur af því hvernig við ættum að borga einhverja reikninga. Það var farið að þvælast fyrir músík- inni. Þannig að við ákváðum, frekar en að láta þetta deyja, að hætta. Stærstu og best sóttu tónleikarnir okkar urðu síðan lokatónleikarnir,“ segir hann frá. Frelsandi að koma inn á botninum Óttarr dró sig úr tónlist um tíma. En segir það ekki hafa enst mjög lengi. Hann fór að vinna í kvikmynda- iðnaði við vinnslu heimildamynda og stuttmynda. „Ég þurfti að rifja upp hvað er erfitt að gera bíómyndir!“ segir hann og hlær. En á þessum tíma kom hann að fjölmörgum verkefnum, bæði sem handritshöfundur og leikari. Árið 1992 lék hann í Sódómu Reykja- vík, þá gerði hann heimildamynd um bítlabæinn Keflavík, Ham og lista- manninn Erró. Hann fór að spila fönktónlist með sveit Jóhanns Jóhannssonar, Funkstrasse. En árið 2000 datt hann aftur af fullum krafti aftur í músík- ina og fór að spila með pönksveitinni Rass annars vegar og stuttu seinna með félögunum í Dr. Spock. „Það var mjög uppfrískandi að spila með Rass. Við vorum eins og í Ham með mjög skýr markmið. Við æfðum aldrei og sömdum aldrei lög. Reglurnar voru þannig að bassaleik- arinn byrjaði lagið og ákvað hvað það var hratt, svo var spilað þangað til trommarinn ákvað að hætta. Við brönsuðumst heldur ekkert. Héldum næstum því aldrei tónleika sjálfir, vildum frekar bara mæta og hita upp hjá einhverjum öðrum. Mér fannst frelsandi að koma svona aftur inn á botninum. Ég kynntist svo félögum mínum í Dr. Spock þegar ég lét plata mig til að leika aðalhlutverk í bíómynd hjá Jóhanni Sigmarssyni leikstjóra, það var bíómynd sem hét Óskabörn þjóðarinnar og var um vandræðafólk í Reykjavík. Og bíómyndin var líka dásamlegt vandræðaprójekt, gerð fyrir litla peninga og á röffinu, mikið pönk.“ Jóhann fór að safna saman hljómsveitum til að búa til músík í myndina. Þar á meðal var hljóm- sveit sem í voru nokkrir strákar úr Hafnarfirði og Garðabæ. Sveitin hét Dr. Spock. „Jonni vildi endilega að ég syngi lag með þessari sveit. Svo mætti ég bara í eitthvað stúdíó og hitti naumast sagt skuggalega gaura: Finna sem er stór og sköllóttur með tattú og aðra ekki síður skuggalega,“ segir hann og brosir. „Ég gargaði þarna eitt lag með þeim. Svo fóru þeir að hringja svolítið oft og spyrja hvort ég vildi koma sem gestur á tón- leikum. Svo leið og beið og við byrj- uðum saman.“ Hætti að halda upp á afmælið sitt ellefu ára Óttarr segist alltaf hafa verið áhuga- samur um stjórnmál þótt að hann hafi orðið fráhverfur stjórnmálastarfi á unglingsárunum. Raunar hefur hann haft óvanalega sterkar tilfinn- ingar hvað varðar hræringar í stjórn- málum frá unga aldri. Þegar Ronald Reagan var kosinn forseti Bandaríkj- anna á ellefta ára afmælis degi Óttars, hætti hann að halda upp á afmælið sitt. „Ég er áhugasamur um umhverfi mitt og það sem er að gerast. Ég er nörd. Ég hef gaman af því að kynna mér sem flest og vil þá skilja. Ég hef gaman af því að læra og skilja eitt- hvað. Hvort sem er gagn að því eða ekki. Svona framan af þá fylgdist ég með af hliðarlínunni en ég hef alltaf haft sterkar tilfinningar hvað varðar stjórnmál. Þegar Ronald Reagan var kosinn forseti á ellefu ára afmælis- daginn minn, þá hætti ég að halda upp á afmælið mitt,“ segir hann og hlær og segist varla muna hvort það hafi verið þráðbein afleiðing. „Þegar ég var í Flensborg þá gerði ég einhverja tilraun til þess að taka þátt í æskulýðsstarfi stjórnmála- flokka en hrökklaðist mjög hratt til baka þegar ég kynntist því hvernig flokkamaskínurnar virkuðu. Hugs- aði með mér; nú veit ég nóg um þetta. Geri þetta aldrei aftur. Og var dálítið í þessum gír. Alltaf pólitískur, með skoðanir á málum, en afhuga kerfinu.“ Galin snilld Það var í hruninu sem sterk ábyrgðar- tilfinning sótti á Óttar og þegar hann fékk símhringingu frá Jóni Gnarr góðvini sínum um að ganga til liðs við stjórnmálaafl hugsaði hann með sér, að annaðhvort væri það algjör- lega galið eða algjör snilld. „Ég skammaðist mín fyrir að hafa ekki tekið virkari þátt. Maður hafði kannski slæma tilfinningu árin á undan en gerði ekkert ann- að í því en að röfla við eldhúsborðið um hvað þetta hefði nú verið óá- byrgt. En svo var ég ekkert að hugsa um að gera neitt meira við þessar til- finningar fyrr en Jón Gnarr hringdi í mig um áramótin 2010 og sagði mér að hann væri með hugmynd um að stofna stjórnmálaflokk og fara fram í borgar stjórnarkosningunum. Strax fannst mér það algjörlega galið eða algjör snilld. Ég spurði hann hvort þetta væri gjörningur eða alvara og hann tjáði mér að honum væri full alvara. Svo vorum við hér fjórum til fimm mánuðum seinna og það var verið að rétta honum borgarstjóra- lyklana.“ Óttarr og Jón hafa þekkst í dágóð- an tíma og voru félagar í pönkinu eins og margir aðrir sem gengu til liðs við Besta flokkinn. „Við höfum umgengist hvor ann- an mismikið í gegnum tíðina en alltaf eitthvað. Jón var ungskáld og við fengum hann stundum til að hita upp fyrir okkur með ljóðalestri. Þá var öskrað á hann og hent í hann flöskum en hann hélt alltaf áfram að lesa ljóð.“ Óttarr segir frá því að á meðan kosningabaráttan fór fram hafi flokk- urinn mótast. Atburðarásin hafi tekið af þeim völdin. „Og svo vorum við allt í einu komin hingað. Þá var þetta óvænt og skrýtið. En um leið vorum við orðin mjög samhuga og sam- hent. Þótt við hefðum verið að fíflast svolítið í kosningabaráttunni þá Viðtal 31Helgarblað 1.-3. mars 2013 Algjörlega galið eða algjör snilld Líst ekki á Alþingi Alþingi er ekki efst á lista Óttars hvað starfsvettvang varðar. mynd siGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.