Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Qupperneq 35
E
lodie Kulick horfði fram á
bjarta framtíð. Hún var fögur,
klár og hafði góða útgeislun
og þrátt fyrir ungan aldur, 24
ár, var hún orðin bankastjóri
í banka í Picardie í Péronne í Norð-
ur-Frakklandi. En ekki fer allt sem
skyldi og að kvöldi 15. janúar, 2002, var
Elodie myrt og vakti málið þó nokkra
athygli þarlendra fjölmiðla.
Það kvöld hafði Elodie setið að
snæðingi ásamt vinum sínum á kín-
versku veitingahúsi í St. Quentin, smá-
bæ ekki langt frá Peronne. Hún yfirgaf
vini sína klukkan hálf tólf og ók sem
leið lá til Peronne, umferðin var lítil
og Elodie naut þess að aka heim í ró-
legheitunum, skulum við segja þó við
höfum ekki minnstu hugmynd um
það.
Það fer tvennum sögum af rás at-
burða næturinnar. Samkvæmt annarri
þá var bifreið ekið á eftir Elodie og
hún þvinguð út af veginum. Sam-
kvæmt hinni var um að ræða tvær bif-
reiðar; annarri var ekið á móti Elodie
og hún blinduð með aðalljósunum
og hin kom á eftir Elodie og þvingaði
hana út af veginum. Það segir sig sjálft
að ef seinni tilgátan er rétt þá hljóta
bílstjórar bifreiðanna tveggja að hafa
haft samband sín á milli, en ekkert
kom síðar fram sem staðfesti það með
óyggjandi hætti.
30 sekúndna símtal
Það má leiða líkur að því að Elodie hafi
reynt eftir megni að hafa stjórn á bif-
reið sinni, en vitað er að hún hringdi
í ofboði í Neyðarlínuna og fékk sam-
band við slökkviliðið í Amiens. Sam-
talið varaði aðeins í hálfa mínútu en
Elodie heyrðist bæði öskra í skelf-
ingu og kjökra, einnig heyrðust raddir
í bakgrunninum áður en sambandið
rofnaði.
Greining síðar leiddi í ljós að radd-
irnar í bakgrunninum tilheyrðu þrem-
ur mönnum og af hreim þeirra mátti
ráða að um væri að ræða menn úr
grenndinni.
Sennilega var mat lögreglunnar
rétt því seinna kom í ljós að ódæðis-
mennirnir voru ágætlega kunnugir á
þessum slóðum.
Elodie var dregin, væntanlega
skelfingu lostin, inn í annan, eða eina,
bílinn og síðan óku mennirnir á afar
afvikinn stað sem einungis kunnugir
hefðu geta ratað á, skammt frá þorp-
inu Monchy-Lagache; yfirgefinn flug-
völl frá tímum hernáms Þjóðverja í
síðari heimsstyrjöldinni.
Sarkozy kemur til skjalanna
Tveimur dögum eftir að Elodie hvarf
fannst lík hennar við áðurnefndan
flugvöll. Við lík hennar fundust síga-
rettustubbar og notaðir smokkar sem
síðar náðust lífsýni af. Elodie hafði
verið nauðgað í fleirgang, myrt í kjöl-
farið og síðan helltu ódæðismennirn-
ir bensíni yfir líkið og báru eld að.
Tíðindin af grimmilegum örlögum
Elodie urðu móður hennar um megn.
Hún hafði nokkrum árum fyrr misst
tvö barna sinna í umferðarslysi og
tveimur mánuðum eftir morðið á
Elodie reyndi hún að svipta sig lífi.
Tilraunin mistókst en móðir Elodie
hefur verið í dái allar götur síðan. Allt
um það.
Dag einn fékk Jacques, faðir
Elodie, óvænt símtal. Þá nýlega skip-
aður innanríkisráðherra Frakklands,
og síðar forseti, Nicolas Sarkozy var
á línunni. „Ég mun finna morðingja
dóttur þinnar, herra Kulick,“ sagði
Sarkozy einfaldlega. Jacques svaraði
að bragði: „Já, þeir ættu að svara til
saka.“
Hægara ort en gert
Reyndar komst Sarkozy að því að það
var hægara ort en gert að standa við
stóru orðin því lögreglan hafði fátt til
að styðjast við, reyndar bara tvö lífsýni
sem samsvöruðu engu í lífsýnasafni
lögreglunnar.
Eftir að hafa bankað upp á hjá
öllum í Monchy-Lagache og spurt
hvar viðkomandi hefði alið manninn
þegar Elodie var myrt var lögreglan
litlu nær. Reyndar sögðu nokkrar
konur að þær hefðu orðið fyrir ágangi
óþekkts bílstjóra – hugsan lega á svört-
um Volkswagen Golf.
Lögreglan tók 40.000 lífsýni og
kannaði 8.000 farsíma en þurfti að
játa sig sigraða. Ekki bætti úr skák að
tvær myrtar konur til viðbótar; Pat-
ricia Leclercq, 19 ára, og Christelle
Dubuisson, 18 ára, fundust með sex
vikna millibili á sama svæði. Sú fyrri
fannst 8. júlí og sú síðari 21. ágúst,
báðum hafði verið nauðgað og þær
síðan myrtar með því að aka yfir þær.
Morðingjar Elodie, og Patriciu og
Christelle, hafa aldrei fundist. Reynd-
ar hélt lögregla sig hafa komist í feitt
í apríl 2007. Þá var ung sænsk náms-
kona, Susanna Zetterberg, myrt í
Picardie. Susönnu hafði verið nauðg-
að, hún myrt og síðan kveikt í líki
hennar. Bruno nokkur Cholet var
handtekinn og síðar kærður fyrir það
morð, en lífsýni úr honum stemmdi
ekki við lífsýni sem fundist höfðu á
Elodie Kulick. Hvort morðingi hennar
svarar einhvern tímann til saka verð-
ur tíminn að leiða í ljós. n
35Helgarblað 1.-3. mars 2013
20
n Elodie myrt í blóma lífsins n Sarkozy tókst ekki að standa við stóru orðin„Lögreglan
tók 40.000
lífsýni og kannaði
8.000 farsíma en
þurfti að játa sig
sigraða
Myrt
í húMi
ætur
Elodie
Kulick
Lífið brosti
við Elodie,
en draumar
hennar
áttu ekki
eftir að
rætast.
desember 1924 var þýski raðmorðinginn og kirkjuorganistinn Karl Denke handtekinn
eftir að hafa ráðist með öxi á ónafngreindan mann. Við leit á heimili Denke fann lögreglan manns-
hold í stórum krukkum. Þegar upp var staðið þótti ljóst að Denke hafði orðið að minnsta kosti 42 að
aldurtila og lagt sér til munns, á árunum 1914–1918. Jafnvel er talið að hann hafi selt mannakjöt á
markað og sagt það vera svínakjöt. Denke hengdi sig í fangaklefa tveimur dögum eftir handtökuna.
Nicolas Sarkozy „Ég mun finna morðingja dóttur þinnar, herra Kulick,“ sagði þáverandi
innanríkisráðherra, og síðar forseti, Frakka.