Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Síða 38
38 Menning 1.-3. mars 2013 Helgarblað U ppáhaldsmyndin mín frá þessum tíma var svo sannarlega ekki Mary Poppins, það var Blues Brothers,“ segir kankvís Bergur Ingólfsson leikstjóri spurð- ur um áhuga hans fyrir verkinu. „Það er að mínu mati miklu sterk- ari þráður í handritinu en í bókun- um og myndinni. Verkið fjallar um fjölskyldu í London á árinu 1910. Á tímum sterkra hefða og viðmiða í samfélaginu um það hvernig þú átt að hegða þér og líta út. Pabbinn er haldinn svo miklum afkomukvíða að allir í fjölskyldunni eru andlega vannærðir. Það er tengslaleysi í fjölskyldunni sem börnin finna fyrir. Þau vilja vera frjáls og lifa og eru sífellt að reyna að ná til for- eldra sinna. Það dregur svo til tíð- inda þegar þau biðja um barnfóstru og til þeirra kemur Mary Poppins eins og pöntuð. Hún kemur eins og töfraþerapisti inn í líf þeirra og hjálpar fjölskyldunni að sinna and- anum í gegnum fantasíu, leiki og lífsgleði.“ Baráttan heldur áfram með Mary Bergur segir að þótt að hann hafi ekki heillast af myndinni á yngri árum þá höfði innihaldið mjög til hans. Það eigi erindi við íslenska þjóð. „Ég hef áhuga á því hvort þjóð- in er andlega vannærð. Þegar Geir Haarde bað Guð að blessa Ísland þá var eitthvað innra með mér sem fagnaði því, því ég hélt að efnishyggj- an myndi víkja og við færum að sinna okkar frekar sem andlegum verum. En sú barátta heldur áfram með Mary Poppins. Fólk þarf á sögum að halda til jafns við mat og drykk,“ segir Bergur, „það er jafn stór hluti af mennskunni að segja og heyra sögur eins og að hafa aðgang að mat og drykk.“ Erlendir ráðgjafar til liðs við leikhúsið Kvikmyndin um Mary Poppins sló rækilega í gegn um allan heim þegar hún var frumsýnd árið 1964 með Julie Andrews í aðalhlutverkinu. Myndin fékk fimm Óskarsverðlaun og er löngu orðin sígild. Árið 2004 var loks var gerður söngleikur og fékk hann góðar viðtökur þegar hann var frum- sýndur á West End. Verkið hlaut sjö Tony-verðlaun, meðal annars sem besti söngleikurinn. Söngleikurinn um Mary Poppins hefur aldrei áður verið sýndur á Íslandi og þegar hann var frumsýndur um síðustu helgi vakti hann strax aðdáun og hrifningu bæði gagnrýnenda og áhorfenda. Borgarleikhúsið er sjötta leik- húsið í heiminum sem sýnir verkið og við uppfærsluna fékk Bergur til liðs við sig alþjóðlegan hóp lista- manna til. „Við fengum þekktan er- lendan danshöfund, Lee Proud, til liðs við okkur og um leikmyndina sá Tékkinn Petr Hlousek en hann hef- ur sviðsett margar stórsýningar víða um Evrópu. Einnig vinna erlendir ráðgjafar með starfsfólki Borgarleik- hússins að útfærslu flókinna tækni- brellna sem ég get ekkert útlistað frekar. Töfrar verða að vera töfrar.“ Disney hefur áhuga Tónlist í sýningunni stýrir Agnar Már Magnússon með ellefu manna hljómsveit og útsetning hans segir Bergur að hafi vakið mikla og já- kvæða athygli. Svo mikla að hing- að til lands eru menn á leiðinni frá Disney. „Agnar Már setur þetta upp á nýtt fyrir minni hljómsveit en er í West End. Disney ætla jafnvel að nota hans útsetningar. Þeir eiga eftir að koma og sjá hvort þeir vilji það.“ Engin önnur kom til greina Með hlutverk Mary Poppins fer Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Bergur segir enga aðra hafa komið til greina. Magnús Geir tilkynnti að það ætti að færa upp Mary Poppins og ég hugs- aði strax til Hönsu, áður en ég var ráðinn. Svo fékk ég verkefnið og þá lá þetta beint við. Fólk sér strax hvers vegna Hansa er kjörin í hlutverkið þegar það kem- ur á sýninguna. Hún er frábær leik- kona og söngkona og góður dansari. Hún getur þetta allt. Það býr lífs- orka í henni, sprengikraftur sem mér finnst þurfa í þetta hlutverk – og töfr- ar. Svo er hún ótrúlega sjarmerandi og sæt,“ segir hann og brosir og seg- ir hana hafa lagt einstaklega hart að sér. „Það er ekki æfingin sem skap- ar meistarann. Það er aukaæfingin! Þetta er hennar mottó og ég hef verið að hitta hana á laugardagsmorgnum í leikhúsinu,“ segir hann til að leggja áherslu á einurð hennar. n n Bergur Ingólfsson leikstjóri segir sögur jafn mikilvægar og mat og drykk Fulltrúar Disney á leið til Íslands „Pabbinn er haldinn svo miklum afkomukvíða að allir í fjölskyldunni eru andlega vannærðir. Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Viðtal Mennskan og Mary Poppins „Það er jafn stór hluti af mennsk- unni að segja og heyra sögur eins og að hafa aðgang að mat og drykk.“ MynD sigtryggur ari Leikskólabörn og lista­ háskólanemar Í Artíma galleríi á Skúlagötu verður opnuð skemmtileg sýn- ing um helgina. Sýningin er samtal tveggja skapandi hópa. Annars vegar eru sýnd verk eftir leikskóla- börn frá leikskólanum Tjarnar- borg og hins vegar nema í Listaháskóla Íslands. Það er undir áhorfandanum komið að dæma listina út frá því sem hann sér sem og að gera upp við sig hvað sé list og spyrja sig um leið spurningarinnar: hvað gerir list að list? Með þessu samtali er leitast eftir því að fá áhorfendur til þess að endur- skoða ákveðnar skoðanir sem þeir hafa gefið sér. Sýningin ætti því að stuðla að rannsókn nýrra hugsunarhátta, segir í til- kynningu frá galleríinu. Gerðuberg 30 ára Í tilefni 30 ára afmælis Gerðubergs verður boðið upp á veglega dag- skrá dagana 2. og 3. mars. Tónlistardagskrá verður haldin í umsjón Margrétar Bóasdóttur söngkonu frá klukkan 14.00. Þá verður afmælismóttaka fyrir gesti klukkan 17 og allir gamlir og nýir vinir Gerðubergs hjartanlega vel- komnir. Á sunnudag er börnum og fjölskyldum þeirra boðið á tvær kveðskaparsmiðjur: Krummi krunkar úti með Báru Grímsdóttur og Chris Foster og Dans vil ég heyra með Evu Maríu Jónsdóttur. Aðgangur er ókeypis á alla dag- skrána. Hlátur heima­ manna og sprengjufræði Árlega fara myndlistarnemar á þriðja ári Listaháskóla Íslands í vinnustofuferð til Seyðisfjarðar. Verkefnið er haldið á vegum skól- ans, Dieter Roth Akademíunnar, Skaftfells - miðstöðvar myndlistar á Austurlandi og Tækniminjasafns Austurlands. Sýning um verkefni þeirra verður opnuð í Skaftfelli á laugardag. Allir nemendur hafa haft það að leiðarljósi að nýta sér umhverfi bæjarins og einstaka hjálpsemi Seyðfirðinga við gerð verka sinna. Möguleikarnir eru óteljandi og viðfangsefnin fjölbreytt. Einn nemandi hefur til dæmis unnið náið með sprengjusér- fræðingi bæjarins á sama tíma og annar hefur valið sér það verkefni að safna hlátri heimamanna. Aðrir nemendur hafa þá einbeitt sér að náttúru og umhverfi Seyðisfjarðar en vinna á ólíkan máta úr efni- viðnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.