Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Blaðsíða 42
42 Lífsstíll 1.-3. mars 2013 Helgarblað Tískustraumar 2013 N ú hafa tísku- vikur staðið yfir víðsvegar um heiminn undan farið og gaman að fylgjast með götu- tískunni í hinum ólíku stórborgum. Það vekur eftir- tekt hversu litaglaðar konur eru úti í hinum stóra heimi og virðast ekki vera bundnar við ríkjandi tískustrauma. Loðfeldir virðast ætla að halda velli ef marka má tísku- spekúlanta og fólkið á götunni. Loð- skinnstöskur, -skór, -jakkar og -trefl- ar verða áfram áberandi og í öllum regnbogans litum. Pinnahælar við hvaða tilefni Ár pinnahælanna er svo sannarlega nú og gildir engin regla um hvenær við hæfi sé að nota þá. Pinnahælar við slitnar galla buxur, stuttan sætan sumarkjól eða síða kjólinn sem farið er í í brúðkaupið er jafn smart og viðeigandi, því hærri hælar því betra en betra að muna að bera sig vel þegar gengið er á háum hælum og hafa ber í huga að það er ástæða fyrir göngunámskeiðum. Þá vitið þið það stelpur; hælar, gallabuxur, silki- skyrtur, belti í öllum útfærslum og loðfeldir eru skvísuklæði um þessar mundir. n Synir stytta líf mæðra Samkvæmt finnskri rannsókn lifa konur sem eiga syni skem- ur en konur sem eiga dætur. Þetta kom fram í LiveScience- netmiðlinum. Efasemdir eru uppi um trúðverðug leika rannsóknar- innar þar sem hún byggir á gögn- um kvenna sem allar voru fæddar fyrir 1960. Í gögnum meira en 11 þúsund kvenna kom í ljós að synir tengdust lakari lífslíkum kvenna. Vísindamaður, sem ekki kom að rannsókninni, útskýrir niður- stöðuna með því að dætur hjálpi mæðrum sínum frekar í ellinni. „Í mörgum vestrænum samfélögum hjálpa dætur frekar til með yngri börn og heimilisstörfin. Drengir eru líka oft þyngri sem þýðir að þeir þurfa meiri næringu bæði á meðgöngu og með brjóstagjöf.“ Lítill svefn er hættulegur Svefnleysi hefur alvarlegar af- leiðingar á heilsu okkar. Þetta kem- ur fram í nýrri rannsókn sem sagt er frá á BBC. Niðurstöður rannsóknar- innar gefa í skyn að skortur á svefni geti haft áhrif á hundruð gena sem verði svo til þess að líkaminn geti síður læknað sig og eykur líkur á sjúkdómum og andlegu álagi. Vísindamenn rannsökuðu þátt- takendur sem höfðu sofið í meira en tíu tíma á nóttu í viku og miðuðu við hóp þátttakenda sem hafði sofið minna en sex stundir. Samkvæmt vísindamönnum sem ekki komu að rannsókninni væri hægt að eyða neikvæðum áhrifum svefnleysis ef okkur tækist að slökkva á þeim genabreytingum sem eiga sér stað samhliða svefnleysinu og gera þar með svefn óþarfan. Eru börnin óþekk? n Notaðu uppeldisaðferðir dr. Phil fyrir hvert aldursskeið fyrir sig Á ttu erfitt með að halda uppi aga á heimilinu? Eftirfar- andi listi er byggður upp af uppeldisspeki sjónvarps- sálfræðingsins dr. Phil sem byggir á aðferðum sem taka á hverju aldursstigi fyrir sig. Styrking með umbun Foreldrar einblína á jákvæða hegð- un barnsins. Veittu barninu athygli þegar það hagar sér vel. Stefnubreyting Þessi tækni snýst einfaldlega um að vekja áhuga barnsins á einhverju sem bætir hegðun þess. Munnlegar leiðbeiningar Með því að fara yfir það sem þú vilt að barnið geri og af hverju, getur hjálpað því að þróa með sér góða dómgreind. Biðpláss Vera á biðplássi þýðir að barnið er fjarlægt úr erfiðum aðstæðum. Barnið er sett á hlutlausan og jafnvel „leiðinlegan“ stað eins og út í horn eða þar sem leikföng og sjónvarp eru ekki. Foreldrar hunsa barnið þar til það er orðið rólegt. Dr. Phil ráð- leggur að vera á biðplássi ætti aldrei að vera lengri en fimm mínútur. Ein mínúta á ári er góð þumalfingurs- regla. Reglur ítrekaðar Útskýrðu reglurnar og vertu við- búin/n að endurtaka þær þar til barnið lærir að fylgja þeim. Kyrrsetning Aðferð á börn og unglinga sem snýst um að takmarka dvalarstað barns- ins við ákveðinn stað, yfirleitt heim- ili eða herbergi. Réttindi afnumin Börn eiga að læra að forréttindum fylgir ábyrgð og þau þarf að vinna Frá fæðingu til 18 mánaða Það sem virkar n Styrking með umbun. n Stefnubreyting. Það sem virkar ekki n Munnlegar leiðbeiningar. n Biðpláss. n Reglur ítrekaðar. n Kyrrsetning. n Réttindi afnumin. 18 mánaða til þriggja ára Það sem virkar n Styrking með umbun. n Stefnubreyting. n Munnlegar leiðbeiningar. n Biðpláss. Það sem virkar ekki n Reglur ítrekaðar. n Kyrrsetning. n Réttindi afnumin. 4–12 ára Það sem virkar n Styrking með umbun. n Stefnubreyting. n Munnlegar leiðbeiningar. n Biðpláss. n Reglur ítrekaðar. n Kyrrsetning. n Réttindi afnumin. 13–16 ára Það sem virkar n Styrking með umbun. n Munnlegar leiðbeiningar. n Reglur ítrekaðar. n Kyrrsetning. n Réttindi afnumin. Það sem virkar ekki n Stefnubreyting. n Biðpláss. sér inn. Samkvæmt dr. Phil ætti ekki að nota þessa aðferð oft ef hún á að skila árangri. Forréttindin eru eitt- hvað sem barnið metur mikils, líkt og það að horfa á sjónvarp eða leika við vini. n Mílanó New YorkParís
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.