Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Page 44
44 Sport 1.-3. mars 2013 Helgarblað
n Barist á toppi og botni ensku úrvalsdeildarinnar n Arsenal heimsækir Tottenham
T
ottenham getur stigið enn
eitt skrefið til að tryggja
sér sæti í Meistaradeild
Evrópu þegar liðið tek
ur á móti grönnum sín
um í Arsenal í stórleik helgarinnar
í enska boltanum. Tottenham hefur
verið á hvínandi siglingu í deildinni
að undanförnu og ekki tapað síðan
liðið lá gegn Everton, 2–1, þann 9.
desember síðastliðinn. Þetta hef
ur skilað sér í því að liðið situr nú
í 3. sæti deildarinnar með 51 stig –
sæti sem mun tryggja liðinu sæti í
riðlakeppni Meistaradeildarinnar í
haust.
Þó að mikið hafi verið rætt og rit
að um dapurt gengi Arsenal í vet
ur hefur liðið verið á fínu skriði í
úrvalsdeildinni þó árangurinn í
öðrum keppnum hafi ekki verið upp
á marga fiska. Liðið hefur fengið 13
stig af 15 mögulegum í síðustu fimm
leikjum og ekki tapað síðan liðið lá
gegn Chelsea, 2–1, þann 20. janú
ar. Arsenal þarf á sigri að halda til að
halda sér inni í baráttunni um 4. sætið
en Arsenal er fyrir leiki helgarinnar í
5. sæti með 47 stig, tveimur stigum á
eftir Chelsea sem er í fjórða sætinu.
Arsene Wenger og hans menn mega
því illa við tapi gegn Tottenham.
55 mörk í 10 leikjum
Arsenal og Tottenham áttust síðast
við þann 17. nóvember síðastliðinn
í deildinni en þar vann Arsenal 5–2
stórsigur. Emmanuel Adebayor kom
Tottenham yfir eftir 10 mínútur en
örfáum mínútum síðar fékk hann
að líta rauða spjaldið. Arsenal gekk
á lagið og rúllaði yfir Tottenham í
kjölfarið. Miðað við síðustu 10 leiki
þessara liða í öllum keppnum mætti
ætla að boðið verði upp á marka
súpu á White Hart Lane á sunnudag.
Hvorki fleiri né færri en 55 mörk
hafa verið skoruð í þessum leikjum,
eða 5,5 mörk að meðaltali í hverjum
einasta leik. Tottenham hefur skor
að 25 mörk en Arsenal 30. Þeir sem
hafa gaman af skemmtilegum leikj
um ættu því alls ekki að láta þennan
leik framhjá sér fara.
Wigan-vélin komin af stað
Fleiri áhugaverðir leikir eru á dag
skránni þessa helgina þó liðin í
toppbaráttunni, að Arsenal og
Tottenham undanskildum, ættu að
eiga þægilega helgi í vændum. Man
chester United tekur á móti Norwich
– liðinu sem var síðast til að leggja
United að velli í deildinni. Man
chester City heimsækir síðan Aston
Villa á mánudagskvöld. Chelsea
tekur á móti West Brom og Liver
pool heimsækir Wigan. Wigan vann
gríðarlega mikilvægan 3–0 sigur
gegn Reading um liðna helgi og því
þarf Liverpool á toppleik að halda til
að sprengja Wiganvélina sem jafn
an fer af stað á þessum árstíma.
Harry Redknapp og lærisveinar
hans í QPR heimsækja South
ampton og óhætt að segja að um
alvöru botnslag sé að ræða. QPR
er pikkfast á botni deildarinnar og
verður að vinna til að eiga minnsta
möguleika á bjarga sér frá falli. Nái
Southampton sigri kveður liðið
botnbaráttuna – að sinni að minnsta
kosti. n
fyrir Arsene Wenger
Að duga eða drepast
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Vissir þú …
… að Manchester United
hefur unnið síðustu 10
leiki sína á heimavelli í
deildinni.
… að enginn leikur
endaði með jafntefli í
síðustu umferð deildarinnar.
Það hefur ekki gerst áður á tímabilinu.
… að engum leikmanni
hefur oftar verið skipt
út af en Lukas Podol-
ski hjá Arsenal sem
hefur 19 sinnum verið
skipt út af.
… að ekkert lið fær á sig
fleiri skot fyrir utan
teig en West Ham – 59
í heildina í leikjunum
27 í vetur.
… að Lionel Messi og Gar-
eth Bale eru einu leikmennirnir í stóru
deildunum fimm í Evrópu sem hafa náð
að skora sex mörk utan
teigs.
… að Gareth Bale
hefur skorað flest
mörk á útivelli af
öllum leikmönnum
úrvalsdeildarinnar,
eða 11 í heildina.
… að Jussi Jääskeläinen,
markmaður West
Ham, hefur varið flest
skot allra markmanna
á tímabilinu, eða 109.
… að
Gylfi Þór
Sigurðsson skoraði
sitt fyrsta mark í
deildinni eftir að
hafa átt 36 skot að
marki á tímabilinu.
… að Tottenham hefur fengið 2,32 stig
að meðaltali úr leik þegar Moussa Dem-
bele spilar en aðeins 0,57 þegar hann er
ekki með.
Laugardagur
Chelsea – West Brom
„Ef Romelu Lukaku spilar þá held ég að
West Brom taki þetta 2–1. Chelsea-liðið
virkar ekki sannfærandi um þessar mundir.“
Everton – Reading
„Þetta er 2–0 heimasigur. Everton er
sterkt á heimavelli og Reading fer líklega
niður í vor.“
Man. United – Norwich
„Norwich er sterkt lið en ég segi að United
vinni þetta 1–0. Þetta verður erfiður leikur
og United-menn verða með hugann við
leikinn við Real Madrid. En þeir eru vél og
klára þetta.“
Southampton – QPR
„Ég held að QPR vinni þetta 2–1. Chris
Samba skorar annað markið og hann mun
reynast drjúgur. Þeir eru með mannskap-
inn í að bjarga sér frá falli.“
Stoke – West Ham
„Þetta verður markaleikur, 2–2. Ég reikna
með að mikið verði skorað úr föstum
leikatriðum.“
Sunderland – Fulham
„Þetta er strembinn leikur en ætli Fulham
vinni þetta ekki. Berbatov skorar bæði
mörkin í 2–0 sigri.“
Swansea – Newcastle
„Eigum við ekki að segja að leikmenn
Swansea hafi dottið svo harkalega í það
eftir sigurinn um síðustu helgi að þeir tapi
þessum leik. Newcastle klárar þetta 3–1.“
Wigan – Liverpool
„Ég held að Liverpool vinni sannfærandi
2–1 sigur. Þeir eiga eftir að skjóta í stöng og
svona en Suarez ræður úrslitum þarna.“
Sunnudagur
Tottenham – Arsenal
Þegar ég tippa á að Arsenal vinni þá tapa
þeir. Þannig að ég segi að Tottenham vinni
þetta 1–0. Þá kannski vinnur Arsenal. En
ætli Bale skori ekki sigurmarkið og Gylfi
eigi flottan leik.“
Mánudagur
Aston Villa – Man. City
„City tekur þetta 3–0. Þeir virðast vera
komnir á flug eftir sigurinn á Chelsea og
klára þetta örugglega.“
Naumur sigur Tottenham
Knattspyrnukappinn Garðar Gunnlaugsson, leikmaður ÍA, er spámaður helgarinnar að
þessu sinni. Garðar, sem er dyggur stuðningsmaður Arsenal, spáir sínum mönnum tapi í
Lundúnaslagnum gegn Tottenham. Þá spáir hann því að Manchester-liðin vinni sína leiki
og að Liverpool nái að landa sigri gegn Wigan. Ívar Ingimarsson spáði í spilin um síðustu
helgi og náði fjórum leikjum réttum af níu.
n Arsenal-maðurinn Garðar Gunnlaugsson spáir sínum mönnum tapi
„Þeir eru
með mann-
skapinn í að
bjarga sér frá falli
Staðan í enska boltanum
1 Man. Utd. 27 22 2 3 64:31 68
2 Man. City 27 16 8 3 50:24 56
3 Tottenham 27 15 6 6 47:32 51
4 Chelsea 27 14 7 6 55:30 49
5 Arsenal 27 13 8 6 52:30 47
6 Everton 27 10 12 5 41:34 42
7 WBA 27 12 4 11 38:36 40
8 Liverpool 27 10 9 8 49:34 39
9 Swansea 27 9 10 8 38:34 37
10 Stoke 27 7 12 8 26:32 33
11 Fulham 27 8 8 11 37:42 32
12 Norwich 27 7 11 9 27:41 32
13 Newcastle 27 8 6 13 38:48 30
14 West Ham 27 8 6 13 31:41 30
15 Sunderland 27 7 8 12 29:36 29
16 Southampton 27 6 9 12 38:49 27
17 Wigan 27 6 6 15 33:51 24
18 Aston Villa 27 5 9 13 26:52 24
19 Reading 27 5 8 14 33:51 23
20 QPR 27 2 11 14 19:43 17
Rautt spjald og mörk
Adebayor var rekinn af
velli síðast þegar Arsenal
og Tottenham mættust í
sjö marka leik. Það er ljóst
að baráttan verður engu
minni á sunnudag enda
mikið undir. Mynd ReuteRS