Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Page 53
Ógleymanleg
stund í Hörpu
Fólk 53Helgarblað 1.-3. mars 2013
S
tórleikarinn Ólafur Darri Ólafs-
son verður fertugur sunnu-
daginn 3. mars. Ólafur Darri er
einn þekktasti leikari landsins
en sjálfur hefur hann látið hafa eft-
ir sér að hlutverk loðfílsins í Fanga-
vaktinni hafi gert hann frægan á einni
nóttu.
Ólafur Darri fæddist í Bandaríkj-
unum árið 1973 en útskrifaðist frá
Leiklistarskóla Íslands árið 1998. Þótt
hann hafi útskrifast fyrir 15 árum úr
Leiklistarskólanum varð hann ekki
áberandi að ráði fyrr en síðustu ár.
Ólafur Darri hefur leikið í fjöld-
anum öllum af leikritum og einnig
í stórum íslenskum kvikmyndum á
borð við Sveitabrúðkaup, Foreldra,
Stormland, Djúpið og XL. Hann hef-
ur enn fremur leikið í Hollywood-
myndunum Contraband og The
Secret Life of Walter Mitty auk þess
sem hann er við tökur á A Walk Am-
ong the Tombstones þar sem hann
leikur á móti Hollywood-stjörnunni
Liam Neeson.
Í viðtali við DV í fyrrahaust viður-
kenndi Ólafur Darri að Hollywood
freistaði ekki. „Það eina væru þá
launin. Peningarnir væru líklega það
eina sem gæti fengið mig til þess að
reyna fyrir mér í Hollywood. Svo má
ekki gleyma því að Hollywood-stjörn-
ur eru bara fólk eins og ég og þú. Eini
munurinn er launaseðillinn. Mér
finnst ekkert rosalega spennandi að
vera frægur á Íslandi en sem betur fer
eru Íslendingar frábærir hvað þetta
varðar. Þeir eru alls ekkert óþolandi
eða þá ég bara ekki það frægur að það
sé verið að angra mig.“
Unnusta Ólafs Darra er dansarinn
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir en parið á
dóttur sem kom í heiminn árið 2010.
É
g þori varla að viðurkenna það
en ég hef aldrei farið á Sushi
Samba og væri til í að prófa þann
stað í tilefni dagsins, segir hár-
greiðslumeistarinn og tískulöggan
Ásgeir Hjartarson á Hairbrush, en
hann heldur upp á fertugsafmælið
sitt í dag, föstudag. „Annars grun-
ar mig að það sé eitthvað „surprise“
í gangi. Ég veit ekki hversu mikið en
ég er allavega ekki hlaupandi um að
panta borð,“ segir Ásgeir og bætir við
að bæði dóttir hans og eiginkona séu
miklar afmælisstelpur. „Á hverju ári
er maður vakinn snemma með kök-
um og blöðrum. Þær gera alltaf mikið
úr þessum degi. Maður fær alveg að
vita að maður eigi afmæli, sem er al-
veg rosalega gaman.“
Ásgeir viðurkennir að honum
finnist ótrúlegt að hann sé orðinn
fertugur. „Ég væri að ljúga ef ég
myndi ekki viðurkenna að þetta
er smá sjokk. Ég fann til að mynda
fyrstu gráu hárin fyrir viku! Það eru
blendar tilfinningar gagnvart þessu.
Mér finnst gaman að þroskast en
ekki jafn gaman að eldast. Ég er líka
í þessum bransa þar sem æskudýrk-
unin er mikil. Tískubransinn er svo
geðveikur en ég er búinn að ákveða
fyrir löngu að þegar ég verð níræð-
ur ætla ég að verða eins og hár-
greiðslumeistarinn heimsfrægi Al-
exandre De Pari. Hann er hrikalega
flottur, sléttur og fínn þrátt fyrir ald-
ur,“ segir hann hlæjandi og bætir við
að margir eigi erfitt með að trúa að
hann sé kominn á fimmtugsaldur-
inn. „Ég þakka það rakakremunum.
Ég hugsa vel um mig, ber á mig krem
á hverjum degi og fer ekki mikið í
ljós. Það er alveg að borga sig, það
hlýtur að vera fyrst fólk trúir ekki að
ég sé orðinn svona gamall.“
Ólafur Darri
fertugur
„Þetta er smá sjokk“
Einn þekktasti leikari landsins 40 ára
Ásgeir á Hairbrush 40 ára
Fertugur Stórleikarinn Ólafur Darri Ólafsson
kemst á fimmtugsaldurinn á sunnudaginn.
Tískulögga Ásgeir fann fyrsta gráa
hárið fyrir viku.
Minnist látinnar systur sinnar í bók
M
ér finnst fínt að komast á fer-
tugsaldurinn. Það hræðir
mig ekki, segir Rögnvaldur
Rúnar Þorkelsson sem verð-
ur þrítugur á laugardaginn.
Rögnvaldur Rúnar býr á Reyni-
mel í Borgarfirði en starfar á verk-
stæði á Grundartanga. Hann er fjöl-
skyldumaður, á konu og þrjár stelpur,
Thelmu, Guðrúnu Eygló og Rakel
Svövu. Aðspurður játar hann því að
dæturnar eigi eflaust eftir að vekja
hann með afmælissöng á sjálfan af-
mælisdaginn en sjálfur segist hann
ekki mikið afmælisbarn. „Svona
vanalega held ég ekki upp á þetta en
núna geri ég undantekningu. Það er
ekki á hverjum degi sem maður verð-
ur þrítugur. Það er víst ekki.“
Rögnvaldur Rúnar ætlar að taka á
móti gestum heima í tilefni dagsins.
Hann segist ekki búast við því að kíkja
út á lífið um kvöldið. „Ég nenni ekki
á djammið enda bý ég úti í sveit og
það er langt að fara. Það verður frekar
bara gleði heima við.“
Óttast ekki
fertugsaldurinn
Rögnvaldur Rúnar þrítugur
Afmælisbarn Rögnvaldur er þriggja
barna faðir og býst við því að vera vakinn
af dætrunum á afmælisdaginn.
S
tórglæsilegir styrktartónleikar
fyrir ljósmyndarann Ingólf
Júlíusson fóru fram í Norður-
ljósasal tónlistar- og ráð-
stefnuhússins Hörpu í Reykja-
vík á fimmtudag. Margt af þekktasta
og besta hljómlistarfólki landsins
gaf vinnu sína við tónleikana og en
þar á meðal voru tónlistaratriði sem
flokka má sem klassíska söngtónlist og
þyngsta þungarokk sem fyrirfinnst hér
á landi.
Meðal þeirra sem komu fram voru
uppistandarinn Ari Eldjárn og söngva-
skáldið Hörður Torfason, hljóm-
sveitirnar og tónflokkarnir Bodies,
Dimma, Fræbblarnir, Hellvar, Hljóm-
eyki, Hrafnar, tónlistarmaðurinn
KK, Nóra, Nýdönsk, ÓP-hópurinn og
Q4U. Ingólfur sjálfur hefur lengi ver-
ið gítar leikari hljómsveitarinnar Q4U
en í hans stað á tónleikunum lék Egill
Viðarsson úr Nóru á gítar með Q4U.
Þess má geta að Auður Viðarsdóttir og
Egill úr Nóru eru systurbörn Ingólfs.
Komust ekki á tónleikana
Þá er vitað til þess að meðlimir
þungarokkssveitarinnar Skálmaldar
voru eyðilagðir yfir því að geta ekki
spilað á tónleikunum en þeir voru
staddir í Hnífsdal á Vestfjörðum þar
sem þeir léku á tónleikum í félags-
heimilinu fyrir rokkþyrsta heima-
menn. Þeir hafa því ákveðið að gefa út
Skálmaldarboli með Ingólfi sem verð-
ar seldir til styrktar honum á vefsíð-
unni blekholt.is. „Takk fyrir okkur og
allt,“ sögðu Skálmaldarmenn við Ingólf
í myndbandi sem þeir birtu á mynd-
bandavefnum Youtube.
Greint var frá því fyrr í vikunni að
Ingólfur væri hættur í meðferð vegna
bráðahvítblæðis sem hann greindist
með í október síðastliðnum. Ingólfur
hefur farið í gegnum þrjár meðferðir
sem hafa ekki skilað árangri og ætlar
sér núna að njóta tímans sem hann á
eftir með fjölskyldu sinni en enginn
veit hve langur sá tími verður.
Tekur mataræðið í gegn
Ingólfur var í viðtali við DV síðast-
liðinn miðvikudag þar sem hann
sagðist ekki vera búinn að gefa upp
alla von og ætlar sér að reyna óhefð-
bundnar lækningar til að vinna bug
á meininu. Hann hefur leitað til Kol-
búnar grasalæknis þar sem hann mun
meðal annars taka mataræðið í gegn.
„Ég óttast mest að þetta heilbrigðis-
fæði verði til þess að ég lifi mörg ár í
viðbót, þá verður mjög pínlegt að hitta
fólk úti á götu, hafandi verið dauð-
vona svona lengi, fólk á bara eftir að
spyrja mig: Bíddu áttu ekki að vera
dauður helvítið þitt?“ sagði Ingólfur
léttur í lundu við blaðamenn og skelli-
hló.
Hann sagði þó að fregnir sem
hann fékk um að lyfjameðferðin hefði
engan árangur borið hafa fengið mest
á konu hans og börn. Það var miklu
erfiðara fyrir þau að fá að heyra þetta
en mig,“ sagði Ingólfur. „Ég er bara
feginn að það er einhver niðurstaða
komin í málið. Óvissan var verst.“
Ingólfur býst ekki við því að taka
margar myndir á næstunni en í
vikunni fékk hann þó að taka myndir
af Baldri Ragnarssyni, vini sínum úr
þungarokkshljómsveitinni Skálmöld,
sem verður boðin upp til styrktar
Mottumars. n
n Vinir og vandamenn studdu Ingólf Júlíusson í Hörpu
Frábærir listamenn Meðal þeirra sem stigu á svið var hljómsveitin Q4U og hér sést
söngkona sveitarinnar, Ellý, syngja af innlifun. Mynd PressPHoTos.biz
Góður hópur Strákarnir í Nýdönsk
spiluðu á tónleikunum sem voru hinir
glæsilegustu. Ellý í Q4U er hér með þeim
félögum. Mynd PressPHoTos.biz
rokkað Hljómsveitin Dimma tróð meðal annars upp við góðar undirtektir. Mynd PressPHoTos.biz