Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2013, Síða 56
Boltinn sprunginn! Heillast af draugaskipum n „Það er eitthvað heillandi við draugaskip,“ skrifar Egill Helgason á bloggsíðu sinni en tilefni skrif­ anna er mannlausa skipið Lyu- bov Orlova sem rekur stjórnlaust um Norðurhöf í átt til Íslands og Noregs. Skipið er sagt vera fullt af rottum og Egill segir þær varla hafa nóg að éta.„Maður þarf ekki mikið hugmyndaflug til að sjá hvernig það getur far­ ið. Einn vinur minn á Facebook stakk upp á að þegar skipið kæmi að Íslandsströndum væri bara ein, risastór, rotta eft­ ir,“ segir Egill. E inn allra besti blaðasali Íslands­ sögunnar, Auðunn Gestsson, fagnaði 75 ára afmæli sínu á miðvikudag. Það muna eflaust margir Reykvíkingar eftir þessum vaska blaðasala í miðborg Reykjavíkur sem vakti aðdáun margra þar sem hann seldi DV. Auðunn unir nú hag sínum vel á sambýlinu að Vesturbrún en hann hef­ ur ekki setið auðum höndum eftir að hann hætti blaðasölunni. Hann hefur nú gefið út ljóðabók þar sem birtist aðeins lítið brot þess kveðskapar sem frá honum hefur komið. Ásamt skáld­ skapnum liggur eftir hann fjöldinn all­ ur af málverkum og teikningum og er hann sannarlega hæfileikaríkur lista­ maður. Þegar DV bar að garði til að heilsa upp á þennan gamla félaga var hann hinn hressasti og lék við hvern sinn fingur á meðan hann sagði frá bókinni góðu þar sem einnig er að finna ævi­ ágrip hans. Í bókinni er meðal annars minnst á tónlistaráhuga hans sem er sagður fremur sérstakur. Er þekkt sagan af Auðuni þegar hann fór að dæmi út­ varpsmanns nokkurs á 6. áratug síð­ ustu aldar sem leyfði hlustendum að velja óvinsælustu hljómplötuna og braut hana síðan þannig að áhorfend­ ur heyrðu. Þennan sið tók Auðunn upp og kom sér fyrir með gramma­ fóninn úti á svölum í Sólheimum þar sem hver platan af annarri var valin sú óvinsælasta og brotin. Þetta er ein af mörgum skemmti­ sögum af Auðuni sem er að finna í bókinni góðu sem minna margar hverjar á góðvin hans Emil Í Kattholti. Þá eru ljóðin ekki síðri en þar er til að mynda eitt þar sem Auðunn rifjar upp æsku sína: „Ég var þriggja ára Það var mikið vatn í mýrinni. Ég var í stígvélum Mamma kallaði á mig, ég var orðin rennblautur. Mamma sagði Æ Æ Æ“ DV óskar þessum mikla gleðigjafa til hamingju með útgáfu bókarinnar og óskar þessum mikla vini sínum alls hins besta. n birgir@dv.is Gefur út ljóðabók n Auðunn Gestsson fagnaði 75 ára afmæli sínu á miðvikudag Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 1.–3. mars 2013 25. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr. Sölvi hrósar Gísla n Fjölmiðlamaðurinn sölvi Tryggvason hefur tekið upp á því á Facebook­síðu sinni að hrósa fólki fyrir það sem vel er gert. Fyrsta hrósið fékk Gísli Örn Garðarsson, leikari og leikstjóri. „Allt frá því ég tók fyrst við hann viðtal 2007, undarlega helslakan klukkutíma áður en hann steig á stórt leiksvið í London, hefur mér fundist hann einn svalasti náungi sem ég hef kynnst. Gríðarlega hæfileikaríkur leikari, leikstjóri og rekur eitt flottasta fyrirtæki landsins, Vestur­ port. En umfram allt jarðbundinn og góður drengur! Þar hafið þið það!“ sagði Sölvi á síðunni sinni en fjölmargir hrósuðu honum sjálfum í staðinn. Hjörtur hættur n Útvarpsþátturinn Boltinn á X­ inu 977 í umsjón Hjartar Júlíusar Hjartarsonar hefur verið tekinn af dagskrá. Hjörtur greindi frá þessu á Twitter­síðu sinni og sagði að ástæðan væri dræm hlustun á þáttinn. Þátturinn féll vel í kramið hjá boltaunnendum og lýsti gagn­ rýnandi DV því meðal annars í pressupistli að Boltinn á X­inu væri „vel pumpaður og alls engin tuðra“. Boltinn verður því ekki á dagskránni lengur en boltaunn­ endur geta þó áfram hlustað á útvarps­ þáttinn fotbolti. net á laugardögum. Sjálfur var Hjörtur miður sín og sagðist til­ kynna þessa ákvörðun með „trega og sorg“. Hress Auðunn var hinn allra hressasti þegar hann kynnti fyrir DV ljóðabókina góðu sem hann hefur gefið út í tilefni 75 ára afmælis síns.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.