Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2013, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2013, Qupperneq 3
baka skerðingar á kjörum aldraðra og öryrkja frá árinu 2009. „Strax á sumarþinginu,“ var svar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráð- herra þegar hann var spurður að því hvenær það yrði gert í sjónvarpsfrétt- um RÚV þann 25. maí. Þær fyrirætl- anir hafa ekki verið dregnar til baka og samkvæmt Eygló Harðardóttur er frumvarp um málið nú í kostn- aðarmati í fjármálaráðuneytinu. Sam kvæmt heimildum DV má gera ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs vegna þessa nemi að minnsta kosti 3–4 milljörðum króna. Ríkisstjórnin vonast til að þessar aðgerðir hafi þensluhvetjandi áhrif og það má vel vera. Þó verður ekki hjá því litið að allar munu þær auka á vanda ríkisstjórnarinnar við að loka fjárlagagatinu. Þá á einnig eft- ir að taka skuldaniðurfellingar með í reikninginn en til stendur að útfæra þær nánar næsta haust. Þar er lík- lega um að ræða hundruð milljarða en í stefnuræðu sinni boðaði for- sætisráðherra stofnun sérstaks leið- réttingarsjóðs ef fjármögnun niður- fellinganna gengur ekki sem skyldi. Hallarekstur eða niðurskurður Viðmælendur DV – þingmenn stjórn ar og stjórnarandstöðu og hag fræð ingar – eru á einu máli um að líklega verði áframhaldandi halla zrekstur frekar fyrir valinu fyrst um sinn en róttækur niðurskurður. Mörgum þykir niðurskurður hafa keyrt úr hófi fram á síðustu árum og aukinn niðurskurður til vel- ferðarmála, langstærsta útgjalda- flokks ríkisins, er tæpast vænleg- ur til vinsælda. Þó ber að hafa það í huga að vaxtagreiðslur af skuldum ríkissjóðs nema nú um 90 milljörð- um á ári og því er afar mikið í húfi þegar rætt er um að minnka skuld- ir ríkisins. Í fyrirspurnatíma á Alþingi á þriðjudaginn var Bjarni Benedikts- son spurður að því hvar hægt væri að skera niður og nefndi hann þá fjárfestingaráætlun fráfarandi rík- isstjórnar. Í þeirri áætlun felast framkvæmdir fyrir liðlega 10 millj- arða, meðal annars fyrirhuguð Norðfjarðargöng, framlög til rann- sókna- og tækniþróunarsjóða auk fjárfestinga í skapandi greinum. n L jóst er að ríkisstjórn Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks stendur frammi fyrir gríðarlega vandasömum verk- efnum þegar kemur að stöðu ríkisfjármála. Í aðdraganda kosninga settu báðir flokkar fram afdráttarlaus kosningaloforð um skattalækkanir og skuldaniðurfellingar en óhætt er að fullyrða að töluvert meira hafi far- ið fyrir hugmyndum flokkanna hvað varðar útgjaldahlið ríkisfjármálanna en tekjuhliðina. Þó hafa forsvars- menn beggja flokka ítrekað talað fyr- ir nauðsyn þess að koma böndum á ríkisfjármálin og minnka skuldir rík- issjóðs en þær nema rúmlega 80 pró- sentum af vergri landsframleiðslu. Til skamms tíma litið er augljós- lega óraunhæft að ætla að stjórnar- flokkarnir geti staðið við öll kostn- aðarsömustu kosningaloforðin án hallareksturs, nema til komi nokkuð róttækur niðurskurður ríkisútgjalda til að vega upp á móti. Því má segja að ríkisstjórnin neyðist til að gera upp á milli yfirlýstra markmiða sinna, að minnsta kosti fyrst um sinn. Í eldhús- dagsumræðum á Alþingi á mánu- daginn boðaði Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra um- talsverðan halla á rekstri ríkissjóðs á þessu ári. Bjarni telur hallann geta numið ríflega 30 milljörðum króna á þessu ári en leggur hins vegar ríka áherslu á að stemma stigu við halla- rekstrinum árið 2014. Það gæti þó reynst þrautinni þyngri ef loforð rík- isstjórnarinnar um skattalækkan- ir, skuldaniðurfellingar og önnur út- gjöld verða að veruleika. Skattalækkanir upp á milljarða Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinn- ar sem kynntur var þann 22. maí kvað strax við öllu hófstilltari tón en heyrst hafði í aðdraganda kosn- inga. Síðan þá hafa línurnar tek- ið að skýrast og nú liggur að ein- hverju leyti fyrir hvaða aðgerðir eru efst á dagskrá ríkisstjórnarinnar. Þar ber helst að nefna ýmsar skatta- lækkanir. Ef marka má orð forsætis- ráðherra og fjármála- og efnahags- ráðherra í eldhúsdagsumræðunum verður strax í sumar ráðist í lækk- un virðisaukaskatts á gistiþjónustu, afnám stimpilgjalda, lækkun elds- neytisskatta, skatta á raforku og heitt vatn auk lækkunar virðisaukaskatts á barnaföt. Þessar lækkanir hlaupa á milljörðum. Þá hefur ríkisstjórnin gefið út skýr skilaboð um að fleiri skattalækkanir séu á dagskrá: „Auðlegðarskatturinn á að renna út á þessu ári. Hann verð- ur ekki framlengdur. Það er alveg skýrt,“ sagði Bjarni Benediktsson í viðtali í Sprengisandi á Bylgjunni um síðustu helgi. Þar er um að ræða tekj- ur upp á 9 milljarða á ársgrundvelli samkvæmt fjárlögum ársins 2013. Þá liggur fyrir að til stendur að endur- skoða og lækka veiðigjald auk þess sem tryggingagjald verður lækkað eftir samráð við aðila vinnumark- aðarins. Það er enda eðlilegt í ljósi þess að atvinnuleysi hefur minnkað jafnt og þétt og mælist nú innan við fimm prósent. Aukin útgjöld upp á milljarða Þá stendur einnig til að draga til Fréttir 3Miðvikudagur 12. júní 2013 n Þroskahamlaðir útskrifast ekki með hinum n „Ég er sorgmædd og sár“ Boðar hallarekstur upp á 30 milljarða n Bjarni lofar viðsnúningi n Hallalaus fjárlög 2014 n Skattalækkanir setja strik í reikninginn Ólafur Kjaran Árnason blaðamaður skrifar olafurk@dv.is „Auðlegðar- skatturinn á að renna út á þessu ári. Hann verður ekki framlengdur. Það er alveg skýrt. Bjarni Benediktsson Auðlegðarskattur Stimpilgjald Hækkun vsk. á ferðaþjónustu Kjör aldraðra og öryrkja Veiðigjald Eldsneytisskattur Skattar á raforku og heitt vatn 9,1 milljarður 4,1 milljarður 4,0 milljarða r 13,0 milljarða r 4,2 milljarða r 2,3 milljarða r 1,5 milljarðar Minni tekjur, meiri útgjöld Tekjutap 19 milljarðar Tekjutap óljóst T il stendur að afnema stimpilgjöld og auðlegðarskatt, draga til baka hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu og bæta öldruðum og öryrkjum upp tekju-skerðingar frá árinu 2009. Það nemur um 19 milljörðum á ársgrundvelli. Í sumar á að lækka eldsneytisskatta, skatta á raforku og heitt vatn auk virðisaukaskatts á barnaföt í þágu heimilanna. Þá er lækkun veiðigjalda einnig á stefnuskrá beggja flokka. Rétt er að taka fram að hér er ekki tekið tillit til þensluhvetjandi áhrifa sem vonast er til að aðgerðir ríkisstjórnarinnar skili. Þó gefa tölurnar einhverja hugmynd um það bil sem brúa þarf ef loka á fjárlagagatinu ef af aðgerðunum verður. HeiMild fjárlög 2013 Niðurskurðar- hnífur Vigdísar Vigdís Hauksdóttir, oddviti Framsóknar- flokksins í Reykja- víkurkjördæmi suður, var á dögunum skipuð formaður fjárlaganefndar Alþingis. Það er ein mesta ábyrgðarstaða sem í boði er við skipun nefnda. Vigdís gegnir því lykilhlutverki við undirbúning fjárlaga ársins 2014, ásamt Bjarna Bene- diktssyni fjármála- og efnahagsráð- herra, sem kynnt verða í þinginu næsta haust. Ef markmið Bjarna um halla- lausan ríkisrekstur árið 2014 á að nást mun það ef til vill koma í hlut Vigdísar að munda niðurskurðarhnífinn og skera niður til móts við fyrirhugaðar skatta- lækkanir. Henni til halds og trausts verður svo Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar. n Í umræðum um fjárlög ársins 2012 fór Vigdís mikinn og gæti málflutningur hennar þá gefið vísbendingu um nálgun hennar á verkefni við fjárlagagerð fyrir næsta ár. Þá bar hún meðal annars upp fyrirspurn til fjármálaráðherra um það hvers vegna rúmlega 82 útgjaldaliðum hefði verið hlíft við niðurskurði í fjár- lögunum og óskaði eftir sundurliðuðu svari. Í svari ráðherra kom fram að margar af þeim stofnunum sem Vigdís nefndi hefðu reyndar sætt niðurskurði, því þótt framlög hefðu hækkað í krónu- tölu, væri það í raun lækkun á raunvirði. Tífalt meiri halli en ætlað var Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa lýst því yfir að staða ríkissjóðs hafi reynst mun verri en talið var. Katrín Júl- íusdóttir, fyrrverandi fjármálaráðherra, hefur þó mótmælt því kröftuglega og segir ekkert nýtt hafa komið í ljós. Við gerð fjárlaga síðasta haust var gert ráð fyrir því að halli á rekstri ríkissjóðs árið 2013 yrði um 3 milljarðar króna. Nú telur Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, að hallinn verði 30 milljarðar króna. n Þær ástæður sem Bjarni telur fyrir auknum halla eru eftirfarandi: 4 millj- arðar vegna arðgreiðslna og sölu eigna sem ekki hafa skilað sér, 4 milljarðar vegna minni hagvaxtar en búist var við, 6 milljarðar vegna ýmissa umframút- gjalda og þessu til viðbótar telur Bjarni rétt að gera ráð fyrir þeim möguleika að gjaldfæra þurfi verulegan hluta af fyrirhuguðu 13 milljarða króna framlagi ríkisins til Íbúðalánasjóðs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.