Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2013, Side 4
Neyð á Norðurlandi
n Geðheilbrigðismál í ólestri á Norður- og Austurlandi
N
eyðarástand er í geðþjónustu
barna og unglinga á Norð-
ur- og Austurlandi og stjórn
Geðverndarfélags Akureyrar
skorar á heilbrigðisráðherra að
finna tafarlaust bráðabirgðalausn
á ástandinu. Í ályktun sem stjórn-
in sendi frá sér segir að eftir upp-
sögn barna- og unglingageðlæknis
svæðisins sé núverandi fyrirkomu-
lag algjörlega óboðlegt. Barna- og
unglingageðdeildin í Reykjavík hafi
vart annað álaginu fyrir og því setti
þessi viðbót þjónustuna á landsvísu
í uppnám.
Samkvæmt ársskýrslu Fjórðungs-
sjúkra hússins á Akureyri 2012 hafi
barna- og unglingadeildin á Norður-
og Austurlandi þjónað 504 einstakl-
ingum og fjölskyldum þeirra. „Með
niðurfellingu þessarar geðþjónustu
skapast algjört neyðarástand á
fjölda heimila sem ekki sér fyrir
endann á. Þjáningin er ekki einung-
is bundin við börnin og ungling-
ana sjálfa heldur eru aðstandendur
einnig að örmagnast. Með hverjum
deginum sem líður án þess að lausn
sé í sjónmáli stigmagnast vandinn
og álagið getur haft varanlegar af-
leiðingar fyrir heilsu aðstandenda,“
segir í ályktuninni sem lýkur með
þessum orðum: „Íbúar svæðisins
treysta á ráðherrann að bregðast
skjótt við þessu neyðarkalli.“
ingibjorg@dv.is
Vandfýsnir
Skagfirðingar
Staða skólastjóra við Varma-
hlíðar skóla í Skagafirði er laus til
umsóknar. Leitað er að öflug-
um og framsýnum leiðtoga sem
er tilbúinn til að leiða þróttmik-
ið skólastarf og taka þátt í að
efla skólasamfélagið í héraðinu.
Þetta kemur fram í fréttablað-
inu Feyki á Sauðárkróki. Staðan
var einnig auglýst fyrir fáeinum
vikum og bárust þá sex umsókn-
ir, en meirihluti samstarfsnefnd-
ar sveitarfélagsins Skagafjarð-
ar með Akrahreppi samþykkti
að hafna öllum umsóknum, á
grundvelli mats Capacent á um-
sækjendum.
Í fundargerð samstarfs-
nefndarinnar frá því á föstu-
daginn, ítreka fulltrúar Akra-
hrepps að þeir hafi í upphafi
lagst gegn því að leitað yrði til
ráðningarfyrirtækis og viljað
ráða Láru Gunndísi Magnús-
dóttur í starfið. Fulltrúar sveitar-
félagsins Skagafjarðar óskuðu
eftir að fá bókað að þeir hafi ekki
viljað taka afstöðu til umsækj-
enda án faglegs mats á þeim.
Hætt að ljósrita
Frá og með 142. löggjafarþingi,
það er yfirstandandi þingi, verð-
ur nefndastarf fastanefnda Al-
þingis rafrænt og allri ljósritun
hætt. Öllum er og frjálst að
senda nefnd skriflega umsögn
um þingmál að eigin frum-
kvæði. Slík umsögn fær sömu
stöðu og þær sem berast sam-
kvæmt beiðni nefndar. Að jafn-
aði senda nefndir öll þingmál,
sem þær hafa til umfjöllunar, til
umsagnar þeim er málið varð-
ar. Yfirleitt er umsagnaraðilum
veittur tveggja til þriggja vikna
frestur til að koma skriflegum
athugasemdum á framfæri við
nefnd. Þessi frestur getur þó
verið styttri eða lengri eftir að-
stæðum hverju sinni. Það fer
eftir eðli og umfangi máls hve
margir fá það til umsagnar.
Veiðistangaþjófar
létu greipar sópa
V
ið erum búnir að veiða lax í
yfir 30 ár og aldrei þurft að
taka stöng af bíl, segir Pétur
Hans Pétursson laxveiði-
maður. Hann var að veiða
í Blöndu ásamt félögum sínum um
síðustu helgi og urðu þeir fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu að rándýrum
veiðistöngum var stolið frá þeim.
Þeir gistu í veiðihúsinu við Blöndu
inni í Langadal og geymdu stangirn-
ar í stangarhöldum á bílum sínum
yfir nóttina. Þann háttinn hafa þeir
haft á síðastliðin 30 ár, líkt og fjöl-
margir aðrir veiðimenn. „Þegar við
vorum að fara í morgunmat ann-
an daginn þá kom einn veiðifélagi
minn hlaupandi og sagði að það
væri horfin frá honum stöng.“
Önnur stöngin glæný
Könnuðu þeir í kjölfarið hvort
stangir hefði verið teknar af fleiri
bílum og kom það á daginn. Tveim-
ur mjög dýrum stöngum hafði ver-
ið stolið um nóttina. „Það voru tekn-
ar þarna mjög verðmætar stangir.
Stöngin sem var tekin af okkar bíl
var í eigu félaga míns, Sigurðar Sig-
urðssonar, og að verðmæti 235 þús-
und krónur með hjóli, línu og öllu
saman. Hin stöngin er aðeins ódýr-
ari, kannski að verðmæti 200 þús-
und með öllum græjum.“ Dýrari
stöngin var glæný af gerðinni Sage
One 13,6 fet með hjóli og hin af
gerðinni Loop Gryline 14 fet með
góðu hjóli, að sögn Péturs. Er því
um að ræða tjón upp á 435 þúsund
krónur.
Þekktu greinilega staðhætti
Hann segir ljóst að þjófurinn eða
þjófarnir hafi þekkt til á svæðinu
og vitað nokkurn veginn hvenær
enginn væri á ferlið við veiðihúsið.
Aðeins þrír tímar liðu frá því að þeir
síðustu fóru að sofa um nóttina og
þeir fyrstu fóru á fætur um morgun-
inn. Þá er veiðihúsið ekki langt frá
þjóðveginum og lögreglan var mik-
ið á ferðinni um nóttina vegna dans-
leiks í Húnaveri.
Pétur segir einnig að þjófarnir
hafi augljóslega vitað hvað þeir voru
að taka því aðrar stangir voru skildar
eftir á bílunum.
Þeir félagar auglýsa eftir stöngun-
um sínum og eru tilbúnir að greiða
fundarlaun fyrir ábendingar um
hvar þær gæti verið að finna. Pétur
segir mjög fáar stangir af dýrari
gerðinni í umferð hér á landi og þeir
sem þekki til sjái strax um hvernig
stöng er að ræða.
Þjófnaðir sjaldgæfir
Pétur segir ansi hart ef ekki er lengur
hægt að skilja veiðistangir eftir á bíl-
um við veiðihús landsins án þess að
þær séu teknar ófrjálsri hendi.
Aðspurður segir hann þó að
þjófnaður á stöngum við þessar að-
stæður sé mjög sjaldgæfur. Hann
segist aðeins vita um tvö önnur til-
felli þar sem veiðibúnaði hafi verið
stolið með þessum hætti. Pétur segir
svona tjón einnig geta verið tilfinn-
ingalegt fyrir suma. „Ef menn eru
búnir að eiga svona stangir lengi þá
tengjast þeir þeim tilfinningabönd-
um. Menn eru búnir að veiða svo
mikið og margt á stangirnar .“
Veiðin var annars ágæt hjá þeim
félögum en þeir fengu sitthvorn
16 punda laxinn. Þjófnaðurinn á
stöngunum hefur kærður til lög-
reglu. n
n Stálu frá veiðimönnum við Blöndu n Fundarlaunum heitið
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Veiðistangir Verð-
mæti stanganna sem
teknar voru er um 435
þúsund krónur, að sögn
Péturs. Hann segir fáar
slíkar stangir í umferð
hér á landi.„Ef menn eru búnir
að eiga svona
stangir lengi þá tengjast
þeir þeim tilfinninga-
böndum.
Í Blöndu Þrátt fyrir að veiðifélagarnir séu glaðbeittir með fenginn á þessari mynd þá var
þeim ekki mjög skemmt þegar í ljós kom að rándýrum veiðistöngum hafði verið stolið frá þeim.
4 Fréttir 12. júní 2013 Miðvikudagur
Mikill vandi Íbúar
skora á ráðherra að
bregðast strax við.