Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2013, Qupperneq 27
n Íslenskir athafnamenn töpuðu fé n Fyrirtæki Sandlers neitar samstarfi
Fólk 27Miðvikudagur 12. júní 2013
„Ný von með aflitað hár“
n Óttar Proppé er íkorni á Alþingi
Þ
að er íkorninn sem dansar á
trjátoppunum, ekki bjarndýr
ið,“ sagði Óttarr Proppé í jóm
frúrræðu sinni á Alþingi sem
endaði á orðunum: „Verum góð“.
Ræða Óttars vakti mikla athygli
og var valin vinsælasta ræðan á setn
ingu Alþingis af lesendum Dv.is og
viðbrögðin létu ekki standa á sér á
Facebook.
„Ný von er fædd — með aflitað
hár — segir dæmisögur af flækingum
og íkornum,“ sagði Björn Þorláksson,
ritstjóri um Óttarr. „Gefum honum
hnetur,“ sagði Sæunn Þórðardóttir.
Helgi Seljan gerði létt grín að
ræðunni: „Var íkorni sem stökk á
milli trjátoppa. Borðaði. Er björn.
Held mig á jörðinni,“ sagði hann
og svo nokkru seinna: Okay, nóg af
þessu. Hvenær fáum við Partíbæ?
Hugmyndina að ræðunni fékk
Óttarr á ráðstefnu um höfundarétt
í Washington. Á hlaupum á millli
funda hitti hann heimilislausan
mann á bekk. „Þarna sat hann með
úfið hár og skegg, í gauðslitnum húð
litum æfingagalla og með stolið nafn
spjald um hálsinn. Hann náði athygli
þess sem hér stendur og þegar við tók
um tal saman ruddi hann upp úr sér
romsu af skammstöfunum sem voru
flestar óþekktar, ef ekki óskiljanlegar.
Þingmaðurinn gaukaði einhverjum
smápeningum að manninum og hélt
áfram för sinni, en þá kallar gaur
inn í kveðjuskyni, í lauslegri þýðingu
með leyfi forseta: „Það er íkorninn
sem dansar á trjátoppunum, en ekki
bjarndýrið.“
Skilaboðin sátu í Óttarri sem vildi
koma því á framfæri að það hafi oft
betri áhrif að sýna mýkt og sveigj
anleika en að ryðjast áfram með
krafti og með látum. Við fyrstu sýn er
bjarndýrið tignarlegt, vöðvastælt og
kraftmikið dýr. En það kemst ekki á
efstu toppa trésins. Og við fyrstu sýn
virðist íkorninn hlaupa stefnulaust
fram og tilbaka eins og vitstola ein
feldningur, en það er ekki heldur svo
einfalt. Íkorninn hefur skýr mark
mið, hann er að safna forða fyrir vet
urinn og öll hans taugaveiklunarlega
iðja þjónar því markmiði. Háttvirtu
þingmenn, tökum íkornann með
sína iðjusemi og útsjónarsemi okkur
til fyrirmyndar frekar en þunglama
legt valdabrölt bjarnarins.“
kristjana@dv.is
Sló í gegn Óttarr vakti mikla athygli með
frumlegri ræðu sinni.
Jón Arnór og Lilja
eignuðust stúlku
Körfuboltakempan Jón Arnór Stef
ánsson og unnusta hans Lilja Björk
Guðmundsdóttir eignuðust sitt
annað barn um liðna helgi. Spræka
16 marka stúlku. Fyrir eiga þau
tveggja ára son. Jón Arnór og Lilja
Björk hafa verið búsett á Spáni um
nokkurt skeið þar sem Jón spilar
körfuknattleik með úrvalsdeildar
liðinu CAI Zaragoza.
Eyþór Ingi
í hnapp-
helduna
Eyþór Ingi Gunnlaugsson
Eurovisionfari mun ganga
að eiga unnustu sína og
barnsmóður, Soffíu Ósk Guð
mundsdóttur þann 26.júlí í
Háteigskirkju. Saman eiga þau
eina dóttur. Eyþór Ingi bað
kærustu sinnar á fallegu kvöldi
í París. Frá því sagði hann í
viðtali við DV. „Við fórum út
að borða í Eiffelturninum. Þar
skellti ég mér á skeljarnar, til
búinn með hringana.“
H
andritshöfundurinn Gestur
Valur Svansson er sagð
ur hafa falsað samninga
og logið að íslenskum at
hafna mönnum sem lánuðu
hon um peninga til handritaskrifa.
Athafna mennirnir íhuga nú að stefna
Gesti Vali. Framleiðslu fyrirtæki
Adam Sandlers neitar samstarfi við
Gest. Íslenskir fjölmiðlar birtu frétt
ir um Hollywoodævintýri Gests sem
virðist nú uppspuni frá rótum.
Síðasta fullnægingin
Gestur kom meðal annars fram í við
tali við Gunnar Reyni Valþórsson,
fréttamann á Stöð 2. Þar sagðist hann
hafa átt fund með gamanleikaran
um Adam Sandler. Hann hefði kynnt
hugmynd að bíómynd fyrir honum
og Sandler hafi litist vel á og ákveðið
að kaupa myndina.
Í innslaginu er fullyrt að skrifað
hafi verið undir samninga um kaup
á handriti myndarinnar sem átti að
heita „Last orgasm“ eða Síðasta full
nægingin. „Ég fékk hugmyndina við
lestur fyrirsagnar í blaði. Úr því kom
svo heil bíómynd.“ sagði Gestur og
bætti við að í samningnum væri klá
súla um að hann myndi sjálfur leika
aukahlutverk í myndinni.
Neita samstarfi
DV hafði samband við Heather Parry,
kvikmyndaframleiðanda sem vinn
ur hjá Happy Madison, framleiðslu
fyrirtæki Adam Sandlers. Spurð um
samstarfið við Gest Val kom hún af
fjöllum og eftir að hafa grennslast
fyrir um málið sagði hún: „Við erum
ekki að vinna með honum.“
Töpuðu fé
Nokkrir íslenskir athafnamenn lögðu
Gesti Vali til peninga vegna verkefn
isins. Hann mun hafa vantað fjár
magn til að ljúka við handritið og
lofað greiðslum þegar peningarn
ir kæmu að utan. Af því varð aldrei
og þegar athafnamönnunum tók að
lengja eftir peningunum könnuðu
þeir málið og komust að því að sögur
Gests voru byggðar á sandi.
„Þetta voru ekki miklir peningar,
nokkrir hundrað þúsund kallar. Aðal
svindlið er þrá Gests eftir því að vera
frægur. Hann er búinn að hafa ansi
marga að fíflum,“ sagði einn athafna
mannanna sem vildi ekki láta nafn
síns getið. Hann staðhæfði að Gestur
hefði lagt fram falsaða samninga og
nú væru menn að skoða stöðu sína
– hugsanlega yrði Gesti stefnt fyrir
dómstóla.
Ekki hefur tekist að ná sambandi
við Gest vegna málsins, þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir síðustu daga. n
Langaði að verða
heimsfrægur
Átti einka-
fundi með
Adam Sandler
Adam Sandler í viðtali í Fréttablaðinu.
Hann sagðist hafa náð fundinum eftir
krókaleiðum, fundurinn hafi ekki verið
formlegur. „Hann var mjög spenntur
fyrir verkefni sem ég kynnti fyrir honum
en annars var ég bara aðallega að kynna
sjálfan mig og mínar hugmyndir,“ sagði
Gestur. Þegar hann var spurður hvernig
það væri að hitta frægt og áhrifaríkt
fólk í Hollywood sagði Gestur: „Þetta er
allt mjög venjulegt fólk, það er að segja
venjulegt fólk í mínum augum.“
Sagðist vera
höfundur Næt-
urvaktarinnar
Gestur Valur komst fyrst í fréttirnar fyrir
fáeinum árum þegar Næturvaktin sló
í gegn á Stöð 2. Í viðtali við DV fullyrti
hann að hann hefði upphaflega átt
hugmyndina að þáttunum. „Það fauk
virkilega í mig er ég sá að mér er ekki
eignaður sá heiður sem ég á skilið sem
hugmyndasmiður þáttanna. Ég læt ekki
taka mig svona og krefst hiklaust lög-
banns ef þeir bæta ekki sín vinnubrögð.
Það er mjög leiðinlegt að þurfa að fara
þessa leið en ég get ekki annað,“ sagði
Gestur Valur Svansson í viðtalinu í DV.
Síðar átti Gestur Valur eftir að skrifa sína
eigin sjónvarpsþætti sem sýndir voru á
RÚV og hétu Tríó.
„Ég fékk hug-
myndina við
lestur fyrirsagnar í
blaði. Úr því kom svo
heil bíómynd.
Blekkingavefur Flestir fjölmiðlar
landsins birtu fréttir af Hollywood-
ævintýri Gests.
Adam Sandler
Rekur Happy Madison
framleiðslufyrirtækið
sem neitar samstarfi
við Gest.
Gestur Valur Svans-
son Sagðist hafa selt
Adam Sandler handrit að
grínmynd.
Sár yfir ljótum
athugasemdum
Ólafur Geir Jónsson, einn að
standandi Keflavik Music Festival,
er sár yfir orðljótum athugasemd
um sem um hann hafa fallið á
netinu. Eins og þekkt er orðið fór
hátíðin úrskeiðis, þótt hún hafi
verið haldin, smærri í sniðum en
upphaflega var ætlað. Tilfinn
ingum sínum lýsti hann á Face
book: „Það sem særir mig mest
er hversu orðljótt fólk getur verið
bakvið tölvuskjáinn. Sumir halda
virkilega að kommentin þeirra séu
mér ósýnileg, ég les þau öll. Ég
er með breitt bak, læt þetta ekki
bögga mig, því ég veit betur.“
„Við erum
ekki að
vinna með honum