Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2013, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2013, Side 4
4 Fréttir 31. júlí 2013 Miðvikudagur Sjóminjasafnið á sérsamningi n Aldrei rætt um launafyrirkomulagið í borgarráði R eykjavíkurborg hefur séð um launaútreikninga og launa- greiðslur fyrir Sjóminjasafnið Víkina frá árinu 2005 þrátt fyrir að safnið sé sjálfseignarstofnun. Var fyrirkomulag launaútreikninga og launagreiðslna aldrei kynnt sérstak- lega eða rætt í borgarráði. Þetta kem- ur fram í svari upplýsingafulltrúa Reykjavíkurborgar við fyrirspurn DV um fyrirkomulag Sjóminjasafns- ins, en eins og greint var frá í síðasta helgarblaði skuldar safnið borginni um það bil 40 milljónir króna. Reykjavíkurborg var einn af stofn- aðilum safnsins og hefur um árabil lagt út fyrir launakostnaði þess og fengið kostnaðinn endurgreiddan. „Misbrestur hefur þó orðið á þeim greiðslum af hálfu safnsins á þessu tímabili og af þeim sökum safnaðist upp skuld hjá borginni sem safnið greiðir nú af með mánaðarlegu framlagi,“ segir í bréfi upplýsinga- fulltrúans þar sem jafnframt kemur fram að Sjóminjasafnið sé eina sjálfs- eignarstofnunin sem fær þessa þjón- ustu hjá borginni. Að sögn Eiríks P. Jörundsson- ar, forstöðumanns safnsins, drógust styrkir til þess saman í kjölfar hruns- ins. Þetta var sérstaklega óheppi- legt í ljósi þess að á þeim tíma stóðu yfir framkvæmdir hjá safninu. „Þá safnaðist upp skuld við Reykjavíkur- borg en reksturinn hefur verið rétt- um megin við núllið alveg síðan þá,“ sagði hann í samtali við DV í síðustu viku. Menningar- og ferðamálaráð borgarinnar hefur nú til skoðunar hvort æskilegt sé að gera Víkina að borgarsafni. „Sjóminjasafnið myndi falla undir sama hatt og önnur söfn í borginni ef breytingarnar yrðu að veruleika,“ segir Arna Garðarsdóttir, stjórnarformaður þess. Hjá borginni er jafnframt til skoðunar hvort sam- eina megi söfn borgarinnar í hag- ræðingarskyni en engin niðurstaða liggur fyrir. n Opnunartímar: 15. maí – 15. sept. alla daga kl. 11 - 18 eða eftir samkomulagi Sími: 483 1504 & 483 1082 | husid@husid.com | www.husid.com HÚSIÐ Á EYRARBAKKA Byggðasafn Árnesinga er staðsett í Húsinu, sögufrægum bústað kaupmanna sem var byggt 1765. Húsið er eitt elsta hús landsins og glæsilegur minnisvarði þess tíma er Eyrarbakki var einn helsti verslunarstaður landsins. Þar eru margar og áhugaverðar sýningar um sögu og menningu Árnesssýslu, fornfrægt píanó, herðasjal úr mannshári og koppur kóngsins eru meðal sýningargripa. Hlýlegur og heimilislegur andi er aðalsmerki safnsins. Húsið á Eyrarbakka J ónas Björn Sigurgeirsson bóka- útgefandi er gjaldþrota og má rekja það til hlutabréfavið- skipta sem hann átti við Kaup- þing þegar hann starfaði sem forstöðumaður upplýsingasviðs bankans fyrir hrun. Hlutabréfin sem hann keypti á sínum tíma voru hluti af launa- og hvatakerfi Kaupþings. „Ég hvorki gat né mátti selja þau, né heldur framfylgdi bankinn veð- kalli þegar bréfin lækkuðu eins og hann gerði í tilvikum almennra við- skiptavina sinna og var raunar hluti af starfsreglum hans,“ segir Jónas í samtali við DV. „Bréfin urðu verð- laus við fall bankans og ég sat eft- ir með lánin.“ Segir hann að sér hafi ekki verið heimilað að hafa hlutina í eignarhaldsfélagi eins og almennir viðskiptavinir bankans fengu og bæt- ir við: „Ég skulda engum neitt nema bankanum þessi lán sem voru raun- ar afskrifuð árið 2008.“ Hættur sem framkvæmdastjóri Jónas lét nýverið af störfum sem framkvæmdastjóri BF-útgáfu ehf., forlaginu sem gaf út rit hins um- deilda Egils „Gillzeneggers“ Einars- sonar. Að sögn Jónasar tengist gjald- þrotið ekki bókafélaginu á nokkurn hátt og starfar hann enn hjá því. Jónas hefur komið víða við undan- farin ár og sem framkvæmdastjóri átti hann stóran þátt í þeim vinsæld- um sem Egill Einarsson náði. Enginn er skráður sem framkvæmdastjóri útgáfunnar eins og er en fyrirtækið er í eigu þeirra Ármanns Þorvaldsson- ar, Baldurs Guðlaugssonar, Hann- esar Hólmsteins Gissurarsonar og Kjartans Gunnarssonar. Kraftmikil bókaútgáfa Á undanförnum árum hefur Al- menna bókafélagið gefið út bækur eftir Hannes Hólmstein og Ármann Þorvaldsson auk ýmissa annarra bóka, meðal annars eftir nafntog- aða sjálfstæðismenn. Útgáfan rekur sögu sína aftur til ársins 1955 þegar Almenna bókafélagið var stofnað sem menningarlegt mótvægi við Mál og menningu sem þótti einkennast af vinstrislagsíðu. Frumkvæðið áttu meðal annars Bjarni Benediktsson eldri, Geir Hallgrímsson og Eyjólf- ur Konráð Jónsson og naut félagið stuðnings þekktra rithöfunda á borð við Gunnar Gunnarsson, Guðmund G. Hagalín og Tómas Guðmunds- son. Eftir að félagið varð gjaldþrota á tíunda áratugnum keypti Vaka- Helgafell bókabirgðir þess. Jónas Sigurgeirsson eignaðist hins vegar nafnið árið 2011 og hefur sem fram- kvæmdastjóri gefið út ófáar bækur undir nafni Almenna bókafélagsins. Þær umdeildustu eru sem fyrr sagði bækurnar eftir Egil „Gillzenegger“ sem hafa verið gagnrýndar nokk- uð. Jafnvel sagðar einkennast af forneskjulegum staðalímyndum og kvenfyrirlitningu. Bækurnar hafa þó líka notið töluverða vinsælda og selst nokkuð vel. Keypti í fjárfestingarsjóði Fram kemur í skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis um bankahrunið að Jónas Sigurgeirsson var einn þeirra stjórnenda Kaupþings sem fengu lán hjá bankanum til kaupa á hlutum í fjárfestingarfélaginu Kaup- thing Capital Partners II Fund fyrir hrun. Lán vegna fjárfestinga starfs- manna í félaginu námu að minnsta kosti 109 milljónum punda eða ríf- lega 19 milljörðum króna og fékk Jónas 500 þúsund pund. Jónas hefur starfað með Hann- esi Hólmsteini að fleiri verkefn- um en bókaútgáfu í gegnum tíðina. Í fyrra komu þeir á fót hugveitunni Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt. Gegnir Jónas þar stöðu framkvæmdastjóra og er Hannes í rannsóknarráði setursins. n Jóhann Páll Jóhannsson blaðamaður skrifar johannpall@dv.is Bókaútgefandi í þrot n Fór flatt á hlutabréfaviðskiptum n Hættur sem framkvæmdastjóri „Bréfin urðu verðlaus við fall bankans og ég sat eftir með lánin Gjaldþrota Samkvæmt Lögbirtingarblaðinu er bókaútgefandinn Jónas Björn Sigurgeirsson gjaldþrota. Mynd: Vísir Fylgst verði með „hryðju- verkaferða- lögum“ Greiningardeild ríkislögreglu- stjóra telur að dvöl vestræns fólks á stríðshrjáðum svæðum geti leitt til að einstaklingar komist í kynni við öfgasinnaða hugmyndafræði. Auk- in hætta sé á starfsemi sem tengist hryðjuverkum þegar slíkir einstak- lingar snúi aftur til síns heima. Þetta er fullyrt í skýrslu sem birt- ist á þriðjudag og hefur að geyma mat ríkislögreglustjóra á skipulagðri glæpastarfsemi og hættu á hryðju- verkum. Kemur þar fram að hættustig- ið sé takmarkað og ekkert bendi til þess að verið sé að skipuleggja eða undirbúa hryðjuverkaaðgerðir gegn skotmörkum eða viðburðum á Ís- landi. Þó hafi ógn vegna hryðjuverka á Norðurlöndum aukist á undan- förnum árum. Fundið er að því í skýrslunni að möguleikar lögreglunnar á Íslandi til þess að fyrirbyggja hryðjuverk séu ekki þeir sömu og á hinum Norður- löndunum. Þykir skýrslu höfundum æskilegt að fylgst sé með svoköll- uðum „hryðjuverka ferðalögum“ en þá er átt við ferðir einstaklinga eða hópa til útlanda í því skyni að ganga til liðs við hryðjuverkasamtök og fá þar þjálfun. „Norðurlöndin beina sjónum sínum að Sýrlandi sem hugsanlegum áfangastað „hryðju- verkaferðamanna“ en einnig að Pakistan, Afganistan, Jemen og Sómalíu,“ segir í skýrslunni. Víkin Sjóminjasafnið skuldar borginni 40 milljónir króna. Mynd: dV Eldur í Magnúsi Eldur kviknaði í Skipasmíðastöðinni á Akranesi um miðjan dag á þriðju- dag. Eldurinn kom upp í bátnum Magnúsi SH sem verið var að lag- færa. Slökkviliðið á Akranesi kallaði eftir aðstoð Slökkviliðsins í Reykjavík og Borgarnesi. Þá kom þyrla land- helgisgæslunnar einnig á staðinn. Töluvert eignatjón varð en eldurinn barst ekki í aðrar byggingar eða báta. Engin slys urðu á mönnum en 30 starfsmenn skipasmíðastöðvarinnar komu sér út í tæka tíð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.