Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2013, Page 12
12 Fréttir 31. júlí 2013 Miðvikudagur
Lést eftir inntöku blásýru
n Virtur vísindamaður sagður hafa eitrað fyrir eiginkonu sinni
V
irtur bandarískur vísindamað-
ur, Dr. Robert Ferrante, hef-
ur verið ákærður fyrir að eitra
fyrir eiginkonu sinni. Ferrante,
64 ára, er sagður hafa laumað blásýru
út í drykk konu sinnar, Dr. Autumn
Klein, í apríl síðast liðnum með þeim
afleiðingum að hún lést. Ferrante hef-
ur um árabil starfað við rannsóknir
á Lou Gehrig-sjúkdómnum, tauga-
hrörnunarsjúkdómi sem er algeng-
asta form MND, og var hann talinn
einn fremsti vísindamaður heims á
því sviði. Ferrante hefur neitað sök í
málinu en eiginkona hans, sem var 41
árs, var einnig virtur taugalæknir.
Málið var tekið fyrir hjá dómstól-
um í vikunni og á Ferrante yfir höfði
sér lífstíðarfangelsi verði hann fund-
inn sekur. Samkvæmt saksóknur-
um í málinu setti hann blásýru út
í kreatín-blöndu eiginkonu sinn-
ar þann 17. apríl síðast liðinn. Sam-
kvæmt sönnunargögnum í málinu
höfðu þau reynt að eignast barn og
átti kreatín-blandan að auka líkurn-
ar á getnaði. Klein lést á sjúkrahúsi
þremur dögum síðar, eða þann 20.
apríl. Það sem saksóknurum þykir
benda til sektar Ferrante er sú stað-
reynd að hann keypti blásýru með
kreditkorti sínu án þess að þurfa á
henni að halda við rannsóknir sína
eða vinnu. Við kaupin lagði hann
áherslu á að fá eins hreina blásýru og
mögulegt væri, að sögn ABC News.
Samkvæmt lögregluskýrslum vildi
Ferrante ekki heldur að krufning færi
fram á líki Klein og vildi að það yrði
brennt eftir andlát hennar.
Ekki liggur fyrir, að sögn sak-
sóknara, hvers vegna Ferrante ban-
aði eiginkonu sinni eins og grun-
ur leikur á um. Þó benda þeir á að
Ferrante hafi grunað eiginkonu
sína um framhjáhald og spurt hana
nokkru fyrir andlátið hvort hún
héldi við annan mann. n
E
f manneskja er samkyn-
hneigð og leitar Guðs og hans
góða vilja, hver er ég til að
dæma?“ sagði Frans páfi við
fjölmiðla á mánudag á heim-
leið til Vatíkansins eftir viku dvöl í
Brasilíu.
Skoðanir hans þykja mun mildari
í garð samkynhneigðar heldur hjá
forverum hans en Frans hefur einnig
talað fyrir stærra hlutverki kvenna
innan kirkjunnar. Heimsókn páfa
til Brasilíu var hans fyrsta opinbera
heimsókn í embætti en hann tók við
af Benedikt sextánda sem var fyrsti
páfinn í margar aldir til þess að láta
af embætti vegna heilsubrests. Talið
er að um þrjár milljónir manna hafi
safnast saman á fjölmennum úti-
fundi sem páfi hélt á Copacabana-
ströndinni í Rio de Janeiro.
Á móti lobbí-isma
Þrátt fyrir mildari viðhorf páfa til
kvenna og samkynhneigðra standa
þessir hópar enn höllum fæti innan
kirkjunnar. Enn þá er litið á samkyn-
hneigð sem synd og konur geta
aldrei náð til hæstu metorða innan
kaþólsku kirkjunnar.
„Þetta er mjög vel útskýrt í spurn-
ingakveri Kaþólsku kirkjunnar,“ sagði
páfi við fjölmiðlamenn sem hann
ræddi við í flugvél sinni á heimleið frá
Brasilíu. „Það segir að ekki eigi að ýta
samkynhneigðum út á jaðarinn held-
ur sameina þá samfélaginu,“ sagði páfi
en tók fram að það væri álit Kaþólsku
kirkjunnar að samkynhneigðir gjörn-
ingar væru synd en ekki kynhneigðin
sjálf. Páfi sagði hagsmunagæslu eða
lobbí-isma verra vandamál. „Vanda-
málið er ekki að hafa þess kynhneigð.
Við verðum að vera bræður. Vanda-
málið er ýta undir þessa kynhneigð.
Eða lobbí-ismi gráðugs fólks, pólitík-
usa eða frímúrara. Lobbí-isminn er
vandamálið.“
Líkt og áður kom fram eru þetta
mun mildari viðhorf en forveri hans
Benedikt hafði til samkynhneigðra
en hann skrifaði meðal annars und-
ir plagg árið 2005 um að menn með
„djúpa samkynhneigð“ mættu ekki
gerast prestar.
Frans talaði einnig fyrir auknu
vægi kvenna innan kirkjunnar. „Við
getum ekki takmarkað hlutverk
kvenna við að vera altarisstúlkur eða
yfirmenn góðgerðarmála. Það verður
að vera meira.“ Það mun þó ekki ger-
ast í bráð að konur verði hátt settar
í kirkjunni þrátt fyrir opnara viðhorf
æðsta manns hennar. „Hvað varð-
ar prestvígslu þá hefur kirkjan talað
í þeim efnum og sagt nei. Sú hurð er
lokuð.“
Unga fólkið fái að tjá sig
Áður en páfi yfirgaf Brasilíu var hann
í sjónvarpsviðtali sem er mjög sjald-
gæft á meðal páfa. Þar var hann
meðal annars spurður út í það þegar
bifreið hans var umkringd af marg-
menni þegar bílstjóri hans villtist af
leið. „Ég var ekki hræddur. Ég veit að
það deyr enginn fyrir sinn tíma. Ég vil
ekki sjá fólkið sem er með svo stórt
hjarta í glerboxi,“ segir páfi og vísar
í skothelt varnargler sem páfar hafa
stundum komið fram í. „Öryggis-
teymið frá Vatíkaninu og það brasil-
íska stóðu sig vel. Ég veit að ég er
óagaður í þessum efnum.“
Fjölmennt lið ungmenna efndi
til mótmæla við komu páfa til Bras-
ilíu en hann sagði nauðsynlegt að
hlusta á ungt fólk. „Ung manneskja
er í eðli sínu frábrugðin norminu
og það er mjög fallegur hlutur. Það
er mikilvægt að hlusta á ungt fólk,
gefa þeim tækifæri til að tjá sig og
passa upp á að ekki sé ráðskast með
þau.“
Tal en engar aðgerðir
Frans páfi er Argentínumaður og
heitir réttu nafni Jorge Mario Berg-
oglio. Hann er fyrsti maðurinn frá
Suður-Ameríku til að gegna emb-
ættinu en þegar hann tók við emb-
ætti var mikið gert úr frjálslegum
skoðunum hans og fábrotnum
lífsstíl. Þrátt fyrir að páfi tali með
opnari hug til samkynhneigðra
og kvenna er ljóst að engin megin
breyting hefur orðið á stefnu Kaþ-
ólsku kirkjunnar. Páfi og kirkjan eru
enn á móti hjónabandi samkyn-
hneigðra, ættleiðingu samkyn-
hneigðra og fóstureyðingum. Þá
geta konur ekki orðið prestar nú
frekar en áður. Áfram standa því
samkynhneigðir og konur höllum
fæti innan kirkjunnar og lítið útlit
fyrir að breyting verði á því á næst-
unni. n
Ásgeir Jónsson
blaðamaður skrifar asgeir@dv.is
Talar fyrir frjálsræði
en engar breytingar
n Samkynhneigðir og konur standa enn höllum fæti
Ræðir við fjölmiðlamenn Þrátt fyrir
frjálslegra tal hafa engar raunverulegar
breytingar orðið enn þá. Mynd: ReUTeRs
Frans páfi Er frjálslyndari og
opnari en forverar sínir. Mynd: ReUTeRs
Pólitíkus stal
nektarmyndum
Tor Johannes Helleland, 23 ára
bæjarfulltrúi norska Íhaldsflokks-
ins í Drammen, hefur sagt af sér
embætti. Helleland hefur ját-
að að hafa brotist inn á iCloud-
reikninga ungra kvenna þar sem
hann stal meðal annars nektar-
myndum. Myndirnar setti hann
svo á klámsíður. „Ég var asni. Ég
skammast mín fyrir það sem ég
gerði og ég myndi gera allt til að
taka það til baka sem ég gerði,“
sagði Helleland í viðtali við VG.
Málið komst á rannsóknarstig í
febrúar síðastliðnum þegar ung
stúlka hafði samband við lögreglu
vegna mynda af henni sem birt-
ar höfðu verið á klámsíðum. Eftir
sex mánaða rannsókn fóru spjótin
að beinast að Helleland og ját-
aði hann við yfirheyrslur að hafa
brotist inn á iCloud-reikninga.
Tuttugu og eins árs stúlka sem var
fórnarlamb Hellelands segir við
VG að myndirnar sem hann stal
hafi ekki verið ætlaðar til birtingar
almenningi.
Svíþjóð
trekkir að
Það eru ekki bara Íslendingar sem
hafa orðið varir við aukinn straum
erlendra ferðamanna á undan-
förnum árum því algjör sprenging
hefur orðið í komu erlendra ferða-
manna til Svíþjóðar. Árið 2008
komu 8,9 milljónir erlendra ferða-
manna til Svíþjóðar en árið 2012
voru þeir 10,9 milljónir. Þetta
kemur fram í tölum frá greiningar-
fyrirtækinu Timetric og er það
mat fyrirtækisins að fjöldinn muni
aukast enn meira á næstu árum.
„Þrátt fyrir efnahagsniðursveifl-
una árið 2008 hefur ferðamanna-
iðnaðurinn blómstrað í Svíþjóð og
nemur hann nú 10,8 prósentum af
vergri þjóðarframleiðslu,“ segir í
tilkynningu frá Timetric.
Í haldi Ferrante
er sagður hafa
laumað blásýru út
í drykk Klein. Hann
grunaði hana um
framhjáhald.
Dauðadómur
fyrir mannrán
Dómstóll í Kenía hefur dæmt fyrr-
verandi hótelstarfsmann til dauða
fyrir þátt sinn í ráni á breskum hjón-
um árið 2011. DV fjallaði á mánu-
dag um sögu Juddith Tebbutt sem
var rænt ásamt eiginmanni sínum
og flutt til Sómalíu þar sem henni
var haldið fanginni í sex mánuði.
Hjónin höfðu verið á ferðalagi um
Afríku og komið sér fyrir á hóteli
skammt frá landamærum Sóm alíu
þegar sjóræningjar létu til skarar
skríða. Eiginmaður hennar, David,
var skotinn til bana við hótelið.
Hótel starfsmaðurinn, Ali Babitu
Kololo, 27 ára, var fundinn sekur en
hann benti sjóræningjunum á hjón-
in. Nokkru áður hafði honum verið
sagt upp störfum á hótelinu. Þrátt
fyrir dauðadóminn er búist við að
Kololo verði ekki tekinn af lífi enda
hefur enginn fangi verið líflátinn í
landinu síðan árið 1987. Mun hann
því að öllum líkindum dúsa á bak
við lás og slá það sem eftir er.